Dagur - 27.02.1999, Qupperneq 8

Dagur - 27.02.1999, Qupperneq 8
8- LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 LAU GARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 - 9 FRÉTTA SKÝRING Maraþonræður úr sögimni Talsverðar breytingar eru fyrirhugaðar á störfum Aiþingis. Helstu breytingarnar eru stytting ræðutíma annars vegar og breyting á nefndarstörfum hins vegar. - mynd: gva Töluverður ágreining- ur er um ýmis atriði í frumvarpi til breyt- inga á lögum uin þing- sköp Alþingis. Mest er deilt um fækkun nefnda og breytingu á ræðutíma þingmanna. Ólafur G. Einarsson, forseti Al- þingis, mælti í gær fyrir frum- varpi til laga um breytingar á Iög- um um þingsköp Alþingis. I frumvarpinu eru lagðar til fjöl- margar breytingar, nokkrar veiga- miklar en flestar minniháttar. Það er einkum tvennt sem telja má stærstu breytingarnar á þing- sköpunum og sem nokkrar deilur munu standa um. Það er í fyrsta lagi stytting ræðutíma þing- manna. Nú er það svo að við 1. og 3. umræðu mála á Alþingi er ræðutími þingmanna takmarkað- ur en við 2. umræðu er hann ótakmarkaður. Og það er einmitt við 2. umræður sem löngu ræð- urnar eru fluttar, hinar svoköll- uðu maraþonræður. I frumvarp- inu er gert ráð fyrir að ræðutím- inn verði í sjálfu sér ekki tak- markaður en sú breyting lögð til að ræðutíminn verði í fyrstu um- ferð 30 mínútur við 2. umræðu mála. Þingmaður sem biður um orðið aftur má tala í 15 mínútur en eftir það má hann biðja um orðið eins oft og hann vill en bara tala í 5 mínútur í senn. Um þetta fyrirkomulag eru skiptar skoðanir hjá þingmönnum. Sumir telja þetta til bóta, aðrir ekki og leggj- ast gegn breytingunni. Hin stóra breytingin sem lögð er til snertir nefndir Alþingis. Nú eru fastanefndir Alþingis tólf. I frumvarpinu er lagt til að þær verði níu og skipaðar níu þing- mönnum hver. Nú er það svo að sumir þingmenn sitja í mörgum nefndum og þá alveg sérstaklega þingmenn minni þingflokkanna. Lagt er til að nefndirnar níu heiti: Atvinnumálanefnd, sem fjalli um öll atvinnumál í landinu, dóms- og menntamálanefnd og segir sig sjálft um hvað hún á að fjalla, heilbrigðis- og félagsmálanefnd, sem íjalli um heilbrigðismál, al- mannatryggingar, félagsþjónustu, sveitarstjórnarmál, húsnæðismál og vinnumál, fjármálanefnd en í henni verði fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd sam- einaðar, stjórnlaganefnd, sem fjalli um stjórnarskrármál, mál- efni forseta Islands, Alþingis og stofnana þess, stjórnarráðsins í heild og önnur mál sem varða æðstu stjórn ríkisins svo og skýrslur Ríkisendurskoðunar og umboðsmanns Alþingis., um- hverfis- og samgöngunefnd og loks utanríkismálanefnd. Skarpari lunræða Það er forsætisnefnd Alþingis sem flytur frumvarpið. Ólafur G. Einarsson er því aðaltalsmaður þess ágæta hóps. Hann sagði í gær að upphaf þessara breytinga á þingsköpum megi rekja til þess tíma þegar hætt var að deilda- skipta Alþingi 1991. Þá hafi verið ákveðið að endurskoða þingskap- arlögin þegar reynsla væri fengin fyrir því að vera með þingið í einni málstofu. Menn hefðu ver- ið alveg vissir um að breytingin á deildafyrirkomulaginu myndi kalla á breytingar á þingsköpum og hefur verið safnað saman ótal atriðum, á síðustu árum, sem höfð voru til hliðsjónar þegar til endurskoðunar laganna kom. Hann sagði að hafist hefði verið handa við verkið vorið 1997. Ólafur sagðist leggja áherslu á að samstaða næðist um helstu at- riði þessa frumvarps milli forystu þingsins, sem er forsætisnefnd