Dagur - 17.02.1999, Blaðsíða 9
8- MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
MIDVIKUD AGU R 17. FEBRÚAR 1999 - 9
FRÉTTASKÝRING
FRÉTTIR
Hvalveiö ar og hvalaskoðim
ekki ósættanlegar andstæður
SIGURDÓR
SIGURDÓRS-
SON
SKRIFAR
Hvalveiðar og hvala-
skoðun þurfa ekki að
vera ðsættanlegar and-
stæður - rOdsstjóm
hikandi við að leyfa
hvalveiðar að nýju.
Fyrir þinglok 10. mars verður
þingsályktunartillaga þingmann-
anna Guðjóns Guðmundssonar
og Einars K. Guðfinnssonar um
að hefja hvalveiðar á nýjan leik
hér við Iand að öllum líkindum
tekin fyrir á Alþingi. Sjávarút-
vegsnefnd þingsins er að sögn til-
búin að afgreiða hana frá sér á já-
kvæðum nótum. Talið er fullvíst
að nokkur meirihluti sé fyrir því á
Alþingi að samþykkja að hefja
hvalveiðar á nýjan leik. Þannig
hefur það raunar verið í nokkur
ár. Stjórnvöld hafa hinsvegar
alltaf komið í veg fyrir að menn
fengju að hefja hvalveiðar.
Samkvæmt heimildum Dags
hefur hvalveiðimálið ekki verið
tekið formlega fyrir í ríkisstjórn-
inni að þessu sinni. Það hefur
hins vegar verið rætt þar tvívegis
en óformlega í bæði skiptin. Ráð-
herrar hafa vikið sér undan að
taka afstöðu enda málið afar við-
kvæmt. Það er bara ferðamála-
ráðherrann, gamli hvalskurðar-
maðurinn Haildór Blöndal, sem
hefur lýst því yfir að hann sé and-
vígur því að hefja veiðarnar. Þeir
Halldór Asgrímsson utanríkisráð-
herra, sem hefur verið heldur
hlynntur því að hefja hvalveiðar,
og Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra eru í nánu sam-
bandi við sjávarútvegsnefnd Al-
þingis vegna afgreiðslu málsins
þaðan.
Þótt áður hafi verið vilji fyrir
því á Alþingi að hefja hvalveiðar
hafa stjórnvöld komið í veg fyrir
að þær hæfust. Einu sinni stöðv-
aði sjávarútvegsráðuneytið málið
með því að skipa nefnd sem átti
að skoða málið betur. Ekkert kom
út úr því. Síðast var það svo Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra sem
stöðvaði að hrefnuveiðar hæfust.
Hann notaði þau rök að skutull-
inn sem nota átti við veiðarnar
væri óhæfur, leita þyrfti að betri
skutli. Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals hf., segir að það hafi aldrei
neitt verið að skutlinum, þetta
hafi bara verið fyrirsláttur. Það
hafi bara verið sett framan á
hann ný sprengja. Annað hafi það
nú ekki verið. Og nú spyrja menn
hvað gert verði í málinu?
Þegar rætt er um að hefja hval-
veiðar hér við Iand eru uppi tvö
ólík sjónarmið. Annars vegar
sjónarmið þeirra sem vilja að Is-
lendingar nýti allar auðlindir sín-
ar, þar á meðal hvali. Kristján
Meira en 30 þúsund manns hafa farið í hvalaskoðunarferðir á síðasta ári og telur Ferðamálaráð og þeir aðilar sem að slíkum ferðum standa að það myndi hafa mjög neikvæð áhrifá ferðamannastraum
til landsins ef hvalveiðar yrðu hafnar að nýju, en talið er fullvíst að nokkur meirihluti sé fyrir því á Alþingi að samþykkja að hefja hvalveiðar á nýjan leik.
Loftsson segist geta selt allt það
hvalkjöt sem leyft yrði að veiða.
Hann segir þar ekkert í veginum.
Enn aðrir hvalveiðisinnar segja
nauðsynlegt að halda hvalastofn-
unum í skeQum, þar sem hvalur-
inn sé keppinautur okkar um tak-
markaða og kvótasetta fiski-
stofna.
