Dagur - 21.01.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 21.01.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 - 21 Tfnptr LÍFIÐ í LANDINU Ágæt þátttaka í j ólagetraun Fjölmargir tóku þátt í getrauninni Land og þjóð, sem varíjóla- blaði Dags. Þrírfá bókavinninga. ingum sem fram voru settar og allmargir komu með rétt svör. Ur réttum Iausnum hafa verið dregin nöfn þriggja þátttakenda og þeir fá senda bók að launum fyrir þátttökuna. Þetta eru Guð- ný Pálsdóttir, sem býr í Sigtúni 27 á Patreksfirði, Eygló Yngva- dóttir í Onnuparti í Þykkjavbæ og Skúli Þ. Jónsson, sem býr í Boðagerði 6 á Kópaskeri. Guðjón Arngrímsson Jón Sigurðsson fæddist 1811. 3) Jón Isberg sýslumaður túlkaði Húnavershátíðina sem tónleika sem ekki bæri því virðisauka- skatt. 4) Systurkirkjur Hjarðar- holtskirkju í Dölum eru á Húsa- vík og á Breiðabólstað í Fljóts- hlíð. 5) Látrabjarg eða Bjárg- tangar. 6) Tómas Guðmundsson starfaði á Hagstofunni og Is- lenska örlagaþætti skrifaði hann Þessar bækur voru í verðalaun íjólagetraun Lands og þjóðar. Vinningar verða sendir út í vikunni. Ágæt þátttaka var í jólagetraun þáttarins Lands og þjóðar, sem haldið hefur verið úti hér í blað- inu sfðustu tvö árin. Fjöldi fólks sendi inn svör við þeim spurn- Rétt svör við spurningunum í jólagetrauninni eru: 1) Friðrik Ólafsson er skrifstofustjóri AI- þingis og Jóhann Hjartarson er Iögfræðingur Islenskrar erfða- greiningar. 2) Sambandslögin og með Sverri Kristjánssyni. 7) Jón Kr. Ólafsson. 8) Siglufjarðar- skarð. 9) 1968 til 1980. 10) Jó- hanna Sigurðardóttir. 11) Hvílík þjóð. 12) Akraborgin gamla er nú Slysavarnaskóli sjómanna. BDBIEH Segníwöian HáskólaÍBÓ Laugarasb'ó Sambíéin Stíörnutac DV 4 dagar eftir Sýningum á sjö myndum á Kvikmvndahátíð lýkur í dag: The Mighty (gerð eftir skáldsögu um tvo utangarðs- drengi), hollenska mjmdin Karakter, Spanish Pri- soner (Ieikstýrt af David Mamet, einu virtasta leik- skákli Bandaríkjanna), Men with Guns (um s-aineríslían lækni sem fer í pílagrímsför til að leita uppi gamla nem- endur sína sem sendir voru í fátæk indíánaþorp) , Four days in September, My Son the Fanatic og The Tango Lesson. Sú síðast- nefnda er eftir bresku kvik- myndagerðarkonuna Sally Potter (Orlando) og ijallar myndin reyndar um hana sjálfa og hennar helsta áhugamál: tangóinn. Sagan hefst á því að Sally kynnist argentínskum dansara og gerir honum girnilegt tilboð: kenni hann henni að dansa tangó skuli hún gera hann að kvik- myndastjörnu. Erótík í teUairmynduni Klukkan 21 í Regnboganum verður svo annar tveggja fyrirlestra Dennis Nyback kvikmyndasagnfræðings og ber þessi heitið Erotic Show. Þar mun hann fjalla um erótík í teiknimyndum. Þá ber að geta þess að eina sýningin á heimildamyndinni þeirra Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska, The Brandon Teena Story verður í Regnboganum ld.17 í dag. Sally Potter leikur sjálfa sig í myndinni The Tango Lesson. Hver ber ábyrgðina SVOJUA ER LIFID Pjetur St. flrason skrifar Pjetur svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Pjetur svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. ;ða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Neytendaréttur er lesanda hugleikinn sem sendi blaðinu bréf og vildi viti hver bæri ábyrgðina þegar brothætt gjöf er gefin og reynist brotin þegar hún er tekin upp. Hjá Neytendasamtökunum fengust þær upplýsingar að kaupandinn eigi að athuga hvort hlutur sé heill þegar hann fer með hann úr búðinni. Ef um er að ræða kristalsskál, styttu eða annað þá á kaupandinn að ganga úr skugga um að hún sé óbrotin þegar hann fer með hana úr búðinni. Lesandinn vildi líka vita hvort það skipti einhveiju máli þeg- ar brothætt glervara er pökkuð inn í plast í versluninni þannig að hún virkar sem „mjúkur pakki“ þegar hún er afhent og tekin upp þó að gjafapappírinn hafi verið settur utan á heima. Þarna gildir ábyrgð verslunarinnar ekki eftir að kaupandinn er kominn út fyrir dyrnar með vöruna sem er heil. Þegar mað- ur er búinn að kaupa vöruna, og ganga úr skugga um að hún sé heil verður maður að pakka henni þannig inn að hún brotni ekki. Þannig að þiggjandinn geti ennþá vitað það að þetta er ekki „mjúkur