Dagur - 17.02.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKVDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Heimspeki audsöfnunar
Soros er harður í horn að taka en gjafmildur og tillögugóður þegar sá
gállinn er á honum.
Þegar George Soros talar hlustar
Qármálaheimurinn með meiri at-
hygli en á draumsýnir Clintons
um ótakmarkaðan hagvöxt og vel-
megun eða Greenspan, banka-
stjóra Seðlabankans, þegar hann
varar við óskhyggju forseta síns.
Soros hefur meiri áhrif á alþjóð-
lega íjármálamarkaðinn en nokk-
ur maður annar og er veldi hans
slíkt, að orð hans og gjörðir valda
falli gjaldmiðla og hefur hann
meira að segja neytt Englands-
banka til að fella gengi pundsins.
Mörg ríki kunna honum litla þökk
fyrir að rugla efnahagsstefnu
þeirra, en önnur standa í þakkar-
skuld við Soros fyrir rífleg framlög
til menntunar- og framfararmála.
Soros er spákaupmaður sem
spilar á alþjóðavæðingu fjár-
magnsins af slíkri Iist að honum
verður flest eða allt að peningum.
Hann er sagður kaldriljaður fjár-
aflamaður sem svífst einskis til að
sölsa undir sig fjámagn og völd.
En sjálfur segist hann aðeins fara
að þeim leikreglum sem fjármála-
markaðurinn og alþjóðavæðingin
setur.
Enginn þekkir markaðinn betur
en Soros. Enginn græðir eins
mikið á honum og enginn gagn-
rýnir alþjóðavæðinguna af meiri
þekkingu og viti en hann.
Aðhald skortir
Soros hefur skrifað nokkrar bæk-
ur um efnahagsmál og eru þær
ekki síður um heimspeki en hag-
fræði. Hann er næsta siðavandur
þegar hann fjallar um meðul sem
spákaupmenn nota og telur að al-
þjóðavæðingin muni kollkeyra sig
ef hún fær áfram að leika lausum
hala, þar sem skammsýnin og
stjórnleysið er allsráðandi. Þegar
hann er spurður hvort svona
skoðanir stangist ekki á við lífs-
starf hans, svarar hann, að hann
stundi viðskipti til að græða en
ekki í góðgerðaskyni. Bækur sínar
skrifar hann aftur á móti til að
vara við þeim hættum sem spá-
kaupmenn, eins og hann sjálfur,
stefni heiminum í. Hann vill brey-
ta Ieikreglunum og draga fleiri til
ábyrgðar þegar illa fer, en nú er
gert.
Um þessar mundir leggur hann
mikla áherslu á, að Iánveitendur
sýni ábyrgð ekki sfður en lántak-
endur. Til dæmis átelur hann AI-
þjóðagjaldeyrissjóðinn fyrir að
ausa fé í vonlaus verkefni og þeg-
ar dæmin ganga ekki upp og
skuldir fást ekld greiddar til baka
kann bankinn ekki önnur ráð, en
að lána meira og heimta að stjórn-
völd í illa stöddum Iöndum hækki
vexti til að minnka eftirspurn og
ástandið versnar sífellt og sjóðir
sjóðsins eru á þrotum.
Þannig telur Soros, að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn sé hluti af
stóru vandamáli en sé ekki að
leysa það. Sem geta má nærri fara
Baksvið
George Soros er um-
deildasti og umsvifa-
mesti fjáraflamaður
nútímans.
svona yfirlýsingar f\TÍr bijóstið á
stjórnmálamönnum, sem sjaldn-
ast vita hvaðan á sig stendur veðr-
ið þegar Soros lætur ljós sitt
skína, en erfitt er að mótmæla
honum, þar sem vit hans og þekk-
ing á efnahagsmálum er óumdeil-
anleg.
Um miðjan nóvember sl. vakti
tímaritið The Economist athygli á
því, að efnahag heimsins stafaði
meiri hætta af uppsveiflunni í
Bandaríkjunum, en nokkrum öðr-
um fjármálasviftingum. Hagvexti
og hlutabréfamarkaði var líkt við
Ioftbelg, sem mun springa. Nú
tekur Soros undir sömu spá og
segir Bandaríkjamarkað vera loft-
bólu, „en spyijið mig ekki hvenær
hún springur".
Kröfurnar um lækkun vaxta,
sem veldur aukinni eftispurn
hlutabréfa, eru út í hött. Hluta-
bréf eru gróflega ofmetin og fer sú
þróun ekki nema á einn veg.
Soros telur, eins og raunar fleiri,
að verðhrunið byiji á netfyrirtækj-
um, þar sem eftirspurnin hefur
verið nánast sjúkleg og verðhækk-
anirnar eftir því.
Þekkmg og velgengni
Vöxtur og viðgangur Ijármálafyrir-
tækja Sorosar byggist ekki á hepp-
ni eða glannaskap. Það er athygl-
isgáfa hans og víðtæk þekking
sem velgengnin byggist á. Hann
er fyrir löngu orðinn margfaldur
milljarðamæringur og skattleggur
sjálfan sig með því að veita rausn-
alega til mannúðarmála og til að
efla menntun þar sem þörfin er
mikil.
