Dagur - 19.02.1999, Blaðsíða 4
J
4-FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
FRÉTTIR
Bandalag listamanna fagnar
Stjórn Bandalags íslenskra listamanna fagnar því að samstaða hafi
náðst um að „bjarga íslenskri kvikmyndagerð frá hruni með samstöðu
um eflingu kvikmyndasjóðs", segir í ályktun frá stjórn sjóðsins. Þar
segir einnig að bandalagið vænti þess að þjóðin öll eigi eftir að njóta
góðs af eflingu þessar listgreinar.
Fyrstu stjórnarfundur bandalagsins undir stjórn nýkjörins forseta,
Tinnu Gunnlaugsdóttur, var haldinn á mánudag. Þar var einnig sam-
þykkt ályktun þar sem fagnað var þeirri ákvörðun ríkisstjórnar og
borgaryfirvalda að undirbúa byggingu tónlistarhúss í Reykjavík.
Mdtmæla niðurskurði rækjukvóta
Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps hefur mótmælt niðurskurði á afla-
heimildum í rækju um 20 þúsund tonn og skorað á sjávarútvegsráð-
herra að endurskoða ákvörðun sína.
í samþykkt hreppsnefndarinnar segir m.a.: „Aðgerðin er einungis
til þess íallin að færa til fjármuni innan sjávarútvegsins. I krafti
ótímabærrar verndunar eru útgerðir neyddar til að leigja til sín afla-
heimildir frá kvótaríkum útgerðum sem ekki hafa sinnt veiðum á út-
hafsrækju um árabil. Með tilliti til afkomu greinarinnar er sh'kt flest-
um ofviða og hætta er á að fleiri verksmiðjur muni draga saman eða
hætta vinnslu. Því er með aðgerð ráðuneytisins vegið að afkomu og
atvinnuöryggi heilla byggðarlaga." - GG
Hafsteinn Austmann verðlaunaðiir
Hafsteinn Austmann myndlistarmaður fékk
nýlega Winsor og Newton verðlaun Norrænu
Akvarellsamtakanna. Úthlutunarnefndin var
sammála um „að svipsterkar myndir Haf-
steins búi yfir óvenjulegum listrænum krafti.
Það var okkur ánægja að eiga aðild að því að
benda á þennan sérstæða listamann í nor-
rænu samhengi", segir í fréttatilkynningu.
Norrænu Akvarellsamtökin voru stofnuð
1989 og eru félagar um 1700 talsins. Mark-
mið samtakanna er að kynna vatnslitalistina
og vekja áhuga manna á henni. Fyrirtækið
Winsor og Newton, sem verðlaunin eru
kennd við, er elsti iðnaðarframleiðandi
akvarelllita í heiminum.
Hafsteinn Austmann
myndlistarmaður fékk
verðlaun Norrænu
Akvarellsamtakanna.
Þrjáx miUjónir til Mið Amerílai
Hjálparstarf kirkjunnar hefur sent þijár milljónir króna til hjálpar-
starfs í Mið-Ameríku. Fénu var safnað í landssöfnun sem Rás tvö og
hjálparstarfið gengust fyrir í desember. Því verður öllu varið til að
mæta grunnþörfum íbúa á þeim svæðum sem verst urðu úti þegar
fellibylurinn Mitch fór yfir Mið Ameríku í fyrra. Meðal annars verð-
ur féð notað til að útvega vatn, Iyf, skjól og áhöld og útsæði til rækt-
unar.
Hjálparstarf kirkunnar hafði áður sent eina og hálfa milljón króna
til hamfarasvæðanna.
í vikunni lauk ársnám-
skeiði á vegum Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur um
mat á skólastarfi. Þátttak-
endur voru 25 skólastjórar í
borginni og kennsluráðgjaf-
ar. Námskeiðið byggðist
upp á fyrirlestrum og verk-
efnum en lokaverkefnið
fólst í gerð matsverkefnis,
að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá
Fræðslumiðstöðinni. Þar
segir einnig í loldn að skóla-
stjórarnir hafi kynnt mörg
fróðleg matsverkefni, m.a. í afstöðu foreldra til heimanáms, starfsað-
stöðu kennara, boðskipti innan skóla og fleira.
