Dagur - 21.01.1999, Síða 3

Dagur - 21.01.1999, Síða 3
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 - 19 LÍFIÐ í LANDINU Söngarfi komið til nútímans Guðrún Laufey Guðmundsóttir, nemi í sagnfræði, er að vinna að verkefni tengdu rannsókn á íslenskum tónlistararfi. Guðrún Laufey Guð- mundsóttir, nemi í sagnfræði, erað vinna að verkefni tengdu rannsókn á íslenskum tónlistaraifi. Samtök- in Collegium Musicum standa að baki verk- efninu en þau hafa einsett sérþað að dragafram allarnótur sem eru varðveittarí íslenskum handritum. Guðrún Laufey segir að hug- myndin sé að fara í gegnum öll kvæðahandrit sem til séu á Landsbókasafninu, Arnastofnun og víðar og kanna það hvort það finnist nótur í þessum handrit- um. Hún segist hafa skoðað á annað þúsund handrita og fund- ið nótur í tíunda hveiju handriti. „I kringum aldamótin 1800 voru þrír menn sem mest rannsökuðu þetta, Bjarni Þorsteinsson, Páll Eggert Olafsson og Jónas Jónas- son. Helmingur þeirra laga sem ég hef fundið er líka að finna hjá þeim, en helmingurinn er í raun og veru óþekktur. Þetta eru mest sálmalög en þarna eru ver- aldleg kvæði líka,“ segir Guðrún. Undanfarin sjö ár hefur Ný- sköpunarsjóður námsmanna veitt háskólanemum styrk til að vinna að nýsköpun í atvinnulífi eða á fræðasviði. Nú hafa verið útnefnd sex verkefni. Nýsköpun- arsjóður námsmanna var stofn- aður árið 1992 í því skyni að afla nemendum spennandi sum- arvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Sjóðurinn styrkti 137 verkefni á síðasta ári af þeim hafa sex verið tilnefnd til Nýsköpunarverð- launa forseta Islands og er verk- efni Guðrúnar eitt þeirra. Speimandi verkefni Leiðbeinandi Guðrúnar við verkefnið er Kári Bjarnason á Handritadeild Landsbókasafns- ins. Hann segir að Guðrún eigi að móta ákveðið vinnulag um það hvernig eiga að gera hand- ritin aðgengileg. Þegar búið verði að finna handritin geti menn farið að rannsaka þau og það sé spennandi verkefni. „Jafnvel þó sumir sálmanna hafi verið gamlar þýskar drykkjuvfsur frá 16. eða 17. öld þá hljómuðu þær öðruvísi þegar gömul guð- hrædd kerling söng þær í kirkju á íslandi á 19. öld,“ segir Kári. Guðrún hefur líka rannsakað hvaðan kvæðin eru komin. Hún athugaði hvað af þeim væri af ís- lenskum uppruna og hvað er- lent. Hún segist áætla að um helmingur af lögunum sem hún skoðaði væru af íslenskum upp- runa. „Það voru nokkur öflug sálmaskáld eins og Olafur Jóns- son á Söndum og Páll Iögmaður Vídalín, en hann samdi nokkur sálmalög. Þetta eru Iög víða af landinu, og það eru kannski að- alega prestar sem kannski eru ritarar og vinna í þessu. Það eru líka bændur sem settu saman sálma eða kvæði. Það hefur ver- ið til tónlist almennt í þjóðfélag- inu fyrr á öldum. Þetta eru yfir- Ieitt mjög falleg lög og raunar merkilegt að þau skyldu hafa gleymst og týnst. Það hefur oft verið sagt að tónlist frá 17., 18. og raunar 19. öld líka hafi ekki verið til. Það er í raun og veru ekki rétt, við höfum bara ekkert vitað af henni. Þetta er bara óþekktur menningararfur sem við erum að sýna fram á að sé til.“ Lilnar við eftir hundruð ára Síðastliðið sumar var sýning á mörgum þessara handrita en við opnun hennar flutti hópurinn Collegium Musicum nokkur verk sem tónskáldin Snorri Sig- fús Birgisson og Jón Nordal út- settu. Guðrún Laufey skilaði af sér skýrslu um verkefnið síðasta sumar en er nú að vinna það áfram. „Það verður kristnitöku- hátíð árið 2000, þá verður ráð- stefha þar sem gerð verða skil á verkefninu. Eg er að tölvuvinna upplýsingarnar. Það er mikið af tónskáldum sem hafa sýnt þessu áhuga. Það er í raun og veru mjög sérstætt að þarna heyrði maður tónlistina lifna við eftir mörg hundruð ára innilokun í handritum. Þá sá maður nýjan flöt á þessu." Guðrún segir að það vakni endalausar spurningar þegar unnið sé að svona verkefni. Hún segist gera frekar meira heldur en minna vegna þess að auð- veldara sé að stroka út en að fara aftur í handritin. „I raun og veru hefur allt sem ég hef gert nýst okkur á einhvern hátt, þó að ég nýti þetta ekki getur ein- hver annar gert það einhvern tíma seinna. Við erum að reyna að vinna að þessu þannig að all- ir geti gengið að þessu og kann- að þetta, hvort sem það er kór- fólk eða almenningur. Maður verður nú bara að sjá hvernig þetta