Dagur - 19.01.1999, Qupperneq 13

Dagur - 19.01.1999, Qupperneq 13
ÞRIÐJVDAGUR 19. JANÚAR 1999 - 13 Th&pr. ÍÞRÓTTIR L A íslandsmeistarar Fylkis í innanhússknattspyrnu. Reykj avOmrliðin FylMr og KR urðu uin helgina íslandsmeist- arar í knattspymu karla og kvenna inn- anhúss. íslandsmótið í innanhússknatt- spyrnu kvenna og karla fór fram í Laugardalshöll um helgina. I karlaflokki var keppt í fjórum fjögurra liða riðlum og komust tvö efstu lið í hverjum riðli í 8- liða úrsiit, sem voru Valur, Kefla- vík, KR, Leiftur, ÍA, Dalvík, Fylkir og Þróttur R. I undanúrslitin komust síðan Valur, Fylkir, KR og Þróttur R. og sigruðu Fylkir og KR í sínum leikjum og léku til úrslita um Is- Iandsmeistaratitilinn. Úrslitaleikurinn var mjög spennandi frá upphafi til enda, þar sem markmenn Iiðanna, þeir Kjartan Sturluson hjá Fylki og Kristján Finnbogason hjá KR, voru án efa menn leiksins. Þeir vörðu báðir snilldarlega í leikn- um og má segja að Kristján Finn- bogason hafi með snilldarmark- vörslu komið í veg fyrir sigur Fylkis eftir venjulegan leiktíma. KR-ingar voru fyrri til að skora og var þar að verki varnarmaður- inn Indriði Sigurðsson. Fylkis- mönnum tókst síðan að jafna með marki markvarðarins Kjart- ans Sturlusonar, sem þrumaði boltanum í markið af löngu færi, óverjandi fyrir Kristján Finn- bogason, markvörð KR. Staðan eftir venjulegan leiktíma var því jöfn 1-1 og leikurinn því fram- lengdur. í framlengingunni sóttu liðin stíft til skiptis, þar til Fylkis- mönnum tókst að skora sigur- markið. Þeir tóku hornspyrnu fyrir markið, þar sem fyrirliðinn Finnur Kolbeinsson var réttur maður á réttum stað og stýrði boltanum með hælspyrnu fram hjá Kristjáni markverði. Glæsi- legt mark og skemmtilegur enda- punktur á góðu gengi Fylkis á mótinu, sem nú vann íslands- meistaratitilinn í annað sinn. Leikir FylMs Riðlakeppnin: Breiðablik - Fylkir 3 - 3 Þór - Fylkir 2 - 7 Fylkir - Þróttur R. 0 - 1 8-liða úrslit: ÍA - Fylkir 1 - 4 Undanúrslit: Valur - Fylkir 2 - 6 Urslitaleikur: KR - Fylkir 1 - 2 Yfírburðir KR í kvennaflokki I 1. deild kvenna urðu KR-stelp- ur Islandsmeistarar, eftir örugg- an 7-0 sigur á fyrrverandi Is- landsmeisturum Breiðabliks, í úrslitaleik mótsins. Vanda Sigur- geirsdóttir, nýr þjálfari KR, mætti til leiks með yfirburðalið, sem sigraði nokkuð auðveldlega í öllum sínum leikjum á mótinu. Þær skoruðu alls 41 mark í sex leikjum og fengu aðeins á sig fimm. I úrslitaleiknum yfirspiluðu þær lið Breiðabliks, sem hafði staðið sig vel í riðlakeppninni. Blikastúlkurnar virtust þreyttar eftir erfiðan leik gegn Val í und- anúrslitunum og náðu sér aldrei á strik gegn sterkum KR-ingum. Hjá KR bar mest á þeim Olgu Færseth og Asthildi Helgadóttur sem skoruðu þrjú mörk hvor en Guðlaug Jónsdóttir skoraði eitt. LeikirKR Riðlakeppni: KR - ÍA 7-0 Fjölnir - KR 3-8 RVK - KR 0-9 KR - Valur 6 - 1 Undanúrslit: KR - Stjarnan 4-1 Urslitaleikur: KR - Breiðablik 7 - 0 Rohbie Fowler hauð til veislu á Anfield Road Fowler skoraði þrennu gegn Southampton. Robhie Fowler vaknaði af dvalauum. Martröð Southampton og West Ham heldur áfram. Hundlétt hjá Manchester United. Chelsea marði sigur á síðustu sekúndum. Fyrsta tap Brian Kidd með Blackbum. Skor- aði eftir fúnm sekúnd- ur. Mikill fögnuður var á Anfield Road þegar Robbie Fowler vakn- aði af löngum dvala og skreið úr híði sínu. Fowler hélt upp á 175. leik sinn fyrir Liverpool með því að skora þrennu gegn South- ampton og sitt 101. mark fyrir Liverpool. Sjö - eitt sigurinn gat orðið stærri en heimamenn létu sér nægja stærsta sigur tímabils- ins í úrvalsdeildinni. Til að auka fögnuð stuðningsmanna Liver- pool Iét Gerard Houllier þess get- ið eftir leikinn að samningar væru að takast um að tryggja markamaskínuna á Anfield til ársins 2005. Martröð South- ampton heldur því áfram eftir að Fullham sló liðið út úr bikar- keppninni fyrr í vikunni. Enn verri var martröð West Ham á laugardaginn. Eftir niður- lægingu gegn þriðjudeildarliðinu, Swansea, í bikarnum á miðviku- daginn máttu leikmenn Hammers kyngja fjórum mörkum frá gestum sínum, í Sheffield Wednesday, án þess að