Dagur - 28.01.1999, Blaðsíða 12

Dagur - 28.01.1999, Blaðsíða 12
12 - FIMMTUDÁGUR 28. JANÚAR 1999 EcrGArbíc S 462 3500 Fimmtud. kl. 21 170 min. BRAD PITT 0G ANTHONY HOPKINS. BRAD PITT ANTHONY HOPKINS / „. f m MeetJoe Black MÁ ÉG KYNNA JOE BLACK Frábær gamanmynd, frábær partýmynd. Komið og upplifið teiti ársins með Jennifer Love Hewitt (I know what you did last summer). Geggjuð tónlist, nördar, töffarar, glanspíur, klíkur, íþróttafríkur, pabbastelpur, mömmu- strákar, fegurðardrottningar og geðsjúklingar... Allir mæta í partýið! Ekki láta þig vanta! Fimmtud. kl. 21. □□i°olbyi D I G I T A L Hinir síungu sprellikarlar, Jack Lemmon og Walter Matthau fara á kostum í léttri og sprenghlægilegri gamanmynd um þá félaga Felix og Oscar sem hafa ekki hist í 30 ár en nú þurfa þeir að ferðast saman i brúðkaup barna sinna. Sumar deilur standast tímans tönn. Fimmtud. kl. 23. THE SIEGE ÍSLANDSPRUMSVNINC FÖSTUDAC ÍÞRÓTTIR Jón Arnar með nýjan samning viö Reebok Jón Amar segist í góðu formi fyrir næsta átök, sem er sjöþrautarmót í Tallinn í Eistlandi. Hann segir að það verði góð prófraun fyr- ir HM í Japan, sem fer fram í byrjun mars. Áhorfendur á Stórmóti IR urðu þess varir að Jón Arnar Magnús- son, tugþrautarkappi, haltraði að- eins eftir síðasta stökkið sitt í langstökkskeppni þríþrautarinnar og virtist eitthvað kvalinn. „Þetta var ekkert alvarlegt,“ sagði Jón Arnar í samtali við Dag. „Eg var að prófa nýja skó sem ég var ekki vanur að nota og fékk hálfgerðan krampa í kálfana, en |>að lagaðist fljótlega. Ég kem annars vel frá þessu móti og er í góðu formi fyr- ir næstu átök, sem er sjöþrautar- keppnin á Erki Nool-Cup íTallinn í Eistlandi, um aðra helgi.“ Jón Arnar mun þar etja kappi við nokkra af bestu tugþrautar- köppum heimsins og má þar nefna sjálfan Erki Nool sem stendur fyrir mótinu og Evrópu- meistarann Sebastian Chmara frá Póllandi. Einnig verða þeir Rom- an Sebrle frá Tékklandi og Svíinn Henrik Dagárd, sem báðir voru meðal keppenda á Stórmóti IR, meðal keppenda og einnig er von á Rússanum Lev Lobodin. Banda- ríkjamaðurinn Chris Huffins hafði einnig ætlað sér að keppa en meiðsli kunna að setja strik í reikninginn hjá honum. „Það stefnir því í hörkukeppní í Tallinn, sem kemur sér vel í undirbún- ingnum fyrir HM innanhúss, sem fer fram í Japan í byijun mars og góð prófraun á það hvar menn standa," sagði Jón Arnar. Nýr samningiix - Nýir skór. Þýðir það að þú sért Úrslit hand- holtaleih iaí gærkvöld Nissandeildin ÍR-Valur 22:18 HK-Stjarnan 29:23 Fram-UMFA 23:25 KA-FH 28:18 Haukar-Grótta KR 28:19 ÍBV-Selfoss 28:21 1. deild kvenna KA-FH 13:20 kominn með nýjan styrktarsamn- ing við nýja framleiðendur? „Eg er nýlega búinn að skipta úr Mizuno í Reebok og klæðist nú og keppi aðeins í íþróttafatnaði og skóm frá þeim. Reebok-umboðið hér á landi og Reebok Intemational buðu mér mjög hag- stæðan samning, sem ég er nýbú- inn að samþykkja." - Hvað geturðu sagt okkur um þennan samning ? „Það var engin spurning um að samþykkja hann, en að svo stöddu get ég ekki nefnt neinar tölur. Eg get þó sagt það að hann er góður og stærri en maður hefur áður séð, en það fer þó