Dagur - 15.12.1998, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 1S. DESEMBER 1998 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Giýla komin til byggða
Grýlagamla verðurheiðurs-
gesturí Jólabæ íHafnarfirði
Jram aðjólum.
Grýla gamla er nú komin til byggða og
hefur hún hreiðrað um sig í Jólabæ við
Fjörukrána í Hafnarfirði. Þar hefur hún
fengið inni í alvöru Grýluhelli, þar sem
hún unir ánægð við sitt, ásamt syni sín-
um, Hurðaskelli, sem var henni samferða
af fjöllum.
Grýla er óvenju snemma á ferðinni í
ár, en ástæðan fyrir því er að hún er sér-
stakur heiðursgestur í Jólabæ í Hafnar-
firði.
Að sögn Grýlu var ferðin til byggða
mjög erfið, þar sem sama og enginn snjór
er enn til fjalla og þess vegna ómögulegt
að notast við sleða. „Eg varð þess vegna
að fá strákinn hann Hurðaskelli með mér,
því það er ekkert gagn lengur í honum
Leppalúða. Ég gat bara ekki sleppt þessu
góða boði, að vera heiðursgetur í Jólabæ
fyrir jólin. Mannaþefurinn hér í bænum
er alveg frábær," sagði Grýla og hræði í
pottinum, sem hún hefur komið fyrir á
hlóðunum í Grýluhelli.
Að sögn Jóhannesar Bjarnasonar, Jóla-
bæjarstjóra og veitingamanns í Fjöru-
kránni, var ráðist í að reisa alvöru Grýu-
helli fyrir gömlu konuna, þar sem hún
þvertók fyrir að gista á hóteli. „Þetta er
líka miklu þægilegra svona, því hún er þá
alveg út af fyrir sig og ræður sér alveg
Það var skuggalegt um að litast í Grýluhelli f Hafnarflrði, þegar Valli
víkingur kom þar í heimsókn. Hurðaskellir hrærir hér ípottinum hjá
Grýlu, en hvaö skildi vera í matinn?
sjálf á meðan hún er í heimsókn. Ég held
það sé líka best fyrir alla, því hún er enn-
þá svolítið föst í fortíðinni, blessuð,"
sagði Jóhannes.
I Jólabæ hefur verið komið fyrir hæsta
jólatré Iandsins og undir trénu er aðsetur
Hurðaskellis, þar sem hann heldur til
fram að jólum.
Jóhannes
sagði að þeir í
Fjörukránni
væru að búa til
skemmtilega
jólastemmningu
með opnun Jólabæjar og þar yrði ýmislegt
á dagskránni. „Við erum að opna Jólabæj-
arpósthús, þar sem hægt verður að senda
jólapóstinn með sérstökum jólastimpli.
Þar fer einnig fram jólapakkasöfnun
vegna friðarflugs til stríðshrjáðra barna,
en samhliða því verðum við með happ-
drætti til styrktar friðarfluginu. Þar verð-
ur aðalvinningurinn glæsilegt bjálkahús,
sem reist hefur verið hér í portinu, en þar
er Jólabæjarpósthúsið einmitt til húsa.
Einnig verðum við með jólabakarí á
vegum Kökumeistarans, jólasveina-
smiðju, sem er smfðastofa jólasveinsins
og svo erum við með opinn jólaskóla alla
virka daga fyrir börnin.
Um helgar verða síðan ýmsar aðrar
uppákomur og jólamarkaður verður op-
inn alla sunnudaga til jóla.
A Fjörukránni verður svo jólahlaðborð-
ið vinsæla opið alla daga í hádeginu og á
kvöldin," sagði Jóhannes Jólabæjarstjóri í
Hafnarfirði.
Grín gert að
reykmgnm
SVOJMA
ERUHÐ
Vigdís
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyija,
viltu gefa eða
skipta?
Vigdís svarar í
símann ld. 9—12.
H
Heilbrigðisyfirvöld um allan heim reyna að koma
því til leiðar að fólk byrji ekki að reykja og þeir
sem þegar eru byrjaðir, hætti. I Kaliforníuríld er
gert grín að þekktum tóbaksauglýsingum í þeirri
von að geti þær vakið hlátur, muni það vekja fólk
til umhugsunar um fíknina. Þessi auglýsingaherferð hefur
staðið síðan 1991 og hefur unnið til 12 verðlauna og fólk hefur
beðið um þessar auglýsingar á veggspjöldum til að hengja upp
heima hjá sér.
„Ég sakna lungna minna Bob!“
„Þú ilmar ómótstæðilega."
„Fýlan afþér er andstyggileg!"
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
„Er þér sama þó ég reyki?" „Er þér sama þó ég deyi?“
HVAfl ER Á SEYÐI?
