Dagur - 05.01.1999, Qupperneq 2
18-I>H1DJUDAGVR S. JAÍíÚAR 1999
rD^mr
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Úr næsta nágrenni
Sætavísan tók eftir því að maður lá þversum
yfir þrjú sæti í bíóinu. Hún fór til hans og
hvíslaði: „Það er bannað að teygja sig yfir
mörg sæti. Þú keyptir bara einn miða, hann
gildir bara fyrir eitt sæti.“ Maðurinn haggaðist
ekki og þetta endaði með því að sætavísan hót-
aði að sækja bíóstjórann, sem hún og gerði.
Bíóstjórinn gat ekki heldur fengið manninn til
þess að færa sig og þar sem hann vildi ekki
standa í handalögmálum sjálfur kallaði hann á
lögregluna. Lögregluþjónn kom og bað mann-
inn um að setjast upp en hann rótaði sér ekki.
Þá tók lögregluþjónninn upp blokk og spurði:
„Hvaðan kemur þú?“ Þá loks sýndi maðurinn
viðleitni til að svara og þó með erfiðismunum:
„Ofan af svölunum...“ Þessi ágæta saga birtist
í Urvali.
Ofurlöggurnar
talið frá vinstri:
Gunnar
Jóhannsson sem
varð í 2. sæti,
Jón Valdi-
marsson „ofur-
lögga" og
Magnús Axels-
son sem var í 3.
sæti.
„Ég heyrði einu
sinni sögu af sjó-
manni sem var í
sumarfríi. Maður
kom heim til við-
komandi en kona
hans sagði að
hann væri ekki
heima - hann væri
niður við höfh að
þefa. Ætli verði
ekki eins með
mig, ætli ég verði
ekki oft niður við
höfn að þefa!“
Helgi Hallvarðsson
skipherra í blaða-
viðtali í tilefni þess
að hann er að láta
af störfum.
Orðaleitór
Krakkar eru oft fljótir að Iæra og tileinka sér
ýmsa orðaleiki. Sjö ára gamall dóttursonur
minn kom til mín um daginn og sagði: „Afi,
hefurðu sé kúrekastígvél?" Ég sagðist oft hafa
séð kúrekastígvél. „Hefurðu virkilega séð kú
reka stígvél?" spurði sá stutti og hafði gaman
af að sjá að leikurinn hafði heppnast. Hann
spurði mig síðan hvort ég hafi séð sólberja-
sultu og ís í boxi?
Ektó í gangi
Spænsk frú fór á sínum tíma til Parísar að láta
Picasso mála sig. Þegar hún snéri heim með
myndina og kom að Iandamærunum þvertóku
Iandamæraverðirnir fyrir að myndin væri af
frúnni. Málari var fengin til að skoða hana og
sagði umsvifalaust að hér væri ekki um
mannsmynd að ræða. Sennilega væri þetta
mynd af vél. Þá var verkfræðingur fenginn til
að líta á myndina. Eftir nokkra stund sagði
hann: „Hvort þetta sé mynd þori ég ekki að
dæma um. Hugsanlega getur þetta verið vél en
eitt er víst. Ef þetta er vél er hún ekki í gangi.“
Ljóðin sendi af munni
Ég hef stundum birt vísur eftir þann snjalla
hagyrðingin og Húnvetninginn Jón S. Berg-
mann. Hann var jarðsettur að Melstað í Mið-
firði. I eftirmælastökum sem Valdimar
Kamillus orti um Jón S. Bergmann er þessa
vísu að finna:
Hreina kenndi lista leið,
Ijóðin sendi afmunni,
orðin hrenndu og það sveið
undan hendingunni.
Ofurlöggur
Mikil Ieynd hvílir yfir keppninni fjdiífhljfl Pr PkkÍ flCTlt af starfi lögreglumannsins að vera
en Olafur Asgeirsson, aðstoðaryf- * igóðri þjdlfun...
irlögregluþjónn og formaður hdldíl UVVÍ lÖgUTtl ”Já> l)e8ar Þeir eru bunir að
íþróttafélags lögreglunnar á Ak- * keyra sig alveg í botn þurfa þeir
ureyri, opinberar hluta leyndar- qsJ rpdlji A A kUTCVTÍ að svara mjög erfiðum spurning-
o o ’ J um Qg þag getur reynt verulega á.
kevva menn á hverju Á l)etta re>’nir sl1eIlt ,hJ£\ |ögreglu-
-rjr J mönnum. Þeir Ienda kannski í
hörkuáflogum og þurfa svo að
málsins fyrir lesendum Dags.
Keppnin er mest til gamans en
henni fylgir nokkur alvara líka.
„Við höfum ekki viljað gefa
upp í hverju þessi keppni er,“
segir Ólafur Ásgeirsson, „en ég
get sagt þér frá einni gamalli
keppni. Þá mættu menn hér á
lögreglustöðina á reiðhjólum og
hjóluðu niður að Glerárósum.
