Dagur - 21.01.1999, Qupperneq 12
12-FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
EcrcArbíé
S 462 3500
Hinir síungu sprellikarlnr, Jack Lemmon og Walter Matthau fara ó kostum i
léttrí og sprenghlægilegri gamanmynd um þó félaga Felix og Oscar sem hafa
ekki hist í 30 ár en nú þurfa þeir að ferðast saman i brúðkaup barna sinna.
Sumar deilur standast timans tönn.
Fimmtud. kl. 21.
aan
D I G I T A L
STÆRÐIN SKIPTIR EKKI MALI! - Smáir hermenn - STORMYND
Fimmtud. kl. 23.
CHRIS TUCKER
The íastest hands
in the Em t
v&rsus
the bíggest moltih
irt the West.
rushhour _*?u
'Æ
mmvMMMMwm
váim mmwmmm
i
MT'íMhE -W\
III
Einn stærsti smellur ársins. Þeir Jackie Chan & Chris Tucker eru frábærir í
þessari grinspennu sem fór beint á topp bandaríska listans.
Fimmtud. kl. 21 og 23.
□□LdolbyJ
D I G I T A L
MEET JOE BLACK
FÖSTUDACINN 22. JANÚAR
ÍÞRÓTTIR
L
ro^tr
Michael Jordan ásamt Phi! Jackson, fyrrum þjálfara sínum hjá Chicago Bulls.
Michaels Jordans
vída sárt saknað
KðrfiLknattleikssmll-
ingsins Michaels Jor-
dans, sem tilkynnti
heimshyggðinni í síð-
ustu viku að hann
væri hættur í boltan-
um, er víða sárt sakn-
að. Ekki aðeins í
Bandaríkjunum, held-
ur einnig víða um
heim, þar sem hróður
hans hefur borist.
Sjálfur Bill Clinton, forseti
Bandaríkjanna, lýsti einna fyrst-
ur manna opinberlega yfir mild-
um söknuði og sagði að Jordan
væri sá íþróttamaður í heimin-
um, sem hefði yfir að ráða hvað
mestum hæfileikum, í hugsun, á
líkama og sál. „Hann hefur ekki
aðeins líkamlega getu til að gera
hlutina, heldur gerir hann hluti
sem enginn annar getur gert,
eins og ekkert annað væri sjálf-
sagðara. Eg hvet alla íþrótta-
áhugamenn til að sætta sig við
orðinn hlut og taka gleði sína
fljótt aftur, því auðvitað verður
áfram körfubolti eftir Jordan, þó
við söknum hans mikið,“ sagði
forsetinn.
Aðrir þekktir einstaklingar í
Bandaríkjunum hafa einnig látið
hafa ýmislegt eftir sér og sagði
Larry Bird, þjálfari Indiana
Pacers, til dæmis að það væri
sárt fyrir alla að sjá á eftir mesta
körfuknattleikssnillingi allra
tfma. „Það kemur að þessari
stundu hjá öllum körfuknatt-
leiksmönnum og eflaust hefur
Jordan fundist að hans tími til að
hætta væri kominn," sagði Bird.
„En við hlökkum öll til að sjá
hann aftur í mars þegar hann
hættir við að hætta og mætir aft-
ur til leiks með Bulls,“ bætti
Larry Bird við í gríni.
„Körfuboltinn, stuðnings-
mennirnir, leikmennirnir, þjálf-
ararnir, bandaríska þjóðin og öll
sagan eru að missa það besta
sem íþróttirnar hafa nokkurn
tíma eignast. Hann hefur haft
mest áhrif allra lifandi íþrótta-
manna f allri sögu íþróttanna í
heiminum, þegar litið er til þeirr-
ar ánægju og gleði, sem hann
veitti okkur með Ieik sínum og
framkomu," sagði Pat Riley,
þjálfari Miami.
„Ég mun segja barnabörnun-
um mínum að ég hafi upplifað
það að leika gegn Michael Jord-
an. Eg mun sakna þessara frá-
bæru hreyfinga og háloftafim-
leika, sem hann einn var fær um
að framkvæma á leikvellinum,"
sagði Shaquille O’Neal, leikmað-
ur Los Angeles Lakers.
