Dagur - 19.01.1999, Page 6
1
\ - fCít Hí.ttYilil .f t H V- O M' r T t f t
6 - ÞRIÐJUDAGV R 19. JANÚA R 1999
ÞJÓÐMÁL
TDb«iir
Útgáfufélag: DAGSPRENT
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 31. akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Simar: 460 6ioo OG soo 7080
Netfang ritstjórnar: rítstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.800 KR. Á MÁNUÐI
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: soo 7080
Símbréf auglýsingadeiidar: 460 6161
Simar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Morðin í Kosovo
í fyrsta lagi
Umheimurinn horfír með hryllingi á myndir af nýjustu
fjöldamorðum lögreglu og hers Slobodan Milosevics í Kosovo.
Sveitir hans réðust um helgina á lítið þorp sem heitir Racak,
söfnuðu saman tugum óbreyttra borgara, misþyrmdu mörgum
þeirra hryllilega og tóku síðan 45 einstaklinga af lífi að kunnum
nasistasið, það er með byssuskoti í höfuðið. Yngsta fórnarlamb-
ið var tólf ára drengur. Meðal hinna myrtu var ein kona. Alþjóð-
legir eftirlitsmenn og fréttamenn, sem komu á morðstaðinn,
hafa orðið íyrir ítrekuðum árásum Serba. Það kom þó ekki í veg
fyrir að myndir af hryðjuverkunum færu um heimsbyggðina.
í öðru lagi
Fjöldamorðin í Racak eru einn hræðilegasti atburðurinn í borg-
arastríði Serba og Kosovo-Albana sem staðið hefur með hléum
síðan Milosevic hóf stórsókn í héraðinu fyrir tæpu ári síðan.
Vopnahléð, sem gert var í október síðastliðnum eftir að um 2
þúsund Albanar höfðu fallið og um 250 þúsund flúið heimkynni
sín, var einungis stund milli stríða. I því fólst engin framtíðar-
lausn fyrir íbúa Kosovo sem eru að yfirgnæfandi meirihluta af
albönskum ættum og vilja ýmist sjálfstjórn eða sjálfstæði.
f þriðja lagi
Vestrænir stjórnmálaforingjar hafa lýst hryggð sinni yfir þessu
hryðjuverki sem Bandaríkjaforseti kallaði réttilega morð af
ásetningi. En þrátt fyrir stíf fundahöld og sendinefndir til
Milosevics bera viðbrögð Vesturlanda með sér að orð verða lát-
in nægja. Samkvæmt dýrkeyptri reynslu þýðir sú niðurstaða að
Milosevic telur sig hafa frjálsar hendur til að halda áfram að
berja á Kosovo-Albönum og mun því gera það. Kosovo er því
miður enn eitt lýsandi dæmi um hvernig lýðræðisríkin leyfa
harðsvíruðum einræðisherrum og harðstjórum að fara sínu
fram. Og um leið enn ein sönnun þess að þeir sem neita að
læra af sögulegum mistökum eru dæmdir til að endurtaka þau.
Elias Snæland Jónsson
Veruleikiim og
venileikíifirrmgm
Garri veitti niðurstöðu skoð-
anakönnunar DV um afstöðu
til virkjanaframkvæmda milda
athygli. I Ijós kom að 66%
landsmanna eru á móti uppi-
stöðulóni við Eyjabakka en
34% fylgjandi. DV greinir af-
stöðu manna niður eftir
stjórnmálaskoðunum og kem-
ur þá í ljós að það er einungis
í Framsóknarflokknum, sem
stuðningsmenn Eyjabakkalóns
eru í naumum meirihluta. I
öllum öðrum flokkum eru
stuðningsmenn Eyjabakkalóns
í minnihluta og vfða í mjög
miklum minnihluta. Þá vekur
það sérstaka athygli
að þegar andstæð-
ingar og fylgjendur
lónsins eru greindir
eftir búsetu kemur
í ljós að andstæð-
ingar koma í jöfn-
um hlutföllum af
landsbyggðinni og Eyjabakki.
af höfuðborgar-
svæðinu. I hópi
fylgjenda hins vegar eru lands-
byggðarmenn aðeins örlítið
fjölmennari. Þetta er merkileg
niðurstaða í Ijósi þess sem
haldið hefur verið fram.
