Dagur - 23.01.1999, Qupperneq 4

Dagur - 23.01.1999, Qupperneq 4
IV-LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 Thypr MINNINGARGREINAR Albert Jóhaunsson Minningarorð um Albert Jó- hannsson, kennara í Skógum. Nú er fallinn frá vinur minn og skólabróðir, Albert Jóhannsson í Skógum. Hann var búinn að vera heilsu- tæpur í mörg ár, féll oft niður sárveikur en reis aftur upp á ný og var þá ótrúlega duglegur að komast um allar jarðir, stundum í hjólastól. Hinn mikli þróttur, sem í and- anum bjó knúði hann til dáða, þótt Iíkamlegir burðir væru ekki til að sækja kjarkinn í. Hann átti svo mörg áhugamál, það var ekkert mannlegt, sem hugmyndir hans gátu ekki leikið sér að, ekkert sem hann ekki ræddi af þekkingu og reynslu, þó aldrei fylgdi oflæti. Skarpar skoð- anir og iýsingar skorinorðar, eng- inn undansláttur eða vöflur á hlutunum, hver fékk sinn skammt af hreinskiptu hugarfari og ekki auðvelt að umróta þvf. Ekki var hann þó þráablóð en hreinn og sannur, afar aðgengi- legur og viðræðugóður, hafði skoðanir sem hann bar fram án þess nokkurn meiddi. Hlýr og drenglundaður. Albert Jóhannsson var alinn upp í Fljótshlíðinni, ekki fjarri þeim stað „þar sem Gunnar snéri aftur“. Var af góðum bændaætt- um, foreldrarnir skiluðu af sér jörð, sem þau höfðu stórbætt og hópi systkina, sem urðu þekkt fyrir dugnað og góða hæfileika. Dregurinn ólst upp við sveita- störf og þekkti þau vel, kunni til verka. Hestarnir eignuðust merkis- bera sinn í honum því af hinum fjölmörgu áhugamálum er ekki vafi að þar stóð hesturinn fremst. Ekki var því nema eðlilegt að samtöl okkar félaganna gengju í þá átt m.a. er ég heimsótti hann á sjúkrahús, nýlega. Þá hafði Al- bert eftir ungum sonarsyni sín- um „að hann afi hefði níu líf“ eins og sagt er. Því næst barst talið að syninum norður í Húna- vatnssýslu, skólastjóranum, sem var sestur á stórbýli með álitleg- an hóp hrossa. Vindótt hross norður í Hegranesi, að vísu óhöpp í því, folaldakaup og hvað væri hugsanlega hægt að gera fyrir barnabörnin. Þannig lifði Albert sig fullkomlega inn í líð- andi stund, ráðgerði helst lang- ferðir í hrossaskoðun, trúlega yrði erfitt að bæla niður að verða sér úti um efnilegt folald, eða hvað það nú var, áhuginn alltaf virkur, ráðagerðir, athafnir. Þetta er undrunarefni þeim, sem vissu hve mjög heilsunni hafði hrakað þó aldrei væri kvart- að, æ oní æ, þegar rofaði til, var hugurinn og kjarkurinn samur við sig. Þannig minnist ég Alberts, fullur aðdáunar, hvernig hann bar sitt hlutskipti og er viss á því, að enginn hefði staðið sig betur. . A sinni tíð vorum við bekkjar- bræður í „yngri-deild“ hér í Hér- aðsskólanum á Laugarvatni. AI- bert var tvíburi en dvaldi hér með öðrum bróður sínum, Agústi, sem var tæpu ári yngri. Þeir bræður hlupu svo yfir næsta bekk og fóru í gagnfræðadeild og luku því prófi með mildum ágæt- um, enda greindir vel og mig minnir þeir væru hnífjafnir á út- skriftinni. Þeir voru sínu heimili til sóma. Félagsmál voru Alberti í blóð borin, hann starfaði víða í félög- um, oftast í fremstu röð m.a. hreppsnefndarmaður í áratugi og oddviti hluta af þeim tíma. Þá var Albert kosinn varaformaður Landssambands Hestamanna 1964-1969 en þá lést af slysför- um Einar heitinn Sæmundsen og tók Albert þá við formennskunni og gegndi því starfi allt til 1983. Nokkur ár var hann ritstjóri „Hestsins okkar.