vinnst, það er gífurlega mikið eftir af rannsókninni. Þetta er efni í nokkrar doktors- ritgerðir. Það er spurning hverng best er að koma því til skila. Það verður best gert með flutningi," segir Guðrún Laufey Guð- mundsdóttir. -PJESTA Asa Bj örk mótmælir Ása Björk var fremur seint læs en hún mun nú afar iðin við lestur minninga- greina og getur endursagt heilu lífshlaupin að lestri loknum. En skemmtileg- ast finnst henni þó að fara út með ófötluðum vinum sínum. Þú hefur sennilega ekki velt þvífyrir þér, en hvað tekurvið hjá fötluðum unglingi þeg- arhann útskrifast úr Öskjuhlíðarskóla? Fyrir ekki löngu síðan birtist í Morgunblaðinu stutt aðsend grein með fyrirsögninni: Ég mót- mæli. Undir greinina skrifaði Ása Björk Gfsladóttir, 19 ára fötluð stúlka, sem gagnrýndi harðlega íslenskt skólakerfi. Það voru allar lokuðu dyrnar í ís- lensku skólakerfi sem blöstu við henni og foreldrum hennar eftir að hún útskrifaðist úr Oskju- hlíðarskóla sem voru tilefni gagnrýninnar. En það sem hafði úrslitaáhrif hjá Ásu var að fá ekki að vera með ófötluðum í skóla. Hún sækir 9 tíma á viku hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðra, sem hefur tímabundið aðsetur í Borgarholtsskóla, og það þykir foreldrum hennar hvergi nærri fullnægjandi námsframboð. Það sem Ásu svíður þó mest er að fá ekki að umgangast ófatl- aða nemendur, fá ekki að borða á sama stað og þeir. Þetta er annar vetur Ásu í Fullorðins- fræðslunni og svo heppilega vildi til að byggja þurfti við Borgarholtsskólann á þeirri hlið þar sem Fullorðinsfræðslan er staðsett og því hafa hinir fötluðu nemendur „þurft“ að nota aðal- innganginn í vetur. Allt annað líf, finnst Ásu, fötluðu nemend- urnir fá nú að ganga með ófötl- uðum inn í skólann og nú fær Ása sér m.a.s. „hressingu“ einu sinni í viku, þ.e. gosdrykk eins og hinir krakkarnir.... Vill í skóla með ófötluðuin Ása hefur verið fötluð frá fæð- ingu en bjó í Svíþjóð fyrstu ævi- árin og gekk þá vandræðalaust á leikskóla ásamt ófötluðum börn- um. Eftir að hafa lokið grunn- skólanámi í Öskjuhlíðarskóla og tveggja ára starfsdeild, spyrnti hún við fótum og harðneitaði að fara í skóla með fötluðum, nú vildi hún fá að sitja með ófötluð- um krökkum í skóla. Tók þá við mikill Ieit foreldra Ásu til að finna skólavist fyrir hana. Þau sóttu um framhaldsskólavist í Menntaskólanum við Hamrahlíð - en fengu ekkert svar. Þrátt fyrir mikinn barning og erindi til um- boðsmanns alþingis bauðst eng- in skólavist og því hóf hún nám í F ullorðinsfræðslunni. Sigrún Benediktsdóttir, móðir Ásu, er mjög ósátt við að ekki skuli vera til Ijögurra ára heild- stætt framhaldsnám fyrir fatlaða nemendur eins og aðra. „Full- orðinsfræðsla fatlaðra er eins og nafnið gefur til kynna hugsuð fyrir fullorðna, er í námskeiðs- formi sem greitt er fyrir. Hún á fullan rétt á sér en kemur ekki í stað ahliða skólagöngu á fram- haldsskólastigi," segir Sigrún og telur illa hugsað fyrir því hvað verði um fatlaða að skólaskyldu lokinni. Ekkert sé reynt að meta möguleika þeirra í framtíðinni við útgönguna úr Öskjuhlíðar- skóla. „Mér liggur við að segja að það sé ekkert framundan." Hún telur að eftir grunnskólann þurfi fatlaðir að eiga kost á hag- njitu framhaldsnámi, bóklegu og verldegu, sem þjálfi upp færni þeirra sem nýst geti úti á vinnu- markaðnum. Þessir krakkar eigi langt líf fyrir höndum og aðrir kostir þurfi að vera til staðar „en að senda þau út til að mæla göt- urnar. Þetta geta verið mjög kraftmiklir krakkar og þá þarf að virkja á einhvern hátt. Þessir einstaklingar gætu annars átt eftir að kosta eitthvað annars staðar í kerfinu á lífsleiðinni." Vinna með fötluðum og öldruðum Draumur Ásu er að þjálfa sig til starfa við umönnun og með fötl- uðum og svarar því afdráttar- laust játandi að námið í Borgar- holtsskóla ætti að vera þannig skipulagt að það auðveldaði fötl- uðum að fá vinnu á eftir. - Er eitthvað sem þú vilt segja okkur að lokum? „Já,“ svaraði Ása Björk ákveð- in eftir nokkra umhugsun. „Mér finnst ósanngjarnt að krakkarnir sem fengu að fara inn í FB í haust fá ekki að fara í matartím- anum með öðrum nemendum, ófötluðum og fötluðum, inn í mötuneytið. Eg er ósátt við það að við fáum ekki að hitta krakk- ana eins og þau.“ LÓA

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.