Dagur - 28.01.1999, Blaðsíða 9
8 -FIMMTUDAGUR 28. J A N Ú A R 1999
ÐíUftr
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 19 9 9 - 9
FRÉTTASKÝRING
D.
r.
Maimréttmdi koma að utaii
Á dögimum hélt félag
stjómmálafræðinga og
Maimréttindaskrif-
stofa íslands málfund
um mannréttmdi. Þar
hélt Guðhjörg Lilja
Hjartardóttir erindi
sem har yfirskriftina
„Er ísland í hópi leið-
toga eða leiðitamra í
alþjóðlegu mannrétt-
indastarfi“. Niður-
stöður hennar eru
frekar nöturlegar fyrir
þá sem hafa talið að
íslendingar væru leið-
andi í umræðunni um
mannréttindi í heim-
inum.
Mannréttindayfirlýsing Samein-
uðu þjóðanna átti fimmtíu ára af-
mæli á síðasta ári. Með henni og
sáttmálum hafa ríki Sameinuðu
þjóðanna skuldbundið sig til þess
að efla og virða mannréttindi í
samskiptum sín á milli.
A þessu ári taka Islendingar við
forystu í Evrópuráðinu. Munur er
á mannréttindakerfi þessara
stofnana og hafa dómar Mann-
réttindadómstóls Evrópu haft
áhrif á löggjöf á Islandi.
Guðbjörg Lilja útskrifaðist ný-
lega með meistaragráðu í stjórn-
málafræði frá háskólanum í
Cincinnati í Bandríkjunum. I
lokaverkefni sínu gerði hún út-
tekt á þátttöku, framlagi og
stefnumótun íslands í hinu al-
þjóðlega mannréttindakerfi á
tímabilinu 1944-1994. Hún fjall-
aði líka um helstu þróun í mann-
réttindamálum á Islandi.
Mannréttindakerfi Sameinuðu
þjóðanna er veikt kerfi, þar er að-
ildarþjóðunum selt sjálfdæmi um
það hvernig þær framfylgja skuld-
bindingum sínum. Islendingar
eru aðilar að nokkrum samning-
um á vegum SÞ sem snerta
mannréttindi, þeir helstu eru Al-
þjóðasáttmálinn um borgaraleg
og stjórnmálaleg réttindi (ASBS);
Alþjóðasáttmálinn um efnahags-
leg, félagsleg og menningarleg
réttindi (ASEFM); Kvennasátt-
málinn; Samningur um afnám
alls kynþáttamisréttis; Samning-
ur um stöðu flóttamanna; Samn-
ingur um varnir gegn pyndingum
og ómannlegri eða vanvirðandi
meðferð eða refsingu.
Vaimýtt sanitök
I máli Guðbjargar Lilju kom fram
að það væri stjórnvalda að meta
hvernig farið er eftir þessum
samningum og senda skýrslur til
SÞ um frammistöðuna. Guðbjörg
Lilja sagði að óháð félagasamtök
gegni mikilvægu hlutverki í al-
þjóða mannréttindastarfi, þar
sem þau veita stjónvöldum mikil-
vægt aðhald í mannréttindastarfi
en íslensk stjórnvöld hafi ekki
notfært sér þau.
Það væri ekki fyrr en með
stofnun Mannréttindaskrifstof-
unnar, árið 1994, að vægi óháðra
samtaka í mannréttindamálum
fer að aukast. Mannréttindaskrif-
stofunni er ætlað að vera fagleg
upplýsingaskrifstofa um mann-
réttindi. Að henni standa tíu
óháð félagasamtök, það eru Is-
landsdeild Amnesty
International, Rauði krossinn,
Barnaheill, Þroskahjálp, Unifem
á íslandi, Biskupsstofa, Skrifstofa
jafnréttismála, Hjálparstofnun
kirkjunnar, Kvenréttindafélag ís-
lands og Oryrkjabandalagið.
