Dagur - 19.01.1999, Qupperneq 7

Dagur - 19.01.1999, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1999 - 7 ÞJÓÐMÁL UALLPÓR ASGRIMS- SON UTANRlKISRÁÐHERRA SKRIFAR Svo lengi sem ég hef verið í stjórnmálum hafa virkjunarmál á Austuriandi verið ofarlega á baugi. Eg hef ávallt verið þeirrar skoðunar að það beri að nýta þær miklu auðlindir sem felast í orku fallvatna á Austurlandi. Eg hef litið þannig á að það væri mikill meirihluti Austfirðinga, sem vildi beisla þessa orku og nýta hana í sem mestum mæli heima fyrir. Eg hef einnig talið að \áð yrðum að velja hagstæða virkjunarmöguleika til að tryggja ódýra orku til atvinnulífs og heimila. Mikil orka hefur verið beisluð á suðvestanverðu land- inu til að hita þar upp híbýli og framleiða ódýra orku fyrir fjöl- breytt atvinnulíf og það ber einn- ig að gera eystra. Áhrif á uinliverfid Virkjunarframkvæmdir hafa haft margvísleg áhrif á umhverfið en ekki verður séð að nein stórfelld slys hafi orðið. Við hefðum að vísu gert margt öðru vfsi, ef við gætum valið aftur. Sennilega hefðu virkjanir við Sogið ekki verið byggðar í dag og sú nátt- úruperla hefði áreiðanlega feng- ið að njóta sín betur. Það voru hins vegar ekki aðstæður til þess á þeim tíma og þar gripu menn tækifæri sem hafði mikil áhrif á framþróunina. Eg hef vart mætt á þann fund á Austurlandi sem ekki hefur ályktað í þá átt að nauðsynlegt sé að virkja Jökulsá í Fljótsdal og hyggja jafnframt að virkjun Jök- ulsár á Dal. Það hafa allir vitað, sem að þeim ályktunum hafa staðið að samfara þessum stóru virkjunum yrði að koma stóriðn- aður. Alltaf hefur Iegið fyrir að ekki væri mögulegt að nýta þessa orku eingöngu fyrir almennan markað eða smáiðnað. Núna þegar menn eygja mögu- leikann til að gera þessi áform að veruleika er komin upp öflug hreyfing til að koma í veg fyrir þessar fyrirætlanir. Fyrirætlanir sem hafa verið til umræðu í ára- tugi. Til marks um það hvað hugurinn bar menn langt í þess- um efnum voru samþykkt lög á Alþingi 1981 um að hrinda því í framkvæmd að Fljótsdalsvirkjun yrði reist. Aðstæður og umhverfi hefur verið rannsakað og yfir þrjú þúsund milljónum hefur verið varið til undirbúnings. Allan tímann hafa menn vitað að virkjunin byggðist á miðlun við Eyjabakka og síðan yrði að leiða vatnið út alla Fljótsdals- heiði. Fyrst var ráðgert að gera það í opnum skurði, sem hefði verið mikið sár í landinu. Síðar var ákveðið að flytja vatnið um jarðgöng. Eftir að þessar ákvarð- anir voru teknar hefur margt breyst og meðal annars viðhorf um verndun náttúru og um- hverfis. Lög hafa verið sett um ákveðið ferli slíkra mála en eldri ákvarðanir um framkvæmdir eru undanþegnar þeirri skipan. Það Myndin sýnir töivuiíkan af hugsanlegu áiverí við Reyðarfjörð. ígrein sinni óskar Halldór Ásgrímsson eftir meiri sanngirni í umræðunni um virkjanir og stóriðju á Austurlandi og segir m.a.: „Við biðjum þá sem vilja meiri sam- hjáip og efnahagslegar framfarir fyrir landsmenn að hugleiða hvað er í húfi. Það er ekki nóg að segja að við skuium gera eitthvað annað. Það er ekki nóg að halda því fram að vísindi, þekking og ferðamennska leysi málið." var meðal annars gert vegna þess að þær fyrirætlanir höfðu gengið í gegnum annan hreinsunareld og ég tel víst að ekkert mál hafi fengið jafn mikla umræðu og at- hugun á undirbúningsstigi og Fljótsdalsvirkjun. „Lögformlegt umhverfis- mat“ Virkjunin var boðin út og það var ætlun fyrri ríkisstjórnar að nota þá orku alla í álver á Keilisnesi, sem aldrei varð að veruleika. Núverandi ríkisstjórn hefur farið öðruvísi að og ákveðið að það beri að nýta orkuna á Austur- landi og