“ Þessi störf voru rækt af samviskusemi og reglu- semi og hann naut sín þar, kunn- áttan var ríkuleg en ekki var það þó síst hinn Iifandi áhugi, sem skóp hæfnina. Albert var heiðursfélagi í Hestamannafélaginu „Sindra" og Landssambandi hestamannafé- laga og fleira mætti eflaust upp telja af þeirri virðingu er hann naut. A skólaárum minnist ég hve Al- bert var drátthagur og framhluti af hesti voru oftar en ekki rissað- ir á blað hjá honum. Það kom líka upp úr dúrnum að töluvert hefur hann skilið eftir sig bæði af teikningum og ljómandi fallegum vatnslita og olíumálverkum. List- hneigðin leyndi sér ekki, þó ólærður væri á þeirri braut. Albert var skínandi vel hag- mæltur, kvæði hans og vísnagerð standa vel fyrir sínu. Þar er margt vel orðað og gjarnan dýrt kveðið undir allskyns bragarhátt- um. Já, hann Albert var Ijölhæf- ur, var flest vel gefið. Hestamennskan var hans hjartans mál. ViII einhver renna með austur undir Fjöllin fríðu, þegar vorið er bvTja að kræla á sér? Það voru alltaf einstök við- brigði að fara úr hásveitum Ar- nessýslu, meðan enn voru skurð- ir og gil full af snjó, rindarnir sem upp voru komnir, sinugráir, berangurslegir, skógurinn svart- ur, líflaus, vötnin ísilögð, köld. En þegar kom austur fyrir Selja- landsmúlann rann í fangið allt annar heimur, tún orðin græn, og stutt í það að tré færu að laufg- ast. Þá fór hrollurinn úr manni, skyndilega voraði. Að mörgu leyti var þetta líkt og flogið væri snemma vors frá Is- landi suður til annarra landa, þar sem sólin er komin hærra á loft, allt annar heimur. Við ökum vestur á hlaðið á Ytri-Skógum og göngum á smá brú yfir skoppandi Ijallalæk við hesthúsvegginn, undir bröttum hlíðum og vindum okkur inn í burstabyggt hesthús þar sem svo- lítið eymir af gömlu viðbygging- arstefnunni. Þar standa á stíum rauð og bleik hross flest blesótt, kannski einn jarpur hestur, aðrir Iitir sjást varla. Það jafnvel glittir í fallegt auga með grönnum hrin- gi, við dálítið glannalega blesótt. Já, margskonar Ijörlegar lýsingar klingja manni í eyrum. - Hringur minn frá Rauðafelli er 152 cm heldurðu að hann beri ekki meðaldrjóla? Það er ótrúlega gaman að hitta slíkan tómstundabónda og fá að kynnast ættliðabilunum, skoða allt frá folöldum í gamla hesta. Já, þarna var líka stóðhesturinn Vöggur, vel blesóttur, drifahvítur á fax og tagl. - Hvernig Iíst þér á? Síðan var spjallað við þá hænd- ur í Skógum og tryppi skoðuð víða í Fjalla-Blesafélaginu. Þetta er einn af þessum ógleymanlegu vordögum, þar sem heyra mátti grasið spretta. Manni auðnast, sem oft áður að rækja kynni við samfélag góðra hrossaræktar- manna, vænn dagur í minning- unni þar sem vaxtarbroddurinn er ungviðið. Ailtaf jafn gaman að vera með. Albert Jóhannsson var mikill gæfumaður í einkalífi, átti glæsi- lega heiðurskonu austan úr Alftaveri, Erlu Þorbergsdóttur, og með henni