Dagur - 19.01.1999, Síða 8

Dagur - 19.01.1999, Síða 8
T 8 - ÞRIÐJVDAGVR 19. JA\ÚAR 1999 SDagfur T>agur_ FRETTASKYRING Engin alvarleg slys í mesta illvidri vetrarins hvað verst, héldu björgunar- menn sér í ljósastaura til að fjúka ekki. Kví Keikós skemmd- ist hins vegar á engan hátt og undi dýrið sér vel í látunum, enda í vari. Hætta í Ljósavatnsskarði Snjóflóð komu við sögu um helgina og mátti litlu muna að illa færi þegar snjóflóð féll á ha;- inn Birkihh'ð i Ljósavatnsskarði um miðjan dag á laugardag. Snjór barst inn í eldhús og stofu í gegnum glugga eftir að rúður brotnuðu en meiðsli urðu engin á heimilisfólki. Hins vegar eyði- Iagðist vélaskemma og lágu dráttarvélar og heyvinnslutæki á víðavangi eftir flóðið. Annað flóð féll skammt sunnan Hofs- óss á sunnudagsmorgun. Þar grófust 13 hross undir skammt frá bænum Krossi og drápust tvö. Heimilisfólkið á Krossanesi og fleira björgunarfólk lagðist á eitt að bjarga hrossunum sem mörg voru föst undir snjófargi í nokkurn tíma. Ovíst er hvort öll hrossin sem björguðust muni lifa af. Rýmt á Seyðisfirði Um helgina var lýst yfir viðbún- aðarástandi í Neskaupstað, Seyðisfirði, Siglufirði og í hest- húsahverfinu í Bolungarvík. Hættuástand við farfuglaheim- ilið á Seyðisfirði varð til þess að húsnæðið var rýmt en annars sluppu landsmenn við slíkar varúðarráðstafanir. Snjóflóða- hætta er ekki talin veruleg á næstu dögum skv. Magnúsi Má Magnússyni, snjóflóðafræðingi á Veðurstofunni. Ekki hægt að passa aUa Hafþór Jónsson hjá Almanna- vörnum segir um svæði eins og Ljósavatnsskarðið að þar hafi frekar gilt almenn viðvörun en sértæk, enda sjái Veðurstofan ekki yfir alla byggð landsins. „Snjóflóð geta nánast fallið alls staðar í fjalllendi við ákveðnar aðstæður og heimamenn þekkja þessar aðstæður oft best sjálfir. Það er borin von að Veðurstofan eða aðrir geti fylgst með hverj- um einasta sveitabæ. Þegar tíð- indi berast af því að hætta hafi skapast á Olafsfirði og Siglufirði þá segir það sig sjálft að aðliggj- andi svæði geta einnig verið í hættu.“ Upplýsingin hjálpaði Hafþór er ánægður með viðvar- anir og umfjöllun fjölmiðla enda segir hann slysahættu minnka eftir því sem upplýsing- in er markvissari og betri. „Við höfum dæmi um ófyrirsjáanlegt foktjón. Ef við tökum Eyjafjöll sem dæmi þá skapast þar á tíð- um slíkar ógnaraðstæður að það er engu líkt.“ Átakið sannar sig Tjón á rafmagnslínum er talið nema milli 15 og 20 milljónum | BJÖRJÍ ÞORLAKS- SON SKRIFAR Landsmenn sluppu þokkalega um helg- ina í mesta illviðri vetrarins. Tjón nem- ur þó nokkrum tug- ► um milljóna en hefði orðið inun meira ef björgunarsveitir og opinherir starfsmenn hefðu ekki lagst á eitt. Ein af tíu kröppustu lægðum aldarinnar gekk yfir Island um helgina og olli margs konar tjóni og usla. Engin alvarleg slys urðu þó af völdum veðursins og þakka menn það að hluta til mikilli upplýsingu og aðvörun- um sem borist höfðu um illviðr- ið. Snjóflóð féllu, mannvirki fuku, rúður brotnuðu og heil- margt gekk á, en eigi að síður verður ekki annað sagt en að landsmenn hafi sloppið vel þeg- ar á heildina er litið. Björgunar- sveitum ber að þakka margvís- leg störf um allt land. Einn akkilesarhæU Helsta Iærdóminn má draga af símasambandsleysi á Norður- landi vestra. Hafþór Jónsson, svæðisstjóri hjá Almannavöm- um ríkisins, segir að Almanna- varnir líti það alvarlegum aug- um að síminn datt út klukku- tímum saman í kjölfar raf- magnsleysis. ,Auðvitað hlýtur maður að ætla að bæði opinber- ir aðilar og aðrir dragi af þessu lærdóm. Það ber að bregðast við jafn alvarlegum bresti og þarna verður í almannavarnakerfinu en við eigum eftir að ræða þetta nánar," segir Hafþór. Aðrir