Dagur - 21.01.1999, Page 9
8 -FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 - 9
FRÉTTASKÝRING
rD^ftr
Dfjgur
Iiðssafinaðiir haftnn
á bak við tjoldin
SIGURDÓR
SIGURDÓRS-
SON
SKRIFAR
Á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins 8. til
12 mars nk. verður
kjörinn nýr varafor-
maður flokksins og
varaformannsslagur-
inn er haflnn og liðs-
safnaður á hák við
tjöldin.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
verður haldinn dagana 8. til 12.
mars næstkomandi. Fyrir utan
það að vera kosningalandsfundur,
þar sem alþingiskosningarnar í
maí verða höfuðmálið, verður
nýr varaformaður flokksins kjör-
inn. Friðrik Sophusson, sem nú
er orðinn forstjóri Landsvirkjunar
og því aftengdur í pólitík, lætur af
varaformennsku á landsfundin-
um. Undir eðlilegum kringum-
stæðum væri það ekkert stórmál
hver kjörinn yrði varaformaður
Sjálfstæðisflokksins. En það er
tvennt sem hangir á spýtunni nú
og gerir varaformennskuna eftir-
sóttari en ella.
Þau sem sögð eru ætla að
keppa um varaformennskuna nú
eru öll úr Reykjavík. Þetta eru
þau Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra, Geir H. Haarde
fjármálaráðherra og Sólveig Pét-
ursdóttir alþingismaður. Ekkert
þeirra hefur enn gefið út ákveðna
tilkynningu um að þau gefi kost á
sér. Sólveig hefur þó gefíð það
fastlega í skyn enda var á hana
skorað af Landssambandi sjálf-
stæðiskvenna. Hinir tveir gefa
ekkert upp ennþá. Ekki einu
sinni við samþingmenn sína.
Astæðan er ákveðinn póker sem
þeir eru að spila og við skulum
skoða á eftir.
Þegar landsfundurinn fer fram
verður listi flokksins í Reykjavík
ekki kominn fram. Sá sem verður
kjörinn varaformaður er líldegur
til að hreppa 2. sætið á listanum
og öruggt ráðherrasæti verði
flokkurinn áfram í rikisstjórn. Og
það sem meira er, fullyrt er af
þeim sjálfstæðismönnum sem ég
hef rætt við að Davíð Oddsson
muni hætta í pólitík eftir næsta
kjörtímatímabil. Verði hann for-
sætisráðherra í þriðja sinn á
næsta kjörtímabili segja menn ör-
uggt að hann hætti að því loknu.
Og þá hefur varaformaðurinn,
sem nú verður kjörinn, umtals-
vert forskot á aðra sem keppa
vilja um formennskuna þegar þar
að kemur. Þetta hvoru tveggja
spilar afar sterkt inn í varafor-
mannskjörið að þessu sinni.
Pókerspil
Menn hljóta að spyrja hvers
Liðssafnaður er nú hafinn í slagnum um varaformannsembættið f Sjálfstæðisflokknum. Myndin er frá síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins en þá grunaði engan að Friðrik Sophusson yrði hættur í
stjórnmálum þegar kæmi að næsta landsfundi.
vegna þeir Geir og Björn gefa
ekkert upp ennþá um hvort þeir
gefi kost á sér. Svarið er einfalt,
þeir eru báðir að kanna bakland-
ið. Ef annar þeirra telur að hann
eigi ekki möguleika að ná kjöri
mun hann ekki gefa kost á sér. Ef
báðir telja sig eiga sigurlíkur
munu þeir keppa, annars ekki.
Það er óttinn við að tapa sem
veldur því að hvorugur vill gefa
sig upp fyrr en hann telur sig hafa
nokkra vissu fyrir því hvernig
kjörið fer.
Friðrik Sophusson, varafor-
maður flokksins, var í 2. sæti list-
ans í Reykjavík síðast, Björn
Bjarnason í 3. og Geir H. Haarde
í 4. sæti. Ef svo færi að Björn tap-
aði fyrir Geir í varaformannskjör-
inu myndu líkur aukast á að hann
færist aftar á listann, en Geir fær-
ist upp í 2. sætið. Ef Björn sigraði
héldi hann 2. sætinu. Það er
þessi mikla valdabarátta sem
veldur því að þeir gefa ekkert upp
fyrr en baklandið hefur verið full-
kannað.