Ijóra syni og eina dóttur, öll hin mannvænlegustu, tengdabörn og afa-börn, öll á sömu lund. Hér var fólgin lífs- hamingjan, sem Albert kunni að meta, það leyndi sér ekki, þvf hann var stoltur af hópnum sín- um og hafði alveg efni á því. Mikil sorg var það fjölskyld- unni er þau misstu soninn Gísla Þóri úr krabbameini, ungan og efnilegan dreng, sem hér í Menntaskólanum á Laugarvatni var að feta sig áfram til mann- dóms og meiri þroska. Hann varð mörgum harmdauði. Eg vil fyrir hönd okkar hjóna þakka ánægjustundir f gagn- kvæmum heimsóknum og votta Erlu og ijölskyldunni samúð og biðja þeim allrar blessunar. Það býr heiðríkja og hressileg- ur blær í minningunni um Albert vin minn í Skógum. Far í guðs friði. Þorkell Bjamason. Við andlát vinar míns og skóla- bróður, Alberts Jóhannssonar, stíga minningarnar fram hver af annarri líkt og myndir á tjaldi. Fyrsta myndin er skýr, gleymist ekki. Nýr kafli var að heljast í lífi okkar. A lýðveldisárinu haustið 1944 hófum við nám við Héraðs- skólann að Laugarvatni í hópi Ijölmargra ungmenna hvaðanæ- va af landinu. Dvölin á Laugar- vatni var eins konar opinberun fyrir okkur, enda flest okkar að- eins með þáverandi skyldunám að baki, en aftur á móti höfðum við öðlast víðtæka reynslu með þátttöku í atvinnulífi þjóðarinnar bæði til lands og sjávar. Sú reynsla var dýrmætt veganesti inn í þetta nýja samfélag. Það ríkti bjartsýni í nemendahópn- um, við vorum komin til að læra og taka þátt í félagslífi skólans. A blómaskeiði sínu voru héraðs- skólarnir eins og sólargeisli í menningarlífi þjóðarinnar með því að opna dyr sínar fyrir þús- undum ungmenna, sem að öðr- um kosti hefðu ekki átt greiðan aðgang að framhaldsnámi. Allt var nýtt bæði nám og félagslíf og minnisstæðir eru málfundirnir í skólanum. Þar var rætt um allt milli himins og jarðar og ekki hvað síst nýfengið frelsi og fram- tíð þjóðarinnar. Sveitapilturinn úr Fljótshlíðinni blómstraði í þessu samfélagi skólans. Albert var námsmaður í fremstu röð og mál sitt flutti hann af hógværð og studdi það ljósum rökum. Hann var réttsýnn og sanngjarn, öfgar voru eitur í hans beinum og hann var eindreginn talsmaður þeirra, sem minna máttu sfn í þjóðfélag- inu. Bekkjarsystkinin frá Laugar- vatnsárunum kveðja vin sinn og félaga með virðingu og þökk. Að loknu námi í fyrstu gagn- fræðadeild Laugarvatnsskólans vorið 1946 lá leið okkar í Kenn- araskóla Islands og settumst við þá um haustið í þriðja bekk skól- ans. Þar var fyrir góður og glað- vær hópur, sem alla tíð hefur haldið vel saman. Svo stóð á fyr- ir mér þetta haust, að ég átti ekki á vísan að róa með húsnæði og fæði. Albert var búin að leysa þau mál. „Eg fæ að vera hjá góðu fólki, sem nýlega er flutt í bæinn austan úr Fljótshlíð," sagði hann og bætti svo við: „Ég ætla að vita, hvort þú getur ekki fengið að deila með mér herberginu og fengið fæði Iíka.