akkílesarhælar komu ekki upp að sögn Hafsteins en hann hyggur að það sem gerðist í Skagafirði megi rekja til ákveð- ins misskilnings, þar sem Landssíminn taldi að Sauðár- krókur hefði yfir vararafstöð að ráða, sem ekki reyndist. „Þeir verða að gera úrbætur þarna í vararafmagni fyrir símakerfið." Af einstökum atvikum í óveðrinu má nefna mikið eigna- tjón á bænum Beijanesi undir Eyjafjöllum þar sem íjóshlaða eyðilagðist í vindi auk þess sem efri hæð íbúðarhússins skemmdist nokkuð. Þá varð töluvert tjón í Vestmannaeyjum þegar tengivagnar og gámar fóru af stað í miklu hvassviðri aðfaranótt Iaugardags. Þar vann Björgunarfélag Vestmannaeyja mikið starf og þegar veðrið var Mikið tjón varð í Ljósavatnsskarði í snjóflóði sem féll á bæinn Birkihlíð á laugardag. Þetta er annað snjóflóðið með stuttu millibili og íhuga ábúendur vistaskipti í kjölfarið. Bóndinn I Birkihlíð stenduryfir ónýtri heyvinnuvél á myndinni. - mynd: brink á landinu öllu, mest austan- Iands og á Vestijörðum. Hins vegar er talið að tjónið hefði orðið mun meira ef svipað veð- ur hefði skollið á fyrir nokkrum árum. I umdæmi Norðurlands eystra varð t.a.m. aðeins einnar milljónar króna tjón skv. laus- legri áætlun núna. I október nam tjón á rafmagnslínum á þessu svæði mörgum tugum milljóna í óveðri sem þá gekk yfir og heildartjón á landinu öllu varð vel á annað hundrað milljónir. Tryggvi Þ. Haralds- son, umdæmisstjóri RARIK á Norðurlandi eystra, segir: „Ég fullyrði að það átak sem unnið hefur verið að undanförnu við að leggja línur í jörð sannaði sig rækilega. Það var byrjað á þessu árið 1991 en áherslan aukin mjög eftir stórtjónið árið 1995. Það er engin spurning að við værum að tala um miklu meira tjón núna ef menn hefðu ekki farið út í þetta átak.“ EriH hjá björgimaxsveitiun Lögregla út um allt land og ekki síður björgunarsveitir stóðu í ströngu um helgina. Kristján Birgisson, erindreki hjá Lands- björg, landssamtökum björgun- arsveita, hafði ekki ákveðna tölu á því hve margir björgunarsveit- armenn hefðu verið að störfum um helgina en hann sagði þá marga. Virkir björgunarsveitar- menn á landsvísu eru um 3000 að sögn Kristjáns. „Okkur vant- ar alltaf gott fólk en blessunar- lega hafa nýir menn komið í stað þeirra sem hætta. Annars er erfitt að skilgreina þörfina á björgunarmönnum. Það gæti orðið slys á morgun sem kallaði á stóraukinn mannskap en blessunarlega hefur þetta þó nægt undanfarin ár.“ Söguleg lægð Hörður Þórðarson, veðurfræðingur á Veðurstofu Islands, sagði í gær að lægðin væri í hópi 10 dýpstu Iægða aldarinnar og hann sagði spána hafa reynst nákvæma fyrir helg- ina. I dag er spáð allt að 7-8 vind- stigum og víða snjókomu á land- inu en það verði ekkert í líkingu við hvellinn um helgina. Magnús Már Magnússon snjóflóðafræð- . _ ingur sagði í gær að fylgst væri vel með snjóflóðasvæðum en búið var að aflýsa öllu viðbúnaðarástandi. Þegar snjó kyngir hratt niður verður bindingin oft léleg en mesta úrkoman virðist hafa orðið á Norðausturlandi um helgina. MHdð fannfergi A Akureyri bar ekkert sérstakt til tíðinda annað en það að meiri snjór er nú á götum bæjarins en hefur sést lengi og var mannlífið hálflamað um helgina. Strætis- vagnar hættu að ganga á laugar- dag og Hilmar Gíslason, verkstjóri hjá Akureyrarbæ, segir snjómagn- ið „með því verra“. Kostnaður við snjómokstur nam í gær á aðra milljón króna enda 15 vinnuvélar að störfum auk fjölda fastra starfsmanna. Veðrið hafði margvísleg áhrif á þjónustu. Þannig upplýsti starfs- maður veitingahússins Greifans á Akureyri í gær að eftir að akst- ursleiðir urðu illfærar og illviðrið skall á hefði komið kippur f heim- sendingum á pizzum en engir fóru