Síðastliðið haust samdi Fræðslumiðstöðin við Steinunni Helgu
Lárusdóttur, fyrrverandi skólastjóra, um að hún sinni mati á skóla-
starfi. Hún hefur umsjón með nýju námskeiði fyrir skólastjórnendur
sem er nýhafið á vegum Fræðslumiðstöðvarinnar.
Skólastarfiö metiö
Skólastjórnendur og kennsluráðgjafar á nám-
skeiðinu um mat á skólastarfi.
Vegið að stiidentaráöi
Miðstjórn Bandalags háskólamanna telur að vegið sé að Stúdenta-
ráði háskólans sem lýðræðislegri fulltrúasamkomu með frumvarpi
menntamálaráðherra um Háskólann.
í ályktun frá miðstjórn BHM er lýst furðu á að í frumvarpinu sé
„án gildra raka virtur að vettugi sá eindregni vilji háskólaráðs að
óbreytt fyrirkomulag ríki um heimild háskólans til að semja um
greiðslur til stúdentaráðs fyrir að veita áfram tiltekna þjónustu í þágu
stúdenta," eins og segir orðrétt í ályktuninni.
Landsbankinn neitaði að veita ríkisskattstjóra upplýsingar um fjármagnstekjur hóps manna en tapaði málinu fyrír Hér-
aðsdómi.
Glufa opnast í
bankaleyndina
Landsbanbanuin ber
að afhenda ríkisskatt
stjóra upplýsíngamar
sem hann óskaði eftir
imi innistæður í bank-
aiiuin, samkvæmt nið-
urstöðu Héraðsdóms.
Segja má að með dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur á miðvikudag í
máli Ríkisskattstjóra gegn Lands-
bankanum hafi a.m.k. opnast
glufa í bankaleyndina. Sam-
kvæmt dómsorði er stefnda,
Landsbanka íslands, gert skylt að
afhenda ríkisskattstjóra upplýs-
ingar um það hvort einhver þeirra
1.377 aðiia sem hann óskaði
upplýsinga um, hafi átt innistæð-
ur hjá Landsbankanum í árslok
1997, hverjar vaxtatekjurnar voru
af innistæðunum og afdregin
staðgreiðsla af þeim vaxtatekjum.
Eftirlitiö fremra banka-
leyndinni
Að sögn Guðrúnar Helgu Bryn-
leifsdóttir vararíkisskattstjóra fór
ríkisskattstjóri í mál við Lands-
bankann vegna þess að hann
hafði neitað að veita upplýsingar
um fjármagnstekjuskatt um-
rædds hóps og hafi nú unnið
málið. „Eg held að kjarni málsins
hafi verið sá, að eftirlitsheimildir
RSK eru fremri en bankaleyndin.
Eftir að Ijármagnstekjuskattur
var tekinn upp höfum við eftir-
litshlutverk með þeim skatti. Að
mati dómarans eru þær ótvíræð-
ar og þess vegna ber Landsbank-
anum að afhenda okkur um-
beðnar upplýsingar.11
Skrefinu lengra
Aðspurð hvort bankaleyndin væri
þar með rofin, sagðist Guðrún
kannski ekki vilja taka svo sterkt
til orða að svo komnu. Þetta mál
snúist bara um það hvort bank-
anum sé skylt að veita upplýsing-
ar sem ríkisskattstjóri biður um.
Enginn vafi hafi verið á heimild
til að biðja um upplýsingar um
ákveðinn aðila. „En þarna erum
\ið að ganga skrefinu Iengra og
biðjum um upplýsingar um
ákveðinn hóp. Þeir neituðu okk-
ur á þeim forsendum að banka-
leyndin eigi við, af því þetta sé
hópur. En nú er komin jákvæð
niðurstaða um það, vegna þess
að við höfum þetta eftirlitshlut-
verk þá eigi að afhenda okkur
þessar upplýsingar," sagði vara-
ríkisskattstjóri. — HEl
„Einkahreppssj óður “
Verulegar athuga-
semdir eru gerðar við
reksturinn á sveitar-
sjóði Vestur-Landeyja.