“ Er ekki að orð- lengja það, að þetta gekk eftir. Fyrir þetta drengskaparbragð er ég vini mínum ævinlega þakklát- ur og þetta lýsir honum vel. Arin tvö á Bragagötu 22 A voru sól- skinstími í mínu Iífi. I Kennara- skólanum naut Albert sín vel, stundaði námið af kappi og tók þátt í félagslífinu af áhuga. Hann var prúðmenni í samskiptum við aðra, hrókur alls fagnaðar á gleðistundum, kunni frá mörgu að segja, gamansamur án allrar græsku, söngvinn, ágætur hag- yrðingur og margt fleira var hon- um til lista lagt. Hann orti ekki aðeins ljóð, hann samdi líka lög við þau og kunnir eru hæfileikar hans á sviði myndlistar. Hér var enginn meðalmaður á ferð. Eins og vænta mátti hlóðust á kennar- ann í Skógaskóla margs konar fé- lagsmálastörf. Hesturinn átti hug hans allan, þjóðkunnur varð hann fyrir störf sín í þágu hesta- manna og þar kom sér vel, hver- su gott vald hann hafði á ís- lensku máli og hversu næmt auga hann hafði fyrir skáldskap bæði í bundnu og óbundnu máli. Þeir, sem betur til þekkja, munu greina frá störfum Alberts að hin- um ýmsu félagsmálum. Fyrir um það bil tíu árum veiktist vinur okkar og háði harða baráttu við erfiða sjúkdóma til hins síðasta. Hann bar veikindi sín ekki á torg, eyddi jafnan talinu, ef um þau var rætt, vildi heldur ræða aðra hluti svo sem að hlusta á eða fara með vel kveðnar vísur, rifja upp gamlar minningar og fleira af þvf taginu. Við hlið hans í sjúkdóms- stríðinu stóð eiginkona hans, Erla Þorbergsdóttir, og fjölskyld- an öll. I mínum fórum er frum- samið ljóð og lag eftir Albert til- einkað konu hans. Nefnir hann það: Til þín og sýnir það vel, hversu mikils hann metur hana. Ljóðið er þannig : Þegar veturinn víkur af stóli og vorsól á tinda skín. Hugurinn háloftin flýgur heim til þtn, ástin mín. Og þar leíkur sér hlærinn t laufi um litfögur skógargöng, t lofti er áfengur ilmur og ómur af fuglasöng. Og hvert sem að íeiðimar liggja Itfsins umfarinn veg, minningu æsku og ástar eigum við, þú og ég. Við bekkjarsystkinin úr Kenn- araskólanum höfum oft hist í gegnum tíðina og síðast í vor á 50 ára kennaraafmælinu. Við fjölmenntum austur í Skóga og áttum þar tvo dýrlega daga með þeim hjónum, Albert og Erlu. A heimili þeirra nutum við gest- risni þeirra og góðra veitinga og um kvöldið kom hópurinn saman í Fossbúð. Stundin gleymist ekki: Maturinn góður, slegið var á létta strengi, minningar rifjaðar upp, ein og ein vísa flaug á milli og mikið var sungið sem jafnan áður. Best af ölíu var, að Albert naut sín vel, lék í rauninni við hvern sinn fingur og lét sinn hlut ekki eftir liggja í samræðum og söng. Minningin er Ijúf og geym- ist í þakklátum hugum okkar alla tíð. I þessum anda er gott að kveðja þennan bjartsýna og dug- mikla vin okkar og skólabróður um leið og við þökkun af hjarta liðnar samverustundir. Kæra Erla. Við og makar okkar sendum þér og fjölskyldu þinni okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Guð blessi minningu Alberts Jóhannssonar. Guðmundur Magnússon. íslendingaþættir birtast í Degi alla laugardaga. Skilafrestur vegna minningagreina er til þriðjudagskvölds. Reynt er að birta allar greinar eins fljótt sem verða má, en ákveðnum birtingardögum er ekki lofað. Æskilegt er að minningargreinum sé skilað á tölvutæku formi. ORÐ DAGSINS 462 1840 ^__________r

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.