Dagur - 10.02.1999, Blaðsíða 13

Dagur - 10.02.1999, Blaðsíða 13
X^MT MIÐVIKUD AGU R 10. FEBRÚAR 1999 - 13 ÍÞRÓTTIR Stórsigur KR-inga KR stúlkur komu, sáu og sigruðu þegar þær uunu ÍS 88-58 í úr- slitum bikarkeppni kveuua í körfuknatt- leik í Laugardalshöll um helgiua. Með ísraelska landsliðfyrirliðan, Limor Mizrachi, í broddi fylking- ar, lögðu KR-stelpur strax grunn- inn að öruggum sigri í upphafi leiksins. Þær komust í 8-0 áður en ÍS gat svarað fyrir sig, sem var meira en stúdínur réðu við. Hreinlega allt gekk upp hjá KR-ingum og þær höfðu náð átján stiga forskoti í hálfleik, 41- 23, á meðan hvorki gekk né rak hjá ÍS. í seinni hálfleik héldu KR-ing- ar og Limor Mizrachi upptekn- um hætti, en Limor raðaði þá niður íjórum þriggja stig körfum. Hún skoraði alls 23 stig í leikn- um og átti 10 stoðsendingar og náði alls 9 fráköstum og átti frá- bæran leik ásamt öllu KR-liðinu. Hér að neðan sjáum við töl- fræði liðanna. M: Mínútur. 2H: Tveggja stiga körfur. 3H: Þriggja stiga körfur. VH: Heppnuð vítaskot. SF: Sóknarfráköst. VF: Varnarfráköst. HF: Heildarfráköst. ST. Stoðsendingar. VI: Villur. BT: Bolta tapað. BN: Bolta náð. VS: Varin skot. S: Skoruð stig. Landsliðshóp- uriimgegn Króatíu Theodór Guð- finnsson, lands- liðsþjálfari kvenna, hefur valið hópinn sem taka mun þátt í undirbún- ingi liðsins fyrir landsleikina við Króatíu í und- ankeppni heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik. Leikirnir fara fram dagana 19. og 21. febrúar og verða báðir leiknir ytra. Landsliðshópurinn: Markverðir: Fanney Rúnarsdóttir, Tertnes Helga Torfadóttir, Bryne Hugrún Þorsteinsdóttir, Fram Aðrir leikmenn: Agústa Björnsdóttir, Gróttu/KR Björk Ægisdóttir, FH Brynja Steinsen, Minden Dagný Skúladóttir, FH Eivör Blöndal, Val Gerður B. Jóhannsdóttir, Val Guðmunda Kristjánsdóttir, Víkingi Harpa Melsteð, Haukum Hrafnhildur Skúladóttir, Bryne Inga Fríða Tryggvadóttir, Stjörnunni Judit Rán Estergal, Haukum Ragnheiður Stephensen, Stjörn- unni Svava Sigurðardóttir, Víkingi - Thelma Björk Arnad., Haukum Theodór Guð- finnsson. KI t TÖLFRÆÐI NR NAFN M 2H 3H VH SF VF HF ST VI BT BN vs ST 4 Sierún S. Skarphéðinsdóttir 11 0 2 4 0 0 0 0 2 0 0 0 10 5 Hanna B. Kjartansdóttir 24 5 0 6 2 4 6 2 3 2 3 0 16 6 Kristín B. Jónsdóttir 29 5 0 2 0 3 3 0 1 1 5 0 12 7 Linda Stefánsdóttir 16 1 1 4 2 0 2 2 5 1 0 0 9 8 María Guðmundsdóttir 5 1 0 0 1 0 1 0 0 0 0 0 2 10 Rannveig Þorvaldsdóttir 7 0 0 -0j 0 0 0 0 0 0 0 0 0 12 Guðbjörg Norðfjörð 30 3 0 | 2 2 9 11 2 4 1 3 0 8 13 Helga Þorvaldsdóttir 26 0 1 JL 0 2 2 3 3 1 1 3 14 Limor Mizrachi 32 5 4 1 3 6 9 10 2 9 6 0 23 15 Elísa S. Vilbergsdóttir 20 2 0 1 2 2 4 0 ~2~ 0 0 0 5 SAMTALS 22 8 20 12 26 38 19 22 17 18 1 88 ís TÖLFRÆÐI NR NAFN M 2H 3H VH SF VF HF ST VI BT BN vs ST 4 Signý Hermannsdóttir 30 3 0 2 0 7 7 2 3 3 5 3 8 7 Hafdís Helgadóttir 15 1 0 0 1 3 l 4 0 5 5 0 |J 2 8 María B. Leifsdóttir 18 2 0 2 0 2 3 1 jT 1 V 6 9 Lovísa A. Guðmundsdóttir 33 1 0 2 1 1 2 3 2 2 0 1 4 10 Hallbera Gunnarsdóttir 8 1 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0 2 11 Kristjana B. Magnúsdóttir 14 1 0 0 2 0 2 2 0 0 0 0 2 12 Alda L. Jónsdóttir 33 3 0 7 4 5 9 4 4 4 0 1 13 13 Georgia O. Kristiansen 27 1 0 ih 1 3 2 4 4 1 1 8 15 Liliya Sushko 22 5 0 3 T T' 3 3 3 3 1 0 13 SAMTALS: 18 2 16 12 20 32 19 22 25 9 7 58 ÍÞRÓ TTAVIÐTALIÐ Sókn í kvennakörfúbolta Guðbjörg Noið- jjörð jyrirliði KR. KR-ingarurðu um helg- ina bikarmeistarar í köifu- bolta kvenna eftir stórsig- ur á ÍS. Guðbjörg Norðfförð, fyrirliðiKR, sem varað leika sinnfjórða bikarúr- slitaleik meðfélaginu, seg- irað leggja þurfi rnikla áherslu á uppbyggingar- starfí kvennakörfunni. - Hvað viltu segja um úrslita- leikinn við ÍS? „Við komum mjög vel undir- búnar til Ieiks og það kom ekkert annað til greina en sigur. Við átt- um mjög góða byrjun í leiknum