Dagur - 12.01.1999, Qupperneq 4

Dagur - 12.01.1999, Qupperneq 4
20-ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 19 9 9 Ðœ^wr BRÉF TIL KOLLU Elsku Kolla. Þegar ég var Iítil var ég stundum send í sveit á sumrin. Ymist norður í land til frænda eða þá til kunningjafólks í Borgar- firði. Þó svo að allir væru afskaplega góðir við mig, var ég svo illa haldin af heimþrá, að ég straukjafn- harðan. Fór rakleitt heim - heim til mömmu. Skelfing gat ég verið háð henni mömmu. Eg bókstaflega hékk í pils- faldinum á henni; vildi aldrei frá henni víkja. Eg man ekki, hvenær þessi móðurþrá eltist af mér. Líklega ekki fyrr en ég horfði á eftir mömmu í gröfina, og ég var orðin fullorðin kona, margra barna móðir. Þetta var sár tilfinning, hamslaus og nístandi. Núna um jólin eftir öll þessi ár fann ég aftur þennan óstjórnlega sársauka í brjóst- inu. I fyrsta skipti - eftir heilt ár í útlöndum - fékk ég heimþrá. Búin að missa af jólimiun Auðvitað var ég staðráðin í að halda íslenzk jól hér í Ameríkunni. Allt skyldi vera eins og heima. Guðsorðið, rjúpurnar og gjafirnar. A aðfangadag var ég komin snemma á fætur, búin að steikja rjúpurnar og setja þær í pott- inn fyrir hádegi. Súrsæta angan af heimalög- uðu rauðkáli lagði um allt húsið. Hrísgrjóna- búðingurinn var kominn inn í ísskáp. Seinna um daginn ætlaði ég að sjóða kartöflur, brúna þær og laga sósuna. Hver mínúta skipulögð. AUt skyldi komið á borðið, áður en hátíðin gengi í garð klukkan sex. Eg hafði engan tíma til að klæða mig, var enn í náttbuxunum undir gömlum sumar- kjól, sem ég nota í eldhúsinu. Atti eftir að fara í sturtu, finna eitthvað tíl að fara í og mála á mér varirnar. Fólkið mitt var allt á þönum. Sumir voru farnir í bæinn til að kaupa seinustu jólagjafirnar, aðrir voru uppi á lofti að pakka inn. Einhver var að Iáta renna í bað. Allir skyldu vera hreinir og stroknir á aðfangadagskvöld. Þetta var svo spennandi. Börnin voru óróleg, eins og gefur að skilja. Eg ætlaði að fara að skera bringurnar frá beinunum, þegar síminn hringdi. „Gleðilega hátíð, mamma mín.“ Drottinn minn dýri. Þetta var Glúmur. Hann var að hringja frá íslandi. Ég var búin að gleyma því. Það var auðvitað fyrir löngu búið að hringja inn jólin heima. Þau voru öll búin að hlusta á prest- inn í útvarpinu, syngja jólasálmana, búin að borða jólasteikina, og búin að taka upp pakk- ana, meira að segja. Ég sem hafði ætlað að halda íslenzk jól, syngja í takt við þjóð mína, gera allt eins og heima. Þess í stað stóð ég hér í ókunnri barg, ótilhöfð í náttbuxum og sumarkjól, kartöflurnar enn ekki komnar í pottinn og kjötið enn á beinunum. Búin að missa af jólunum. Hamslaus heimþrá. Heim, heim, heim. Fyndni á jóladag Ekki tók skárra við daginn eftir. Við ákváðum að fara í messu. Dómkirkjan í Washington er tíu sinnum stærri en Hallgrímskirkja. Ekki ósvipaður byggingarstíll, nema hvað þessi kirkja er ómáluð. Biskupakirkja. A veggjum hengu grænar greinar. Litur þeirra fór vel við gráan steininn. Ég hef sjaldan séð svona margt fólk sam- ankomið. Hvert sæti var skipað. Haus við haus. Heilt haf. Sumir voru í sfnu fínasta skarti eins og við, aðrir í gallabuxum og peys- „Gamlaárskvöld