Dagur - 12.02.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 12.02.1999, Blaðsíða 4
4- FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 FRÉTTJR 27 þúsimd í vasapening Félagsmálaráðuneytið hefur ákveðið að i'Jtlendingar sem ráðnir eru í vist á íslensk heimili skuli fá að minnsta kosti 27.254 krónur í vasa- peninga á mánuði á þessu ári. Samkvæmt lögum frá 1994 um at- vinnuréttindi útlendinga ber ráðuneytinu að ákvarða Iágmarksvasa- peninga fyrir aupair-fólk hér á landi. Gögnum safnað um afbrotamenn Nefnd á vegum dómsmálaráðu- neytisins aflar nú gagna frá barna- verndamefndum og félagsþjónust- um stærstu sveitarfélaga landsins, en hlutverk nefndarinnar er að gera tillögur til úrbóta í málefnum ungra afbrotamanna og ungra fanga. Nefndarskipanin kom í kjöl- far álitsgerðar Umboðsmanns barna frá síðasta sumri, þar sem kallað var á úrbætur í anda Barna- sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt upplýsingum dóms- málaráðuneytisins eru svör að ber- ast frá sveitarfélögunum og er reiknað með að nefndin skili skýrslu í vor. Alitsgerð Umboðs- manns barna laut að málefnum ungra fanga, en nefndin hefði ákveðið að taka mun víðara svið fyrir, þ.e. málefni ungs fólks á af- brotabraut með t.d. í huga hvernig grípa megi inn í þróun mála áður en í óefni er komið. Þórhildur Líndal, Umboðsmaður barna, segist ekkert hafa frétt af þessari nefndarvinnu og að sér sé ekki kunnugt um að nokkrar breyt- ingar hafi átt sér stað. „Eg bíð eftir niðurstöðum nefndarinnar og eft- ir því hvað dómsmálaráðherra gerir við þær.“ — FÞG Nýr forstöðumaður útvarps Siguijón A. Friðjónsson hefur verið ráðinn rorstöðumaður útvarps hjá íslenska útvarpsfélaginu. Sigurjón mun hafa yfirumsjón með út- varpssviði og rekstri þriggja útvarpsstöðvar, Bylgjunnar, Mono og Stjörnunnar. Sigurjón hefur starfað að markaðsmálum hjá Vífilfelli frá 1993. írnga Þórhildur Líndal: Bíð eftir niður- stöðum nefndarinnar. Brot úr bókmeimtum með mjólMnni Brot úr athyglisverðum bókmenntatextum eru á nýjum mjólkurumbúð- um sem eru að koma á markað þessa dagana, A mjólkurfernunum hafa undanfarin ár verið ábendingar um íslenskt mál og hefur Mjólkur- samsalan þannig sýnt íslenskri málrækt stuðning sinn. Á nýju umbúðum ný- mjólkur og léttmjólkur er breytt um áherslur og birt brot úr bók- menntatextum, „þannig að í stað þess að tala um íslensku og notkun hennar er íslenskan látin tala meira sjálf," segir í fréttatilkynningu frá Mjólkursamsölunni. I tilefni þessa stendur fyrirtækið fyrir Islenskudögum í Kringlunni um helgina þar sem verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá heigaða íslenskri tungu. Brot úr bókmenntatextum prýða nýjar mjóik- urumbúðir. Er imsmunim skattsius brot á jafnræðisreglu? „Hvers á það fólk að gjalda sem ekki hefur aðgang að Internetinu og hefur þar með ekki möguleika á sama fresti og netverjar, t.d. gamalt fólk og lítt tæknisinnað fólk? Þetta er einfaldlega brot á jafnræðis- reglunni. Þeir hefðu allt eins getað ákveðið að fólk sem á jeppa fái lengri frest en aðrir,“ segir óánægður skattgreiðandi í samtali við Dag. Skattyfirvöld bjóða öllum sem á þurfa að halda frest á skilum á skattframtali til 28. febrúar. Netveijum er hins vegar boðið upp á að sækja um framhaldsfrest á skilunum allt til miðs marsmánaðar og það finnst viðmælandanum fyrrgreinda fela í sér mismunun. Guðrún Helga Brynleifsdóttir vararíkisskattstjóri segir að embættið hafi vissulega velt þessu atriði fyrir sér en komist að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki. „Við teljum þetta í ljósi aðstæðna ekki vera brot á jafnræðisregl- unni. Það er verið að bjóða upp á ákveðna tæknilega aðferð við að skila skattframtalinu og þar sem þessi Ieið var ekki kynnt fyrr en 7. febrúar þá töldum við að fólk sem vildi nýta sér hana ætti að fá ákveðinn aðlögunarfrest,“ segir Guðrún. — FÞG Guðbjörgin var á sínum tíma stolt ísfirska flotans en hefur nú verið seld til fyrirtækis Samherja í Cuxhaven. Guggan seld til Cuxhaven Sala frystitogarans Guöbjargar ÍS-46 hafði lítið áhrif á sölu hlutabréfa í Sam- herja á Verðbréfa- þingi íslands. Frystitogarinn Guðbjörg IS-46, sem lengi var flaggskip ísfirska togaraflotans, hefur verið seldur til þýska útgerðarfyrirtækisins Deutsche Fichfang Union (DFFU) í Cuxhaven, sem Sam- herji á 99% hlut í. Togarinn verður afhentur um miðjan marsmánuð. 