Dagur - 11.02.1999, Qupperneq 4
20-FI M M T UDAGU R 11. FEBRÚAR 1999
LÍFIÐ í LANDINU
L
Þar fyrir utan hníga
fleiri rök að því að
veiða ekki hvali en
bláköld hagfræðin.
Fantasía um
hvali, hunda
og seli
„Skal ég ekki fyrir synja að
ég tali Iíkt og hvalur, en
honum er máls varnað!“
Sagði Jóhannes Sveinsson
Kjarval í stórmerkri varnar-
ræðu sinni, Fantasía um
hvali, og hélt áfram vörn-
inni: „Mennirnir hafa geng-
ið í félag með illfiskunum
gagnvart steypireyðinni, en
steypireyðurinn á sér stjórn-
málasögu frá byrjun sköp-
unar heims!“ Meistari Kjar-
val bar hönd fyrir höfuð
hvalnum á prenti sjálft Nóbelsárið 1955 og
gerði síst minni usla í landhelginni en Morg-
unblaðsgrein Halldórs Laxness um Hernað-
inn gegn Iandinu gerði sextán árum seinna
uppi á fastalandinu.
Er nauðsynlegt að skjóta þá?
En því er Fantasía um hvali rifjuð upp að
þingheimur býr sig undir að ræða hvort Is-
lendingar skulu skjóta hvali á nýjan leik. Sitt
sýnist hverjum og menn skiptast einkum í
fylkingar á nótum hagfræðinnar þegar hval-
veiðar ber á góma: Oðru megin standa sjálfir
hagsmunaseggir hvalveiðanna og andspænis
þeim eru annars konar seggir sem óttast að
hvalveiðar ógni hagsmunum þeirra á öðrum
sviðum. Hagfræði í járn og járn í hagfræði.
Orð meistara Kjarval halda gildi sínu eftir
hálfa öld og því er skorað á ritstjóra Dags að
birta nú Hvalasögu meistarans við fyrsta
hanagal. Fyrir hönd okkar í þriðja hópnum
sem viljum að hvalurinn lifi á sínum eigin
forsendum.
Þar fyrir utan hníga fleiri rök að því að
veiða ekki hvali en bláköld hagfræðin. Senn
fagna Islendingar þúsund ára Kristni og þús-
und ára Vínlandsferðum og við blasir besta
tækifæri sögunnar til að vekja athygli á landi
og þjóð. Þrátt fyrir að nokkuð sé af Græn-
friðungum og öðrum grænum friðungum
dregið eru hátíðahöldin kjörinn vettvangur
fyrir alla heimsins friðunga að kúvenda
sviðsljósi Islendinga og beina á hvalveiðarn-
ar þegar minnst varir. Sviðsljósið hlífir eng-
um og speglar bæði slétt og fellt yfirborðið
jafnt sem djúpar keldurnar.
Smugur og Hrmgormanefndir
Islendingar hafa því miður þrætt of margar
keldur síðari árin í sviðsljósinu: Skemmst er
að minnast þegar fiskverndarþjóðin drekkti
orðstfr sínum í Smugu Atlantshafsins undir
sjóræningjafána í fylgd íslenskra varðskipa.
Ekki er langt um liðið síðan launaðir flugu-
menn Hringormanefndar stráfelldu litla seli
með stór augu í flæðarmáli landsins og
skildu eftir limlest hræin eins og hráviði. Eða
þegar borgarstjórn Reykjavíkur vildi halda
banni við hundahaldi til streitu og þjóðin
komst í heimspressuna vegna ótta um að
leyfislausir hundar yrðu skotnir í höfuðborg-
inni. Af því tilefni sagði Halldór Laxness á
Degi dýranna 1973 í gamla Austurbæjarbíói:
„Landhelgisdeiluna heyrði ég varla
nokkurn mann nefna í Evrópu. En þegar
fólk vissi að ég væri íslendingur, var ég oft
spurður af bráðókunnugu fólki: Hvers vegna
vilja Islendingar endilega drepa besta vin
mannsins?"
„Lífstegundir ámóta og okkur sjálfa“
Islendingar fóstra nú frægasta hval í heimi
og miklu frægari en Moby Dick sjálfan og
bjóða líka upp á hvalaskoðun í hafinu um-
hverfis landið. Hvort tveggja hefur aukið
hróður Iandsins hjá þeim menningarþjóðum
sem Islendingar flaðra upp um af minnsta
tilefni. Orðstír er hægt að meta til fjár þó
hagfræðin skilji ekki alltaf gildi hans til hlít-
ar. Þúsund ára Kristni og þúsund ára Vín-
landsferðir eru ekkert annað en góður
orðstír þjóðar. Verður Keiko kannski skutlað-
ur fyrstur hvala ef veiðar hefjast á ný og
hvalaskoðun slegið saman við veiðiferðir
hvalbáta til að hagræða í fiskveiðum? Getur
þjóðin bæði alið hvali við brjóst sér og drep-
ið þá af höndum sér? Aftur er gripið niður í
frægri Hvalasögu meistara Kjarvals:
„Hvort nokkur munur sé þarna á svoköll-
uðum guðsneistanum - í viðhöfninni fyrir að
lifa, og hvort okkur stundum ekki vanti eitt-
hvað í okkur af hrifningu yfir að sjá aðrar
lífstegundir ámóta og okkur sjálfa."
UMBUÐfl-
LAUST
/Dgtfjiur
BÆKUR
Myndskreytt
sagnfrædi
Ný saga, tímarit Sögufélags-
ins, er komið út og er þar leit-
ast við að bera sögulegt efni á
borð á aðgengilegan hátt. Rit-
ið er ríkulega myndskreytt og
sett upp eins og áhugaverð
tímarit nútímans.