PóstkortafóLk
Því hefur hefur nefnilega lengi
verið haldið fram að andstæð-
ingar Eyjabakkalóns séu veru-
leikafirrtir höfuðborgarbúar,
sem séu löngu hættir að skilja
út á hvað tilraunin Island
gengur. Þetta sé eitthvað póst-
kortafólk sem haldi að þjóðin
geti borðað fegurð fjallanna og
drukkið vatnið úr Fögruhver-
um. Stuðningsmenn virkjana
og Eyjabakkalóns hafa hins
vegar haft einkarétt á veru-
Ieikatengingu og einir skilið
hvað er í húfi. Það eru þeir
sem vita að landsbyggðarfólk-
inu eru virkjanir hugstæðar
vegna þess að byggðin í land-
inu þarf svo mikið á þeim að
halda. Það eru einmitt stuðn-
ingsmenn Eyjabakkalónsins
sem einir sjá að besta leiðin til
að stöðva fólksstrauminn suð-
ur, er að stífla Jökulsá á Dal.
Síst ætlar Garri að véfengja
þessi sjónarmið enda Iands-
byggðarmaður, sem veit að
hann á að trúa öllu illu upp á
Reykvíkinga.
Getur ekki verið
Garri hlýtur einfaldlega að vé-
fengja niðurstöðurnar í könn-
un DV. Því ef þær
eru réttar getur sú
yfirlýsing ekki
staðist að andstæð-
ingar Eyjabakka-
lóns séu allir veru-
leikafirrtir upp-
gjafa-hippar á höf-
uðborgarsvæðinu.
Nema þá að verið
sé að gefa í skyn að
annar hver landsbyggðarmað-
ur - þ.e. þeir sem lýstu sig
andvíga Eyjabakkalóni í könn-
uninni - séu Iíka veruleikafirrt-
ir uppgjafahippar. Það er nátt-
úrulega fásinna! Nei, Garri
hlýtur að draga þá ályktun af
þessu að það sé einfaldlega
ekkert að marka þessa DV
könnun, enda er hún eflaust
gerð af einhverjum veru-
leikafirrtum höfuðborgarhipp-
um. Svoleiðis hlýtur það ein-
faldlega að vera, því annars
væri eina svarið sem eftir er
það, að það væri ákveðin veru-
íeikafirring að segja að allir
andstæðingar Eyjabakkalóns-
ins væru veruleikafirrtir! Að
virkjunaraðallinn geti verið
veruleikafirrtur er náttúrulega
alveg útilokað ....eða hvað?
GARRI
JÓHANNES
SIGURJÓNS
SON
skrifar
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, lét hafa það
eftir sér í Degi í fyrri viku að
verðbólguspá Fjárfestingarbank-
ans væri að verða að almennu at-
hlægi allra sem létu sig þessi mál
varða. Eins og kunnugt er og um
hefur verið þallað eru það eink-
, um ungir menn á uppleið í fjár-
r málaheiminum sem starfa hjá
, Fjáfestingarbankanum, stífbón-
’ aðir tölvumanfakar og talna-
i glöggir með afbrigðum. Og raun-
! ar virðast slíkir vera í framvarð-
arsveit flestra fyrirtækja sem
sýsla með fjármuni og efnahags-
mál, einkum og aðallega þó
verðabréfafyrirtækja.
Þessum piltum er falin mikil
1 ábyrgð og eins gott að þeir kunni
á tölvurnar sínar, kunni að Ieggja
saman tvo og tvo og fá út ásætt-
anlega útkomu úr dæminu, eða
a.m.k niðurstöðu sem er í ein-
hverju samræmi við raunveru-
leikann eins og hann birtist ekki
Stjóma „skjánamir“ öllu?
á skjánum. Frægt var á dögunum
þegar ungur verðbréfasali í út-
löndum rak olnbogann í takka á
tölvunni sinni með þeim afleið-
ingum að tiltekin hlutabréf fóru
í sölu í miklu magni og hafði víð-
tækar af-
leiðingar.
Það er
sem sé
hægt að
ímynda
sér að
mistök
verðbréfa-
sala geti
orðið til
þess að
stöndugt
fyrirtæki Bjarni Ármannsson
og vel rek- framkvæmdastjóri FBA
ið verði
gjaldþrota
og á sama hátt að kompaní í
kaldakoli rísi upp úr öskunni og
auðgist snimmendis vegna þess
að tölvupiltar fari takkavillt á
lyklaborðinu.
