Dagur - 28.01.1999, Page 4

Dagur - 28.01.1999, Page 4
4 - V.MMT Un/l GJJ'R 2 8 . J, AN&,A« . 1 lL%9. Ðagutr FRÉTTIR k Icegold fái inni í Skjaldarvík l/iðræður eru í gangi um að fyrirtækið lcegold fái leigufrítt inni í Skjaldarvík - og spari þar með bænum mikinn rekstrarkostnað. Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað hæjar- stjóra að ganga til áframhaldaudi við- ræðna við fyrirtækið um afnot húseigna í Skjaldarvik í Glæsi- bæjarhreppi. Fyrirtækið Icegold, sem sérhæft hefur sig í viðskiptum á internet- inu, hefur verið að Ieita eftir hús- næði á Eyjafjarðarsvæðinu undir starfsemi fyrirtækisins. Nýlega funduðu fulltrúar Icegold með fulltrúum Akureyrarbæjar og framkvæmdastjóra Atvinnuþró- unarfélags Eyjafjarðar, Hólmari Svanssyni, um málið og eftir þann fund heimilaði bæjarráð Akureyrar bæjarstjóra að ganga til áframhaldandi viðræðna við fyrirtækið um afnot húseigna í Skjaldarvík í Glæsibæjarhreppi undir starfsemina en fulltrúar Icegold hafa sýnt því mikinn áhuga. I Skjaldarvík var rekið dvalarheimili fyrir aldraða sem nú hefur verið flutt í Kjarnalund, sunnan byggðarinnar á Akureyri, að kröfu heilbrigðisyfirvalda. Fullrúar Icegold skoðuðu líka húsnæði að Laugalandi í Eyja- Ijarðarsveit, sem áður hýsti hús- mæðraskóla. Fyrirtækið er í eigu banda- rískra aðila sem eru að leita að aðstöðu undir starfsemina. Hólmar Svansson, framkvæmda- stjóri Atvinnuþróunarfélags Eyja- fjarðar, segir að starfsemi Icegold verði nokkuð rúmfrek og störfin um 20 talsins til að byija með. Ekki er víst að leigan verði nokk- ur til að byija með þar sem hús- næðið þarfnast verulegs við- halds, en Akureyrarbær slægi tvær flugur í einu höggi, losnaði við milljóna króna rekstrarkostn- að húsanna á ári en fengi ný störf og starfsemi í hérað til baka. Margfeldisáhrif yrðu af starfseminni hér, t.d. samstarf við Háskólann á Akureyri og fyr- irtæki á svæðinu. Von er á full- trúum Icegolds aftur til Eyja- fjarðar upp úr næstu mánaða- mótum. — GG Gullhafiö á Djúpavogi Ný verslun, GuIIhafið, hefur verið opnuð á Djúpavogi i hús- næði Kaupfélagsins, og eru þar seld „gull“ í allri merkinu þess orðs, þ.e. gjafavörur í fjöl- breyttu úrvali auk afskorinna blóma. Eigandinn, Hafdís Erla Bogadóttir, segist hafa verið full efasemda um ágæti þess að búa á landsbyggðinni og verið komin á fremsta hlunn með að flytja til Reykjavíkur eins og fleiri, en álítið síðan að meiri þörf væri fyrir hana á Djúpavogi en í Reykjavík. Hún telur að framtíð verslunarrekstrar á Djúpavogi sé góð, sérstaklega yfir sumartímann, enda hafi staðurinn upp á margt að bjóða. Djúpivogur. Hafdís Erla Bogadóttir kaupmaður segir framtíð verslunar- reksturs á Djúpavogi bjarta. Malland kaupir Trésmiöju Djúpavogs Malland á Djúpavogi hefur fest kaup á Trésmiðju Djúpavogs fyrir um 20 milljónir króna, en Trésmiðjan hefur hætt rekstri. Rekstur Mallands hefur gengið vel undanfarin ár en fyrirtækið framleiðir að- allega plastefnagólf fyrir matvælaiðnað og fyrirtæki en Trésmiðjan hefur verið í hefðbundinni trésmíðavinnu auk steypuframleiðslu og eru bundnar vonir við að hægt verði að samnýta vélar fyrirtækjanna í nánustu framtíð. Naustavogur, ný saltflskverkun Nýtt fyrirtæki, Naustavogur, hefur verið stofnað á Djúpavogi, en það er saltfiskverkun. Naustavogur festi kaup á húsnæði Mallands undir starfsemina. Búið er að innrétta húsnæðið fyrir hið nýja hlutverk en beðið er eftir útttekt Fiskistofu á húsnæðinu. Þá þegar mun starf- semi heíjast, en hráefnisöflun mun vera tryggð af báti sem Guðni Jó- hannsson, sonur eiganda Naustavogs, Jóhanns Þórissonar, gerir út. - GG - skipulag til framtíðar Athygli er vakin á því að út er kominn bæklingur með upplýsingum um stjórnskipan á miðhálendi íslands. Er almenningur hvatturtil að kynna sér efni þessa bæklings enda varðar skynsamleg skipan á nýtingu auðlinda hálendisins hag þjóðarinnar allrar um ókomin ár. Bæklinginn má nálgast með því að hafa samband við forsætis-, umhverfis- iðnaðar- eða félagsmálaráðuneyti í síma 560-9000. Efni hans er einnig að finna á vefsíðunni www.stjr.is -Hdí|en«|i - fjársjóður þjóðarinnar

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.