og formanna þingflokka. Þó hafa þeir, sem standa að flutningi frumvarpsins, áskilið sér rétt til að standa að einstaka breytingum á því. Hann benti á að frumvarp- ið væri Iagt fram í formi breyt- ingafrumvarps en verði það sam- þykkt komi til greina að leggja fram á næsta þingi heildarfrum- varp til þingskapa. „Um breytingarnar á þingskap- arlögunum má segja að þær miði að því að gera þinginu betur kleift að rækja hlutverk sitt samkvæmt stjórnskipaninni. Að vanda og styrkja sem mest löggjafarstörf þingsins og að styrkja eftirlits- hlutverk þingsins og að styrkja forystu þingsins. Líka að gera skoðanaskipti í umræðum um þingmál skarpari og að tryggja betur samfellu í störfum þings- ins, skipulag þingstarfanna og síðast en ekki síst að færa til nú- tímahorfs ýmis ákvæði sem þykja úrelt,“ sagði Ólafur G. Einars- son. Talað í 700 tíma Veigamesta atriði frumvarpsins telur Ólafur að sé breytingin á ræðutíma þingmanna. Hann seg- ist deila þeirri skoðun með mönnum bæði innan og utan þings að koma þurfi betri skipan á fyrirkomulag umræðna á AI- þingi. Ólafur segist telja að þau tímamörk, sem sett eru í frum- varpinu, séu bæði sanngjörn og eðlileg. Jafnframt bendir hann á að í frumvarpinu er gert ráð fýrir því að forseti hafi heimild til þess að veita þingmönnum rýmri ræðutíma þegar sérstakar mál- efnalegar ástæður mæla með því. „Heildarræðutími hér á Alþingi á hverju þingi er of langur. Hann er á milli 600 og 750 klukkutím- ar á reglulegu þingi og er það talsvert meira en tíðkast í þeim löndum sem við berum okkur oft- ast saman við. Eg leyfi mér að fullyrða að það vaki ekki fyrir nokkrum manni að skerða þann tíma sem sanngjarnt og eðlilegt er að ætla hverjum þingmanni til að koma skoðunum sínum á framfæri og eiga orðastað við aðra í umræðum. En það eru nokkrir sem trúa því, og hafa kannski af því nokkra reynslu, að þessum rétti hafi verið misbeitt. A löngum þingferli mínum hef ég bæði starfað í stjórnarflokki og í stjórnarandstöðu. Eg skal ekki sverja fyrir að ég eða félagar mín- ir hafi ekki fallið í slíka freistni. Eg tel það hins vegar ekki mér til tekna. Að teygja á umræðum skil- ar sjaldnast árangri í hinni póli- tísku baráttu. Slík brögð eru hins vegar til þess eins fallin að skaða Alþingi sem stofnun og valda þingmönnum vanda við að skipu- leggja sín störf,“ sagði Ólafur Garðar. Sætta þarf sjónarmið Varðandi breytingarnar á nefndar- skipaninni sagði Ólafur Garðar að fyrir því væru margar ástæður að fækka eigi fastanefndum. Þannig megi skipuleggja betur störf og vinnulag nefndanna, sem eru mik- ilvægasti vettvangur þingstarf- anna. Aftur á móti tók hann skýrt fram að forsætisnefndin myndi ekki standa fast á þeirri útfærslu á Úlafur G. Einarsson þingforseti: Á að gera þinginu betur kleift að rækja hlutverk sitt. nefndarskipan sem gert er ráð fyr- ir í frumvarpinu. Forsætisnefndin væri opin fyrir því að hugmyndin að fækkun nefndanna fái aðra út- færslu og jafnvel að gengið verði skemur að þessu sinni en frum- varpið gerir ráð fyrir. „Mér er fullkunnugt um það að þingmenn hafa á þessu máli marg- ar skoðanir og sumir stríðar en ég vona að nefndin sem um frum- varpið fjallar reyni að sætta sjónar- rniðin." sagði Ólafur Garðar. Agað þing - öguð ríkisstjóm „I frumvarpinu eru að mínum dómi margar mjög nauðsynlegar breytingar á þingsköpunum og það sem kemur upp í ræðum manna hér á þinginu eru fyrst og fremst þættir þess sem deilt er um. Margir vilja fara varlega vegna þess að þeim finnst