Dagur - 13.01.1999, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Við erum góðir strákar
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson. „Við erum mjög góðir strákar og megum
ekkert illt sjá.“
Tvíhöfði hefurveríð
kærðurtil lögreglufyr-
irað skipuleggja hróp
að þingmönnum íAl-
þingishúsinu. Jón
Gnarrsegirað málið
verði sent ríkissak-
sóknara. Þeim finnist
þetta leiðinlegtog vel
komi tilgreina að þeir
labbi inn íAlþingishús
og biðjist afsökunar.
„Þetta kom okkur á óvart. Við
bjuggumst ekki við svona hörð-
um viðbrögðum. Við bjuggumst
bara við því að starfsmanni okk-
ar yrði vísað út,“ sagði tvíhöfð-
inn Jón Gnarr í samtali við Dag
í gær. „Við höfum atast í háal-
varlegum málum áður og fólk
hefur ekki tekið því svona.
Menn hafa yfirleitt tekið því létt
enda hefur aldrei vakað nein ill-
girni fyrir okkur. Það hefur
aldrei verið nein rætni eða pólit-
ík í neinu sem við höfum gert.“
Ekki að ögra eða storka
Alþingi hefur kært Jón Gnarr og
Sigurjón Kjartansson, umsjónar-
menn útvarpsþáttarins Tvíhöfða
á X-inu, til lögreglu fyrir að hafa
sent starfsmann sinn á þingpalla
í tengslum við umræður um
gagnagrunnsfrumvarpið í des-
ember til að láta gera hróp að
þingmönnum. Jón Gnarr sagði í
samtali við Dag að þeir hefðu
sent manninn með GSM-síma á
þingpalla til að vekja þar uppþot
og vera með læti. Meiningin
hefði verið að gera grín, ekki að
ögra eða storka neinum.
- Fannst ykkur það lukkast?
„Nei, okkur fannst það ekki.
Okkur fínnst þetta leiðinlegt mál
í heildina. Við viljum ekki standa
í svona. Við erum mjög góðir
strákar og megum ekkert illt sjá.“
Starfsmanninum voru ekki
lagðar nákvæmar línur um
hvernig hann ætti að standa að
uppnáminu á þingpöllunum og
Jón Gnarr segir að þeir félagarn-
ir hefðu „meira verið að hugsa
um samhengislaust rugl, ekki
neina skoðun eða neitt svoleiðis
enda var hann ekki að lýsa yfír
okkar skoðun þarna og við vor-
um ekki að koma á framfæri
neinni skoðun. Það var ekki til-
gangurinn heldur að vera með
fí'flalæti einhvers staðar þar sem
ekki má vera með fíflalæti.“
Spenna sem er ekld neift
Þetta er ekki í eina skiptið sem
uppátæki Tvíhöfðans hefur verið
umdeilt og/eða þeir Ient í kast
við lögreglu. Tvíhöfði varð fræg-
ur að endemum þegar umsjón-
armenn þáttarins Iétu taka af sér
mynd í gervi forsetahjónanna og
gerðu með henni grín að for-
setaembættinu á eftirminnileg-
an hátt. A föstudögum hafa þeir
verið með dagskrárlið, sem heit-
ir Föstudagshandtakan. Starfs-
maður fer þá út af örkinni til að
freista þess að láta handtaka sig.
I fyrsta skiptið hringdu umsjón-
armennirnir í lögregluna.
„Grínið í því er að hann er
aldrei handtekinn vegna þess að
það sem hann gerir er yfirleitt
ekki ámælisvert. Það gerðist í
fyrsta skiptið en hefur síðan ekki
gerst aftur. Á Alþingi héldum við
að hann myndi þrugla eitthvað
og vera svo vísað út. Það er
brandarinn að byggja upp ein-
hveija spennu sem er svo ekki
neitt,“ segir hann.
Siguijón og Jón Gnarr voru í
yfirheyrslum hjá lögreglunni í
síðustu viku og segist Jón Gnarr
eiga von á því að málið verði
sent ríkissaksóknara. „Við send-
um þeim blómvönd, báðumst
fyrirgefningar og lofuðum að
gera þetta ekki aftur en þeir
endursendu blómin.“ Friðrik
Olafsson skrifstofustjóri mun
hafa sagt þeim að biðjast afsök-
unar beint til hans og Jón Gnarr
segir að vel komi til greina að
þeir labbi inn í Alþingishús og
biðjist afsökunar. „Við erum al-
veg menn til þess.“ -GHS
Bólusetnlng gegn
inflúensu
SVOJMA
ER LIFID
Pjetur St.
Arason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Komið hafa upp nokkur tilfelli af inflúensu í nágrannalönd-
unum. Hjá landlæknisembættinu fengust þær upplýsingar að
þeir hefðu staðfestingu á því að greinst hefði tilfelli af flens-
unni hér á landi en enginn Idár merki væru um faraldur.
Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, sagði að þeir stofnar
sem væru í gangi í nágrannalöndunum væru þess eðlis að
bóluefnið sem þeir hafi yfir að ráða ráði vel við veikina.
Hann sagðist ráðleggja þeim sem væru komir yfir sextugt að
láta bólusetja sig gegn inflúensu og eins væri um þá sem
væru veikir fyrir.