George Soros fæddist í Buda-
pest í Ungveijalandi 1930. Þar
ólst hann upp og við þröngan kost
í hernumdu Iandi. Hann flutti til
Englands 1947 og útskrifaðist frá
London School of Economics og
flutti til Bandaríkjana 1956.
Hann varð brátt umsvifamikill á
fjármálamarkaði og stofnaði fyrsta
sjóðinn 1979. Síðan rak hver sjóð-
stofnunin aðra og hefur honum
gengið allt í haginn á fjármála-
mörkuðum fram á þennan dag.
Þegar Austur-Evrópuríkin losn-
uðu undan oki kommúnismans
var Sorsos fyrsti maður til að rétta
hjáparhönd. Hann varði háum
fjárhæðum til að endurreisa sitt
gamla föðurland og veitti Rússum
ríflega fjárhagsaðstoð. 1990
stofnaði Soros Mið-Evrópuhá-
skólann sem starfar í Budapest og
Varsjá.
George Soros er einn umdeild-
asti fjármálamaður allra tíma.
Auðsöfnun hans er gífurleg og
gjafmildi hans er óumdeild. Hann
á sér marga og öfluga óvildar-
menn, sem þykjast eiga honum
grátt að gjalda, en hefur aftur á
móti ekki verið brugðið um óheið-
arleika. En klækjarefur er hann
þegar því er að skipta.
Einu sinni ætlaði Soros að
verða heimspekingur, en hætti við
og snéri sér að fjármálum. En þeir
sem lesa bækur hans og kynna sér
kenningar hans segja, að hann sé
heimspekingur fjármálalífsins,
sem ekki ber að vanmeta í heimi
þar sem fjármagnshræringar skip-
ta meira máli í lífi þjóða og ein-
staklinga en trúarbrögð og önnur
hugmyndafræði.
Kúrdar mótmæla handtöku Öcalaus
TYRKLAND - AbduIIah Öcalan,
leiðtogi aðskilnaðarsinnaðra
Kúrda, var í fyrrinótt handtekinn í
Kenía og síðan fluttur til Tyrk-
lands þar sem hann á yfir höfði sér
dauðadóm. Að sögn nutu Tyrkir
aðstoðar ísraelsku leyniþjónust-
unnar Mossad við handtökuna,
sem fór fram án vitundar stjórn-
valda í Kenía. Kúrdar víða um
heim hafa ákaft mótmælt hand-
tökunni, og haft uppi mótmælaað-
gerðir við sendiráð Tyrklands,
Grikklands og Kenía í fjölmörgum
Iöndum E\TÓpu. Hafa mótmæl-
endurnir sums staðar ráðist inn í
sendiráðsbyggingarnar og jafnvel
tekið gísla.
Öcalan hefur vikum saman ver-
ið á flótta og komið við í ýmsum Evrópulöndum frá því hann fór frá
Italíu um miðjan Janúar. Hann hafði dvalist 12 daga í sendiráði
Grikklands í Kenía, þar sem hann naut griða, þegar hann var lokkað-
ur út úr sendiráðsbyggingunni á fölskum forsendum, þannig að unnt
var að nema hann á brott og flytja til Tyrklands þar sem hann verð-
ur sóttur til saka fyrir hryðjuverk.
Banvæn kj ötkveðjuhátíð
BRASILÍA - Mikið ofbeldi hefur einkennt kjötkveðjuhátíð í borginni
Sao Paulo í Brasilíu. Frá því á Iaugardag hafa a.m.k. 60 manns látið
Iífið af þeim sökum. Aðra og betri sögu er þó að segja frá kjötkveðju-
hátíðinni í Rio de Janeiro, þar sem fjölskrúðug hátíðarhöldin hafa
farið friðsamlega fram að mestu.
Ehrlirhman lútinn
John Ehrlichman sver eið við Watergate-réttarhöldin.
BANDARÍKIN - John Ehrlichman, fyrrverandi ráðgjafi Richards
Nixons Bandaríkjaforseta, er látinn, 73 ára að aldri. Hann var einn
lykilmanna í Watergate-málinu, sem varð til þess að NLxon varð að
segja af sér árið 1973. Ehrlichman var dæmdur í eins og hálfs árs
fangelsi vegna hlutdeildar sinnar í málinu.
Þýsk fyrirtæki styrkja fómarlömh
nasista
ÞÝSKALAND - Fjölmörg þýsk stórfyrirtæki hafa stofnað sjóð til
styrktar fórnarlömbum nasista og afkomendum þeirra. Meðal fyrir-
tækjanna má nefna bílaframleiðendurna Daimler-Chrysler, Siemens,
Volkswagen og BMW, bankana Deutsche Bank og Dresdner Bank og
fleiri þýsk stórfyrirtæki. Segir í yfirlýsingu frá fyrirtækjunum, sem
Gerhard Schröder kanslari meðundirritaði, að fyrirtækin beri sið-
ferðilega ábyrgð vegna þess að þau notfærðu sér ódýrt nauðungar-
únnuafl á stríðsárunum.
UTSALA
Útsalan hefst fimmtudaginn 18/2