Segja má að eftir að Sigríður
Anna Þórðardóttir tapaði í próf-
kjöri fyrir Arna Mathiesen og
Gunnari Birgissyni í Reykjanesi,
sé Sólveig Pétursdóttir kona
númer eitt í þingflokknum. Hún
leggur því allnokkuð undir ef hún
gefur kost á sér til varafor-
mennsku. Margir sjálfstæðis-
menn, sem ég hef rætt við, segja
að það myndi ekkert skaða stöðu
hennar þótt hún tapi í varafor-
mannskjöri ef hún nær þar 30%
fylgi eða meiru. Fáir viðmælend-
ur mínir hafa trú á því að hún
sigri þá Geir eða Björn, hvort sem
hún keppir við annan þeirra eða
báða. Þeir eru þó til sem segja að
hún gæti grætt á því ef hún
keppti við þá báða. Svo er auðvit-
að sá möguleiki fyrir hendi að
einhveijir fleiri gefi kost á sér,
rétt svona til að stimpla sig inn og
minna á sig. Sólveig yrði að vera
fyrir ofan þá alla, hvort sem hún
keppir við þá Björn og Geir báða
eða bara annan hvorn ef hún á
ekki að bera pólitískan skaða af
framboðinu til varaformanns.
Kontir ekki einhuga
Fulltrúar á landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins eru vel á annað þús-
und. Talið er að konur séu þar
um það bil helmingur fulltrúa.
Allir sem rætt hefur verið við full-
yrða að konur séu ekki einhuga
um að kjósa Sólveigu Pétursdótt-
ur í varaformannskjörinu enda
þótt Landssamband sjálfstæð-
iskvenna hafí skorað á hana. Það
mun vera þama eins og svo víða
'annarsstaðar að erfítt er að fá
konur til að standa saman um að
styðja konur til áhrifa í pólitík.
Sólveig Pétursdóttir er góður
og duglegur alþingismaður. Hún
er sögð vera nokkuð stíf í viðmóti
og ekki allra. Samþingmenn
hennar segja hana varla hafa það
viðmót sem Iaðar fólk að og þess
vegna eigi hún erfitt með að
safna fylgi hjá fólki sem ekki
þekki hana. En þeir sem þekkja
hana vita um dugnað hennar og
treysta henni til forystu. Hún var
mikill stuðningsmaður Þorsteins
Pálssonar á sínum tíma og þeir
sjálfstæðismenn sem enn bera ör
eftir formannsslaginn fræga þeg-
ar Davíð Oddsson komst til valda,
munu eflaust styðja Sólveigu.
Þmgflokksstuðnmgur .
Þeir þingmenn sem ég ræddi við
voru allir á því að Geir H. Haarde
nyti stuðnings mikils meirihluta
þingflokksins. Hann þótti mjög
góður þingflokksformaður áður
en hann tók við fjármálaráðherra-
embættinu og naut vinsælda sem
slíkur. Þá hefur hann sem Qár-
málaráðherra verið mjög dugleg-
ur við að heimsækja fólk út um
allt land. Hann var það raunar
Iíka meðan hann var formaður
þingflokksins. Hann er sagður
fylgjast vel með gangi mála á
landsbyggðinni. Hann mætir á
kjördæmisþingum Sjálfstæðis-
flokksins víða um Iand og hefur
aflað sér trausts út um allt land
enda á hann sérlega gott með að
umgangast fólk, enda léttur og
aðgengilegur og þeir sem best
þekkja hann segja hann góðan fé-
laga. Og svo syngur hann ljóm-
andi vel og hefur gaman af.