Á hinum kantinum eru svo þeir
sem segja að ef við hefjum hval-
veiðar að nýju muni það bæði
skaða viðskiptahagsmuni okkar
erlendis, einkum í Bandaríkjun-
um og Þýskalandi, þar sem öfga-
hópar græningja eru öflugastir,
og hafa áhrif á ferðamanna-
strauminn til landsins. Þeir
benda Iíka á að hvalaskoðun víða
frá landinu sé vaxandi ferða-
mannagrein. Meira en 30 þúsund
manns hafi farið í hvalaskoðunar-
ferðir á síðasta ári.
Hvalveiðisinnar gefa lítið fyrir
þessi rök vegna þess að það hefur
komið í ljós í Noregi að ekkert
gerðist í þessa veru þegar Norð-
menn hófu hrefnuveiðar 1993.
Ferðamannastraumurinn hefur
aukist þar eins og annars staðar.
Hvalaskoðunarferðir blómstra
sem og ferðir þar sem ferðamenn
fá að sjá hvalveiðar.
Vantar könnun
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
var spurður hvort hann og menn
í ferðamálaráði óttuðust að hval-
veiðar drægju úr komu erlendra
ferðamanna til Islands og þá ekki
síst hvort hin unga en vaxandi
ferðamannaþjónusta, hvalaskoð-
unarferðirnar, myndi leggjast af?
„Ferðamálaráð hefur aldrei
ályktað í þá veru að hvalveiðar
eigi ekki að heljast aftur, heldur
að það sé ekki tímabært. Og það
er ekki tímabært vegna þess að
við vitum ekki svarið við spurn-
ingu þinni. Það veit enginn hvaða
áhrif það myndi hafa á ferða-
mannaþjónustuna ef hvalveiðar
yrðu hafnar að nýju. Það vantar
allar kannanir og rannsóknir á
mögulegum áhrifum hvalveiða á
ferðamannaþjónustuna til að
hægt sé að segja af eða á með
hvalveiðarnar," segir Magnús
Oddsson.
Hann segir að það þurfi líka að
veita verulegu fjármagni til þess
að kynna málstað Islendinga ef
ákveðið verður að hefja veiðarnar.
Þannig væri hægt að bregðast við
hugsanlegum mótmælum og
annarri andstöðu gegn veiðun-
um.
„Eg held að allir séu sammála
um að þjóðin á að halda til
streytu rétti sínum til að nýta
sjálfbærar auðlindir sínar. Spurn-
ingin er bara hvenær það er tíma-
bært og hvernig verður það gert
með tilliti til þess að koma mál-
stað okkar til skila og vinna hon-
um fylgi,“ segir Magnús.
Ferðamálaráð gerði á því könn-
un hjá erlendum ferðamönnum
sem komu til landsins í fyrra
hvaða áhrif þeir teldu að það
myndi hafa á ferðamannastraum-
inn til landsins ef hvalveiðar
hæfust að nýju. Ferðamennirnir
voru spurðir hvort það myndi
hafa haft áhrif á ákvörðun þeirra
að koma til íslands ef íslending-
ar hefðu verið hvalveiðiþjóð.
Útkoman var sú að meirihlut-
inn sagði að það hefði haft nei-
kvæð áhrif á þá að fara tii Islands
ef hvalveiðar væru i gangi. Magn-
ús bendir hins vegar á að þetta sé
bara ein afmörkuð könnun meðal
þeirra sem voru komnir. Nauð-
synlegt sé að veita fjármagni til
þess að kanna þetta mál allt eins
vel og hugsanlegt er. Það þurfi
líka að kanna hve margir erlendir
ferðamenn koma til Islands til
þess eins að fara í hvalaskoðunar-
ferðir. Hvað gefur þessi nýja
ferðamannagrein af sér og ýmis-
Iegt fleira.
Markaður í Japan
Einar K. Guðfinnsson alþingis-
maður er annar flutningsmaður
að þingsáþ'ktunartillögunni um
að hvalveiðar skuli hafnar að
nýju. Hann segist sannfærður um
að meirihluti þingmanna vilji að
hvalveiðar verði hafnar.
„Eg tel skynsamlegast að veið-
arnar verði stundaðar undir vís-
indalegum formerkjum, þannig
að við veiðum úr þeim stofnum
sem vísindamenn telja eðlilegt að
veitt sé úr. Þess vegna hef ég
aldrei viljað nefna hrefnuveiðar
sérstaklega eins og sumir gera,
heldur bara að það verði veitt úr
þeim stofnum sem vísindamenn
telja óhætt að veiða úr. Eg hef
einnig sagt að það sé bara spurn-
ing um aðferðafræði með hvaða
hætti við heljum veiðarnar, hvort
byrjað verður á að veiða eina teg-
und eða fleiri," segir Einar Krist-
inn.
