Dagur - 17.02.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 17.02.1999, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGIJK 17. FF.BRÚAR 1999 - 7 V&fur- ÞJOÐMAL Það gengur bara betur næst Aðdragandinn að prófkjörum Samfylkingarinnar var með því- líkum endemum að flestir áttu von á því að prófkjörin sjálf yrðu daufleg og niðurstaðan dapurleg. En það var nú öðru nær á höfuð- borgarsvæðinu. Þar var niður- staðan eins og best varð á kosið, í það minnsta í augum þeirra sem vilja raunverulega samfylk- ingu á vinstrikantinum. Eða eins og einhver sagði: Samfylkinginn sigraði en flokkarnir töpuðu. Þannig átti það líka að vera þótt margir reyndu að sveigja vagninn af leið og beina honum inn á sína heimreið. En það eru ekki alltaf jólin og þegar röðin kom að Norðurlandi fór að styttast í hamingju sam- fylkingarsinna. Úrslitin þar voru afar óhagstæð samfylkingarferl- inu, hvort sem litið er á bæði kjördæmin saman eða hvort þeirra fyrir sig. Þrennt þarf til Nú þykist ég heyra margar raddir sem spyrja hvers ég sé umkom- inn að ákveða hvað sé best fyrir Samfylkinguna og hvað verst. Um það skal ég ekki dæma en vil nefna hvað ég legg til grundvall- ar þegar ég varpa fram þessari fullyrðingu. I fyrsta lagi þarf framboðslisti að endurspegla að vissu marki styrkleika þeirra afla sem að Samfylkingunni standa. Hann má alla vega ekki vera í hróplegu ósamræmi við hann. I öðru lagi þarf listinn og það fólk sem Ieiðir hann að hefja sig „Ef við metum úrslitin á Norðurlandi út frá þessu þá blasir það fyrst við að það hlýtur að teljast afskaplega óheppilegt að í báðum kjördæmunum skuli veljast til forystu rótgrónir Alþýðuflokksmenn, “ segir Þröstur m.a. í grein sinni. Frá kosningavöku Samfýlkingarinnar á Akureyri um síðustu helgi. mynd sbs. upp yfirhrepparíg og hagsmuna- pot sem er Iandlægt í öllum kjör- dæmum. I þriðja lagi þarf að velj- ast til forystu fólk sem hefur til- trú í öllum hlutum Samfylkingar- innar, fólk sem allir geta sætt sig við og hefur sýnt í verki að það vilji vera fulltrúi allra sem þátt taka í þessu ferli. Ef við metum úrslitin á Norð- urlandi út frá þessu þá blasir það fyrst við að það hlýtur að teljast afskaplega óheppilegt að í báðum kjördæmunum skuli veljast til forystu rótgrónir Alþýðuflokks- menn, af þeirri ástæðu að Al- þýðuflokkurinn hefur ekki haft sterka stöðu í þessum kjördæm- um. I báðum kjördæmum hefur Alþýðubandalagið staðið sterkar og átt föst þingsæti svo áratugum skiptir en Alþýðuflokknum hefur ekki tekist nema endrum og sinnum að koma manni á þing. Og ekki virðast þessir framboðs- listar ýkja hugnanlegir þeim sem fylgt hafa Kvennalistanum að máli. Auk þess sýnist mér að báðir þessir leiðtogar hafi höfðað fyrst og fremst til byggðasjónarmiða og tekist að smala vel, annars vegar á Siglufirði þar sem nærri því hver kjaftur var dreginn á kjörstað, hins vegar á Brekkunni á Akureyri þar sem símalínur Sig- bjarnar og IBA fiskuðu grimmt. Og það sem kannski er verst: Eg þykist hafa fylgst nokkuð vel með samfylkingarumræðunni en verð að játa að ég minnist þess ekki að hafa heyrt Sigbjörn Gunnarsson tjá sig mikið um nauðsyn sam- fylkingar - fyrr en að prófkjöri loknu. Mismunandi hrepparigur Nú þekki ég betur til austan Tröllaskaga en vestan. Þó sýnist mér vestra kjördæmið