Það hefur verið nokkuð áber-
andi undanfarið hvað Geir hefur
verið mikið i sviðsljósinu og not-
fært sér fjármálaráðherraembætt-
ið til að komast í sviðsljósið. Öll
hans vinna hefur verið markviss
og borið þess vitni að hann stefn-
ir á varaformanninn. Hann hefur
viðrað hvert málið á fætur öðru í
fjölmiðlum síðustu vikurnar og
meira að segja tókst honum að
gera sig áberandi við það að fá
landann til að spara, en sagt er að
þeim eiginleikum hafi Islending-
ar tapað fyrir Iöngu síðan.
Margir halda þvi fram að það sé
í raun langt síðan Geir H. Haarde
ákvað að sækjast eftir varafor-
mennsku og síðan formennsku í
flokknum þegar réttur tími væri
til þess fyrir hann. Sú mikla vinna
sem hann hefur lagt á sig varð-
andi ílokksstarfið út um land sé
liður í þessari áætlun hans. Hans
tími gæti því verið kominn.
Ekki við alþýðuskap
Því er haldið fram að langt sé síð-
an Björn Bjarnason ákvað að
keppa að því að verða formaður
Sjálfstæðisflokksins. Enginn ef-
ast um gáfur hans og hæfíleika en
hann hefur einn stóran galla, en
það er hversu fráhrindandi hann
er við ókunnuga. Þeir sem þekkja
hann mjög vel og hafa unnið með
honum, eins og blaðamenn á
Morgunblaðinu, bera Birni vel
söguna og segja hann afar þægi-
legan vinnufélaga.
Björn er mjög stífur í viðmóti
við lítt kunnuga eða ókunnuga og
ekki sagður eiga gott með að laða
að sér fólk. Hann er eins og sagt
var í eina tfð ekki við alþýðuskap.
Hann hefur þó breyst gríðarlega
frá því að hann kom fyrst inn á
þing. Þá bauð hann varla
nokkrum manni góðan dag hvað
þá meira. Feimni segja sumir,
hroki segja aðrir. En þeir sem
þekkja hann best segjast hefðu lát-
ið segja sér það tvisvar sinnum að
hann ætti eftir að koma fram með
konu sinni í jafn persónulegum
þætti og hústökuþætti Sigmundar
Ernis á Stöð 2 í vetur.
I fyrra þótti mörgum Björn
Bjamason vinna þannig að hann
væri á fullu að undirbúa framboð
til varaformanns. Aftur á móti hef-
ur minna borið á honum undanfar-
ið þótt tónlistarhús í Reykjavík hafi
verið kynnt með pompi og pragt.
Tónlistarhúsið er mál sem margir
koma að. Hann getur því trauðla
baðað sig einn í geislanum af því.
Sama er að segja um menningar-
hús út um Iand. Þau voru barin í
gegn í ríkisstjórn til mótvægis við
tónlistarhúsið í Reykjavík. Björn
var bara einn af fjórum ráðherrum
þegar listahúsin út um land voru
kynnt. Menn spyija hvort hann
hafí misst móðinn? Þeir sem þekkja
hann best segja það af og frá.
Björn er sjö árum eldri en Geir
H. Haarde, verður 55 ára í ár.
Hann getur því varla beðið mikið
lengur ef hann ætlar sér að verða
varaformaður og síðar formaður
flokksins. Geir, sem ekki er nema
48 ára, getur hins vegar beðið
Iengur ef svo ber undir. Björn
verður því að leggja nokkuð undir
ætli hann að keppa við Geir og
Sólveigu um varaformennskuna
sýni kannanir fram á að staðan sé
jöfn og tvísýn. Ef hann tapar fær
hann varla annað tækifæri til að
verða varaformaður eða formaður
flokksins. Geir gæti átt annað
tækifæri ef hann tapar vegna þess
hve ungur hann er.
Báðir eru þeir Geir og Björn
miklir vinir Davíðs Oddssonar,
formanns flokksins, og þeir menn
sem ég ræddi við fullyrða að hann
forðist að taka afstöðu í þessum
varaformannsslag hvað sem nán-
ustu samstarfsmenn hans gera.
En staðan er spennandi og tvísýn
eins og er.
Norðurpólsþorpið á Akureyri stendur enn þó komið sé fast að þorra.