Alþingi ekki hafa nægan styrk gegn fram- kvæmdavaldinu. Við viljum styrkja Vaigerður Sverrisdóttir formaður þingflokks framsóknarmanna: Hver einasti þingmaður er sammáia því að breyta verði þingskaparlögunum. Alþingi en það eru í frumvarpinu ýmis ákvæði sem veikja rétt þing- manna og þar ber fyrst að nefna ræðutímann, bindingu hans bæði við 2. og 3. umræðu til viðbótar við 1. umræðu. Þetta gerir það að verkum að þingmenn hljóta að spyrja sig hvort við séum að koma á formi sem geri Alþingi ókleift að spyrna við fótum. Einnig að sett verði bönd á það hversu oft AI- þingi er aðlagað að þörfum fram- kvæmdavaldsins. I því sambandi nefni ég hvernig ríkisstjórnir vilja að svo og svo mörg frumvörp verði afgreidd fyrir jólaleyfi og Iáta þing- störf halda áfram fram yfir 20. desember þótt búið sé að sam- þykkja að hætta þann 18. Og alveg það sama gerist á vorin. Þetta get- ur ekki gengið svona áfram," segir Rannveig Guðmundsdóttir, for- maður þingflokks Samfylkingar- innar. Rannveig Guðmundsdóttir formaður þingfiokks Samfyikingar: Margar mjög nauðsynlegar breytingar á þingsköpunum. Hún segir að ef til stendur með frumvarpinu að aga Alþingi og öll störf þess megi þingmenn ekki vera með óagaða ríkisstjórn í farteskinu. En varðandi hreyting- arnar á þingsköpum segist Rann- veig vera hlynnt flestu því sem fram kemur í frumvarpinu og leggur áherslu á að það takist að afgreiða það áður en þingslit verða. Hún sagði að þær breyt- ingar sem gerðar hafa verið síðan 1991 hafi reynst til góða og að hún þekki engan sem vill taka skref til baka í þeim efnum. Umdeild nefndaskipan „Eg held að hver einasti þingmað- ur sé sammála því að breyta verði þingskaparlögunum, þótt menn greini ef til vill á um hverju á að breyta. Því er hins vegar ekki að neita að þær breytingar sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu eru mjög róttækar og þá alveg sérstaklega hvað varðar nefndaskipan fasta- nefnda þingsins. Þeir eru til sem telja fyrirkomulagið sem forsætis- nefndin leggur til um nefndaskip- an óviðráðanlegt. Ég vil að það verði skoðað mjög vel hvort ekki er hægt að fækka nefndunum þannig að þingmenn almennt sitji bara í einni nefnd og geti einbeitt sér að henni,“ segir Valgerður Sverris- dóttir, formaður þingflokks Fram- sóknarflokksins. Varðandi breytingu á ræðutíma þingmanna segir hún að einhver ágreiningur sé uppi meðal þing- manna en telur hann mun minni en ágreininginn um nefndaskipan- ina vegna þess að í raun sé ekki verið að skerða málfrelsi manna. Hún bendir á að í stað þess að tala eins lengi og menn vilja megi þeir samkvæmt frumvarpinu tala eins oft og þeir vilja. Hún nefnir fleiri gagnlegar breytingar sem enginn verði var við útífrá en skipti miklu varðandi störfin innan þings. I því sam- bandi megi nefna að þegar mál verði afgreidd frá nefndum verði bara um eitt þingskjal að ræða en ekki mörg eins og nú er. Umdeil- anlegt sé aftur á móti hvort rétt sé að látafliál fara til nefnda áður en það hefur verið rætt á þinginu. Sömuleiðis að ekki þurfi að endur- flytja mál á næsta þingi fáist það ekki afgreitt á þinginu þegar það er lagt fram. Alnám kvöldfimda Frumvarpið er mikið að vöxtum en ef við tökum saman meginþætti breytinganna þá eru þeir eftirfar- andi. Breytt og öflugra nefndar- kerfi, mál gangi beint til nefnda, mál geti verið til umfjöllunar meira en eitt þing og að nefndir skili áliti sínu í einu skjali en ekki mörgum. Ný nefnd, stjórnlaga- nefnd, styrki eftirlitshlutverk