Hann var spurður að því hvort
menn telji mögulegt að losna við
afurðirnar?
„Ég vil í því sambandi benda á
að það er nú ekki þannig þegar
menn hefja atvinnurekstur að
menn þurfi að svara því hvort eða
hvernig menn ætla að losna við
afurðirnar. Það er ævinlega lagt í
ábyrgð þeirra sem eru að fram-
leiða vöru hvernig þeir ætla að
Iosna við hana og hefur ekki til
þessa verið talið arðvænlegt að
hefja rekstur sem ekki gefur af
sér tekjur. Hins vegar er það
skoðun manna sem hafa komið
að þessu máli að það muni ekki
standast alþjóðleg lög að banna
okkur útflutning á hvalaafurðum.
Það er vitað að markaður er fyrir
þessar afurðir í Japan og síðan
hefur mér verið sagt að það sé
einhver eftirspurn eftir þessum
afurðum í Noregi. Þeir borða að
vísu ekki rengi en eftirspurn mun
vera eftir kjötinu sjálfu,“ sagði
Einar Kristinn.
Hann var spurður hverju hann
svaraði þeim sem óttast um
ferðamannaþjónustuna, hvala-
skoðunarferðir til að mynda, ef
hvalveiðar verða leyfðar?
„Eg svara því til að reynslan frá
Noregi sýnir annað en þeir óttuð-
ust. Eins hef ég sagt að menn eigi
að vinna þetta þannig að báðir
aðilar, veiðimennirnir og þeir sem
standa fvrir skoðunarferðunum,
geti vel við unað. Það er hægt að
stinga út þau svæði sem menn
vilja undanskilja frá hvalveiðum
og nýta til hvalaskoðunar. Þá vil
ég vekja athygli á því að í norsku
viðskiptablaði var nýlega skýrt frá
því að það væri orðinn algengur
hluti af ferðamannaþjónustunni í
N-Noregi að menn færu og skoð-
uðu hvali og fengju svo að upplifa
þá skemmtilegu sjón að sjá hann
veiddan af veiðimönnum. Ef
þetta yrði tekið upp hér myndi
það að mínum dómi styrkja
hvalaskoðunarferðirnar enn frek-
ar,“ sagði Einar K. Guðfinnsson.
Skoða en ekki drepa
Júlíus Snorrason skipstjóri er
meðal eigenda að Sjóferðum ehf.
á Dalvík og skipstjóri á hvalaskoð-
unarbát fyrirtækisins. Hann var
spurður hvort hann óttaðist um
hvalaskoðunarferðirnar ef hval-
veiðar hefjast aftur hér við land?
„Eg er afskaplega hræddur um
það. Við verðum að fara varlega í
þetta vegna þess að það tekur
engan tíma að eyðileggja það sem
langan tíma getur tekið að byggja
upp. Eg er hins vegar gamall sjó-
maður sem veit að fólki finnst
sjálfsagt að þjóðin nýti allar þær
auðlindir sem hún á. Eg skil það
sjónarmið afar vel. Samt sem áður
er ég smeykur um að hvalveiðar
geti valdið ókltur meiri skaða en
við sjáum fyrir okkur í fljótu
bragði. Eg byggi þessa skoðun
mína á því sem ég heyri fólk segja
sem hefur farið með okkur í
hvalaskoðunarferðirnar héðan frá
Dalvík. Það fólk segir að mikil
spenna myndi skapast í kringum
þetta allt ef veiðarnar hefjist á
nýjan leik. Vel má þó vera að sú
spenna líði hjá og aðrir hópar
komi í staðinn sem vilja sjá hvali
veidda og skorna. Það er nokkuð
sem maður veit ekkert um. Menn
hafa verið að benda á Hvalstöðina
í Hvalfirði þar sem túristar stopp-
uðu til að horfa á hvalskurð. En
það hefur bara svo margt breyst
síðan þá,“ segir Júlíus.