„Við Larry Bird hrifum fólk
með leik okkar á vellinum. Svo
kom Michael og hreif það með
sér í loftinu,“ sagði Macic John-
son, fyrrum leikmaður Lakers.
Og margir fleiri hafa tekið í
sama streng, með tárin í augun-
um.
Mildll missir fyrir BuIIs
Þeir sem þó missa hvað mest eru
án efa sjálfir meistarar Chicago
Bulls, sem sitja nú eftir í sárum.
Eigendur liðsins sýndu fádæma
grunnhyggni, eftir síðasta leik-
tímabil, þegar kom að ráðningu
þjálfara og sitja nú eftir með sárt
ennið og með besta félagslið
heims til margra ára í rjúkandi
rúst. Hefðu menn þar á bæ stað-
ið rétt að málum og beitt sér fyr-
ir því að halda saman meistara-
liðinu og endurráða Phil
Jackson, þjálfara, þá er ekki víst
að Jordan væri hættur. En Jordan
hafði áður lýst því yfir að ef
Jackson hætti að þjálfa, þá væri
hann hættur og hann hefði ekki
áhuga á að leika með öðru liði.
En eigendur liðsins skelltu
skollaeyrum við þessari yfirlýs-
ingu Jordans og því fór sem fór.
Nú hafa þeir ekki aðeins misst
Jordan, því nýlega gerði Scottie
Pippen fimm ára samning við
Houston Rockets og byijar að
leika með liðinu þegar NBA-deil-
in hefst í febrúar. Dennis Rodm-
an hefur einnig látið í það skína
að hann muni ekki leika körfu-
bolta í vetur, en menn taka hann
þó ekki alveg trúanlegan.
Það verður eflaust erfitt verk-
efni sem bíður nýja þjálfarans,
Tim Floyd, hjá Bulls við að
byggja upp nýtt lið, en keppnin í
NBA-deiIdinni hefst 5. febrúar.
Bulls mun fyrir þann tíma
leika tvo æfingaleiki við Indiana
Pacers, sem fara fram 24. janúar
og 1. febrúar, og verður spenn-
andi að sjá árangurinn úr þeim
leikjum, eftir þessar breytingar
hjá liðinu og án þeirra lordans og
Pippens.
Nýr leikmaðiir tiJ Þórs
Körfuknattleikslið Þórs frá Akur-
eyri hefur fengið nýjan banda-
rískan leikmann í lið sitt. Hann
heitir Daniel Spillers og er ekki
ókunnur hér á landi, því hann lék
með Keflvíkingum undir lok sl.
keppnistímabils. Forveri hans hjá
Þór, Lorenzo Orr, var Iátinn taka
pokann sinn eftir slaka frammi-
stöðu í fyrstu Ieikjum Þórs á nýju
ári. Einnig átti hann við smá
meiðsl að stríða.
„Við vonum að sjálfsögðu að
Spillers eigi eftir að styrkja lið
okkar. Hann er mikill frákastari
og sterkur varnarmaður. Hann
þótti standa sig mjög vel með
Keflvíkingum sl. vetur og sagður
drengur góður í allri framkomu.
Hann kemur til Akureyrar í dag
þannig að hann mætir á fyrstu
æfingu hjá okkur strax í kvöld,"
sagði Agúst Guðmundsson, þjálf-
ari Þórsara.
Fyrsti leikur Þórsara með nýjan
útlending innanborðs verður nk.
föstudagskvöld en þá taka þeir á
móti sterku liði Njarðvíkinga.
Leíkurinn fer fram í íþróttahöll-
ini i klukkan 20.30. - GS
Urslit hand-
boltaleik iaí
gærkvöld
ÍR-ÍBV 25:24
Stjarnan-Haukar 28:25
FH-HK 24:24
Selfoss-KA 32:27
Grótta/KR-Fram 20:21
Valur-UMFA 25:28