Dagur - 29.12.1998, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 - 21
OMpur_
LÍFIÐ í LANDINU
„Endanleg hamingj a! “
Bobbi, til vinstri, og Helgi - báðir í„brjálaðri pásu" frá jólatrjáasölunni. Eftir-
nöfn hljómsveitarmeðlima skipta ekki öllu máli. Á umslaginu kemur fram að
sveitina skipa Atli, Beggi, Bobbi, Gunní, Helgi, Hjálmar og Stína... mynd: brink
Markmiðfyrir mann-
kynið?Eftil vill. Nafn
á nýjum diski? Já.
Eyfirska hljómsveitin
Helgi og hljóðfæraleik-
aramirhafagefið út
sinn annan disk.
„Leyfum spilagleðinni
að njóta sín, “ er
mottóið.
Tveir meðlimanna, Helgi sjálfur
og Bobbi, veittu góðfúslega viðtal
á Þorláksmessu þar sem þeir
sötruðu kaffi í „bijálaðri pásu“
eins og þeir sögðu þegar við
heimsóttum þá inn í Kjarnaskóg
þar sem Skógræktarfélag Eyfirð-
inga seldi jólatré og fleira.
Eftirnöfnin virðast ekki skipta
máli og á umslaginu kemur að-
eins fram að í hljómsveitinni eru
Atli, Beggi, Bobbi, Gunní, Helgi,
Hjálmar og Stína... „Við höfum
verið að spila út um allar trissur
við alls konar undarlegar uppá-
komur," segir Helgi. „Við erum
nógu þekktir til þess að þegar
einhver ætlar að standa fyrir dul-
arfullri óvissuferð eða einhvers
konar uppákomu þá er einhver
sem þekkir til okkar,“ segir Helgi.
Af myndum að dæma virðast
sumir hljómsveitarmeðlimir ekk-
ert mjög gamlir og hljóta því að
hafa verið börn fyrir tíu árum
þegar starfið hófst...
„Þegar þú ferð að pæla í aldri
hljómsveitarmeðlima," svarar
Helgi, „semsagt að við séum
svona misjafnlega gömul, þá
verður að athuga eitt: Eg er ekki
nærri eins gamall og ég lít út fyr-
ir að vera.“
Hefðbimdið - óhefðbundið
- Hljóðfæmskipan er nokkuð
óvenjuleg, ekki satt?
„Við erum með alls kyns
ásláttargræjur," svarar Helgi.
„Við fórum og skoðuðum í dóta-
kassa sem til var í Tónabúðinni,
fullan af sérstökum hljóðfærum
sem ég kann ekki að nefna einu
sinni. Þetta virkar svona eins og
krydd. Ég uppgötvaði bara fyrir
fáeinum vikum síðan hvað hrist-
ur geta verið mikil hljóðfæri.“
„I raun og veru er hljóðfæra-
skipanin hefðbundin,“ segir
Bobbi. „Grunnurinn er bassi, gít-
ar, trommur og söngur. Síðan
erum við með nokkur aukahljóð-
færi.“
„Það má eiginlega segja að
það sé útbreiddur misskilningur
að við séum frumleg hljóm-
sveit," segir Helgi. „Þegar við
byrjuðum vorum við í þessum
hefðbundnu hljóðfærum en svo
fórum við að fikta við að prófa
eitt og annað. Eg held að það
hafi bara verið þörfin fyrir að
prófa eitthvað nýtt og lokast
ekki inni.“
Aðrir mega skilgreina
- Hin sígilda spurning: Hvers
konar tónlist spilið þið?
„Þjóðlagapönk,“ svarar Bobbi,
„er það ekki ágætis skilgreining,
að minnsta kosti svona í b!and?“
„Eitt svarið er það,“ segir
Helgi, „að þessi spurning kemur
aldrei upp þegar við erum að
vinna í tónlistinni. Það verða
aðrir að fá að skilgreina.“
„Þetta er bara mjög fjöl-
breytt," segir Bobbi, „til dæmis
er eitt sambalag á diskinum en
annars eru kannski einhver írsk
áhrif..."
„Já og svo er vonandi hægt að
finna einhvern þjóðlegan eða
jafnvel eyfirskan neista,“ segir
Helgi. „Það væri gaman ef hægt
er að finna einhvers konar sam-
eiginleg eyfirsk áhrif í poppi eða
rokki...“
- Þd ketnur Ingimar Eydal
upp í hugann...
„Já, einmitt," svarar Helgi.
„Við eigum svolítið sameiginlegt
með Ingimar Eydal. Eg var að
ræða þetta við kunningja minn
um daginn og okkur þótti að það
mætti sjá ákveðin einkenni á
eyfirskri tónlist. Menn eru að
reyna að vera svolítið lífsglaðir.
Eg held að við séum svolítið á
þeirri hillu þó að við séum
kannski þung inn á milli.“
Oll lögin á diskinum voru
tekin upp heima í stofu, að sögn
til að ná fram réttri stemmningu
og spilagleðinni og það segja
þeir að hafi tekist eins og þeir
ætluðu, fram komi einhver
ósvikinn blær. Hljómsveitin ná-
ist í heild sinni en á fyrsta disk-
inum hafi hún að einhverju leyti
týnst í græjunum.
„Eitt það besta við hljóm-
sveitina að minnsta kosti á tón-
leikum," segir Bobbi, „er spila-
gleðin og stemmningin og við
vildum reyna að ná einhverju af
því inn á diskinn.“ -Hl
Rétthentir/örvhentir
SVOiUA
ER LIFIÐ
Vigtfís
Stefánsdóttir
skrifar
©
Vigdís
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Vigdís svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstj ori@dagur. is
Þeir sem eru örvhentir hafa betra minni en þeir rétthentu. Ný-
Ieg rannsókn sýndi að mun fleir örvhentir gátu svarað því rétt
hvernig höfuð drottningar (í Bretlandi) sneri á smámynt en
hinir rétthentu. Þetta þykir líka bera vott um að þeir örvhentu
hugsi öðruvísi, - en það hefði ég nú getað sagt þeim án nokk-
urra rannsókna...