Þar þurftu menn að vinna ákveð-
ið verkefni og taka síðan hjólin á
bakið og vaða yfir Glerána. Þaðan
upp á öskuhauga hér upp í fjalli. Síðan skildu
þeir hjólin eftir og hlupu upp að skátaskálanum
í Fálkafelli. Þá fóru þeir áfram suður fjallið og í
annan skátaskála sem er ofan við Kjarnaskóg og
þaðan var hlaupið niður í Kjarnaskóg. Þar biðu
líka hjólin eftir þeim og þeir áttu að hjóla á fullu
niður á Iögrelgustöð. Þetta voru um tuttugu
kílómetrar. Tíminn og samanlagður árangur úr
verkefnunum réðu því hver sigraði." Ekki
sluppu þátttakendur með það eitt að hlaupa,
hjóla og vaða, heldur þurftu þeir á hverjum stað
að leysa eitt verkefni.
Hæfari en eUa
Olafur hefur skipulagt keppnina og þátttakend-
ur fá ekkert að vita fyrirfram en þó er hún aug-
lýst með dágóðum fyrirvara þannig að menn
hafí tækifæri til þjálfunar.
- Ollu gamni fylgir nokkur alvara. Það er hluti
árí um sæmdarheitið
„ofurlögga“.
SPJALL
hjólað
taka einhverja skynsamlega
ákvörðun rétt á eftir. Það er það
sem þeir þurfa að gera í þessari
keppni, hún byggir þannig á
starfinu.
- Þannig að þetta er góð viðhót
við starfið.
„Já, við teljum það og þeir sem
fara í gegnum þetta eru hæfari en ella. Þeir hafa
mjög gott af því. Við auglýsum þetta alltaf með
góðum fyrirvara þannig að menn hafa tíma til
að æfa sig. En þeir vita ekki hvort verður hlaup-
ið, hjólað, synt eða hvað. Þeir hafa svo sannar-
lega þurft að synda, vaða, verða rennandi blaut-
ir í skítakulda en halda svo áfram.“
Um þrjátíu lögreglumenn starfa á Akureyri.
Ekki er um skylduþátttöku að ræða og í keppn-
inni nú tóku níu lögreglumenn þátt. Spurður
hvort þar hafi ekki aðallega verið yngri mennirn-
ir á ferð bendir Ólafur á að tveir af verðlauna-
höfunum séu á fertugsaldri og einn orðinn fer-
tLigur.
„Þeir yngri eru stundum fljótastir en þeir falla
kannski á því að svara og þegar menn eru virki-
lega lúnir getur verið erfitt að svara því hver er
fprseti bæjarstjórnar svona til dæmis,“ segir
Ólafur Asgeirsson. - hi
F 4 DEGI TIL DAGS
Það getur hvaða hálfviti sem er logið,
en það þarf snilling til að ljúga vel.
Samúel Butler.
Þetta gerðist 5. janúar
• 1825 missti Alexandre Dumas buxurn-
ar niður um sig í fyrsta einvígi sínu.
• 1839 kom Davy Crockett til Texas.
• 1896 uppgötvaði Roentgen X rays eða
röntgengeisla.
• 1926 tilkynnti James Cox hjá Ford
Motors 8 klst. vinnudag og 5 dollara
lágmarkslaun á klst.
Þau fæddust 5. janúar
• 1938 fæddist Jóhann Karl Spánarkon-
ungur.
• 1932 fæddist ítalski rithöfundurinn og
táknfræðingurinn Umberto Eco.
• 1928 fæddist Walter F. Mondale, sem
var varaforseti Bandaríkjanna 1977-81.
• 1928 fæddist Zulfikar Ali Bhutto, fyrr-
verandi forseti og forsætisráðherra
Fakistans.
• 1926 fæddist bandaríska skáldið W.D.
Snodgrass.
• 1921 fæddist svissneski rithöfundurinn
Friedrich Djrenmatt.
• 1833 fæddist norski textafræðingurinn
Sophus Bugge, sem á sínum tíma gaf
út Eddukvæði með miklum myndar-
brag.
Vísa dagsins
Vísa dagsins er eftir Stephan G.
Hlæjum þrótt í líf og Ijóð
lúa þótt við höfum
kemur nóttin næðingsgóð
nógu fljótt t gröfum.
Afmælisbam dagsins
Konrad Adenauer var fyrsti kanslari
V-Þýskalands og einn af áhrifameiri
stjórnmálamönnum aldarinnar. A
kanslaratíð sinni (1949-63) Iagði
hann mesta áherslu á hlutverk
Þýskalands í uppbyggingu Evrópu
með nánum tengslum við Bandaríkin
ásamt því að ná sáttum við Frakka.
Adenauer fæddist í Köln 1876 en
Iést 19. apríl 1967.
Sigga er veik
I gagnfræðaskólanum gildir sú regla að sé
nemandi veikur eða þurfi frí, þá eigi for-
eldri eða forráðamaður að tilkynna það.
Sigga ákvað einn daginn að hún vildi held-
ur eyða deginum í mollinu en skólanum og
hringdi í skólann og eftirfarandi samtal
átti sér stað:
Sigga: „Ég er að hringja til að tilkynna
að Sigga er veik í dag.“
Ritari skólans svaraði: „Æi, það var leitt.
Ég læt vita strax. Hver er það sem hringir
með leyfi?"
Sigga: „Þetta er móðir mín.“
Veffang dagsins
Iþróttaáhugamenn og þeir sem vilja prófa
nýja orkudrykki ættu að kíkja inn á:
www.itn.is/Ieppin þar sem ýmsar íþrótta-
vörur eru kynntar.