Dagur - 16.02.1999, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 19 9 9 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Hvatasirkus lsk-klasans
Lóa
Aldísardóttir
skrifar
Náttúruóperan
Leikfélag Menntaskól-
ans við Hamrahlíð
Leikstjóri: HarpaArnar-
dóttir
Handritshöfundur:
Andri Snær Magnason
Tónlistarstjórn og höf-
undar tónlistar: Gunnar
Örn Tynes, Örvar Þór-
eyjarson Smárason.
Hljómsveit: Úrúbúrúkvintettinn
I nostalgíukasti yfir hreinsilagarlykt-
inni á ganginum í Menntaskólanum við
Hamrahlíð settist maður fullur tortryggni
inní sal þar sem var að hefjast frumsýn-
ing á Náttúruóperunni eftir Andra Snæ
Magnason í flutningi Leikfélags MH. Það
er skemmst frá því að segja að þetta var
kraftmikil sýning, hópurinn heildstæður
og uppfærslan metnaðarfull.
E-lsk-a
Það er lsk-klasinn sem er einkum að
þvælast fyrir Baldri, aðalpersónu verks-
ins, þ.e. þegar sérhljóðinn „e“ fer á undan
og „a“ á eftir. Viðlíka ótti og greina má
hjá kaldhömruðum persónum Sindra
Freyssonar og Gerði Kristnýju í þeirra
nýjustu bókum, við orðin „ást“ og „elska“.
Astarorðafælni kynslóðarinnar sem, skv.
leikritinu, mótaðist einkum af þrennu:
ajkvikmyndinni The Day After með sinni
kjarnorkustríðshræðslu, b) eyðniforvarn-
arfárinu, c) og var svo endanlega sann-
færð um að það væri „ekkert líf eftir 15“
þegar hún sökkti sér ofan í „ung-
„Lífið er hvatasirkus" segir íNáttúruóperunni og svo mjög fær iífið á aðaipersónu verksins, Baldur
[Jón Gunnar Þórðarson), að hann verður nærri örvita af ringulreið hvatanna. Hið sama mætti
segja um hvern þann sem hyggst ná botni í persónusafn verksins [sem er hreinasti óþarfi, vel
hægt að njóta óperunnar án þess] þar sem persónur bera nöfn eins og Jökuisárgjúfur, rósótt
hugsun, miðaldra Ingibjargarhugsun, Jöklasóley, heiladraugur og sápukúiuhugsun si/o einhverjar
séu nefndar.
linga“bækur Eðvarðs Ingólfssonar.
Náttúruóperan tekst að gera þessu
efni skil án þess að vera tilgerðarleg eða
vandræðalega tilraun til skilgreiningar á
lífi ungs fólks í lok árþúsunds - einkum
og sér í lagi vegna þess að óperan er sam-
ansett af fíflalátum og léttúð gagnvart al-
vöru lífsins. Leikritið var unnið í spuna
ásamt höfundinum, eða eins og Andri
segir í Ieikskrá: „af öllum mínum börnum
er þetta efiaust hið undarlegasta því það
á að minnsta kosti níu mæður og um 50
manns tóku þátt í forleiknum.“ Útkoman
er margradda bræðingur af óperu og
ádeilu, auglýsingamennsku og stjörnu-
speki og ýmsu fleira. Eins og höfundur
segir þá má í leikritinu m.a. greina sterk
áhrif frá klassískri óperu, grískum harm-
og gamanleikjum, skandinavísku raunsæi,
absúrdisma, súrrealisma, Shakespeare,
sirkus, þjóðsögum og teiknimyndum. Og
þetta er ekki orðum aukið.