pakki." Þegar hlutur er sendur á milli staða þá fer að skipta máli hvernig honum er pakkað inn þegar hann er sendur. Fyrsta málið er að merkja vöruna þannig að ekki leiki á því nokkur vafi að hún sé brothætt, svo verður að pakka henni þannig inn að hún eigi ekki að geta brotnað. Það væri líka æskilegt ef þetta er dýrt og mikið stykki að tryggja það áður en það er sent. Oft lendir maður í því þegar manni líst vel á einhveija vöru í hillu verslunar að afgreiðslukonan fer fram á Iager og sækir kassa með hlutnum, þetta getur verið kristalsskál eða eitthvað annað. Síðan fer maður með kassann með kristalsskálinni heim og skálin er brotin þegar þangað kemur. Eða að maður pakkar kassanum með skálinni inn, í trausti þess að skálin sé heil. Ef skálin er brotin þegar hún kemur í hendur þess sem hún er gefin, þá vandast málin. Það er í raun kaupandans að sýna fram á að hann hafi aldrei fengið að sjá hlut- inn í búðinni. Það getur verið svolítið erfitt. Eina ráðið sem kúnninn á í þessu tilviki er því að Þegar brothættur hlutur er keyptur kaupa ekki brothætta verður kaupandinn að ganga úr skugga hluti án þess að fá að sjá um að hann sé óbrotinn þegar hann fer þá áður en hann kaupir með hann úr búðinni. Kristalslistaverk hlutinn. eftir Hans Gottlieb Frabel. ■ HVAD ER Á 8EYÐI? LUDWIG VAN BEETHOVEN í HÁSKÓLABÍÓI Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskóla- bíói í kvöld verða leikin verk eftir Ludwig van Beet- hoven. Á efnisskránni eru: Leonora-forleikurinn nr. 3, Píanókonsert nr. 5 og Sinfónía nr. 4. Hljómsveitarstjóri verður Tico Saccani sem tók við starfi aðalhljómsveitastjóra Sinfóníunnar í upphafi þessa árs. Auk starfa sinna hjá Sinfóníunni er hann að- alhljómsveitarstjóri Fílharmóníhljómsveitarinnar í Búdapest auk þess sem hann kemur fram sem gesta- stjómandi á tónleikum austan hafs og vestan. Einleikari verður bandaríski píanóleikarinn Jeffrey Siegel. Hann mun einnig koma fram föstudagsmorgun- inn 22. janúar á tónleikum Sinfóníunnar fyrir fram- haldskóla. Dúndurdjass í Kafflleikhúsinu I kvöld klukkan 21.00 verður Djasskvöld með Andrew D’Angelo og hljómsveit í Kaffileikhúsinu. Þar leiða saman hesta sína þau Hilmar Jensson gítarleikari, Ey- þór Gunnarson píanóleikari, Óskar Guð- jónsson Saxófónleikar, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Matthías Hemstock trommuleikari. Andrew D’Angelo er altsaxófónleikari frá New York sem hingað er kominn til að hljóð- rita geisladisk með fýrrgreindum hljóð- færaleikurum. Frá félagi kennara á eftirlaunum Bókmenntahópur í dag kl. 14.00 og kór kl. 16.00 í Kennarahúsinu við Laufás- veg. Frá félagi eldri borgara Þorraseli Opið í Þorraseli í dag frá kl. 13.00 til 17.00. Kaffi og meðlæti kl. 15.00. Dans- að í kaffitímanum, allir velkomnir. Frá félagi eldri borgara Ásgarði, Glæsi- bæ Margrét H. Sigurðardóttir viðskiptafræð- ingur verður til viðtals um almannatrygg- ingar í dag eftir hádegi. Kaffistofan er opin kl. 10.00 til 13.00. Dansað annað kvöld ldukkan 22.00, hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur. Frá Ritlistahópi Kópavogs Fimmtudaginn 21. janúar verður upp- lestur í Listasafni Kópavogs á vegum Rit- listahópsins. Gestur að þessu sinni verð- ur Gerður Kristný, rithöfundur og skáld og mun hún lesa úr smásagnasafni sínu Eitruð Epli. Dagskráin stendur frá kl. 17.00 til 18.00. Aðgangur ókeypis og all- ir velkomnir. Rask-ráðstefna 1999 Þrettánda Rask-ráðstefna íslenska mál- fræðifélagsins verður haldin í fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar laugardaginn 23. janúar og hefst kl. 13.15. Fimm fræði- menn flytja fyrirlestra: Jón G. Friðjóns- son, Þórhallur Eyþórsson, Jón Axel Harðarson, Höskuldur Þráinsson og Margrét Jónsdóttir. LANDIÐ Fræðsludagur um liðveislu fatlaðra Laugardaginn 23.janúarld. 10.00-15.00 stendur FFA-fræðsla fyrir fatlaða og að- standendur, fyrir fræðsludegi um lið- veislu í samvinnu við Félagsþjónustu Ak- ureyrarbæjar, Sjálfsbjörgu Akureyri og Þroskahjálp á Akureyri. Þátttökugjald er 1.000 kr. og er innifalið í gjaldinu matur og kaffi. Þátttaka tilkynninst fyrir hádegi föstudaginn 22. janúar til Þroskahjálpar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.