Hann segist verða var við það
hjá ferðafólkinu sem fer með
þeim í hvalaskoðunarferðirnar, að
ef því er boðið að veiða með
sjóstöng þá þyki það hin mesta
skemmtun en það má bara ekki
drepa fiskinn. Það á að sleppa
honum lifandi. Hann segir að það
megi ekki undir neinum kringum-
stæðum blóðga fisk fyrir framan
ferðafólkið, slíkt veldur örvænt-
ingu hjá mörgum.
„Við þurfum að gæta þess að
hnífar séu hvergi nærri því Islend-
ingum er nú gjarnt að grípa hníf
og blóðga veiddan fisk. Það má
alls ekld gera. Dráp á dýrum og
fiskum virðist vera svo óraljarri
þeim ferðamönnum sem með
okkur fara. Fólkið vill sjá skepn-
urnar og skoða þær en ekki drepa.
Það hefur önnur sjónarmið í þess-
um málum heldur en við gamla
veiðimannaþjóðin. Ég er þeirrar
skoðunar að hægt sé að láta fara
saman hvalveiði og hvalaskoðun.
Því þyrfti hins vegar að stýra með
mjög skipulegum hætti og kynna
það vel. Eins og ég sagði er fólkið
afar viðkvæmt fyrir þessum dýr-
um. Við þessir gömlu sjómenn
sem stöndum fyrir þessum ferð-
um, okkur datt aldrei í hug að
fólkið væri svona viðkvæmt fyrir
þessu,“ segir Júlíus.
Hann segir að þeir sem fara í
hvalaskoðunarferðirnar með þeim
Dalvíkingum séu margir eldri
borgarar frá Bandaríkjunum en
meirhlutinn séu Þjóðverjar og
fólk frá Mið-Evrópu. Aðsóknin í
hvalaskoðunarferðirnar frá Is-
landi er vaxandi. I fyrra fórum um
7.500 manns með þeim Júlíusi og
félögum f hvalaskoðun frá Dalvík
en í allt munu yfir 30 þúsund
manns hafa farið í hvalaskoðun
frá Islandi. Hvalaskoðun er
stunduð frá stöðum á Norður-
landi, Suðurnesjum og Horna-
firði. Hvaða tekjur þjóðin hefur af
hvalaskoðun er erfitt að segja til
um. Hverjir komu bara til að fara
í slíkar ferðir? Hvað stoppuðu þeir
lengi? Hverjir dutt inn vegna þess
að þeir áttu leið um Dalvík eða
Húsavík? Þetta veit enginn en
sjálfar ferðirnar eru sagðar hafa
skilað einhverjum tugum milljóna
króna.
Hægt að selja kjötið
„Það myndi taka stuttan tíma að
gera hvalveiðibátana klára til
veiða ef leyfi fengist. Sömuleiðis
hvalstöðina í Hvalfirði. Þessu hef-
ur öllu verið haldið við með það
fyrir augum að hvalveiðar hefjist
aftur. Við værum heldur ekki í
neinum vandræðum með að losna
við hvalaafurðirnar og þess vegna
má veiða alla þá hvali sem talað er
um að þyrfti að veiða í vísinda-
skyni. Ég veit ekki til þess að
bannað sé að selja hvalkjöt og ef
einhver ætlar að hindra þá sölu
fer maður bara með málið fyrir
WTO, sem er innan GATT og
hefur með slíkar hindranir að
gera,“ segir Kristján Loftsson, for-
stjóri Hvals hf., sem á fjögur hval-
veiðiskip við bryggju í Reykjavík
og hvalstöð í Hvalfirði.
Kristján var spurður um þá
kenningu að hvalveiðar myndu
eyðileggja ferðamannaþjónustu
okkar? Hann bendir í því sam-
bandi á Norðmenn sem hófu
hrefnuveiðar 1993. Hann segir að
ferðamannastraumurinn til Nor-
egs hafi vaxið jafnt og þétt síðan.
Hvalveiðar þeirra hefðu ekki haft
nokkur minnstu áhrif á hann
„Menn voru mjög hræddir um
að veiðarnar og sá áróður sem
öfgamenn héldu uppi gegn þeim
1993 myndu eyðileggja Vetrar-
Olymptuleikana í Lillehammer
1994. Niðurstaðan varð sú að
þetta voru glæsilegustu og best
sóttu Vetrar-Olympíuleikar allra
tíma. Samt var áróður rekinn
gegn hvalveiðum Norðmanna í
stærstu dagblöðum víða um heim
en algerlega án árangurs. Þess
vegna skil ég ekld eftir hverju Is-
Iendingar eru að bíða,“ sagði
Kristján Loftsson.