og komumst í 8-0 áður en þeim tókst að svara fyrir sig. Við spil- uðum dúndur vörn og pressuð- um þær mjög stíft frá byrjun, sem greinilega sló þær út af lag- inu. Þær náðu sér raunverulega aldrei á strik á meðan allt gekk upp hjá okkur. Hittnin var frábær og segja má að flest öll skot hafi ratað rétta leið. Við vorum búnar að vinna þær þrisvar í deildinni í vetur og viss- um að stíf pressuvörn myndi skila sér. IS-liðið er sterkt lið sem ekki má vanmeta og þær urðu til dæmis Reykjavíkurmeistarar og einnig meistarar meistaranna eftir sigur á Keflavík. En þetta var ekki þeirra dagur og ég held að úrslitin gefi kannski ekki alveg rétta mynd af getu liðsins. Þær áttu hreinlega ekkert svar við þeim góða byr sem við höfðum í byijun leiksins." - Ertu ánægð með veruna hjá KR? „Mér hefur liðið mjög vel hjá félaginu. Eg er núna að spila mitt sjöunda tímabil, en áður lék ég með Haukum og varð bikar- meistari með þeim árið 1992. Eftir það tímabil var kvenna- flokkur Hauka því miður lagður niður, svo ekki var um annað að ræða en finna sér annað félag og KR varð fyrir valinu. Eg hef verið fyrirliði Iiðsins t\'ö sfðustu árin og þetta er íjórði bikarúrslitaleikur- inn sem ég spila með liðinu. Við spiluðum í úrslitum við Keflavík 1993, 1995 og 1997 og töpuðum alltaf. Það var þess vegna alveg kominn tími á að vinna bikarinn og vel við hæfi á hundrað ára af- mælisári félagsins." - Hver er staðan í kvennakörf- unni í dag? „Staðan hefur kannski ekki verið nógu góð á undanförnum árum, en mér sýnist þó að við séum nú á uppleið. Ef við tökum til dæmis tímann þegar ég byijaði með KR, þá voru tíu Iið í fyrstu deildinni. Nú eru þau aðeins sex og það segir okkur að ekki hefur verið nógu vel unnið að uppbygg- ingunni í yngri flokkunum. I annarri déildinni spila svo aðeins fimm lið, sem öll koma utan af landsbyggðinni og þar er mikill styrkleikamunur á milli deilda. Það má því segja að lítil breidd hái okkur mikið, þar sem liðin eru þetta fá. Hjá okkur KR-ingum hefur lið- ið sífellt verið að styrkjast á und- anförnum árum, en við höfum fengið til liðs við okkur sterka Ieikmenn. Hanna Kjartansdóttir gekk til dæmis til liðs við okkur fyrir tveimur árum og Linda Stef- ánsdóttir fyrir þremur árum. Þannig hefur verið stígandi í þessu hjá okkur, en samt vantar mikið upp á að uppbygginguna hjá yngri flokkunum." - Hafa erlendu leikmennim- ir styrkt kvennakörfuna? „Liðin hafa verið að fá til sín ágætis leikmenn og það er engin spurning að þær hafa Iyft undir áhugann. Þetta er bara svo dýrt dæmi og kostar heilmikla pen- inga. Við höfum ekki mikla möguleika á íjáröflun og þess vega er þetta mjög erfitt. Við hjá KR höfum sjálfar verið að reyna að fara í fyrirtæki og reynt að selja ýmislegt til fjáröflunar. með okkar útlending, en hún var að spila í atvinnudeildinni í Bandaríkjunum fyrir áramótin. Sú deild varð gjaldþrota og þess vegna var hún tilbúin að koma strax til okkar um áramótin. Hún er frábær leikmaður og ómetan- Iegt fyrir okkur að fá að leika með henni.“ - Hafa félögin trassað yngri flokka starftð? „Þetta er misjafnt eftir félög- um, en í heildina ekki í nógu góðu Iagi. Keflvíkingar hafa til dæmis verið með mjög góða yngri flokka og hjá okkur í KR eru margar stelpur að æfa og verið er að koma þessum málum af stað. En betur má ef duga skal og ef við gleymum okkur í uppbygging- unni þá getum við ekki búist við bjartri framtíð kvennakörfunnar" - Hvað er til ráða? „Það þarf auðvitað að leggja alla áhersluna á yngri flokkana og þar verður að gera stórátak. Það átak er reyndar þegar komið í gang hjá KKI og er kallað „sókn í kvennakörfubolta“. Það miðar að þ\4 að byggja upp yngri flokk- ana og hlúa frekar að landsliðun- Við vörum sérstáklegá 'héþþnár "úm í öllum aldúrsflokkum."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.