Á fundi hreppsnefndar Vestur-
Landeyjahrepps á miðvikudag,
var teldn fyrir skýrsla endurskoð-
enda vegna reikninga hreppsins
fyrir árið 1997.
Samþykki hreppsnefndar
skortir fyrir ýmsum ráðstöfunum
á Ijármunum hreppsins. Mest
munar þar um það er Eggert
Haukdal f.v. oddviti skrifaði upp
á ábyrgð í nafni hreppsins fyrir
Ijárhagsskuldbindingum einstak-
lings, sem stóð síðan ekki í skil-
um. Hefur Eggert rakið allan
fjárhagsvanda sinn í samskiptum
við hreppssjóð til þess máls.
Þannig tekur hann út á árinu
1994 kr. 1.207.499, sem er fært
á bókhaldslykil jarðar þeirrar
sem ábyrgðin hvíldi á. Á árunum
1994, ‘95 og ‘96 var fjárhæðin
lækkuð með því að færa inn á
hana ýmsa kostnaðarliði samtais
að upphæð kr. 679.269 en færsl-
urnar gerðar án samþykkis
sveitastjórnar. Á árinu 1995
veitti Landsbankinn á Hvolsvelli
Vestur-Landeyjahreppi lán að
Ijárhæð 3.270.000, sem skyldi
endurgreiða á 5 árum. Bréfið er
áritað af 3 hreppsnefndarmönn-
um en án formlegs samþykkis
hreppsnefndar. Andvirðið var
notað til að greiða upp framan-
greinda ábyrgð. Lánið er í fyrstu
fært inn í hreppsreikninga en
síðan gert upp af Eggert og fært
út úr bókhaldinu aftur.
Flcira en ábyrgðimar
Á árinu 1996 eru t.d. færð
500.000 kr. útgjöld vegna Þúfu-
vegar, í fyrstu sem greiðsla til
Ræktunarsambands Landeyja en
síðan breytt í greiðslu til Eggerts.
Greiðslan kom hins vegar úr
sýsluvegasjóði en ekki úr hrepps-
sjóði og engin fylgiskjöl studdu
ráðstöfun fjárins til vegafram-
kvæmda. í öðru Iagi eru taldar
saman greiðslur á árunum 1996
og ‘97 umfram reiknuð og gjald-
færð laun að upphæð kr.
1.327.418. Þar við bætist svo
fyrrgreind úttekt vegna ábyrgðar-
innar.
Skuldar enn
Samkvæmt endurskoðuðum
reikningum var skuld Eggerts við
hreppssjóð kr. 3.015.705 í árslok
1997. Þar af hefur hann síðan
greitt á árinu 1998 kr. 1.200.000
í janúar og kr. 1.600.000 í des-
ember, eða samtals kr.
2.800.000. Þá eru eftir kr
215.705 plús dráttarvextir að
upphæð ríflega milljón króna.
Þá kom í Ijós að vanskil voru á
afdreginni staðgreiðslu og fleiri
Iaunatengdum gjöldum starfs-
manna og að innskattur vegna
félagsheimilisins hafði verið of-
reiknaður og virðisaukaskattur
því vangreiddur. Þá eru greiðslur
í og úr hreppssjóði ekki allar
færðar á rétt reikningsár og mun-
ar þar jafnvel nokkrum mánuð-
um. Sýndu ársreikningar hrepps-
ins því ekki rétta stöðu miðað við
áramót.
Ofsóttur
Marg ítrekuðum athugasemdum
minnihluta hreppsnefndar við
reikninga hreppssjóðs og stjórn-
sýslu oddvitans, hefur Eggert
svarað með því að saka gagn-
rýnendurna um ofsóknir, rang-
færslur og illmælgi í sinn garð.
Þykir andstæðingum hans sem
þeir hafi nú hlotið uppreisn æru,
þar sem sannast hafi réttmæti at-
hugasemda þeirra.
KPMG Endurskoðun hf. er nú
að endurskoða hreppsreikning-
ana fyrir árið 1998.
- FIA.