Gott ráð
Nú eru vfða uppi skreytingar á svölum þar sem gervigreni og
ljós Ieika aðalhlutverk. Stundum vill það reynast þrautin þyngri
að koma þessum skreytingum fyrir svo vel sé að Ioknum jólum,
en einn Iesandi stakk því að mér að best væri að nota Iaxapoka.
Þeir eru þess eðlis að hægt er að klippa þá í hvaða lengd sem
er og auðvelt að stinga löngum greinum með ljósum og öllu í
þá og binda svo bara fyrir báða enda. Þetta kallar maður nú
þjóðráð!
Friðsælt líf?
Dr. Richard Carlsson er breskur læknir sem umhugað er um
að fólki Iíði vel á meðan það potast í gegnum lífið. Hann hefur
gefið út tvær bækur um það hvernig best er að bera sig að en
megininntakið í ráðleggingum hans er það að vera ekki að
stressa sig upp yfir smáatriðum. Meðal þeirra eru eftirfarandi
ráð:
Mundu það bara að þegar þú deyrð er nokkuð víst að þú átt
eftir mörg atriði á „eftir að gera“ listanum þínum. I ákafa okkar
við að ljúka verkefnum gleymum við að eyða tíma með þeim
sem við elskum.
Settu þér það markmið að ljúka ekki setningum fyrir aðra.
Þeim finnst þú ekki vera að hlusta, heldur að þú viljir bara
komast að sjálfur.
Taktu frá fimm mínútur á dag til að sitja einn með sjálfum
þér og láttu l 11|~
ekki trufla þig.
Þetta endur-
nýjar þróttinn
og æfir þolin-
mæðina í leið-
inni.
Spurðu
sjálfan þig
þegar þú ert
að gera eitt-
hvað „óskap-
lega merki-
legt“: Mun
þetta skipta
máli eftir eitt
ár eða tvö?
■ HVAD ER Á SEYBI?
Hátíðarhljómar með Diddú
Listvinafélag Hallgrímskirkju gengst fyrir tón-
leikum á gamlársdag með yfirskriftinni Hátíð-
arhljómar við áramót. Operusöngkonan Sigrún
Hjálmtýsdóttir, trompetleikararnir Ásgeir H.
Steingrímsson og Eiríkur Orn Pálsson og Dou-
glas Brotchie organisti Hallgrímskirkju flytja
aríur. Þetta er í fimmta skiptið sem áramótum
er fagnað með trompet- orgelleik í Hallgríms-
kirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og þeim lýk-
ur kl. 17.45. Miðasala fer fram í Hallgríms-
kirkju.
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Blysför í Elliðaárdal
Ferðafélag Islands kveður ferðaárið á
veglegan hátt, annars vegar með blysför
um Elliðaárdal í dag, þriðjudaginn 29.
desember, og svo með árlegri áramóta-
ferð í Þórsmörk, sem farin verður 30.12
-2.1. Dvalið verður í Skagljörðsskála í
Langadal og þar verður fjölhreytt dagskrá
við allra hæfi, en enn er hægt að fá miða
að Mörkinni 6.
Brenna í Kópavogi
Eins og undanfarin ár efna Breiðablik,
Hjálparsveit skáta í Kópavogi og Kópa-
vogsbær til áramótabrennu í Smáranum,
félagssvæði Breiðabliks. Kveikt verður í
brennunni kl. 20.30 og kl. 21.15 hefst
flugeldasýning. Söngvarar og harmon-
ikuleikarar verða á svæðinu.
Lífæðar 1999
Myndlistar- og ljóðasýningin Lífæðar
verður sett upp á ellefu sjúkrahúsum
víðsvegar um landið á árinu 1999 í boði
Glaxo Wellcome á Islandi. Sýningin
verður opnuð á Landspítalanum þann 8.
janúar ld. 14.00. Tólf myndlistarmenn
sýna samtals þrjátíu og fjögur myndverk
og tólf ljóðskáld birta átján ljóð. Lista-
mennirnir eru á ólíku aldursreki en allir
leggja þeir út frá lífinu og tilverunni.
Myndlistarmennirnir eru: Bragi Ásgeirs-
son, Eggert Pétursson, Georg Guðni,
Haraldur Jónsson, Helgi Þorgils, Hreinn
Friðfinnsson, Hulda Hákon, ívar Brynj-
ólfsson, Kristján Davíðsson, Osk Vil-
hjálmsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir og
Tumi Magnússon. Ljóðskáldin eru: Bragi
Ólafsson, Gyrðir Elíasson, Hannes Pét-
ursson, Ingibjörg Haraldsdóttir, ísak
Harðarson, Kristín Ómarsdóttir, Sigurð-
ur Pálsson, Sjón, Matthías Johannessen,
Megas, Vilborg Dagbjartsdóttir og Þor-
steinn frá Hamri.
Vinningsnúmer Happdrættis Bókatíð-
inda
Hér að neðan birtast öll þau númer sem
dregin voru út í Happdrætti Bókatíðinda
í desember 1998.
75.464 - 25.531 - 34.331 - 67.029 -
11.799 - 94.454 - 98.601 - 00.333 -
56.734 - 35.920 - 15.601 - 08.290 -
67.415 - 39.143 - 41.750 - 91.115 -
18.238 - 80.036 - 86.311 - 02.361 -
00.517 - 79.035 - 85.424 - 63.742.