út að borða. Greifinn brást við með því að panta 5 sérútbúna jeppa til að keyra pizzurnar út. Ekki hefur veitt af stórvirkum vinnuvélum við að blása snjó afgötum Akureyrar sfðustu daga. Snjómagnið er með því mesta sem komið hefur á jafnskömmum tíma síðari ár. Kiörfimdi fram- haldið í dag Prófkjöri sjálfstæðis- maima á Austurlandi var frestað til 23. jan- úar og fundi kjördæm- isráðs sjálfstæðis- mauna á Norðurlandi eystra, sem halda átti í Mývatnssveit, var frestað til 29. janúar. Vegna óveðursins sem gekk yfir landið um síðustu helgi tókst ekki að ljúka prófkjöri framsókn- armanna á Norðurlandi eystra og verður kjörfundi því framhaldið í dag, þriðjudag, frá klukkan 17.00 til 22.00. Nálega 1.000 manns höfðu neytt atkvæðisrétt- ar á sunnudagskvöldið þegar kjörfundi lauk. Talið verður á miðvikudag á Akureyri. Á Norð- urlandi vestra höfðu um 1.600 manns kosið á sunnudagskvöld og þar verður kjörfundi einnig framhaldið í dag frá klukkan 17.00 til 22.00. Talið verður á Sauðárkróki. Prófkjöri sjálfstæðismanna á Austurlandi var frestað til Iaug- ardagsins 23. janúar og fundi kjördæmisráðs sjálfstæðismanna á Norðurlandi eystra, sem halda átti í Mývatnssveit, var frestað til laugardagsins 29. janúar. Hvort þorrablót í Mývatnssveit um næstu helgi hafi þar ráðið ein- hverju um skal ósagt látið. Auka- fundi í kjördæmisráði sjálfstæð- ismanna á Norðurlandi vestra, sem halda átti í Varmahlíð, var frestað til dagsins í dag, en þar Ieggur kjörnefnd fram tillögu um framboðslista líkt og á Norður- Iandi eystra. Kjördæmisráð-sjálf- stæðismanna á Vestfjörðum kom saman sl. laugardag en ekki er gert ráð fyrir að uppstilling á Iista verði ákveðin fyrr en helg- ina 6. til 7. febrúar. Þó hefur ver- ið ákveðið að alþingismennirnir Einar Kristinn Guðfinnsson og Einar Oddur Kristjánsson skipi tvö efstu sæti listans. Samfylking á Norðurlandi eystra framlengdi framboðsfrest til 26. janúar og á Norðurlandi vestra er framboðsfrestur til 23. janúar en prófkjör fer fram í báð- um kjördæmum 13. febrúar. GG Iþróttainiðstöð vigð á Þórshöfn Byggingarkostnaöiir íþróttamiðstöövariim- ar nemur allt að 240 milljónum króna en uni helming hygging- arkostnaðar hefur Þórshafnarhreppur fjármagnað með sölu á hlutabréfum í Hrað- frystistöð Þórshafnar. Ibúar Þórshafnarhrepps og Sval- barðshrepps drógu sig í spari- klæðin síðasta sunnudag, 17. janúar, þegar langþráð íþrótta- miðstöð var vígð með sérstakri opnunarhátíð. Fresta varð vígsl- unni um einn sólarhring vegna veðurs. Sveitarfélögin standa sameþþnlega að byggingu húss- ins. Iþróttamiðstöðin er sam- byggður íþróttasalur og sundlaug með þjónusturými þar á milli. Til þessa hafa íbúarnir þurft að stunda sínar íþróttir innanhúss í félagsheimilinu Þórsveri, sem varla er stærra en sæmilegur badmintonvöllur án tilskilinnar lofthæðar. Stefnt er að því að efna til samkeppni meðal íbúa um nafn á íþróttamiðstöðina. Byggingarkostnaður íþrótta- miðstöðvarinnar nemur allt að 240 milljónum króna en um helming byggingarkostnaðar hef- ur Þórshafnarhreppur íjármagn- að með sölu á hlutabréfum í Hraðfrystistöð Þórshafnar. Úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hefur auk þess fengist um 60 milljóna króna styrkur. Ibúar Þórshafnar- hrepps: eru 485 og 125 í Sval- barðshreppi og samtals nemur byggingarkostnaðurinn því um 395 þúsund krónum á hvern íbúa. Þess má geta að í árslok 1997 hampaði Þórshafnarhrepp- ur þeim vafasama heiðri að vera skuldsettasta sveitarfélag lands- ins með 428 þúsund krónur á hvert mannsbarn í hreppnum, en stór hluti af byggingarkostn- aði íþróttamiðstöðvarinnar er inni í þeirri tölu. GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.