Töluvert tap á
Norðurpóluum
Ljóst er að nokkurt tap varð á
starfsemi jólaþorpsins Norður-
pólsins á Akureyri f fyrra en end-
anleg afkoma liggur enn ekki fyr-
ir. Dagur hefur heimildir fyrir að
tapið nemi nokkrum milljónum
og kenna aðstandendur óæski-
legu veðri og öðrum ófyrirsjáan-
legum þáttum að hluta til um.
Ferðamálamiðstöð Eyjafjarðar
var einn burðarásanna í verkefn-
inu og segir Tómas Guðmunds-
son forstöðumaður að vissulega
hafí ekki verið lagt upp með að
tap yrði á rekstrinum. „Ovissu-
þættir verkefnis sem framkvæmt
er í fyrsta skipti eru hins vegar
margir og ekki varð allt séð fyrir.
Ferðamálamiðstöðin hefur lítið
svigrúm til að bera tapið og það
mun því væntanlega að einhveiju
leyti lenda á sveitarfélögunum.
Tómas segir að afkoman sem
slík muni ekki ráða því hvort
framhald verður á starfseminni.
Norðurpóllinn sé í hans huga
kominn til að vera með hvaða
hætti sem framhaldið verður og
heilmargt hafi áunnist með verk-
efninu þótt afkoman sé verri en
gert hafi verið ráð fyrir. Tómas
bendir t.a.m. á að verkefnið hafi
kallað á miklu meiri mannskap
en ætlað var. Starfsmenn hafi
mikið til verið fengnir af skrá at-
vinnulausra. — BÞ
FRISTUNDANAM I MIÐBÆJARSKOLA OG MJODD
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA. Dag- og kvöldnámskeið (11 vikur)
íslenska fyrir útlendinga 1. -5. flokkur. Talflokkur 1 og 2. Ritun ( stafs. og málfr.)
Islenska - talflokkar fyrir útlendinga
ERLEND TUNGUMÁL
byrjenda- og framhaidsnámskeið (8-11 vikur)
Danska Enska Gríska Arabíska
Norska Franska ítalska Japanska
Sænska Hollenska Portúgalska Lettneska
Þýska Spænska Rússneska
Serbó-Króatíska
TALFLOKKAR (8-10vikur)
Ahersla lögð á tjáningu daglegs máls, lesnar skáldsögur, smásögur, blaðagreinar o.fl.
Enska 1 og 2. ítalska. Rússneska. Spænska.
VERKLEGAR GREINAR - MYNDLIST (7-11 vikur)
Fatasaumur
Pijón
Myndpijón
Postulín
Bókband
Glerlist
Skrautskrift
Húsgagnaviðgerðir
Matreiðsla fyrir
karlmenn
Tréútskurður
Teikning 1 og 2
Olíumálun
Vatnslitamálun
YMIS NAMSKEIÐ (10 vikur)
Listasaga. Þorsteinn Eggertsson.
Samskipti og sjálfsefli. Jórunn Sörensen.
Frímerkjasöfnun. Sigurður H. Þorsteinsson.
Trúarbrögð heims. Dagur Þorleifsson.
Framhaldslíf - trú og sagnir. Dagur Þ.
Tarotspil. Carl Marsak.
Heimspeki. Ármann Halldórsson
NAMSKEIÐ FYRIR BORN (10 vikur)
Tungumál: Danska, norska, sænska,
ítalska, víetnamska, þýska.
Leiklist-Leiksmiðja fyrir böm, 9-12 ára
STÆRÐFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ SKOLAFOLK (3 vikur)
Nemendur mæta með eigið námsefni og fá aðstoð eftir þörfum. Hámark 5 í hóp
INNRITUN STENDUR YFIR í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1.
Upplýsingar í síma 551 2992. Netfang: nfr@ rvk. is http://www.rvk.is/nfr
Námskeiðsgjald miðast við kennslustundafjölda og er frá kr. 6.000 - 11.000
Námskeiðsgjald greiðist áður en kennsla hefst.
Svo lengi lærir sem lifir