Haraldur sagði að í haust hafi verið óvenju mikið um
bólusetningar og að í byrjun september hefðu verið farnir út
tæplega 50.000 skammtar af bóluefni en allt árið í fyrra
hefðu þeir notað 36.700 skammta af bóluefni.
Mörg fyrirtæki láta bólusetja starfsfólk sitt og er það gert
til þess að vernda starfsmennina og eins til þess að halda
starfsemi sinni gangandi. Sem dæmi má nefna að allir starfs-
menn sjúkrahúsa eru bólusettir gegn innflúensu, enda eru
þeir í mestri hættu að nálgast veirurnar sem valda pestinni
og skila henni áfram til þeirra sem veikastir eru fyrir.
Þeir sem eru í mestri hættu að fá flensuna eru gamalt
fólk, hvítvoðungar, þeir sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma og
aðrir sem eru með veikt ónæmiskerfi. Rannsóknir sýna að
bólusetning dregur um allt að helming úr hættu á því að
eldra fólk lendi á spítala eða jafnvel látist úr inflúensu.
I HVAB ER Á SEYOI?
HLYNUR VS HLYNUR
Kveikjan að sýningu Hlyns Hallssonar og Hlyns
Helgasonar var síendurtekin ruglingur á nöfn-
um og persónum þeirra beggja, bæði í umfjöll-
un íjölmiðla og sýningarskrám safna. Þeir
ákváðu uppúr þessu sumarið 1997 að halda
sýningu og gera sér mat úr þessu. Verkin á sýn-
ingunni móast af þessari grunnhugmynd og
snúast að mestu leyti um persónulegan mun og
fjarlægð á milli fólks sem tengst hefur á tilvilj-
unarkenndan hátt. Annað sameiginlegt verkefni
á sýningunni er myndband sem lýsir dæmigerð-
um degi í Iífi þeirra.
Sýningin bindur sig ekki bara við gallerírímið
sjálft því eitt verk, nokkurskonar inngangur að
sýningunni, verður sett upp á flettiskilti fyrir
ofan Laugaveginn. Sýningin opnar á laugardag-
inn 16. janúar kl. 16.00 og stendur til 28. janúar.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Félag eldri borgara, Þorraseli
Opið í Þorraseli í dag frá kl. 13.00 til
17.00. Perlusaumur og almenn handa-
vinna kl. 13.30. Kaffi og meðlæti kl 1 5.00
til 16.00
Félag eldri borgara , Asgarði Glæsibæ
Handavinna, perlusaumur kl. 9.00 kenn-
ari er Kristín Hjaltadóttir. Kaffistofan í
Ásgarði er opin alla virka daga kl 10.00 til
13.00. Þorrablótsferð í Reykholt í Borgar-
firði 20. -21. febrúar. Upplýsingar og
skrásetning á skrifstofu.
Galleríi Ingólfstræti 8
Ásgerður Búadóttir opnar sýningu í Gall-
eríi Ingólfstræti 8, fimmtudaginn 14. jan-
úar ld 17.00. Ásgerður sýnir níu verk sem
hún hefur unnið sérstaklega fyrir þessa
sýningu. Ásgerður á fjölda sýninga að
baki og hefur hún sýnt víða um heim og
eru verk hennar víða í söfnum og opiner-
um byggingum hér á landi og erlendis.
Sýningin stendur til 14. febrúar og er
galleríið opið fimmtudaga til sunnudaga
kl. 14.00 tiU8.00.
Ritlistarhópur Kópavogs
Sigurður A. Magnússon og hr. Sigurbjörn
Einarsson verða gestir Ritlistarhóps
Kópavogs fimmtudaginn 14. janúar. Dag-
skráin hefst kl. 17.00.
Frost og funi í Gallerí Fold
Fimmtudagskvöldið 14. janúar kl. 20:30
verður opnuð samsýning fimmtán Iista-
manna í baksal Galleríis Foldar, Rauðar-
árstíg 14. Sýningin ber nefnið „Frost og
funi“ og stendur til 31. janúar.
Þrykktækni í Kringlunni
Fimmtudaginn 14. janúar verður opnuð í
Kringlunni sýning á grafík og graf-
íkvinnubrögðum. Sýndur verður vinnu-
ferill grafíkverka listamannanna Daða
Guðbjörnssonar og Drafnar Friðfínns-
dóttur, allt frá því þrykkplatan er unnin
til fullgerðra grafíkverka. Sýningin verður
í sýningarrými Gallerís Foldar og Kringl-
unnar á 2. hæð gegnt Hagkaupi.
Rabb um rannsóknir og kvennafræði
Fimmtudaginn 14. janúar verður Rósa
Erlingsdóttir, M.A. í stjórnmálafræði frá
Freie Universit%ot í Berlín með rabb á
vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum
við Háskóla Islands. Rabbið ber yfirskrift-
ina: „Konur í Miðaustur-Evrópu á tímum
stjórnarfarsbreytinga, „Lýðræðislegt
þegnasfamfélag" og kynjasamskipti."
Rabbið fer fram í stofu 201 í Odda kl.
12.00 til 13.00.