Dagur - 05.01.1999, Síða 1

Dagur - 05.01.1999, Síða 1
Meiðandi, særandi, hörð þjóðfélagsádeila eða fyndinn skemmtiþáttur? Heilalausir stjóm- málamenn eða stjómmálamenn sem strípa á sviði? Enn eitt áramótaskaupið hefur veríð sýnt í Sjónvarpinu. Oflangtgengið? Stjómmála- mennimir taka gríninu afstakrí kvenmennsku. Irwi í strætóskýlinu og komast ekki út. Finnur Ingólfsson segist aðeins hafa brosað öðru hvoru, skaupið hafi verið „allt í lagi“ en ekki meira, „aðeins meðalskaup". Stjórnmálamennirnir fengu sinn skammt af áramótagríni Sjón- varpsins að þessu sinni og að- dróttanirnar fóru fyrir brjóstið á sumum. Þannig var til dæmis tal- að um heilalausan apa í sömu andránni og nafn Finns Ingólfs- sonar var nefnt og Ingibjörg Pálmadóttir var látin strippa á sviði. Til að gæta pólitísks jafn- vægis fengu svo samgönguráð- herra og sjávarútvegsráðherra sinn skammt. Dagur bar skaupið undir nokkra í eldlínunni. „Mér fannst þetta vel unnið skaup og íyrst og fremst fyndið. Mér finnst aðalatriðið að fólk hafi gaman af skaupinu," segir Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- isráðherra, sem hafði tvífara sinn, Margréti Guðmundsdóttur, í þættinum. ,/Etli ég bjóði henni ekki bara vinnu í ráðuneytinu. Það getur verið ágætt að hafa svona manneskju í verk sem maður vill ekki vinna sjálfur..." Ingibjörg segist á köflum ekki hafa verið alveg viss hvort Sjón- varpið væri að sýna gamla upp- töku, svo vel hafi Margrét náð sér. „Þegar ég var að horfa á þátt- inn rifjaðist upp fyrir mér þegar hún lék í „A sama tíma að ári“ fyrir 20 árum. Þá var ég stoppuð hvað eftir annað á Laugavegin- um og fólk sagði: „Þakka þér innilega fyrir þennan frábæra leik“,“ segir Ingibjörg. Arið í spéspegil Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segist oft hafa skemmt sér betur yfir skaupinu en að þessu sinni. Hann segist hafa brosað öðru hvoru, skaupið hafi verið „allt í lagi“ en ekki meira, „aðeins meðalskaup". Skaupinu hafi ekki verið misbeitt með nokkrum hætti að þessu sinni og það hafi verið farið vel með þegar grín hafi verið gert að persónum. „Mér finnst að skaupið eigi að setja árið í spéspegil og oft á tíð- um hefur það tekist vel. En mér finnst ekki að skaupið eigi að vera þjóðfélagsádeila eða leggja einstaka menn í einelti. Eg tel að það hafi ekki verið gert að þessu sinni.“ - Hvaða einkunn mundirðu gefa þessu skaupi? „Þetta var meðalskaup.“ Meiðandi og særandi? „Vel unnið skaup, “ telur Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra sem hér er á skurðarborðinu í Skaupinu. Óvenjulítt spaugilegt „Eg hafði óvenjulega lítið gaman að þessu skaupi, mér fannst það ekki vera hlægilegt. Það var fátt „Mér fannst vanta húmorinn í skaupið í heild," segir Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Á myndinni eru tveir með Ijósleiðara í skurði. sem ég brosti að. Tilvitnanir í sjónvarpsauglýsingarnar okkar fannst mér ósköp lítið spaugileg- ar en á engan hátt særandi. Mér fannst vanta húmorinn í skaupið í heild," segir Kristján Ragnars- son, framkvæmdastjóri LIU. Sjónvarpsauglýsingar LIÚ voru meðal þess sem tekið var fyrir í áramótaskaupinu í Sjónvarpinu. Kristján segist oft hafa hlegið að skaupinu en ekki gert það að þessu sinni og það hafi ekkert haft með þessar tilvísanir í aug- lýsingarnar að gera. Það skop hafi verið meinlaust. Reyndar hefði verið hægt að hafa þá um- fjöllun mun skemmtilegri en reyndin varð. „Mér kom sjaldan bros á vör sem er andstætt við það sem yfir- leitt hefur verið,“ segir Kristján. „Mér fannst vanta að tengja skaupið við atburði á árinu. Mað- ur var í sumum tilvikum utan gátta og ekki mikið um tilvitnan- ir í þekktar persónur nema þenn- an ágæta heilbrigðisráðherra. Mér fannst vanta tilvísun í fleiri af okkar ágætu landsfeðrum. Skaupið hefði mátt vera skarpara og meiri húmor." -GHS VCM51GM 'mSíýi'rí-x VCM30BSIW nmD VCMH71SM milLLL SHARR VCM300SM • Tveggja hausa • Árs minni • 8 liða • Scart tengi • Allar aðgerðir á skjá • íslenskur leiðarvísir SHARR VCM51SM • Fjögura hausa • Árs minni * Myndvaki * 8 liða * 2xscart tengi • SP/LP * Allar aðgerðir á skjá • Sjálfvirkur hreinsi- búnaður * Islenskur leiðarvísir SHARR VCMH71SM • Fjögura hausa • Árs minni* Myndvaki • 8 liða * 2xscart tengi • Nicam Sterfó • SP/LP • Ntsc afspilun • Allar aðgerðir á skjá • Sjálfvirkur hreinsi- búnaður • íslenskur leiðarvísir Umbo&stnenn um land allt Umboðsmenn: Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafver, Bolungarvlk. Straumur, (safirði. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA, Lónsbakka. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Lóniö Þórshöfn. Austurland: Kaupfólag Vopnfiröinga.Vopnafirði. Kf. Hóraösbúa, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kaupfélag Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. Vélsmiöja Hornafjarðar, Höfn Hornafirði. Suðurland: Arvirkinn, Selfossi. Rás, Geisli.Vestmannaeyjum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.