Dagur - 28.01.1999, Síða 10

Dagur - 28.01.1999, Síða 10
10- FIMMTUDAGUR 28. JANÚAK 19 9 9 SMÁ AUGLÝSING AR Til sölu____________________________ Til sölu kelfdar kvígur. Buröartimi febrú- ar/mars. Upplýsingar í síma 466 1842. Kirkjustarf________________________ Laufásprestakall Svalbarðskirkja: Kirkjuskóli laugardaginn 30. janúar kl. 11.00. _________________Daqur Náttúran njóti vafans Bændur____________________________ Tek að mér ýmis landbúnaðarverkefni á Eyjafjarðarsvæðinu. Vanur maður. Upplýsingar i síma 894 5551. Bílar__________________________________ Til sölu vörubíll, Scania 141 árg. 1980, húddbíll, 5 metra hjólabil, með palli, sturtum og kranaplássi. Upplýsingar í síma 462 3702 og 853 1702. Atvinna______________________________ Stærsta atvinnutækifærið á Islandi. Hálft starf 50-150 þúsund. Fullt starf 150-500+ þúsund. Kynningarfundur á Fosshótel KEA laugardaginn 30. janúar 1999 klukk- an 10.00. Nánari upplýsingar í síma 852 9709. Jó- hanna Harðardóttir. Ökukennsla________________________ Kenni á nýjan Mercedes Benz A-class (litla Benzinn). Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan daginn, á kvöldin og um helgar. Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari Þingvallastræti 18 heimasími 462 3837 GSM 893 3440. Iðnaðarsafnið á Akureyri Iðnaðarsafnið á Akureyri, Dalsbraut 1 verður opið í vetur á sunnudögum frá kl. 14.00 - 16.00. Fyrir hópa er opnað sérstak- lega á öðrum tímum sem panta þarf í síma 462-3550. Grenivíkurkirkja: Kirkjuskóli laugardaginn 30. janúar kl. 13.30. Kyrrðar- og bæna- stund sunnudagskvöldið 31. janúar kl. 21.00. Akureyrarkirkja Kyrrðar og fyrirbænastund kl. 12-12.30 Áskirkja Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14-17. Laugarneskirkja Kyrrðarstund kl. 12.10. Samvera eldri borg- ara kl. 14. Digraneskirkja Foreldramorgnar kl. 10-12. Bæna- og kyrrð- arstund kl. 18. Kirkjufélagsfundir kl. 20.30. Árnað heilla________________________ 75 ára afmæli. I dag fimmtudaginn 28. janúar, verður sjötíu og fimm ára, Sigurður Björgvinsson, loftskeytamaður og fyrrv. bóndi á Neistastöðum, Hverfisgötu 106a, Reykjavík. Eiginkona hans er Margrét Björnsdóttir. Þau verða að heiman í dag. Náttúra íslands er ómetanleg auðlind. Þá auðlind ber að varð- veita og nýta með skynsamleg- um hætti. Náttúran á að njóta vafans þegar hugað er að virkjun fallvatna og stóriðju. Virkjun fall- vatna er mikilvæg fyrir hag þjóð- arinnar en vanda skal til þeirra framkvæmda. Það er skylda okk- ar að varðveita hina hreinu nátt- úru og skila henni til komandi kynslóða. Vaxtarbroddurinn í ferðaþjónustu er fólginn i nátt- úru landsins, en það er fyrst og fremst hún sem dregur æ meiri fjölda erlendra ferðamanna til landsins. Ferðaþjónusta Uppbygging í ferðaþjónustu allt árið um kring stendur og fellur með því hversu vel okkur tekst að varðveita náttúru landsins og halda mengun fjarri landsins ströndum. Virkjað til tjóns. Það hefur verið farið offari í virkjana- málum hin síðari misseri. Það á VltHJÁLMUR H. VILHJÁLMSS. frambjóðandi í próf- kjöri samfyikingar- innar í Reykjavík, skrifar slast í hópinn? Við vinnum fyrir fólk Hefur þú hjúkrunarmenntun, en starfar ekki við þitt fag • ■pXllrj ídag, eðahefurhugáað lllCU iUIlSlj skipta um starfsvettvang? Þá hefur þú þekkingu og reynslu sem er mikils virði fyrir okkur á Landspítalanum. Starfsemi hinna ýmsu deilda spítalans verður kynnt föstudaginn 29. janúar kl. 14:00-16:00. Þar er kjörið tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að kynnast því sem er að gerast í hjúkrun á Landspítalanum í dag og þiggja veitingar. LANDSPITAUNN ... íþágu mannúðar og vísinda að vera sjálfsagt mál að allar slík- ar framkvæmdir fari í umhverfis- mat og sátt og samstöðu sé náð um málin. Stóriðja er mikilvægur þáttur í atvinnulífi þjóðarinnar en þegar virkjað er til tjóns og dýrustustu perlur íslenskrar nátt- úru hverfa undir lónin hefur ver- ið gengið of langt. Islendingar hafa notið þeirra forréttinda að búa í stjálbýlu landi þar sem mengun lofts og Iáðs er Iítil mið- að við það sem þekkist um hinn vestræna heim. Hreinleiki lands- ins ásamt fegurð þess er eitt það dýrmætasta sem þjóðin á og því má ekki fórna fyrir stundarhags- muni stóriðjunnar. Mannauður- inn er mikilvægasta auðlind þjóðarinnar og þegar litið er til framtíðar kemur í ljós að þar Ieynist vaxtarbroddur þjóðarinn- ar. En hingað til hafa ráðamenn Iátið sitja við