Skjánar
Það er því eins gott að þessir
ungu menn sem sýsla með millj-
arðana
séu aungv-
ir kjánar.
En þeir í
það
minnsta
„skjánar“,
eins og
ágætur
sjómaður
kallaði þá
á dögun-
um og
Þórarinn V. Þórarinsson, lýsti þeim
framkvæmdastjóri VSÍ svo: „Mað-
ur sér
þessa strá-
ka á skjánum, sitjandi við skjá-
inn. Þeir eru nýútskrifaðir úr
viðskiptafræðinni, með öllu
ókunnugir atvinnulífinu, vatns-
greiddir, Iitgreindir, með axla-
bönd og hvurgi kusk á hvítflibb-
anum. Fingurnir þjóta yfir lykla-
borðið og fyrirtæki í fiskvinnslu
fyrir austan fellur í verði. Aftur
pikka þeir eitthvað og niðurlagn-
ingafyrirtæki á Vestfjörðum sem
komið er að fótum fram hækkar
skyndilega f verði.“
Og sjómaðurinn heldur áfram:
„Það eru „skjánarnir" sem ráða
öllu í þessu þjóðfélagi en ekki al-
þingi, ríkisstjórn eða almenning-
ur. Ráðherrar og þingmenn gera
ekkert nema að ráðfæra sig fyrst
við skjánana og fá nýjustu töl-
urnar frá þeim. Og byggja svo
auðvitað sínar ákvarðanir á upp-
lýsingum og tölum, réttum eða
röngum, sem „skjánarnir" mat-
reiða ofan f stjórnvöld. Þannig
að ef „skjánarnir" eru blábjánar
og ráðamenn bláskjáir sem gley-
pa allt hrátt, þá er ekki á góðu
von.“
snu&i
svairad
Eru lauti alþingis-
niíinnn hættulega lág?
Ólafur G. Einarsson,
forseti Alþingis
sagði í samtáli við Dagað
laun þingmanna væru
hættulega lág.
Bryndís Hlöðversdóttir
alþingistnaður.
„Eg tek und-
ir það að
laun þing-
manna eru
alltof lág
enda þótt
margir aðrir
hópar hafi
Iægri laun.
Þingmennska er mikið ábyrgðar-
og stjórnunarstarf og miðað við
þau laun sem kjaradómur hefur
úrskurðað til ýmissa stjórnenda
hjá hinu opinbera hafa þing-
menn algerlega setið eftir. Og
þegar launin eru orðin það lág að
hæfileika fólk fæst ekki í fram-
boð til Alþingis tel ég það hættu-
legt lýðræðinu.“
Kristín Ástgeirsdóttir
„Hættulega
lág er kanns-
ki of mikið
sagt en ég er
sammála því
að Iaun þing-
manna eru
allt of lág.
Það sést
hvað best á því hvað það er orð-
ið erfitt að fá fólk úr atvinnulíf-
inu til þess að bjóða sig fram. Eg
er líka sammála þvf að launakjör
þingmanna fæli gott fólk frá því
að gefa kost á sér til þing-
mennsku.“
alþingiskona.
Margrét Frímannsdóttir
„Eg myndi
ekki orða
það svo að
laun þing-
manna væru
hættulega
lág. Ef svo
væri hvað þá
með laun
allra þeirra sem eru með enn
lægri laun? Hins vegar finnst
mér eðlilegt að laun þingmanna
séu metin til samræmis við Iaun
þeirra sem gegna ábyrgðarstöð-
um íyrir ríkið. Menn eiga að
skoða laun þingmanna í sam-
hengi við aðrar stjórnunar- og
ábyrgðarstöður hjá ríkinu."
Guðni Ágústsson
„Ég er sam-
mála því að
laun alþing-
ismanna séu
of lág. Kjara-
dómur hefur
alla aðra
hópa með
hærri laun
og markar þeim jafnframt yfir-
vinnutíma frá 30 og upp í 50 á
mánuði en þingmönnum engan.
Mér sýnist að mjög margir ein-
staklingar í þjóðfélaginu, sem
fara með forystustörf, hafi ekki
fjárhagslega efni á að bjóða sig
fram til þings og lækka við það í
launum."
alþingismaður.
alþingismaður.