svara fyrir sig. Þar með upplifðu Hamrarnir stærsta tap sitt á heimavelli í vet- ur. Harry Redknap verður að nota eitthvað af þeim 870 milljónum, sem hann fékk fyrir söluna á John Hartson, til að styrkja lið sitt sem er gjörsamlega bitlaust um þessar mundir. Það er óhætt að yfirfæra orð Southampton leikmannsins Egil Östenstad á West Ham þeg- ar hann sagði að þetta hefði verið vika í helvíti. Frábær fótbolti á Filbert Street Manchester United fór á kostum gegn Leicester á Filbert Street og sigraði 2-6. Tvíeykið, Cole-Yoerk, hélt áfram listdansi sínum með boltann á tánum. Yorke skoraði sína fyrstu þrennu fyrir United og Cole setti boltann tvisvar í búrið. Jaap Stam fagnaði sínu fyrsta marki fyrir Manchester og ugg- laust þungu fargi af honum létt með markinu. Markmenn lið- anna, landsliðsmarkverðir Bandaríkjanna og Danmerkur, vilja sjálfsagt gleyma þessum leik sem fyrst. Þetta var ekki þeirra dagur. Chelsea nældi í sigur á Coventry á síðustu sekúndunum á Stamford Bridge. Coventry náði forystunni með marki frá Huckerby og topplið deildarinnar var heppið að fá öll stigin að leik loknum. Di Matteo skoraði sigur- markið á síðustu sekúndunum. Meistarar Arsenal voru einnig heppnir í viðureign sinni við botnliðið, Nottingham Forest, með „Big Ron“ við stjórnvölinn. Martin Keown skoraði mikið heppnismark sem dugði til sigurs. Brian Kidd varð loks að játa sig sigraðan eftir að hann tók við stjórninni hjá Blackburn. Derby nældi í kærkominn 1-0 sigur á siðustu mínútunum með marki frá Burton. Illa leiknir af dóinaramim Charlton tók á móti Newcastle á sunnudaginn í leik sem lengi verður í minni hafður. Newcastle komst í 0-2 en getur þakkað dóm- aranum fyrir stigið sem liðið upp- skar í leikslok. Mark Bright skor- aði fyrra mark heimamanna fimm sekúndum eftir að hann kom inn á í seinni hálfleik. Það er met í úrvalsdeildinni og sennilega í enska boltanum. Eftir mark Bright jókst pressan mjög á gest- ina og dómari og aðstoðarmenn hans snuðuðu Charlton um víta- spyrnu og mark sem þeir skoruðu en blindur línuvörður sá ekki. Leikmenn Tottenham hugsuðu líka dómaranum í leik þeirra og Wimbledon þegjandi þörfina. Hann fór mildum höndum um Wimbledon og sleppti tvisvar augljósum vítaspyrnum, auk þess sem hann gaf John Hartson að- eins gult spjald fyrir hreina Iík- amsárás á Andy Sinton. Það er ótrúlegt að rudda eins og John Hartson skuli hleypt inn á knatt- spyrnuvölli. Hann á ekkert erindi í fótbolta. Leeds átti ekki í vandræðum með Middlesbrough á Elland Road. Fínn leikur hjá ungu mönnunum hans O'Leary og tvö núll sigurinn var minni en efni stóðu til. — GÞÖ Úrslit leikja Chelsea - Coventry 2-1 0-1 Huckerby (9.) - 1-1 Leboeuf (45.) - 2-1 Di Matteo (90.) Derby - Blackburn 1-0 1-0 Barton (84.) Leeds - Middlesbrough 2-0 1-0 Smith (21.) - 2-0 Bowyer (27.) Leicester - Man. United 2-6 0-1 Yorke (10.) - 1-1 Zagrakis (35.) - 1-2 Cole (49.) - 1-3 Cole (61.) - 1- 4 Yorke (63.) - 2-4 Walsh (73.) - 2- 5 Yorke (84.) - 2-6 Stam (90.) Liverpool - Southampton 7-1 1-0 Fowler (22.) - 2-0 Matteo (35.) - 3-0 Fouler (37.) - 4-0 Fowáer (47.) - 5-0 Carragher (55.) - 5-1 Östenstad (59.) - 6-lOwen (63.) - 7-1 Thompson (73.) Nott. Forest - Arsenal 0-1 0-1 Keown (34.) Tottneham - Wimbledon 0-0 West Ham - Sheff. Wed. 0-4 0-1 Hinchcliff (26.) - 0-2 Rudi (31.) - 0-3 Humpreys (68.) - 0-4 Carbone (73.) Charlton - Newcastle 2-2 0-1 Ketsbaia (15.) - 0-2 Solano (56.) - 1-2 Bright (62.) - Pringle (90.) Staðan L U 1 T Mörk S Chelsea 22 11 10 1 34:18 43 Man. Utd 22 11 8 3 49:26 41 Aston Villa 21 11 7 3 31:20 40 Arsenal 22 10 9 3 23:11 39 Leeds 22 9 9 4 36:20 36 Liverpool 22 10 5 7 43:26 35 Wimbledon 22 9 7 6 29:33 34 West Ham 22 9 5 8 25:31 32 Middlesbr. 22 7 10 5 32:28 31 Derby 22 7 10 5 22:20 31 Tottenham 22 7 8 7 28:30 29 Leicester 22 7 8 7 25:27 29 Sheff. Wed. 22 7 5 10 25:22 26 Newcastle 22 6 7 9 26:31 25 Everton 21 5 9 7 13:21 24 Blackburn 22 5 6 11 21:29 21 Coventry 22 5 5 12 21:31 20 Charlton 22 3 8 11 26:36 17 Southampt. 22 4 5 13 20:46 17 Nott. For. 22 2 7 13 18:41 13

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.