orðin tóm og fögr- um yfirlýsingum á stórum stund- um hefur ekki verið fylgt eftir í verki. Orð eru til einskis ef þeim er ekki fylgt eftir í verki og það kostar peninga að virkja hugvitið og bæta menntakerfið. Hagfræð- in hefur sýnt fram á að hver króna sem varið er til menntunar skilar sér fimmfalt til baka. Fjöldaflótti ungs fólks er yfir- vofandi verði ekki ráðin bót á menntakerfinu og öflug nýsköp- un hafin í atvinnulífinu eigum við á hættu að missa úr landi verðmætan mannafla. Læknar til að mynda kjósa í æ ríkari mæli að stunda starf sitt erlendis þar sem Iaun þeirra eru hærri og rannsóknaraðstaða til muna betri og líkt er á komið með fleiri stéttum. Virkjun hugvitsins er auður framtíðar. Upprætum spillingnna Það viðgengst spilling í íslenskum stjórnmálum. Hana þarf að upp- ræta og það er eitt af meginverk- efnum samfylkingarinnar að beita sér fyrir breyttum starfsháttum á þeim vettvangi. Það er löngu tímabært að skráðar verði opin- berar siðareglur og að stjómmála- flokkarnir opni bókhald sitt. Líkt og málum er háttað nú er hætta á að stórfyrirtæki og hagsmunaaðil- ar kaupi bókstaflega trúnað og at- kvæði heilu stjórnmálaflokkanna með háum fjárframlögum og því verður einungis breytt með því að skylda flokkana til að opna bók- hald sitt. Til að einfalda hlutina og veita stjórnmálamönnum eðli- legt aðhald þarf á skýrum Ieik- reglum að halda. Það er algjör- lega óviðunandi að embættis- og stjórnmálamenn víki sér undan ábyrgð æ ofan í æ vegna þess eins að ekki eru til staðar skilgreindar reglur um hegðan í opinberu lífi. A meðan spillingin veður uppi í opinberu lífi og pólitískar emb- ættisveitingar eru sjálfsagt mál mun tiltrú almennings á íslensk stjórnmál ekki aukast, heldur halda áfram að dvína. Samfylkingin er breiðfylking fé- lagshyggjufólks um almannahags- muni og hennar að taka á vand- anum. Mýmörg spillingarmál má nefna frá því kjörtímabili sem nú er að líða og er öllum í fersku minni Landsbankamálið og mál- efni Kögunar. Listinn er langur og ljótur, nýrrar hugsunar er þörf í íslensk stjórnmál og fyrir hana stendur samfylking vinstrimanna. Siðvæðum íslensk stjórnmál. Alþýduhetj an Jóhanna ALBERT JENSEN ggs^V skrifar. í Morgunblaðinu 21. janúar er birt bréf frá öryrkja sem sannar þá smán sem stjórnvöld gera ís- lensku þjóðinni með þrælskjör- um þeim sem þau búa bjargar- lausu fólki. A sama tíma og há- launaðir öldungar úr embættis- stéttum fá hundruð milljóna króna lífeyri greiddan inn á bankabækur sínar til ávöxtunar og eignar, er þjarmað að gamal- mennum, öryrkjum og sjúkum. Óðagot mikið er á núverandi stjórnvöldum að auka sem mest misréttið og fullkomna það næstu fjögur árin svo sljóleiki og doði bæli þjóðarsálina það ræki- lega að hægt verði að telja henni trú um næstum hvað sem er. Sem betur fer er ungt fólk að vakna til vitundar um að á lífs- leiðinni getur hver sem er orðið fyrir slysi, lamast, orðið öryrki, átt barn sem aldrei getur bjargað sér, eða ættingja, lifað svo lengi að verða gamall og vakna þá við þann vonda veruleika að stjórn, fjandsamleg fólkinu er við völd. Munum að slíkar stjórnir eru líka hugsunarlausar um náttúru- Iegt umhverfi. I raun er slík stjórn engum til góðs og allt og allir í hættu. Ofurvald hinna ríku heldur nú um stjórnvölinn og hefur sagt þeim sem það kallar lægri stéttir, stríð á hendur. Hvað er til ráða? Það er að snúast gegn óvininum, Sjálfstæðisflokki og Framsókn. Vegna E.B. sinna f Alþýðufiokkn- um hef ég forðast að veita hon- um brautargengi þó grunnstefna hans sé góð. En með sameiningu þynnast áhrif þeirra fyrir utan margt annað gott sem af slíku leiðir. Ný forysta er Iíka algjör nauðsyn ef einhver árangur á að nást. Þar er alþýðuhetjan Jó- hanna Sigurðardóttir stærsta von þeirra sem vilja réttlátt þjóð- félag. Hún hefur margsannað heiðarleik sinn og vilja til að vinna fyrir almannaheill og er líklegust ásamt Margréti Frí- mannsdóttur, að leiða fólkið til sigurs gegn alræðisöflum græðgi og yfirgangs. Konur í þremur fyrstu sætum samfylkingar. Leyf- um áberandi körlum krata sem nú eru á þingi að fá frí. Þeir þurfa að hugsa sitt og fara úr málskrúðsleikjum í að meina það sem þeir segja og fylgja því eftir. Konurnar í samfylkingarflokkun- um eru trúverðugar, hvað sem líður erfiðum sameiningarferli. Því verður Jóhanna að verða númer eitt í prófkjörinu. Albert Jensen

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.