Jólagarðurinn í Eyjafirði.
Við enim ekki
Norðurpólliim!
Jólagarðmuin ruglað
sa inan við „Jólaævin-
týri Norðurpólsiiis“
með óskemmtilegum
aQeiðmgum.
Síðustu vikur hefur heldur
brugðið skugga á jólaskapið hjá
aðstandendum Jólagarðsins í
Eyjaljarðarsveit, en annars hafa
menn þar verið í jólaskapi und-
anfarin þrjú ár. Jólagarðurinn
eða jólahúsið frammi í Eyjafirði
var brautryðjandi á sínu sviði og
sérhæfði sig í jólunum og selur
allt árið ýmiss konar jólavarning
og handverk. Jólagarðurinn er
hins vegar algerlega óskyldur
„jólaævintýri Norðurpólsins" og
þær hremmingar sem rekstur
Norðurpólsins hefur Ient í hafa
valdið aðstandendum Jólagarðs-
ins talsverðum vandræðum og
pínlegum uppákomum. Sem
kunnugt er var um 10 milljóna
tap á rekstri Norðurpólsins og í
kjölfarið hefur sprottið talsverð
umræða um fjárhagslegt þrot
þess verkefnis og að skellurinn
muni lenda á sveitarfélögunum
við Eyjaljörð. Algengt er hins
vegar að menn rugli saman
Norðurpólnum og Jólagarðinum
og telji að Jólagarðurinn sé að
fara á hausinn. Af þessu tilefni
hafa þau Ragnheiður Hreiðars-
dóttir og Benedikt Grétarsson
eigendur Jólagarðsins séð sig
knúin til að senda út sérstaka yf-
irlýsingu þar sem m.a. segir: „Af
marggefnu tilefni og til að forð-
ast frekari misskilning vilja eig-
endur Jólagarðsins í Eyjafirði
árétta eftirfarandi. Jólagarðurinn
er einkarekið fjölskyldufyrir-
tæki. Hann hefur verið farsæl-
lega starfræktur í þrjú ár. A þeim
tfma hefur hann ekki á nokkurn
hátt tengst, títtnefndum, Norð-
urpól á Akureyri eða nokkurri
annari jólauppákomu."
I samtali við Dag segir Ragn-
heiður að dæmi um þau tilefni
sem vísað er til f yfirlýsingunni,
séu t.d. þau að handverksmenn
sem þau séu að selja varning fyr-
ir hafi haft samband og viijað
bjarga vörum sínum út áður en
þær brynnu inni í einhverju
gjaldþroti. Jafnframt hafi fjöl-
margir safnarar, sem hafi safnað
sérstökum jólasveinastyttum
sem Jólagarðurinn hefur Iátið
gera, haft samband til að spyrjast
fyrir um hvar þeir gætu fengið
þessar styttur í framtíðinni.
Rðbert Trausti forsetaritari
Róbert Trausti Arnason sendiherra mun í byrjun apríl taka við störf-
um forsetaritara í stað Kornelíusar Sigmundssonar, sem verður
sendiherra íslands í Finnlandi. - Undanfarin ár hefur Róbert verið
sendiherra íslands í Danmörku, en þar á undan var hann ráðuneyt-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu. Hann er stjórnmálafræðingur frá Há-
skóla Islands að mennt en stundaði síðar framhaldsnám í alþjóða-
stjórnmálum í Kanada.
BæMingur um útblástur bíla
Umhverfisráðuneytið, Bílgreina-
sambandið og Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda hafa gert með sér
samkomulag um upplýsingagjöf
um eyðslu nýrra fólksbíla. Sam-
komulagið var undirritað í gær, en
það kveður á um að í sýningarsöl-
um bifreiðainnflytjenda skuli liggja
frammi upplýsingar um eldsneytis-
notkun nýrra bíla í samræmi við
Frá undirritun samkomulags Um- þær kröfur sem gerðar eru á EES-
hverfisráðuneytis, Bílgreinasam- svæðinu. Þá munu einnig verða
bandsins og FÍB i gærdag. gefnir út bæklingar um eyðslu
nýrra bíla og útblástur þeirra.- SBS.