er eins og leikrit, sem er fært upp aftur og aftur á hverju ári í sömu ieikgerð. Nýir leikendur bætast bara í hópinn. Leikmyndin breytist með tíðar- andanum. Um mið- nætti nær verkið há- punkti. Kirkjukiukk- urnar hringja inn nýtt ár, og það er skálað í kampavíni. Þvílík víma. Þvílík sorg og þvílík gleði. Við syrgj- um gamla árið, fögn- um því nýja. - Þetta fór allt fram hjá mér að þessu sinni." Hamslaus heimþrá um. Það er bara svona í Ameríku. Það voru auðvitað engin sæti laus. Við fikruðum okk- ur inn eftir kirkjugólfinu, nær altarinu. Skimuðum til beggja átta. „Þarna eru tvö sæti laus,“ sagði Snæfríður dóttir mín. Jón Baldvin hélt á Mörtu dóttur hennar. Sætin voru innarlega á bekk, reyndar tveir stólar. Sá þriðji var þakinn yfirhöfnum, úlpum og frökkum, húfum og treflum. „Er þessi stóll laus,“ spurði ég nærstadda. „Nei,“ var svarað um hæl. „Þessi stóll er fyrir fatlaðan bróður minn, sem er rétt ókominn." „Fyrirgefið,“ sagði ég. „Þá stend ég bara hér fyrir aftan.“ Hin voru þegar setzt. Þá leit maðurinn upp - sá sem átti fatlaðan bróður - horfði í augun á mér, og sagði: „Nei, annars, ég var bara að grínast. Þú mátt fá þennan stól.“ Allir fóru að hlæja. Þeim fannst maðurinn fyndinn. Og það á sjálfan jóladaginn. En það er bara svona í Ameríku. Mér fannst hálfþartinn, að ég væri aftur búin að missa af jólunum. Heim, heim, heim. Lcikrit fer úrskeiðis Æ, svo voru það sjálf áramótin, Kolla mín. Hvað mig Iangaði heim. Það kann greinilega enginn að halda hátíð eins og Islendingar. Heima tekst okkur að blanda saman til- hlökkun, hátíðleik, dramatískri spennu og gleði. Gamlaárskvöld er eins og Ieikrit, sem er fært upp aftur og aftur á hverju ári í sömu leikgerð. Nýir leikendur bætast bara í hóp- inn. Leikmyndin breytist með tíðarandanum. Um miðnætti nær verkið hápunkti. Kirkju- klukkurnar hringja inn nýtt ár, og það er skálað í kampavíni. Þvílík víma. Þvílík sorg, og þvílík gleði. Við syrgjum gamla árið, fögn- um því nýja. - Þetta fór allt fram hjá mér að þessu sinni. Að vísu vorum við með vinum, uppáklædd í smoking og rauðum kjól, en Ameríka er bara svona. Flestir voru í gallabuxum og peysum. Það var ekkert syrgt, og engu fagn- að. Kampavínið gleymdist inni í ísskáp, og klukkan fimm mínútur yfir tólf voru allir farnir. Attu sjálfsagt langan veg að fara. Leikritið fór úrskeiðis. Það reis aldrei, náði aldrei hápunkti. Rann bara út í sandinn. Daginn eftir var vinnudagur, útsölur í hverri búð! Islenzka leikritið komst aldrei á svið, og þess vegna missti ég af áramótunum líka. Nístandi heimþrá. Heim, heim, heim. En svona eftir á að hyggja, hvernig væri að færa upp nýtt leikrit í nýju landi? Reyni það næst. Gleðilegt ár, elskan. Þín Bryndís ■menningar I LÍFIfl Raddir sló ígetfn Markaourinn er óútreiknan- legur og þeir hafa sennilega klórað sér á skallann hjá Jap- is þegar í ljós kom að fremur ólíkleg söluvara, gamlar upp- tökur á íslenskum kvæða- mönnum sem gefnar voru út á geisladisknum Raddir, rokseldist (svona miðað við efnið) og er búin að fara í yfir 1000 eintökum. Til saman- burðar má geta þess að ein helsta rokksveit landsins, Unun, hefur ekki selst nema í um 800 eintökum. As- mundur