unnið að málinu með það fyrir augum. Þá rísa upp sterk öfl sem vilja koma í veg fyr- ir að þessar fyrirætlanir verði að veruleika. Þessi andstaða birtist með misjöfnum hætti. Margir hafa haft þá kröfu í frammi að virkjunin verði send í nýtt mat sem gengur undir nafninu „lög- formlegt umhverfismat“. Nafn- giftin gefur til kynna að eitthvað ólöglegt hafi átt sér stað. Svo er alls ekki og engin hefur útilokað að virkjunin gangi í gegnum nýj- an hreinsunareld. I reynd er unnið þannig að málinu og öll- um undirbúningi þannig háttað að svo geti orðið. Ný skýrsla er væntanleg og hana má senda til umfjöllunar skipulagsyfirvalda og umhverfisráðherra. Slíkt mun taka alllangan tíma og miðað við þær viðræður sem nú eru í gangi við Norsk-Hydro er ekki nægi- legt ráðrúm til þess. Ef frestun á sér stað á þeim fyrirætlunum, eða samningar takast ekki skap- ast áreiðanlega nægilegt svigrúm til þess. En hvað sem því líður er meg- in spurningin sú hverju það breytir. Að mínu mati kemur ekki margt til með að breytast, nema þá að ákveðið verði að hætta algjörlega við virkjunina. Það er vitað mál að hana er ekki hægt að reisa án miðlunar við Eyjabakka og að þar fer land undir vatn. Það er hin stóra spurning en ekki hið svokallaða „lögformlega umhverfismat". Margvíslegar breytingar hafa nú þegar verið gerðar á fyrir- komulagi um virkjunina og sjálf- sagt má lagfæra ýmislegt enn. Væntanlega verða slíkar ábend- ingar í nýrri skýrslu og hugsan- lega í nýju umhverfismati síðar. Flestir eru sammála um að það sem fyrst og fremst eftir stendur er hvort Eyjabakkasvæðið skuli fara undir vatn eða ekki. A móti þeirri fórn kæmu bættir mögu- leikar fólks til betri afkomu og blómlegra mannlífs. Það er vitað mál að hana er ekki hægt að reisa án miðlunar viö Eyjahakka og að þar fer land undir vatn. Það er hin stóra spuming en ekki hið svokallaða „lögform- lega umhverfismat“. Umliverfismat og nýting auðlinda Við sem viljum sjá þessa virkjun rísa erum oft sökuð um að vera andstæðingar náttúruverndar. Svo lengi sem land hefur byggst og mun byggjast hafa umhverfis- og nýtingarsjónarmið verið sam- ofin. A hverjum einasta degi eru menn að nýta auðlindir landsins og er nýting þeirra raunar undir- staða byggðar í landinu. A hverj- um einasta degi eru að koma upp áform um nýja byggð, nýjar framkvæmdir og nýjar fyrirætl- anir. Þannig hefur það alltaf ver- ið og verður alltaf. Aðalatriðið er að taka tillit til allra sjónarmiða, ekki síst þarfa fólksins og þarfa byggðanna sem kalla á Iandnýt- ingu. Umræðan er að snúast í meira mæli yfir í það hvort virkja eigi á Austurlandi eða ekki. Það er að mörgu leýti einföldun á málinu. Við sem styðjum virkjun viljum taka mikið tillit til nátt- úruverndarsjónarmiða en jafn- framt til efnahags- og byggða- mála. I umræðunni er gjarnan sagt að við eigum ekki að virkja norðan Vatnajökuls. Það mætti halda að vatn falli bara í norður og suður úr Vatnajökli. I reynd er verið að tala um andstöðu við virkjanir á Austurlandi. Umræðan um að virkja aðeins vatn sem rennur sunnan úr Vatnajökli en ekki norðan úr honum er í ætt við það að halda því fram að það sé réttast að búa aðeins sunnan við jökulinn. Hver er munurinn á því að nýta sambærilegar náttúruauðlindir á einum stað en ekki öðrum? Svarið er oftast að ekkert hefur verið virkjað norðan og austan við jökulinn og Iand þar er að mestu leyti ósnortið af slíkum mannvirkjum. Margir halda því fram að þannig verði þetta land verðmætast og nýtist best fram- tíðarkynslóðum. En er líklegt að þetta land verði gjörsamlega ósnortið og varðveitum við það betur ef við látum