Nefndin tók þátt í umræðunni
um stjórnarskrána þegar mann-
réttindakaflinn var samþykktur.
Hún gegnir upplýsingahlutverki
fyrir mannréttindaskrifstofu Evr-
ópuráðsins. Skrifstofan hefur
einnig unnið skýrslu fyrir Barna-
heill um það hvernig barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna hefur
verið fylgt og einnig vegna sátt-
málans um afnám kynþáttamis-
réttis gagnvart konum. Mannrétt-
indaskrifstofan fylgist einnig með
störfum um borgaralega og
stjórnmálalega sáttmálann.
Fyrsta skýrslan ein máls-
grein
I máli Lilju kom fram að fram til
ársins 1991 skiluðu stjórnvöld
skýrslum seint og stundum illa.
Fyrsta skýrslan um kvennasamn-
inginn barst ekki fyrr en sjö árum
eftir að hún átti að berast og þar
með voru íslendingar komnir í
hóp með ríkjum eins og Bhutan,
Liberiu og Belize.
Fyrsta skýrslan um samninginn
um kynþáttamisrétti sem fslend-
ingar sendu frá sér seint á sjö-
unda áratugnum var ein máls-
grein þar sem stóð: „Kynþátta-
misrétti hefur aldrei verið til á Is-
landi frá því að land byggðist árið
874.“
Nýlega kom fram að íslensk
stjómvöld hafi verið mótfallin því
að veita gyðingum landvistarleyfi
á íslandi fyrir seinni heimsstyrj-
Fyrsta skýrslan iim
sanmmginn um kyn
þáttamisrétti, sem ís-
lendingar sendu frá
sér seint á sjöunda
áratugnum, var ein
málsgrein þar sem
stóð: „Kynþáttamis-
rétti hefur aldrei verið
til á íslandi frá því að
land byggðist árið
874.“
öldina og að þetta hafi verið gert
í þeim tilgangi að vernda hinn
hreina norræna kynstofn. Það
kemur fram í rannsókn Lilju að
ekki hafi verið nein ásókn í að
taka við flóttamönnum. A árun-
um milli 1960 til 1979 komu
engir flóttamenn til landsins og
þeir flóttamenn sem komu voru
hvítir Austur-Evrópubúar. Þeir
flóttamenn sem komu hafi komið
vegna þrýstings frá Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
........................................................-............*____________________________* - -___________________________ J
fs'- ■■■ ■ ' 1
; ■ ....
'
Mannréttindaskrifstofan hefur verið að vinna að því að formleg kennsla í mannréttindum verði í skólunum, þannig að öll börn fái fræðslu um mannréttindi. í dag er mannréttindakennsla í skóium landsins mjög tiiviijunarkennd.
Breytingar í kjölfar máls
hjóíreiðamanns
Mannréttindakerfi Evrópu er
mun virkara en kerfi Sameinuðu
þjóðanna. Mannréttindasáttmáli
Evrópu var lögtekinn hér á landi
árið 1994. Tíu árum áður féll
dómur í svokölluðu Hjólreiða-
mannsmáli á Akureyri. Hann fór
fyrir mannréttindanefndina og
lauk þar með sátt sem mannrétt-
indanefndin beitti sér fyrir.
Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður sagði að venjan
hafi verið að segja sem svo að
ákvæði íslenskra laga rekist ekki á
ákvæði mannréttindasáttmála.
Jafnvel þótt þau gerðu það skipti
það ekki máli. Því Landsréttur
gengi alltaf framar alþjóðlegum
skuldbindingum okkar. Ef í ís-
lenskum lögum voru takmarkanir
á mannréttindum þá héldu dóm-
arar sig við lögin. Ragnar segir að
á þessu hafi orðið breyting í kjöl-
far máls Jóns Kristinssonar.