Níu ritgerðir eru í Nýrri
sögu og er hin fyrsta þeirra
eftir Véstein Olason prófessor
og Ijallar um ritgerðir þær
sem Halldór Laxness skrifaði
um forna menningu Islend-
inga. Kanasjónvarpið er nú
orðin sagnfræði og skrifar
Hörður Vilbergur Lárusson
um þær miklu deilur sem
stóðu um það á sjöunda ára-
tugnum. Sigurður Ragnarsson
skrifar sögu Miðbæjarskólans
og Oskar Guðmundsson segir
frá Magnúsi Kristjánssyni,
smið og meðhjálpara í Olafs-
vík, en hann var afkastamikill
fræðimaður og hélt m.a. dag-
bækur í sjö áratugi. Margt er
fleira fróðlegt og áhugavert í
ritinu.
Ummaimiim
Félagsvísindastofnun Háskóla
Islands hefur gefið út bókina
Maður og menning eftir
Harald Olafsson mannfræð-
ing. I þessari bók er fjallað
um skilning og skýringar á
eðli manns og menningar frá
sjónarhorni mannfræðinnar.
Höfundur rekur þróun helstu
hugmynda um manninn frá
tíma upplýsingastefnunnar til
nútímans og
setur hug
myndir mann
fræðinnar
samhengi við
almenna hug-
myndasögu
þjóðfélags-
fræða og líf-
fræða. Höf-
undur fer
sínar eigin _____
leiðir í túlk-
un klassískra fræðiverka
á fræðasviðinu og byggir jöfn-
um höndum á þýskum,
frönskum og engilsaxneskum
frumheimildum. Viðfangsefn-
ið er ótrúlega fjölbreytt, frá
göldrum, trú og töfrum til
veraldlegrar skynsemishyggju,
frá fábrotnum siðum
frummannsins til flókins nú-
tímalegs þjóðskipulags.
Haraldur
Ólafsson.
Samfylkmgarleið-
togaspumingin
Því er gjarnan haldið að fólki að
það skuli vera víðsýnt, sveigjan-
legt, hlusta á rök annarra, taka
þau til greina, þroska sjálfið og
karakterinn eftir því sem efni og
aðstæður leyfa og jafnvel skipta
um skoðun við tækifæri þegar
glimrandi röksemdir gefast.
Svo er því gjarnan haldið að
fólki að skipti það reglulega, en
meðvitað þó, um hugmynda-
fræði þá sé það vingulsháttur,
skipti það um fatasmekk hafi
það ekki fundið „sjálft" sig en
verst af öllu er þó þegar menn skipta
um flokka - þá fyrst hafa menn kastað
sínu orðspori fyrir björg, virðingunni
út í vindinn og troðið staðfestuna í
svaðið svo enginn getur verið 100% ör-
uggur um fyrir hvað viðkomandi
Hringlari stendur fyrir.
Staðinn sveigjanleiki
Kári genahöfðingi ýjaði að því á
blaðamannafundi um daginn að
Magnús Kjartansson myndlist-
armaður hefði sennilega goldið
fyrir það hve oft hann hefði tek-
ið inn ný áhrif og veitt þeim út í
list sína. I orðum hans mátti
skilja að endurnýjun Magnúsar
hafi sennilega afvegaleitt þann
hóp, sem einhvern tímann hefði
getað myndað kjarna aðdáenda-
og kaupendahóps listamannsins.
Og er það ekkert fráleitt að
myndverkakaupendur séu eins markaðir
af kröfunni um að fólk skuli sitja staðn-
að í sveigjanleika sínum (eða sveigjan-
legt í stöðnun sinni) og aðrir.
„Aðgangsharka“
Þessi krafa er eiginlega af sama meiði
MENNINGAR
VAKTIN
Afhverju I and-
skotanum þarf
að upplýsa mig
um það,
nokkrum sinn-
um á dag, að
það er enginn
leiðtogi fyrir
Samfylking-
una?
og sú sem nú hefur bitið sig í fjölmiðla-
menn landsins, þ.e. krafan um svart-
hvítan heim sem hafi gott skyggni til
hægri og vinstri. Þegar Arni Þórarins (sá
fíni spennusagnahöfundur) lagði sam-
fylkingarleiðtogaspurninguna sígildu
fyrir Heimi Má Pétursson í Eftir fréttir í
vikunni vildi Heimir auðvitað ekkert
svara. Hann sagðist þó skilja vel, sem
fyrrverandi fréttamaður, áhuga stéttar-
innar á Ieiðtogamálinu enda þægilegra
að vinna fréttir þegar hægt er að hlaupa
með mál milli tveggja póla, þ.e. Davíðs
og ????. En meinið er ekki bara tíma- og
framleiðslupressan, ekki bara að okkur
finnst svo gaman að pæla í þvf hver fái
að vera stærstur og mestur, tala mest í
sjónvarpið og komast oftast á forsíðu
DV, heldur hefur hugtakið aðgangs-
harka, með of fáum undantekningum á
síðustu árum, öðlast nýja merkingu.
„Aðgangsharka" er orðið yfirvarp yfir
þreytandi OG meinlausar spurningar
sem gefa sig út fyrir að vera geysiíeg
fagþrjóska af hálfu fréttamanns. Og það
er orðið klént að kenna tímaleysi um
andleysi okkar þegar við hlaupum á eftir
valdaelítunni með auðmjúkan drýslasvip
á andlitinu og finnst Iangmerkilegast að
tyggja á spurningu sem elítan vill ekki
svara. Því fréttanefið segir að vilji fólk
ekki svara þá er svarið merkilegt. Ekki
að spurningin sé röng.
Netfang: loa@ff.is