Dagur - 21.01.1999, Qupperneq 1
Fimmtudagur 21.janúar 1999
82. og 83. árgangur- 13. tölublað
Verð ílausasölu 150 kr.
BLAÐ
Jóhanna Sigurðardóttir segir að
verið sé að búa tii kerfi biðraða og
pólitískra betlistafa.
„Stefnir í neyðarástand“
„Það sem Iíka er alvarlegt í þessu
er leigumarkaðurinn, þar sem
stefnir í neyðarástand. Hjá
Reykjavíkurborg eru 700 manns á
biðlista eftir Ieiguíbúðum, hvar af
áætlað er að 210 manns hafi
bæst við vegna þessarar nýju lög-
gjafar. Og þetta er fyrir utan 260
manna biðlista hjá Öryrkjabanda-
laginu og 200 námsmenn. Við
Páll Pétursson segir ekkert óeðli-
legt að mörg sveitarfélög standi
utan kerfis.
erum því með 1.100 til 1.200
einstaklinga og fjölskyldur í
Reykjavík á biðlista eftir leigu-
húsnæði og um 1.500 á landinu
öllu. Þó er áætlað að byggja að-
eins 120 leiguíbúðir á landinu
öllu á næsta ári. Og í Reykjavík
losna aðeins um 100 leiguíbúðir
á ári, þannig að það tekur mörg
ár að leysa vandann."
Jóhanna segir að Alþingi hljóti
að taka á þessu máli. „Enda er
komið f Ijós að stór hluti fjöl-
skyldna, sem fengi ekki úrlausn
sinna mála, yrði á götunni, sér-
staklega að því er varðar leiguí-
búðakerfið. Þeir munu brenna sig
á þessu fyrr en seinna.“
Pressan á suð-vesturhommu
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði það ekki hafa komið á
óvart að á annað hundrað ætla að
standa utan við nýja viðbótar-
lánakerfið á þessu ári. „Þau ætla
auðvitað ekkert að standa utan
við það til frambúðar. Heldur
telja þau sig ekki þurfa á íbúðum
að halda á næstunni." Páll bend-
ir á að félagslegar íbúðir séu ekki
til staðar í nærri öllum minni
sveitarfélaganna. En í hér um bil
öllum öðrum sveitarfélögum á
Iandsbyggðinni sé fjöldi félags-
legra íbúða, sums staðar of marg-
ar, sem margar hverjar standi
auðar. „Pressan á þetta félagslega
kerfi er fyrst og fremst hérna á
suð-vesturhorninu þar sem fólk-
inu fjölgar," sagði félagsmálaráð-
herra. - HEl
Linda Samúelsdóttir, bóndi að
Tungu. Samkomulag hafði náðst
um vatnslögn Norðuráls yfir land
hennar, en samkomulaginu á að
rifta vegna vanefnda stóriðjufyrir-
tækisins.
Bóndinn
telur Norð-
urálhafa
svfkið sig
Stjórn umhverfissamtakanna
Sólar í Hvalfirði hefur óskað eft-
ir fundi með stjórnendum Norð-
uráls vegna þess sem samtökin
kalla brot stóriðjulyrirtækisins á
viljayfirlýsingu milli þess og
Lindu Samúelsdóttur, bónda að
Tungu í Svínadal. Linda og sam-
tökin telja að fyrirtækið hafi svik-
ið samkomulag sem gert var í
tengslum við að Norðurál þarf að
fara með vatnslögn yfir land
Tungu til að sækja sér vatn úr
Laxá í Leirársveit.
Sól hefur jafnframt þungar
áhyggjur af „gríðarlegri mengun"
á vinnusvæði starfsmanna Norð-
uráls og tíðum vinnuslysum.
Krefst Sól þess að tölulegum
upplýsingum um staðreyndir
mála verði komið til skila og ger-
ir kröfu til þess að stjórnvöld
tryggi að mengunarvarnir og að-
búnaður starfsmanna sé eins og
best verður á kosið.
Tungumálið snýst að sögn
Ólafs M. Magnússonar í Sól um
bætur til handa Tungufólkinu
vegna rasksins af völdum vatns-
lagnar Norðuráls. „Þeir ætluðu í
fyrstu ekkert að tala við bónd-
ann, sem ákvað þá að höfða
skaðabótamál. Úr varð munnlegt
samkomulag í votta viðurvist um
ákveðna greiðslu og tók Norð-
urál að sér allan málskostnað.
Nú hefur komið í ljós að stjórn-
endur Norðuráls túlka máls-
kostnað þröngt en vilja skilja
bóndann eftir með lögfræði-
kostnað upp á 200 þúsund krón-
ur. Það er illskiljanlegt miðað við
anda þess samkomulags sem
gert var,“ segir Ólafur. — FÞG
Nýsköpunarverðlaun forseta Islands voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum I gær. Verðlaunin komu í hlut
Hörpu Birgisdóttur fyrir verkefni sem hún hefur unnið að um fokgirni og bindieiginleika foksands. Verkefnið sner-
ist um að prufa einfaldar aðferðir til að sá melfræi. Á myndinni má sjá Hörpu taka við verðlaunum úr hendi Úlafs
Ragnars Grímssonar. - mynd: pjetur
Saiiia liði
ábák við
tjöldin
Baráttan um varaformannsemb-
ættið í Sjálfstæðisflokknum er
sögð komin í fullan gang þótt enn
sem komið er hafi enginn lýst
opinberlega áhuga á starfinu. Nýr
varaformaður verður valinn á
landsfundi flokksins sem hefst 8.
mars nk. en þar verða vel á annað
þúsund fulltrúar.
Landssamband sjálfstæðis-
kvenna hefur skorað á Sólveigu
Pétursdóttur að gefa kost á sér
sem varaformaður og hún er að
íhuga málið alvarlega. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
og Geir Haarde fjármálaráðherra
eru báðir sagðir vera að kanna
stuðning sinn í flokknum. Að lík-
indum ræðst ekki fyrr en
skömmu fyrir landsfund hverjir
gefa kost á sér og jafnvel ekki fyrr
en á fundinum sjálfum. Fjallað er
um varaformannskjörið í frétta-
skýringu bls. 8-9.
Nýtt biðraðakerfi og
neyðarástand á leigu-
markaðnum, segir Jó-
hanna Sigurðardóttir
en Páll Pétursson seg-
ir þörfina fyrst og
fremst hér syðra.
„Þetta kerfi gengur ekki upp. Mér
sýnst það vera að koma fram, sem
við spáðum þegar þetta var knúið
í gegn, að verið sé að koma upp
pólitísku skömmtunarkerfi, þar
sem fólk þarf að vera með
betlistaf við dyr bæjarstjórna til
að fá íbúð. Nýju biðraðakerfi sem
ekki sér fyrir endann á,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir, alþingis-
maður og fyrrv. félagsmálaráð-
herra, um það að einungis 15 af
124 sveitarfélögum landsins ætla
að taka þátt í nýja félagslega
íbúðalánakerfinu. Að sveitarfé-
lögin fara ekki inn í þetta kerfi
segir hún m.a. skýrast af því að til
þess þurfi þau að borga framlag,
5% viðbótarlánsins, í varasjóð til
að mæta útlánatöpum.
„Biðradir og betli-
stafir íbúdalána66
WORLDW/DE EXPRESS
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
ÍVenjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMKMR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
ÞREFALDUR 1. VINNINGUR