Ragnar minnir á dóm sem Hæsti-
réttur hafi kveðið upp í byijun árs
1990. „Þá ómerkir hann dóm
sem að fulltrúi sýslumanns á Sel-
fossi hafði dæmt þar sem yfir-
maður hans var jafnframt lög-
reglustjóri að rannsaka málið. Þá
beitir dómstóllinn Mannréttinda-
sáttmála Evrópu þó ekki væri
búið að lögfesta hann á íslandi,"
segir Ragnar.
Ragnar segir að mál Þorgeirs
Þorgeirssonar hafí verið gríðar-
lega mikilvægt og það hafi haft
sitt að segja að Evrópusáttmálinn
var lögfestur. Áður hafi dómstólar
haft tilhneigingu til að vernda
orðstír manna, þegar tjáningar-
frelsi og hagsmunamat rákust á.
Ragnar segist sjá gífurlega breyt-
ingu eftir að sá dómur gekk.
Ragnar segir að sá dómur hafi
Ieitt til þess að lögunum um sér-
staka vernd embættismanna var
breytt, þeir hafi áður notið sér-
stakrar verndar. „Sú nefnd sem
samdi frumvarpið um lögfestingu
mannréttindasáttmálans var ekki
skipuð fyrr en dómur var genginn
í máli Þorgeirs," sagði Ragnar Að-
alsteinsson.
Ragnar segir megin muninn á
mannréttindakerfi Evrópu og
kerfi SÞ vera þann að einstakling-
ar hafi með Mannréttindasátt-
mála Evrópu fengið rétt sam-
kvæmt þjóðarétti. „Þar höfum við
dómstól, við höfum samt Mann-
réttindanefnd Evrópu. Einstak-
lingum á íslandi er heimilt að
skjóta þangað kærumálum og þá
kemur þaðan niðurstaða eða um-
sögn eða hvað við köllum það.
Akvörðun frá þessari nefnd. ís-
lendingar hafa ekki notfært sér
það að skjóta málum til mannrétt-
indanefndar Sameinuðu þjóð-
anna, en það má ekki fara báðar
leiðirnar," segir Ragnar.
Tilviljunarkeimd mannrétt-
mdakennsla
I námskrá grunnskóla er einn
kafli meðal annars helgaður
kennslu í mannréttindum. Þar
segir að kennsla í mannréttindum
skuli vera í boði í grunnskólum
Iandsins. Yngstu bekkjunum verði
þó ekki kennt um mannréttindi
en þau fléttuð inní almenna
kennslu. Þar segir einnig: „Mann-
réttindafræðsla með einum eða
öðrum hætti hefur verið og verður
áfram hluti einstakra námsgreina,
svo sem samfélagsfræði, sögu,
landafræði, félagsfræði, íslensku
og erlendra mála.“
Bjarney Friðriksdóttir er fram-
kvæmdastjóri Mannréttindaskrif-
stofu íslands. Hún segir skrifstof-
una hafa verið með mannrétt-
indakennslu í endurmenntunar-
deild kennaraháskólans síðan árið
1995. Hún segir að skrifstofan
hafi verið að vinna að því að form-
leg kennsla í mannréttindum
verði í skólunum, þannig að öll
börn fái fræðslu um mannrétt-
indi. Bjarney segir mannréttinda-
kennslu í skólum Iandsins vera
mjög tilviljunarkennda.
„Það getur verið í mörgum skól-
um að kennarar taki þetta inní
námsefni hjá sér og það koma
krakkar hingað sem eru að Ieita
sér að heimildum. Það getur verið
tilviljunarkennt hvernig tekið er á
mannréttindum í skólunum.
„Áöur en dómar féUu
sem breyttu íslensku
mauur éttindalöggj öf-
inni sögðu gamansamir
menn oft að ef meiiii
vitnuðu til mannrétt-
indasáttmála væru þeir
komnir í rökþrot.“
Krakkar geta farið í gegnum allan
sinn skóla án þess að heyra á þau
minnst. Aðrir fá ágætis kennslu.
Það væri mjög jákvætt ef þetta
væri formlegur hluti af skóla-
námi,“ segir Bjarney.