líða miklar kvalir af völdum hrepparígs. Það hefur löngum verið skipt í þrjú hólf - Húnavatnssýslur, Skaga- fjörð og Siglufjörð - sem alltaf hafa bitist um þingsætin sem eru fá. Þetta lagast vonandi í næstu kosningum þegar kjördæmin stækka en verður þó trúi ég ekki úr sögunni fyrr en Iandið allt er orðið að einu kjördæmi. Austan Oxnadalsheiðar þekkist hrepparígurinn vissulega þótt að- stæður geri það að verkum að hann birtist með allt öðrum hætti en fyrir vestan. Akureyri ber þar höfuð og herðar yfir aðra staði með yfir helming af saman- lögðum íbúaijölda kjördæmisins. Þessarar yfirburðastöðu hefur þó ekki séð stað á framboðslistum flokkanna í undanförnum kosn- ingum. A j'firstandandi kjörtímabili er Tómas Ingi Olrich eini fulltrúi rótgróinna Akureyringa í þingliði kjördæmisins. Ef litið er á það landslag sem búast má við að verði að veruleika eftir kosning- arnar í vor sýnist mér að þeim muni fjölga um einn: Sigbjörn Gunnarsson. F.inn af oss“ hverjum? Ef við lítum á úrslitin á Norður- Iandi eystra út frá forsendunum þremur sem ég nefndi í upphafi þá verður ekki sagt að þau falli sérlega vel að þeim. Fyrir algera slysni senda Norðlendingar dug- legan þingmann, Svanfríði Jón- asdóttur, heim af þingi og missa þar með forystumann sem upp- fyllir öll skilyrðin með glans. Það dapurlega við þessi úrslit er að sigurvegari í prófkjörinu er hinn landlægi smásálarskapur og minnimáttarkennd sem hefur verið versti óvinur Akureyrar um langa hríð. Þetta er þeim mun sorglegra vegna þess að Akureyri hefur svo mikla og augljósa kosti sem margir innfæddir Akureyr- ingar hafa af einhverjum orsök- um aldrei getað notið. Þegar á reynir grípur alltaf um sig ein- hver vanmáttarkennd sem veldur því að menn kjósa frekar þann sem er“einn af oss“ en einhvern andskotans utanbæjarmanninn. Þeim síðarnefndu er jú aldrei treystandi. Þeir gætu meira að segja átt það til að ganga erinda þeirra fyrir sunnan“. Fyrir bragðið sitja Norðlend- ingar eystri uppi með lista sem því miður höfðar hvorki til þeirra sem af einlægni vilja efla sam- fylkingu jafnaðarinanna né þeir- ra sem vilja efla veg kvenna í stjórnmálum. Svo ekki sé talað um þá sem dreymir um samfylk- ingu sem er þess umkomin að hefja sig upp yfir hrepparíg, landsbyggðarvæl og músarholu- sjónarmið sérhagsmunanna. En \ið þetta verðum við að lifa og huggum okkur við kjörorð Enn einnar stöðvarinnar: Það gengur bara betur næst. Lækkun á ári aldraðra ÁRNJJÓN KONRAÐSSON SKRIFAR I nóvember var lagt fram frum- varp á Alþingi til að breyta lögum um Lífeyrissjóð sjómanna frá 1994. I þessu frumvarpi er ákvæði um að Iækka greiðslur til aldraðra sjómanna og til ekkna sjómanna og sjómanna sem eru á örorkubótum um 15,5%. Lækk- un þessi tekur gildi frá 1. júní 1999. Þetta eru 1007 aldraðir sjómenn og 446 ekkjur sjómanna og 595 sjómenn sem eru á ör- orkubótum. Allir þessir bótaþeg- ar sem fá greiðslur úr Lífeyris- sjóði sjómanna fá ekki heldur 3,5% hækkun, sem allir launa- menn á Islandi fengu frá 1. janú- ar 1999. Þetta er því í heild um 20% lækkun á greiðslum til bóta- þega sem fá greiðslur úr Lífeyris- sjóði sjómanna árið 1999, og það í mesta góðæri sem komið hefur á Islandi. A ári aldraðra á að breyta lögum um Lífeyrissjóð sjó- manna til að hann fái starfsleyfi 1. júní 