Dagur - 02.02.1999, Blaðsíða 10
íí - ÍWÍ HKuií'ir'i’i' . sf sf J’a'tfdUYdVíW
10- ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
SMÁAUGLÝSINGAR
Til sölu__________________________________
Til sölu ódýrt gler, 12 stk. rúður 71,8 x
168,8 cm., tvöfalt gler og 40 stk. rúður, 82,7
x 168,8, tvöfalt gler.
Einnig loftljósaskermar, 33 stk. stærð 130 x
30 cm. Seljast á hálfvirði.
Uppl. í síma 896-4900.
Atvinna________________________
50-150 þús. fyrir hálft starf, 150-500
þús.+ fyrir fullt starf.
Vantar dreifingaraðila um allt land.
Hafðu samband í sima 462 7727 eða
852 9709. Jóhanna.
Ökukennsla__________________________
Kenni á nýjan Mercedes Benz A-class
(litla Benzinn).
Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan
daginn, á kvöldin og um helgar.
Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari
Þingvallastræti 18
heimasími 462 3837, GSM 893 3440.
Takið eftir_____________________
Minningarkort Heimahlynningar krabba-
meinssjúkra á Akureyri fást hjá Pósti og
síma (sími 463 0620), Bókabúð Jónasar,
Bókval, Möppudýrinu, Blómabúðinni Akur,
Blómabúð Akureyrar og Blómasmiðjunni.
Minningarspjöld Kvenfélagsins Hlífar fást
í Bókabúð Jónasar, Blómabúðinni Akri,
Möppudýrinu Sunnuhlíð og í símaafgreiðslu.
Minningarspjöld félags aðstandenda
Alzheimer-sjúklinga á Akureyri og ná-
grenni, fást í bókabúð Jónasar, Hafnar-
stræti, Bókvali, Kaupvangsstræti, Möppu-
dýrinu, Sunnuhlíð, skóverslun M.H. Lyngdal,
Hafnarstræti, Sjóvá-Almennum tryggingum
við Ráðhústorg, Dvalarheimilinu Hlíð og hjá
Önnu Báru í bókasafninu á Dalvík.
Leiðbeiningastöð heimilanna, simi 551
2335.
Opið frá kl. 9-17 alla virka daga.
Kirkjustarf__________________________
Laugarlandsprestakall
Innsetning prófasts
Þriðjudaginn 2. febrúar sem er kyndilmessa
verður messa í Grundarkirkju. Herra Karl
Sigurbjörnsson predikar og setur nýjan pró-
fast í Eyjafjarðarprófastsdæmi Hannes
Blandon í embætti og hefst athöfnin kl.
20.30. Sóknarprestur.
Glerárkirkja.
Kyrrðar- og tilbeiðslustund í kirkjunni í dag
kl. 18.10. Ath. Hádegissamvera í kirkjunni á
morgun, miðvikudag, frá kl. 12-13. Að lok-
inni helgistund i kirkjunni, sem samanstend-
ur af orgelleik, lofgjörð, fyrirbænum og
sakramenti, er boðið upp á léttan hádegis-
verð á vægu verði.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Selfosskirkja.
Morgunbænir kl. 10:00 þriðjudaga til föstu-
dags.
Sóknarprestur.
LANDSPÍTALINN
../ þágu mannúðar og vísinda...
Sérfræðingur
Sérfræðingur í öldrunarlækningum óskast til starfa við öldrunar-
lækningadeild Landspítalans. í starfinu felst þátttaka í sérfræði-
störfum legudeildarinnar, þátttaka í störfum öldrunarteymis, sér-
fræðiráðleggingar í öldrunarlækningum á aðrar deildir spítalans,
þátttaka í læknisþjónustu deildarinnar við hjúkrunarheimilið
Skógarbæ, þátttaka í bakvöktum á öldrunarlækningadeildinni og
í Skógarbæ. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um náms-
feril, fyrri störf og reynslu í kennslu- og vísindastörfum sendist á
eyðublöðum stöðunefndar lækna til Þórs Halldórssonar, for-
stöðulæknis öldrunarlækningadeildar Landspítalans, sem veitir
upplýsingar í síma 560-2252 eða í kalltæki í gegnum skiptiborð
Landspítalans, sími 560-1000. Mat stöðunefndar byggist á inn-
sendum umsóknargögnum. Umsóknarfrestur er til 1. mars
1999.
Deildarlæknir
Deildarlæknir óskast á augndeild Landspítalans. Gert er ráð fyr-
ir að læknirinn njóti kennslu og taki þátt í fræðastörfum og get-
ur því starfið á deildinni nýst sem hluti sérnáms í augn-lækning-
um. Ráðningartími er eftir samkomulagi. Umsóknir á umsóknar-
eyðublöðum lækna berist til Einars Stefánssonar, prófessors
sem jafnframt veitir upplýsingar í síma 560-2066.
Lyfjatæknir
Lyfjatæknir óskast sem fyrst í apótek Landspítalans. Um 100%
starf er að ræða. Upplýsingar veitir Sigrún Valdimarsdóttir, yfir-
lyfjafræðingur í síma 560-1617.
Sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfari óskast sem fyrst á nýja líknardeild í Kópavog. Um
í 50% starf er að ræða. Sérþekking og starfsreynsla nauðsyn-
leg. Upplýsingar veitir Guðný Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálfari í síma
560-2706.
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi
Ríkisspítala, Þverholti 18 og í upplýsingum á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Birna Gunnarsdóttir
deildarstjóri, skrifstofa stjórnunarsviðs,
E-Mail: birnag@rsp.is
Sími: 560-2311, fax: 560-2359
Þverholti 18, 105 Reykjavík.
ÞJÓÐMÁL
Látiun verkiii tala
VALÞOR
HLOÐVERS-
SON
þátttakandi í próf-
kjöri Samfylkingar í
Reykjaneskjördæmi
skrifar
I okkar ágæta landi á okkur öll-
um að líða vel en því miður fer
því víðs fjarri að svo sé. Islenskt
láglaunafólk, sjúkir, aldraðir og
öryrkjar eiga langt í land með að
öðlast þau kjör sem gott velferð-
arsamfélag getur boðið. Það bíð-
ur því fjöldi óleystra verkefna á
þessum sviðum, sem dugmikið
fólk með framtíðarsýn, m.a. á
vettvangi stjórnmálanna, þarf að
takast á við.
Hvar er góðærið?
Talsmenn ríkisstjórnarinnar tala
blítt um góðærið í íslensku sam-
félagi og hafa um það mörg orð
að smjör drjúpi af hverju strái. Sá
stöðugleiki sem nú ríkir er ekki
ríkisstjórn Davíðs Oddssonar að
þakka. Það vita allir sem vilja vita
að hann er fyrst og fremst af-
rakstur þeirrar þjóðarsáttar sem
tókst fyrir atbeina verkalýðs-
hreyfingarinnar árið 1990 svo og
þeirra hagstæðu vinda sem hafa
blásið á erlendum markaðstorg-
um okkar undanfarin misseri.
Verkefni ríkisstjórnarinnar hafa
einkum verið fólgin í því að verja
sérhagsmuni á kostnað almanna-
hagsmuna. Nægir í því sambandi
að nefna lög hennar um stjórn-
sýslu á hálendinu, lög um gagna-
grunn á heilbrigðissviði og síðast
en ekki síst lög um nýtingu auð-
linda hafsins sem Hæstaréttur
feildi áfellisdóm sinn yfir.
Það sem ég vil hér gera að um-
talsefni eru kjör þeirra þúsunda
fjölskyldna sem ekki njóta varm-
ans frá kjötkötlum sérgæskuafl-
anna. Það er auðvitað íslensku
samfélagi til skammar hvernig
skuldir fjölskyldnanna aukast ár
frá ári. Það segir okkur að ein-
hvers staðar er vitlaust gefið.
Verkafólki er gert ómögulegt að
lifa mannsæmandi lífi af dag-
vinnulaunum, m.a. vegna óhóf-
legrar skattheimtu og síhækk-
andi þjónustugjalda. Ög það er
ekki aðeins svo að stór hópur
aldraðra, öryrkja og atvinnu-
Iausra búi við allt að því hungur-
mörk. Ungt fólk, sem er að koma
sér þaki yfir höfuðið eða Ijárfesta
í menntun, nær ekki endum
saman. Fjölskyldufólk með all-
þokkalegar tekjur er í sömu
stöðu. Hér er mál að linni.
Hlutverk löggjafans
Látum nú verkin tala og sýnum
fram á að þetta ástand er ekkert
náttúrulögmál. Það gerum við
best með því að skipa okkur sam-
an í sveit - allur almenningur í
landinu sem hefur framfæri sitt
af launavinnunni einni saman.
Sendum á Alþingi öfluga einstak-
linga sem hafa skýrar skoðanir og
framtíðarsýn, fólk sem vill og
getur breytt því ástandi sem nú
ríkir. Löggjafinn hefur nefnilega
mikilvægu hlutverki að gegna í
þeim efnum þótt vissulega ráðist
kjörin fyrst og fremst í frjálsum
kjarasamningum.
Eg býð mig fram á lista Sam-
fylkingar í Reykjaneskjördæmi
5.-6. febrúar nk. I sameinaðri
sveit Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks og Kvennalista á þingi
mun ég leggja áherslu á þessi at-
riði:
* Skattleysismörk verði strax
hækkuð.
* Þjónustugjöld af lífsnauð-
synlegri þjónustu afnumin.
* Markvisst verði unnið að því
að útrýma launamun kynjanna.
* Kvennastörf verði endurmet-
in með kynhlutlausu starfsmati.
* Vinnutíminn styttur og hann
gerður sveigjanlegri.
* Lífeyrissjóðskerfi launafólks
verði styrkt enn frekar.
Um leið og ég skora á Reyknes-
inga að taka þátt í prófkjörinu
fyrstu helgina í febrúar nk. óska
ég eftir stuðningi í 2. sæti Iistans.