allt eftir ár- angrinum og frammistöðunni á stórmótum." - Breytir samningurinn miklu fyrir þig? „Hann gerir það auðvitað. Fijálsar íþróttir eru nefnilega ekki sú íþróttagrein sem gefur af sér mikla peninga, eins og til dæmis boltaíþróttirnar gera. Hann er þess vegna mjög kærkominn." - Þmftir þú sjálfur að hafa fyrir því að ná þessum samningi? „Eiginlega ekki. Ekki annað en standa mig vel og skapa mér nafn. Þetta er svipaður samningur og félagar mínir úti hafa verið að gera og hann mun örugglega hafa hvetjandi áhrif á mig.“ - Ertu hjartsýnn á góðan árangur á HM t Japan og veistu hver staðan er hjá helstu keppinautunum? „Eg stefni þar auðvitað á topp- inn og fer örugglega ekki með því hugarfari að gera mér þriðja, IJórða eða fimmta sæti að góðu. Ég á von á þvf að menn komi þangað í toppformi og þetta verð- ur örugglega mjög spennandi keppni. Það er erfitt að gera sér grein fyrir stöðunni hjá hinum, þar sem menn hafa Iítið verið að keppa, en ég hef þó heyrt frá Dan O’Brian, sem nýlega keppti í sömu greinum og við vorum að keppa í á stórmótinu. Hann hljóp 55 metrana á 7,38 sek., sem er svip- aður árangur og við vorum að ná, en heldur slakari tími. Hann stökk svo 7,14 m í langstökki og kastaði kúlunni 15,50 m sem hvoru tveggja er slakari árangur en ég náði á stórmótinu. Ég er þess vegna bjartsýnn á góðan árangur, en geri mér grein fyrir því að ég verð að ná toppárangri í öllum greinum.“ KNATTSPYRNA Vorkeimir ekki Collymore Andy Gray, fyrrum leikmaður Aston Villa, hefur enga samúð með vand- ræðagemlingnum Stan Collymore. „Ég veit ekki hvað er að Collymore. Tony Adams, Paul Merson og Paul Gascoigne hafa allir leitað sér hjálp- ar vegna álags sem Ieiddi til áfengisnotkunar þeirra. Þeir hafa allir náð sér vel á strik. En ég get ekki gert að því að eina álagið sem ég sé er að Collymore nær ekki að vinna sér sæti í byijunarliði Ast"" Vi!H leggst líka þungt á hann að horfa á stjarnfræðilega' háar upphæóir renna vikulega inn á bankabók sína. Án þess að hafa unnið til þess.“ Mistök að reka Dalglish „Það voru mikil mistök að reka Kenny Dalglish frá Newcastle. Hann náði góðum árangri með liðið í bikarkeppninni og í Meistaradeildinni og því var allt of snemmt að reka hann í byijun keppnistímabilsins," segir Keith Gillespie, fyrrum leikmaður Newcastle. Enn heldur stjórn Newcastle því fram að Dalglish hafi ekki verið rek- inn heldur hafi hann farið af fúsum og frjálsum vilja. Hið rétta er, seg- ir Gillespie, að upp úr sauð milli Kenny og stjórnarinnar þegar hún ætl- aði að selja Keith Gillespie til Middlesbrough án vitundar knattspyrnu- stjórans. „Kenny var mjög vinsæll meðal leikmanna Iiðsins. Hann var heiðar- Iegur við okkur og við treystum honum. Okkur gekk illa í upphafi vegna mikilla meiðsla. Við skoruðum ekki mörk vegna þess að báðir okkar bestu sóknarmenn, Alan Shearer og Tino Asprilla, voru meiddir. Ég er viss um að árangurinn væri betri hjá Newcastle nú ef Dalglish væri enn við stjórnina. Núna eru leikmennirnir bara úti í horni og fá enga hug- mynd um hvað er að gerast hjá félaginu.” - GÞÖ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.