Dagur - 21.01.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 21.01.1999, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 21. JAUÚAR 1999 - 23 LÍFIÐ t LANDINU VEÐUR L. Ruddalega fíottur með sterka tilvísun í gamla góða Dodge Power Wagon. Þeir „Amerísku“ að birtast á ný Aðdáendur Amerískra glæsivagna geta farið að anda léttar. Loks- ins, má segja, eftir tveggja áratuga öldu- dal bílaframleiðslu í B andaríkj imiuii. Það er augljóst afturhvarf til for- tíðar á sýningu Amerískra bíla- framleiðenda. Bílar frá fimmta, sjötta og sjöunda áratugnum eiga töluvert í þeim nýju bílum sem vöktu hvað mesta athygli. Það er vandfundinn glæsilegri pallbíll en hugmyndabíllinn sem Chrysler kynnti sem nýjan Dodge Power Wagon - þrátt fyrir að hönnun bílsins byggi sterkt á fyr- irrennaranum frá 1946. Enda reyndist þessi voldugi pallbíll einn eftirtektarverðasti bíll sýn- ingarinnar. Hann gefur ákveðnar vísbendingar um útlit hins nýja Dodge Ram sem væntanlegur er í framleiðslu 2002. Undir vélarhlífinni er einnig frumsmíð - 7,2 lítra sex strokka díselvél með Seinni innspýtingu. Hestöflin eru 250. Þjóðsagnakenndir bílar eins og orkubúrið Dodge Charger og hinn Ijóðræni Fort Thunder- bird eru einnig að rísa úr öskustónni. T-birdinn gerir meira en líkjast 1955-1957 árgerðinni af sama bíl - hann er eins í stórum dráttum. BÍLAR Olgeir Helgi Ragnarsson skrifar Kunnuglegur og kraftalegur afturendi, eða hvað? Dodge Charger eins og framleiðandinn hugsar sér hann I dag. Ford Thunderbird týsir allt að þvi Ijóðrænu afturhvarfi til fortíðarinnar. Rennilegar mjúkar línur og fallegur bíll. Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: olgeirhelgi@isIandia.is Veðrið í dag... Norðan og vestan kaldi eða stinningskaldi og snjókoma eða éljagangur noróan- og austantil, en lægir og dregur mjög úr úrkomu er líður á daginn. Norðan gola eða kaldi og úrkomulítið sunnan- og vestanlands. Frost 1 til 6 stig, minnst suðaustantil. mti 1 tu 4 Egilsstaðir Bolungarvík w íEsSrs0FA veðurspárit 20. 1.1999 Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. Þríhyrningur táknar 25 m/s. Dæmi: « táknar norðvestanátt, 7.5 m/s. Færð á vegiun Opið er fyrir umferð um Ljósavatnsskarð en ökumenn beðnir um að gæta varúðar. Á Norðurlandi er hált og víða snjókoma og skafrenningur. Á Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar skafrenningur og eru Mývatns- og Möðradalsöræfi og Vopnafjarðarheiði talin ófær. í öðrum landshlutum er allgóð vetrarfærð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.