UPPLESTUR Á SÓLON ISLANDUS
Miðvikudaginn 16. desember munu rithöfundar
lesa úr verkum sínum á 2. hæð á Sólon Islandus.
Upplesturinn hefst ld. 20.30. Jónas Jónasson les
upp úr Náðugu frúnni í Ruzomberok, Sögu Lauf-
eyjar Einarsdóttur í síðari heimsstyrjöldinni. Gunn-
ar Dal Ies úr ljóðabók sinni, Maður og jörð. Sús-
anna Svavarsdóttir les úr bókinni Ekki klúðra lífi
þínu, kona eftir bandaríska sálfræðinginn Dr.
Lauru Schlessinger, sem Súsanna þýddi. Kristín
Helga Gunnarsdóttir les upp úr bók sinni Keikó -
hvalur í heimsreisu.
Ævisaga þorsksins í Sjóminjasafni
I dag tekur Hreinn Ragnarsson sagnfræð-
ingur bókina Ævisaga þorsksins, fiskurinn
sem breytti heiminum, til umíjöllunar og
athugunar í boði Rannsóknaseturs í Sjáv-
arútvegssögu og Sjóminjasafns Islands.
Ritdómurinn verður fluttur í Sjóminja-
safni Islands, Vesturgötu 8 í Hafnarfirði
og hefst klukkan 20.30. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
I Sjóminjasafninu stendur nú yfir sýning
á ljósmyndum um jólahald sjómanna á
hafi úti. Svotil allar myndirnar eru tekn-
ar af áhugaljósmyndurunt, starfandi sjó-
mönnum um borð í skipum.
Happdrættisnúmer bókatíðinda
Vinningsnúmer í happdrætti Bókatíð-
inda: 12. desember: 8.290, 13. desem-
ber: 67.415, 14. desember 39.143.
Háskólafyrirlestur
Skúli Magnússon lögfræðingur og
stundakennari í réttarheimspeki við laga-
deild Háskóla fslands fjallar um efnið:
„Kenningar Ronald Dworkin um rétta
niðurstöðu í erfiðum dómsmálum.11
Málstofan verður haldin í stofu 201 í
Lögbergi og hefst kl. 16.00.
Kynningarfundur um Leonardó
5. umsóknahrinu Leonardó da Vinci
starfsmenntaáætlunar ESB hrint úr vör.
Af því tilefni verður boðið til kynningar-
fundar í Veitingastofu Tæknigarðs,
Dunhaga 5 kl. 12-13.30. Aðgangur er
ókeyjjis en þátttaka tilkynnist í síma
525-4900.
Félag eldri borgara í Ásgarði
Skák kl. 13 í dag. Bókmenntakynning ld.
14 í dag, rithöfundarnir Arni Gunnars-
son, Jón Kr. Gunnarsson, Guðrún
Helgadóttir og Dr. Jónas Kristjánsson
lesa úr nýútkomnum bókum sínum. Á
morgun er fyrirhuguð rútuferð um borg-
ina og jólaljósin skoðuð. Kaffi og með-
læti að lokinni ferðinni, farið frá Ásgarði
ld. 14.
Skáldatískan í Kaffileikhúsinu
í kvöld munu skáldkonurnar Vigdís
Grímsdóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir,
Kristín Ómarsdóttir, Gerður Kristný,
Auður Ólafsdóttir, Auður Jónsdóttir og
Linda Vilhjálmsdóttir ásamt Andreu
Gylfadóttur söngkonu troða upp í nýj-
ustu tískufötunum frá versluninni
Næloni og Jarðarber. Auk þess að lcynna
skáldatískuna, lesa þær úr verkum sín-
um. Húsið verður opnað kl. 20 og hefst
dagskráin kl. 20.30. Aðgangur er ókeyp-
is.
Iðnó
Tónleikaröðin á þriðjudögum í IÐNÓ
hefur heldur betur fest sig í sessi í tón-
listarlífi landsmanna. Allur tónstiginn
hefur verið klifinn á sviðinu í IÐNÓ: í
kvöld verður NÝDÖNSK á sviðinu og
einnig SUKKAT, en tónleikarnir eru
styrktartónleikar fyrir ílogaveik börn.
Blásarakvintett
Blásarakvintett Reykjavíkur og félagar
halda sína ánissu serenöðutónleika í
kvöld kl. 20.30 í Kristskirkju, Landakoti.
Jón Reykdal
Nú stendur yfir vinnustofusýning í til-
efni af nýuppgerðri vinnustofu Jóns
Reykdal að Bergþórugötu 55. Jón sýnir
þar málverk og módelteikningar. Mynd-
irnar eru frá síðustu ljórum árum. Jón
hefur haldið fjölda sýninga hér heima og
erlendis.