Röðum saman sterkum fram-
boðslista sem hefur burði til að
breyta valdahlutföllum á næsta
Alþingi.
- Ekki veitir af.
MisskiIningiiT leiðréttur
Ritstjórn Dags.
I grein í blaði yðar í gær á bls. 6
(eftir Jóhannes Sigurjónsson)
gætti þess misskilnings, að Sæv-
ar M. Ciesielski, hefði á síðast-
liðnu ári óskað eftir því við
mannréttindanefnd Evrópu, að
hún tæki tíl meðferðar málsmeð-
ferð í dómsmáli því, sem lauk
með dómi Hæstaréttar íslands
hinn 22. febrúar 1980, þar sem
hann var sakfelldur. Hafi því ekki
verið gætt lögbundins sex mán-
aða frests frá dómsdegi talið.
Hið rétta er að Sævar leitaði til
mannréttindanefndar Evrópu
með umsókn dagsettri 14. janúar
1998 þess efnis, að hann hefði
ekki sætt réttlátri málsmeðferð
er íjallað var í Hæstarétti um
beiðni hans um endurupptöku
dóms í ofangreindu máli. Beiðni
skjólstæðings míns var hafnað
með „úrlausn" sjö hæstaréttar-
dómara hinn 15. júlí 1997. Taldi
Sævar að hann ætti að njóta
verndar 6. gr. mannréttindasátt-
mála Evrópu um réttláta máls-
meðferð einnig þegar fjallað væri
um beiðni um endurupptöku
dæmds opinbers máls. Umsókn
Sævars til mannréttindanefndar-
inar var því send innan sex mán-
aða frá dagsetninu úrlausnar
Hæstaréttar og kom því ekki of
seint ffam.
I umsókn skjólstæðings míns
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar
Kynningarfundur um tillögu að skipulagi fyrir fjölbýlis-
hús vestan Mýrarvegar, norðan Hamarsstígs.
Skipulagsnefnd boðar til almenns kynningarfundar miðvikudag-
inn 3. febrúar n.k. kl. 20.30 í félagsmiðstöðinni í Víðilundi 24,
þar sem tillaga að skipulagi lóðar á svæði milli Mýrarvegar
(norðan Hamarsstígs) og lóða við Kotárgerði verður kynnt. (til-
lögunni er gert ráð fyrir tveim 5 hæða fjölbýlishúsum fyrir aldr-
aða með samtals 30 íbúðum.
Fundurinn er bæði ætlaður þeim sem vilja kynna sér hugmyndir
um íbúðabyggingar fyrir aldraða og þeim sem búa eða eiga hús-
eignir í næsta nágrenni skipulagssvæðisins. Þeim sem áhuga
hafa á málinu eða eiga hagsmuna að gæta er bent á að mæta á
fundinn og taka þátt í umræðum um tillöguna.
Skipulagsstjóri Akureyrar
var á það lögð áhersla að mann-
réttindanefndinni bæri við mat á
því hvort hann hefði sætt rétt-
látri málsmeðferð fyrir Hæsta-
rétti er beiðni hans um endur-
upptöku var þar til meðferðar að
líta jafnframt til málsmeðferðar-
innar á tímabilinu 1975-1980 og
meta meðferð endurupptöku-
beiðninnar í ljósi hennar, þ.e.
meta málsmeðferðina heildstætt.
Tekið var fram að umsóknin Iyti
ekki að málsmeðferðinni í mál-
inu sem dæmt var 22. febrúar
1980, enda væri frestur til þess
útrunninn.
í ákvörðun mannréttinda-
nefndarinnar er hafnað að taka
umsókn Sævars um brot á 6. gr.
mannréttindasáttmálans við
meðferð endurupptökubeiðninn-
ar, sem leiddi til „úrlausnarinn-
ar“ 15. júlí 1997, til efnislegrar
meðferðar með þeim rökum, að
ekki hefði þar verið fjallað um
„réttindi og skyldur manns að
einkamálarétti eða um sök, sem
hann er borinn um refsivert
brot“ í skilningi 1. mgr. 6. gr.
mannréttindasáttmálans. Jafn-
framt er tekið fram að ekki yrði
fjallað um dóm Hæstaréttar frá
22. júlí 1980 vegna reglunnar
um sex mánaða frest, en erindi
Sævars beindist ekki að þeim
dómi og óumdeilt var að löngu
var liðinn heimilaður frestur.
I niðurstöðunni felst sú túlkun
mannréttindanefndarinnar, að
rétturinn til endurupptöku máls
og rétturinn til réttlátrar máls-
meðferðar fyrir dómi í endurupp-
tökumálum njóti ekki verndar
samkvæmt mannréttindasátt-
mála Evrópu. Því sé aðildarríkj-
unum heimilt að haga slíkum
málum að vild sinni og séu þau
ekki bundin af sáttmálanum.
Þetta þykir mér rétt að komi
fram í blaði yðar.