Leitin að orðinu
Leiðarstjarnan á ferðalaginu um hvatalíf
Baldurs er leitin að „orðinu", þessu eina
sanna orði sem tjáir eitthvað sem Baldur
getur ekki tjáð og hann vantar tilfinnan-
lega í orðasafnið. Það var eitthvað óljóst í
lokin hvort leitin hefði borið árangur. En
það var allavega búið að kalla fram til-
finninguna fyrir orðinu (“í nýja orðinu
mínu verður fullt af sofandi Ióum“) og
gefa tóninn fyrir lífið, sirkusinn sem við
tökum þátt í hlaupandi á eftir árásarhvöt-
inni, kynhvötinni og öðrum spriklandi
púkum hvatalífsins.
Hópurinn stóð sig vel í heildina enda
hárétt ákvörðun að láta sýningu áhuga-
leikhóps ekki standa og falla með
frammistöðu fáeinna Ieikara. Sérstaklega
komu þau vel út Magnea Björk Valdi-
marsdóttir sem liafði mjög tilgerðarlausa
og sterka nærveru á sviðinu og Jón
Gunnar Þórðarson (Baldur) sem hafði
sérstaklega fína slyttislega líkamsbeit-
ingu. Ótal fleiri höfðu hnyttin hlutverk
sem voru vel af hendi leyst. Náttúruóper-
an er eiginlega eins metnaðarfull sýning
og hægt er að kreíjast af leikfélagi í fram-
haldsskóla. Verkið er nýtt og unnið í sam-
ráði við hópinn, tónlistin samin fyrir
verkið og var flutt lifandi á sýningunni og
flögrandi hýjalínshandbragðið hennar
Hörpu Arnardóttur leikstjóra fór Ijómandi
vel saman við kraftmikinn hálfkæringinn
í textanum og Ieiknum. Til hamingju!
Saltkjötog
bauntr
SVOJMA
ER LIFID
Pjetur St.
flrason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
í dag er sprengidagur. Þá belgja menn sig út af kjöti, því eftir
þessa viku hefst Iangafasta og trúaðir menn borða ekki kjöt fyrr
en á páskunum, þegar þeir komast í páskalambið. Sá siður að
borða saltkjöt og baunir þennan daga á sér rætur aftur á síð-
ustu öld.
Heyrt hef ég sagt frá heilsustofnuninni í Hveragerði. Þar er
ekki borðað saltkjöt á sprengidaginn einungis baunir. Þar var
einu sinni maður sem gat ekki stillt sig. Hann fór útí bæ og
fékk sér saltkjöt og baunir. Hann var í megrunarhóp og vigtað-
ur einu sinni í viku.
Hann var Ijórum
kílóum þyngri eftir
salkjötsátið en hann
hafði verið vikuna
áður.
Anna Elísabet
Ólafsdóttir, næringar-
fræðingur hjá Nær-
ingarsetrinu, segir að
höfuðvandi dagsins
sé saltið. „Það getur
verið allt upp undir
matskeið af salti í al-
gengum skammti af kjöti. Baunirnar eru ekkert óhollar sem
slíkar en þær geta valdið einhverjum vandræðum hvað varðar
vindgang. Af því að þarmaflóran er ekki undir þetta búin hjá
þeim sem eru ekki vanir þessum baunamat. Það á við um
flesta Islendinga.
Þeim sem eru viðkvæmir fyrir salti ráðlegg ég að borða frek-
ar nýtt kjöt. Þeim sem ætla að fá sér saltkjöt og baunir, eins og
ég ætla að gera að hafa kötið ekki í mjög stórum skömmtum.
Borða 100-150 gr. af kjöti og hafa svo mikið af rófum, gulrót-
um, kartöflum og baunum. En ekki að borða 250 gr. af kjöti.
Jurtaætur sem vilja ekki borða kjöt geta haft baunasúpu
með gullrótum rófum og kartöflum. Það er skemmtileg hefð að
hafa svona daga. Þetta er gömul íslensk hefð. A þessum degi
geta allir fundið eitthvað sem passar fyrir þá.“
Um cl>inbilviku
Ég sagði hér í pistli í síðustu viku að dymbilvikan væri í þessari
viku. Það er að sjálfsögðu ekki rétt því að dymbilvikan er síð-
asta vika fyrir páska. Það eru ennþá tæpar sjö vikur til þeirra
hátíðarhalda. Núna er hinsvegar föstuinngangur sem er síðasta
vikan fyrir Iönguföstu.