1999. Tryggingafræðileg úttekt á eignum Lífeyrissjóðs sjó- manna var gerð í apríl 1998 og á stöðu sjóðsins miðað við 31. des- ember 1997. Samkvæmt henni vantar um 1.166.000.000 krónur á að eign sjóðsins nægði fyrir áunnum réttindum sjóðsfélaga miðað við 3,5% vexti. Það svarar til þess að hrein eign sjóðsins hafi nægt fyrir 96,6% af áunnum réttindum. Sá sem gerði þetta reikningsyfirlit íyrir Lífeyrissjóð sjómanna notar ekki 54% af vaxtatekjum sem sjóðurinn hafði árið 1997, það eru 1.233.244.682 krónur. Þetta breytir eignarstöðu Lífeyrissjóðs sjómanna þannig að hann á fyrir öllum skuldbindingum við sjóðs- félaga. Það er enginn vandi að fá reikningslegan halla á Lífeyris- sjóð sjómanna með því að nota ekki 54% af vaxtatekjum af eign- um sjóðsins á ári í mörg ár. Þeir sem eru að eyðileggja Lífeyris- sjóð sjómanna, sem aldraðir sjó- menn og ekkjur sjómanna og sjó- menn sem eru á örorkubótum fá bætur úr, þeir taka það háa upp- hæð af iðgjöldum, sem eru 45,71% af greiðslum í Lífeyris- sjóð sjómanna, þ.e. 707.184.824 krónur. Þegar framkvæmdastjóri Líf- eyrissjóðs sjómanna og stjórnar- menn sjóðsins sjá þessar tölur á blaði, þá sjá þeir rautt. Þeir vilja að þessi upphæð Iækki um 15,5%, það er 109.613.648 krónur. Nú beitum við reikniað- ferð til að laga eignarstöðu Líf- eyrissjóðs sjómanna. Eignir 31. desember 1997 voru 28.537.644.897 krónur. Lífeyrir var 707.184.824 krónur, sem er 2,48% af eignum Lífeyrissjóðs sjómanna árið 1997. Hve margir þeirra togarasjómanna sem voru fyrstu sjóðsfélagar Lífeyrissjóðs togarasjómanna frá 12. júní 1957 skyldu vera á lífi í dag. Og hve margir fá lífeyri úr Lífeyris- sjóði sjómanna? Hve margir sjó- menn frá Færeyjum skildu eftir greiðslur í Lífeyrissjóði sjó- manna? Eftirfarandi tillögur voru bornar upp af mér á aðalfundi Sjómannafélags Reykjavíkur, sem haldinn var á Veitingahús- inu Sexbaujunni við Eiðistorg þann 30. desember 1998 klukk- an 16: Nr. 1 að stjórnin geri kröfu í eignir sjómanna sem þeir eiga í Fjárfestingabanka atvinnulífs- ins og af þeim eignum sem koma í hlut sjómanna úr Fjár- festingarbanka atvinnulífsins fari einn milljarður króna til ekkna sjómanna og barna þeirra og til munaðarlausra barna sjó- manna. Nr. 2 að stjórnin geri þá kröfu að greiðsluviðmiðun hækki úr 1,84% í 2,15%. Þær greiðslur sem koma úr greiðslumiðlun inn- an sjávarútvegsins í Lífeyrissjóð sjómanna eru bókfærðar sem ið- gjöld frá útvegsmönnum í Lífeyr- issjóð sjómanna. Þessi hækkun Iagar eignarstöðu Lífeyrissjóðs sjómanna. Nr. 3 að stjórnin geri þá kröfu að Þorsteinn Pálsson alþingis- maður og sjávarútvegsráðherra skili eignum sjómanna, sem þeir eiga í Verðjöfnunarsjóði sjávarút- vegsins, sem voru 1.273.530.363 krónur. Þetta eru eignir sjó- manna þegar Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins var lagður niður með lögum árið 1992. Að hann skili þessum smáaurum til sjó- manna áður en hann hættir á Al- þingi. Þorsteinn Pálsson er bú- inn að hafa þessa smáaura vaxta- lausa í sjö ár. Hvað eru 3.5% af 1.273.530.363 krónum? Nr. 4 að stjórnin geri þá kröfu að ríkisendurskoðandi fari eftir ársreikningum Lífeyrissjóðs sjó- manna fyrir árið 1997 og endur- skoði það og ársreikninga Lífeyr- issjóðs sjómanna frá 1994-1996.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.