Litll bróðir sem gerir eins og
stóru systkinin
Oft er vitnað til Islands á alþjóða-
vettvangi sem eins Norðurland-
anna. Þar nýtur ísland þess frum-
kvæðis sem Norðurlöndin hafa
tekið á sviði mannréttindamála.
Það kom fram í máli Lilju að á
einu sviði þjóðaréttar hafa Islend-
ingar þó haft forystu. Það er þeg-
ar kemur að hafréttarmálum. Þá
hafa þeir hagsmuna að gæta sem
réttlæta að þeir taki frumkvæði en
væru ekki eins og litli bróðir sem
hermir eftir stóru systkinum sín-
um.
I fyrirlestri sínum benti Lilja á
að sósíalistar hafí verið útilokaðir
frá starfi á vegum Sameinuðu
þjóðanna og Evrópuráðsins til
ársins 1967. Alþingi sendir reglu-
lega hóp manna til þess að fylgjast
með stöfum Allsheijarþingsins í
New York. I rannsókn Lilju kom
fram að fyrir árið 1989 hafí flokk-
arnir ekki sent eingöngu þing-
menn sína út, heldur hafi ein-
hverjir flokksgæðingar farið út.
„Aður en dómar féllu sem
breyttu íslensku mannréttinda-
löggjöfinni sögðu gamansamir
menn oft að ef menn vitnuðu til
mannréttindasáttmála væru þeir
komnir í rökþrot," sagði Ragnar
Aðalsteinsson. Hann sagðist líka
hafa orðið var við breytingu á
þessu. Það er skemmst að minn-
ast nýgenginna dóma í Hæsta-
rétti, þar sem hann hefur dæmt
að lög stangist á við stjórnarskrá.
Frá fundi félags stjórnmálafræðinga og Mannréttindaskrifstofu íslands um
mannréttindi. Guðbjörg Lilja Hjartardóttir, Ragnar Aðalsteinsson og Magnea
Marinósdóttir. Ljósm: Hilli
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
GUÐBJÖRN GUÐMUNDSSON
byggingameistari,
frá Böðmóðsstöðum, Laugardal,
lést að heimili sínu Vesturhúsum 14, Reykjavík,
aðfaranótt 27. janúar.
Unnur Dóróthea Haraldsdóttir,
Arnbjörg Edda Guðbjörnsdóttir, Grímur Valdimarsson,
Hafdís Karólfna Guöbjörnsdóttir, Kristján Gíslason,
Kristján Valberg Guðbjörnsson,
Guðmundur Guðbjörnsson, Eygló Eyjólfsdóttir,
Sólrún Guðbjörnsdóttir, Ólafur Sigurðsson,
Ásgerður Guðbjörnsdóttir, Baldvin Jónsson,
Arinbjörn Guðbjörnsson,
Jóhanna Guðbjörnsdóttir, Eggert Snorri Guðmundsson,
Þuríður Guðbjörnsdóttir, Torfi Markússon,
börn, barnabörn og aðrir ástvinir.
ðKUKEHKSLR
Kenni á Subaru Legacy.
TÍMAR EFTIR SAMKOMULAGI. ÚTVEGA NÁMSGÖGN.
HJÁLPA til við endurnýjunarpróf.
Ingvar Björnsson
ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri
Sími 899 9800 Heimasími 462 5692
Sjálfstæðir menn, sjálfstæðar konur!
Hvað vilt þú?
Þaðeraðalatriðið.
Ég gef kost á mér í eitt af efstu sætum á lista
Sjálfstæðisflokksins við komandi kosningar.
Sigurjón Benediktsson
tannlæknir
SNJÓMOKSTUR
Tökum a> okkur snjómokstur á litlum og stórum plönum.
Gó> ar vélar vanir menn.
Gerum ver> tilbo> ef óska> er.
Sími 899 6220 og 893 8887 (fi engill)
Hafnarverk ehf.