2.700 þorskígildis- tonna kvóti skipsins verður flutt- ur á önnur skip Samheija. Allri áhöfn skipsins hefur verið sagt upp en reynt verður að finna þeim pláss á öðrum skipum Samherja. Guðbjörgin hélt frá Reykjavík í mánudaginn á bol- fiskveiðar á Vestfjarðamiðum, og er það líklega síðasta veiðiferð skipsins undir íslenskum fána. Skipið verður kallað inn til Reykjavíkur þegar veiðast fer frystanleg loðna og mun þá skip- ið liggja við bryggju og frysta afla úr loðnuskipum, eins og fljót- andi frystihús. Togarinn varð eign Samherja á Akureyri þegar Samherji og Hrönn, sem gerði út Guðbjörg- ina, sameinuðust árið 1997. Þá var því Iýst yfir að útgerðin yrði áfram með svipuðu sniði en þverrandi rækjuafli hér við Iand hefur m.a. gert það að verkum að skipinu hefur verið „flaggað út“ tímabundið á þýskan fána, til þess m.a. að komast á grálúðu- miðin við Grænland en DFFU á þar umtalsverðan kvóta. Undir merkjum DFFU getur skipið m.a. veitt þorsk í landhelgi Nor- egs og úthafskarfa á Reykjanes- hrygg. Samheiji er að Iáta smíða íjölveiðiskip í Póllandi sem bæt- ast mun í flota fyrirtækisins á miðju næsta ári. Sala Guðbjargarinnar hafði lítið áhrif á sölu hlutabréfa í Samherja. Salan á Verbréfaþingi íslands nam 478.279 krónum að nafnvirði á mánudaginn en markaðsverð var 3.995.521 króna. Hæst fór gengi bréfanna í 8,42 en 8,25 var lægsta sölu- gengi dagsins. — GG Véstfírsk Sam- fylking fuUmótiid Gengid hefur verið frá framboðslista Samfylkingariimar á Vestfjörðum og er Sig- hvatur Björgvinsson í fyrsta sæti en Karl V Matthíasson í öðru. Samfylkingin á Vestfjörðum hef- ur ákveðið framboðslistann fyrir næstu Alþingiskosningar. List- ann leiðir Sighvatur Björgvins- son, formaður Alþýðuflokksins, en í 2. sæti er sr. Karl V. Matth- íasson, sóknarprestur í Grundar- firði, sem þjónaði Isfirðingum um árabil á árum áður. Þriðja sætið er skipað fulltrúa Kvennalistans Sigríði Ragnars- dóttur, skólastjóra Tónlistaskóla Isafjarðar. I næstu sætum koma Guðbrandur Stígur Ágústsson, skólastjóri grunnskólans á Pat- reksfirði úr röðum Alþýðubanda- lagsins; Arnlín Oladóttir, vist- Sighvatur Björgvinsson. Skipar l.sæti Samfylkingar á Vestfjörðum. fræðingur í Bjarnarfirði á Ströndum, sem er hópi óháðra en er úr „kvóta“ Kvennalistans; Anna Stefanía Einarsdóttir, fisk- verkakona á Patreksfirði og Al- þýðuflokksmaður; Gylfi Þ. Gísla- son, lögreglumaður á Isafirði úr röðum Alþýðuflokksmanna; Val- dís Bára Kristjánsdóttir, formað- ur Verkalýðsfélagsins Brynju á Þingeyri og kemur úr röðum óháðra; Bryndís Friðgeirsdóttir, svæðisfulltrúi Rauða lo-ossins á ísafirði, bæjarfulltrúi ísafjarðar- listans og kemur úr Alþýðu- bandalaginu og í neðsta sætinu er Jóna Valgerður Kristjánsdótt- ir, oddviti Reykhólahrepps og fyrrverandi þingmaður Kvenna- Iista. Nokkrum erfiðleikum var háð að fá tilnefningar Kvennalistans á Samfylkingarlistann en eftir að það lá nokkuð ljóst fyrir þurfti ekki nema tvo fundi til þess að ganga frá framboðslistanum. Nokkrir gáfu kost á sér í efsta sæti Alþýðubandalagsins, þ.e. 2. sæti listans, þ.m.t. Guðbrandur Stígur Ágústsson, sem skipar 4. sætið og Heimir Már Pétursson, sem síðar dró sig til baka og ákvað að fara í prófkjörsslag Samfylkingar í Reykjavík. Engin ágreiningur var um að kratar skipuðu efsta sæti listans. - GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.