virkjunará- formin eiga sig? Eg hef ekki fullvissu fyrir því og er ekki tilbúinn til að gleyma öllu sem á undan er gengið. Eg er hins vegar tilbúinn til að taka þátt í að skapa sem mesta sátt um málið. Sú sátt getur hins veg- ar ekki gengið út á að hætta við allt saman. Sátt um að treysta byggð Hvemig ætla menn þá að treysta byggð á Austurlandi? Hvemig ætla menn að skapa sterkara þéttbýli sem getur laðað til sín fleira fólk og skapað viðunandi lífsskilyrði? Við þurfum á því að halda að skapa meira jafnvægi í landinu og það verður ekki hjá því komist að skapa jafnframt meira jafn- vægi í nýtingu auðlinda landsins. Við sem erum í stjórnmálum ger- um okkur betur grein fyrir því en ýmsir aðrir að við höfum umboð okkar frá fólki og við gerum ekk- ert án þess. Alit almennings ræð- ur því mestu um hvað við getum gert, en við eigum ekki að víkjast undan því að hafa skoðun og setja hana fram. Ég tek eftir því að það hefur nokkurn hljómgrunn að hætta við virkjanir á Austurlandi. Það hefur ekki síst hljómgrunn á suðvestanverðu landinu. Iðnað- arráðherrann sem hefur barist mest fyrir því að undirbúa þetta mál sækir umboð sitt þangað. Ég sem er flokksbróðir hans og í for- ystu sama flokks sæki umboð mitt til Austurlands. Við viljum báðir standa að málum með hagsmuni Austfirðinga og allra annarra Iandsmanna að leiðar- ljósi. Við biðjum um meiri sáttarhug og sanngirni í umræðunni. Við biðjum um hreinskiptari umræð- ur og upplýstari. Við biðjum um að menn taki önnur sjónarmið inn í umræðuna eins og byggða- og efnahagsmál. Við biðjum þá sem vilja meiri samhjálp og efna- hagslegar framfarir fyrir lands- menn að hugleiða hvað er í húfi. Það er ekki nóg að segja að við skulum gera eitthvað annað. Það er ekki nóg að halda því fram að vísindi, þekking og ferða- mennska leysi málið. Auðvitað skapa ný tækni og vísindi ómælda möguleika. Mannauðurinn skiptir mestu máli en jafnframt honum verður að nýta auðlindir með sjálfbær- um hætti. Þekking okkar á sviði orkumála er gífurleg og þann mannauð ber að nýta. Tvöfeldni óliðandi Það hefur verið rík krafa Aust- firðinga til okkar sem vinnum á vettvangi stjórnmála að vinna að þessu máli af einurð og alefli. Fylgismenn annarra flokka en núverandi stjórnarflokka hafa verið sömu skoðunar. A suðvest- urhorninu og á Alþingi hefur stjórnarandstaðan allt annan málflutning í frammi. Slík tvö- feldni er ólíðandi í svona stóru viðfangsefni. Þetta mál verður að skoðast á landsvísu og það þarf að leysast á sáttarborði alls landsins með sama hætti og Al- þingi ákvað 1981 á þessu sama sáttarborði að næsta stórvirkjun iandsmanna yrði í Fljótsdal. Á næstu mánuðum á eftir að fara fram mikil umræða um þessi mál. Við skulum gæta okk- ar í henni og horfa til allra átta. Við skulum jafnframt reyna að átta okkur á hvaða áhrif niður- staðan hefur. Viðræður við Norsk-Hydro halda áfram en það verður ekki niðurstaða í þeim fyrr en um mitt ár. Eitt er víst að hvernig sem það mál fer mun allt málið hafa mikil áhrif á örlög Austurlands og það er ekki að- eins hagsmunamál fjórðungsins heldur landsins alls. Þótt vel gangi eins og stend- ur og atvinna sé mikil í land- inu þá þurfum við líka að hugsa um komandi ár. Huga þarf að þeim framkvæmdum sem þarf að ráðast í til að taka við nýju fólki, nýjum fjölskyld- um, nýjum væntingum og nýrri þörf til að njóta sín og lifa þar sem lífvænlegt er í landinu. Við höfum ekkert leyfi til að skerða þá mögu- leika og okkur ber skylda til að standa að því með skynsamleg- um hætti með heildarhags- muni þjóðarinnar allrar í huga.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.