HVAfl ER Á SEYDI?
LANGAFASTA HEFST Á ÖSKUDAG
Passíusálmar Hallgrims Péturssonar eru
sungnir á föstumessu í Askirkju, miðviku-
dagskvöldið 17. febrúar kl. 20.30 og síðan
hvert miðvikudagskvöld föstunnar á sama
tíma. Kirkjukór Askirkju undir stjórn Krist-
jáns Sigryggsonar leiðir sönginn. Þessar
kyrrlátu stundir andagtar og bænargjörðar i
Áskirkju á föstunni, hafa undanfarin ár
reynst mörgum dýrmætar, bæði það að hug-
Ieiða Píslargönguna í ljósi Passíusálma Hall-
gríms og lífið sitt í ljósi sálmanna hans og
frásagnar guðspjallanna, sem og það að
kyrra hugann í bæn f)TÍr sér og öðrum.
Langafasta stendur í 7 vikur frá Ösku-
degi til Páska og eru föstumessur í flestum
kirkjum landsins. Passíusálmarnir eru fluttir
í útvarpinu (Rás 1), einn á dag alla föstuna.
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kammertónleikar í Salnum
Unnur Sveinbjarnardóttir, víóla, Einar
Jóhannesson, klarinett og Anna Guðný
Guðmundsdóttir, pianó, leika verk eftir J.
Brahms, R. Schumann, Þorkel Sigur-
björnsson og M. Bruch á Kammertón-
leikum í Salnum tónlistarhúsi Kópavogs í
kvöld kl. 20.30.
Leit að ungri stúlku
Frumsýnt verður í hádegisleikhúsi Iðnó
fimmtudaginn 18. febrúar verðlaunaverk-
ið úr leikritasamkeppni sem efnt var til í
haust er leið. Fyrstu verðlaun hlaut gam-
anleikritið Leitum að ungrí stúlku eftir
Kristján Þórð Hrafnsson. Verkið fjallar
um unga stúlku sem kemur í áheyrn-
arprufu til ungs kvikmyndaleikstjóra sem
er að gera sína lyrstu kvikmynd. Hug-
myndir þeirra um lífið og listina stangast
harkalega á og samskiptin taka brátt
óvænta og undarlega stefnu. Ætlunin er
að sýna öll verðlaunaverkin í hádegisleik-
húsi Iðnó á næstunni.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Almenn handavinna, kennari er Kristín
Hjaltadóttir í dag kl. 09 - 12.30. Meist-
aramót Félags eldri borgara í skák ld.
13.00, þrenn verðlaun veitt. Kaffistofan
opin frá kl. 10.00-13.00.
Samspil löggjafavalds og dómsvalds
Er yfirskrift á málþingi sem Orator Félag
lögfræðinema stendur fyrir. Erindi flytja
Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra,
Sigurður Líndal, prófessor, Valtýr Sig-
urðsson, hérðsdómari, Jón Steinar Gunn-
laugsson, hrl. Málþingið hefst kl. 11 í
dag og er öllum opið. Sérstök hátíðarhöld
verða á árshátið félagsins sem haldin
verður í Perlunni i kvöld en í dag eru 79
ár frá því Hæstiréttur Islands kvað upp
sína fyrstu dóma 16. febrúar 1920.
Leiðrétting vegna einþáttunga Brechts
I frásögn blaðsins af sýningum Skemmti-
hússins að Laufásvegi 22 á einþáttungum
Brechts, sem frumsýndir verða í kvöld,
féll niður nafn eins leikarans og er beðist
velvirðingar á því. Guðlaug María Bjarna-
dóttir fer með hlutverk gyðingakonunnar
(læknisfrúarinnar). Það hlutverk lék Bríet
Héðinsdóttir 1966 og er sýningin nú í
minningu hennar.