Dagur - 27.02.1999, Blaðsíða 1
HELGARUTGAFA
Verð ílausasölu 200 kr.
Laugardagur 27. febrúar 1999
82. og 83. árgangur -40. tölublað
Sj álfstæðismenn
tala út og suður
Framsdknarmeiui eru
ævareiðir út í sam-
gönguráðherra fyrir
yfirlýsingar hans inn
jarðgöng á Norður-
landi. Formaður
Frams ókna rílokk si ns
segir greinilega kom-
inn kosningaskjálfta í
sjálfstæðismenn.
„Það er greinilega kominn ein-
hver kosningaskjálfti í sam-
gönguráðherrann og nokkra
þingmenn Sjálfstæðisflokksins,"
segir Halldór Asgrímsson, for-
maður Framsóknarflokksins, en
yfirlýsingar Halldórs Blöndals
um jarðgöng á Norðurlandi hafa
mælst illa fyrir í Framsóknar-
flokknum. „Mjög sérkennilegar
flugeldasýningar í tilefni kosn-
inga,“ segir Jón Kristjánsson,
þingmaður Framsóknar, og
bendir á að samgönguráðherra
hafi sjálfur lagt fram á Alþingi
vegaáætlun til 10 ára, þar sem
ekki sé gert ráð fyrir jarðgöngum.
„Og blekið á henni er varla þorn-
að þegar hann er farinn að lofa
jarðgöngum eftir 3 ár.“
Halldór Blöndal sagði á fundi
á Siglufirði í
fyrrakvöld að
hann teldi raun-
hæft að hefja
framkvæmdir við
jarðgöng á milli
Siglufjarðar og
Olafsíjarðar eftir
þrjú ár og sagðist
ætla að berjast
fyrir því að af
þeim )TÖi.
Jón segir fram-
sóknarmenn
hins vegar sam-
mála um að
næstu göng eigi
að verða fyrir
austan og leggur
mikla áherslu á
að ekkert sam- ---------
komulag sé um
það við sjálfstæðismenn að ráð-
ast í Siglufjarðargöng.
Vaxlega í yfLrlýsingar
Halldór Ásgrímsson segir að eina
Ieiðin til þess að ná góðri sam-
stöðu í þessum málum sé að líta
Halldór Ásgrímsson: Það er greini-
lega kominn einhver kosninga-
skjálfti í samgönguráðherrann og
nokkra þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins.
til lengri tíma. Margir þingmenn
vilji flýta verkefnum á núgildandi
vegaáætlun en aðrir fara í jarð-
göng. „Þetta eru sjónarmið sem
þarf að ræða á
næsta kjörtíma-
bili og vinna að
gerð áætlunar til
lengri tíma. Eg
er þeirrar skoð-
unar að menn
ættu að gæta sín
í öllum yfirlýs-
ingum þar til við
höfum séð leið
til að fjármagna
þennan nýja og
nauðsynlega
þátt í samgöng-
um.“
Samgönguráð-
herra rökstyður
göng fyrir norð-
an m.a. með vís-
--------- an til þess að
fyrirtækin Þor-
móður rammi á Siglufirði og Sæ-
berg í Ólafsfirði hafi verið sam-
einuð. Nafni hans Ásgrímsson
segist ekld gera lítið úr því að
það sé mikil þörf á jarðgöngum
milli Siglufjarðar og Olafsljarðar.
Það eigi hins vegar við um fleiri
staði. „Það er jafnframt verið að
sameina sjávarútvegsfyrirtæki á
Austfjörðum. Það er verið að
auka samvinnu milli byggðarlaga
á Vestfjörðum. Menn verða að
Iíta til allra þessara byggðarlaga
af sanngirni en ekki vera að
koma af stað einhverju kapp-
hlaupi sem engum er til góðs.“
Út og suður
Þetta mál hefur ekki verið rætt
sérstaklega í ríkisstjórn, segir
Halldór. „Við vinnum eftir þeim
fjárlögum sem nú eru í gildi og
þeirri samgönguáætlun sem við
höfum komið okkur saman um.
