Dagur - 24.02.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 24.02.1999, Blaðsíða 1
t \ i 1 1 1 Heimskur er hattlaus maður! „Föstudagar eru sér- sakir hattadagar ogfé- lagsmönnum uppálagt að ganga með hattþá daga að viðlagðri skömm og hneisu. “ Svo segir í einni af samþykktum Hattafélags Húsavíkur, sem stofnað var 12. febrúar. Tuttugu og sex manns mættu á stofn- fundinn á veitingahúsinu Gamla Bauk, flestir með höfðingleg höfuðföt en örfáir ber- höfðaðir sem lofuðu að verða sér úti um slík hið skjótasta. Það voru þeir Sighvatur Karls- son, sóknarprestur, og Reinhard Reynisson, bæjarstjóri, sem höfðu frumkvæði að stofnun fé- lagsins. Reinhard hafði tekið þátt í stofnun Hattafélags á Þórshöfn þar sem hann var áður sveitar- stjóri og klerkur skaut því að bæj- arstjóra eitt sinn er þeir hittust í kaupfélaginu, hvort ekki væri rétt að stofna samskonar félag á Þá var tekið mál af höfði hans og „höfðumálið reyndist vera 65 sentimetrar og líklega hafa hatta- gerðarmenn ekki trúað málband- inu, því hreindýraleðurshattur- inn er því miður heldur þröngur.“ Og menn fóru strax að spá í það hvort Arni Johnsen hefði samið „Stórhöfðasvítu" sína sérstaklega fyrir Sighvat. Reinhard Reynisson sagðist fyrst hafa hugsað sér að Hattafé- lag Húsavíkur yrði deild úr Hattafélagi Þórshafnar og ná- Húsavík. Og Reinhard tók vel í það. Fertugur og höfðustór Á fundinum gerði séra Sighvatur, sem varð fertugur á stofndegi fé- lagsins, grein fyrir hattafysnum sínum og kvaðst hafa keypt sér hatt í búð á Laugaveginum fyrir fáum árum og gengið með hann upp og niður þennan þrönga veg. „Eg tók eftir því að fólk horfði mun meira á mig en ég var vanur og það var afskaplega notaleg til- finning," sagði séra Sighvatur. Síðar pantaði hann sér hatt úr hreindýrsleðri á ferð um Aust- firði. grennis, en þegar hann hugsaði málið í botn, taldi hann litlar lík- ur á að húsvískir hattberar féllust á tillögu þess efnis, þannig að niðurstaðan hefði verið sjálfstætt Hattafélag á Húsavík, höfuðstað Þingeyinga. Hattalöggjöfin I samþykktum Hattafélags Húsa- Benedikt Helgason (t v.] lét sig ekki vanta og ekki heldur Ásgeir Krist- jánsson sem skartaöi íðilfögrum leðurhatti. víkur segir meðal annars að til- gangur félagsins sé að efla þá menningarstarfsemi sem í hatt- burði felst og auka með því fjöl- breytileika og reisn mannlífs í bænum. Markmiðum félagsins skuli náð með því að félagsmenn sýni frumleika við höfuðfatakaup og beri þau við sem flest möguleg og ómöguleg tækifæri. Félagar geta þeir orðið, jafnt konur sem karlar, sem náð hafa lögaldri og vilja gera markmið félagsins að menningar- og yndisauka lífs síns, enda er kennisetning félags- ins: „Heimskur er hattlaus mað- ur.“ Föstudagar eru sérstakir hatta- dagar en aðra daga er æskilegt að félagsmenn beri höfuðföt við hæfi en þó skapar það félags- manni eigi skömm né hneisu að ganga um berhöfðaður. Stjórn hattafélagsins skipa höfuðpaur, skammari og skrásetjari og skulu aðalfundir haldnir þegar ástæða þykir til en eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. - JS Forseti bæjarstjórnar, Tryggvi Jó- hannsson, hefur öðlast nýja reisn með hattinum. myndir: js c F-1500M • Faxtæki, sími, simsvari, Windows prentari, skanni, tölvufax.og Ijósriti í einu tæki • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Hitafilmu prentun • Prentar á A4 pappír • 20 blaða frumritamatari • 300 blaða pappírsbakki c__ FO-2600 • Innbyggður sími • Prentar á A4 pappír • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Laserprentun • 512 kb minni • 20 blaða frumritamatari • 100 blaða pappírsbakki FO-1460 • Innbyggður sími • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Simsvara tengimöguleiki • Hitafilmu prentun • Prentar á A4 pappír • 20 blaða frumritamatari • 200 blaða pappírsbakki FO-4500 • Prentar á A4 pappír • Laserprentun • 1 mb í minni (ca 50 síður) • 50 blaða frumritamatari • 650 blaöa pappírsgeymsla

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.