Jónsson í Japis segir söluna hafa verið „öðruvísi" en oft áður og nefnir t.a.m. að klassískar plötur eins og Jórunn Viðar, Pétur Jónasson gítarleikari og Sverrir Guð- jónsson kontratenór hafi ver- ið að seljast í um 6-800 ein- tökum og sé það heldur meiri sala á klassík en undanfarin ár. „Ég held bara að ungling- arnir hafi keypt meira af er- lendum diskum en oft áður. Það var engin svona sprengja eins og var í kringum Quarashi í fyrra,“ segir Asi og telur að tölvuleikir og fleiri íslenskir titlar sem dreifi söl- unni valdi þar nokkru um. M.a.s. söluhæsta poppplatan hjá Japis, Botnleðja, seldist bara í um 1500 eintökum sem er fjórum sinnum minna en fór af Quarashi í fyrra. Botnleðja heldur þó senni- lega áfram að seljast enda var hún valin plata ársins af mörgum gagnrýnendum... Viltu læra að búa tilbíó? Nýtt námskeið í kvikmynda- gerð er að hefjast hjá Kvik- myndaskóla Islands þann 1. febrúar og stendur það til 27. mars. Bæði verða þar dag- og kvöldhópar þannig að dag- vinnufólk ætti Iíka að komast að, en kennt er Ijórum sinn- um í viku og á Iaugardögum. Innritun verður dagana 25. og 26. janúar kl. 14-16 og kostar námskeiðið 120.000 kr. Og þetta er ekkert mála- myndanámskeið - ýmsir út- skrifaðir nemendur hafa fengið vinnu við kvikmynda- gerð og/eða styrki úr Kvik- myndasjóði Islands að námi loknu... Lóa Akfisardóttir Frískleg fréttastofa Ég skemmti mér ekki ýkja mikið yfir Ara- mótaskaupi sjónvarpsins sem var með allra bragð- daufasta móti. Það var fréttastofa Stöðvar 2 sem sá um skemmtunina á gamlárskvöld með frétta- annáli sínum sem oft var óborganlega fyndinn. Þama var kostulegt faðmlag Davíðs og Hall- dórs sem skotið var inn í umfjöllun á sérlega hnyttinn hátt og lygaþvælur MEninnniGAR VAKTini Kolbrún Bergþorsdottir skrifar Clintons komust einkar vel til skila og er þá ein- ungis tvennt talið upp af því fjölmarga sem gladdi. Fréttamennirnir höfðu samið handrit þar sem léttleiki og áreynslulaus fyndni var í fyrirrúmi og þar var líka rúm fyrir skoðanir og niðurstöður. Tónlist- in sem Ieikin var undir var skemmtilega valin og klippingar voru sérlega hug- myndaríkar. Með fullri virðingu íyrir fréttastofu Ríkissjónvarps þá efast ég um að hún geti geislað á þennan hátt jafnvel þótt henni væri leyft það. Arið 1998 átti sínar harmsög- ur og fréttastofunni tókst mjög auðveldlega að skipta um tón og gera dramatíkinni skil á áhrifamikinn hátt. Þar var mjög smekklega unnið. Þegar upp var staðið hafði fréttastofan skilað af sér sérlega upplýsandi þætti sem var jafnframt hin besta skemmtun. Maður fékk á tilfinninguna að þarna væri við stjórnvöl hópur fólks sem hefði gaman af vinnunni sinni. Ég er mikill aðdáandi frétta- stofu Stöðvar 2 sem er djörf og óhrædd í fréttamennsku sinni. Hún er líka skemmtileg, eins og hún sannaði á gamlárskvöld. Ég vona að hún haldi áfram að gera upp næstu ár með jafn eft- irminnilegum og skemmtilegum hætti og hún gerði þetta síðasta kvöld ársins 1998. „Ég er mikill aðdáandi fréttastofu Stöðvar 2 sem er djörf og óhrædd í fréttamennsku sinni. Hún er líka skemmtileg, eins og hún sannaði á gamlárskvöld."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.