Það tók alllangan tíma að ná
samstöðu milli stjórnarflokk-
anna um núverandi samgönguá-
ætlun. Það tókst að ná þar niður-
stöðu en jarðgangagerð var sett
út af borðinu í þeim viðræðum
og gert ráð fyrir því að taka það
mál upp á nýjan leik síðar. Ég tel
að það verði fyrst og fremst verk-
efni næstu ríkisstjórnar hverjir
svo sem sitja í henni. Auðvitað
verða stjórnmálaflokkar að
marka sér stefnu í þeim efnum
en mér finnast yfirlýsingar þing-
manna Sjálfstæðisflokksins ansi
mikið út og suður í þessu." - vj
Á Guðs eða
Satans vegum
„Við förum ekki í manngreinarálit
og teljum að allir stjórnmála-
flokkarnir hafi gert ýmislegt sem
við sjáum að er alls ekki Guðs
verk, heldur eru verk hins illa.
Við leggjum þar alla stjórnmála-
flokka að jöfnu nema Kristilega
lýðræðisflokkinn (KLF), sem við
teljum að sé kallaður til af Guði,“
segir Árni Björn Guðjónsson,
einn af forvígismönnum KLF.
Hann telur að enginn munur sé á
því hvort þingmenn stjórnar eða
stjórnarandstöðu ganga meira
eða minna á Guðs eða Satans
vegum.
Árni nefnir sem dæmi að al-
þingismenn hafi sett lög um fóst-
ureyðingar, sem sé brot á Guðs
orði. „Þeir hafa sett lög um sam-
búð kynvillinga, sem er Iíka brot á
Guðs orði. Hann telur kvótalögin
heyra undir þetta einnig og segir:
„Það er freistingadýrkun í þjóðfé-
laginu og það er auðvitað bara
Satans verk.“ - FÞG
Þótt sumarið sé vertíð knattspyrnumanna er engin ástæða til að leggja árar í bátyfir vetrartímann. Það sögðu að
minnsta kosti upprennandi knattspyrnuhetjur á Akureyri sem urðu á vegi jósmyndarans. mynd: brink
Afgreiddir samdægurs
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
MMMNMMMMM
woruiwmc ex/vms
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
Helgarblað Dags er stútfullt af
áhugaverðu efni.
Bjór í tíu ár,
atkvæða-
folsun
og ofvirkni
Stríðið við ofvirknina getur haft
hrikaleg áhrif á fjölskylduna.
Hugsaðu þér að eiga barn sem er
svo óviðráðanlegt að það er kvíð-
vænlegt að skreppa í Kringluna,
fara í heimsóknir eða afmæli. Og
fá svo enga aðstoð eða fræðslu
fyrr en barnið er farið að nálgast
skólaaldurinn. Allt um þessa erf-
iðu Iífsreynslu í ítarlegu helgar-
viðtali Dags.
Á mánudaginn eru tíu ár liðin
frá því sala hjórs var leyfð á Is-
landi.
Hvernig hef-
ur til tekistr
Rættust
hrakspárnar?
Helgarblaðið
rifjar upp
hvað menn
sögðu og
gerðu fyrir
áratug og spyr um ástandið í dag.
Frásagnir af sönnum íslensk-
um dómsmálum helja nú göngu
sína í helgarblaði Dags. Friðrik
Þór Guðmundsson rifjar upp
mikil málaferli vegna atkvæða-
fölsunar á Vestfjörðum.
Ari Magg segist vera „dálítil
kelling."
Hvernig býr
hann? Það fá
lesendur Dags
að sjá í helgar-
blaðinu.
Svo er að
sjálfsögðu fullt
af öðru efni í
helgarblaði
Dags, þar á
meðal: Kynlíf,
Flugur, Bókahillan, Matargatið,
Helgarpotturinn og margt margt
fleira.
Sjá blað 2.
Hinn gullni mjöður.
Ari Magg.