Al- þingis. Þingmenn geta lagt fram fyrirspurnir í þinghléum, nýtt form verði á umræðum um brýn og aðkallandi mál (munnlegar skýrslur ráðherra). Breytt form á ræðutíma, fækkun atkvæða- greiðslna, með því að sleppa henni eftir 2. umræðu, ný ákvæði um meðferð fyrirspurna og ný ákvæði í meðferð skýrslna. Forseti og varaforsetar Alþingis verði kosnir f)TÍr allt kjörtímabilið en ekki eitt þing í einu eins og nú er. Styttar verði umræður um fundarstjórn forseta. Þingflokkar verði skipaðir 3 mönnum hið fæsta. Ný ákvæði um setuforseta og skýrari ákvæði um aldursfor- seta, skýrari ákvæði um afgreiðslu kjörbréfa, ítarlegri ákvæði um ai- þjóðanefndir þingsins, nútíma- legri ákvæði um vítur og um út- varpsumræður, skýrari reglur um atkvæðagreiðslur og breyttar regl- ur um mælendaskrár. Þá er gert ráð fyrir að þingtíminn standi lengur fram á vorið, jafnvel út maí, heildarþingtiminn lengist þó ekki því þinghlé verði fleiri. Jafnframt þessu verði reynt að afnema með öllu kvöldfundi Alþingis. : ew4( tm, iHnmMjfipA miát FRÉTTIR Knattspyrnumenn í dag hafa ekki möguleika á að spila á innanhússvelli í fullri stærð í dag. Útlit er fyrir að það muni breytast mikið á næstu 5 árum eða svo. Félag um fjöl- iþróttahús nota Knattspyrmuneim á höfuðborgarsvæðinu ætla að stofna félag í dag um byggingn nýs fjölnota íþróttahúss. Iþróttafélögin í Kópavogi, Garða- bæ, Hafnarfirði og Bessastaða- hreppi, sem hafa starfandi knatt- spyrnudeildir innan sinna raða, munu í dag stofna hlutafélag um undirbúning að byggingu fjölnota íþróttahúss á svæðinu. Félögin sem standa að stofnuninni eru Breiðablik og HK í Kópavogi, Stjarnan í Garðabæ, FH og Haukar í Hafnarfirði og Ung- mennafélagið í Bessastaðahreppi. Að sögn Páls Bragasonar, for- manns rekstrarnefndar knatt- spyrnuvalla í Garðabæ, sem er fulltrúi Stjörnunnar á stofnfund- inum, er verið að stofna hlutafé- lag sem mun hafa það meginverk- efni að fara í undirbúningsvinnu að byggingu fjölnota íþróttahúss á svæðinu. Stjórn þessa félags verð- ur falið að kanna alla möguleika á byggingu slíks húss, hvað varðar staðsetningu, hvaða húsgerð og stærð henti best, gera markaðs- könnun og kanna fyrir hvaða starfsemi er markaður og hvaða kröfur séu gerðar til slíks húss. Sem sagt að afla upplýsinga um all þætti málsins. Menn ætla sér að þessi undirbúningsvinna gæti tekið hálft ár, þannig að niður- stöður lægju fyrir í haust. Hlutafélagið verður stofnað með tiltölulega Iitlu hlutafé, en verið er að tala um 700 þúsund krónur sem kemur frá félögun- um. Það er ekki hægt að gera nein stórvirki fyrir þá peninga, en það verður þá einnig hlutverk undirbúningshópsins að leita að hugsanlegum fjárfestum til að koma inn í þetta,“ sagði Páll. - Hvaða tíma gefa menn sér? „Hvað varðar áætlanir um byggingarhraða, þá er það auðvit- að ekki enn Ijóst. En djörfustu hugrenningar ganga út á það að svona hús gæti verið risið og til- búið til notkunar fyrir árslok 2000, sem sagt á öldinni. En það eru engin raunhæf áform á bak við það, en vitað er að bygging svona húss þarf ekki að taka nema sjö til níu mánuði. Ef menn eru komnir með fjármagn og allt er klárt til útboðs um næstu ára- mót, þá ætti það að takast. En ég vil geta þess að þetta eru hug- renningar en ekki áform og menn fara með algjörlega óbundnar hendur í þessa vinnu.“ - Hafa menn rætt hugsanlega staðsetningu? „Það er ekki hlaupið að því að finna lóð fyrir svo stórt mann- virki, sem er um eða yfir einn hektari að grunnfleti og það pass- ar ekki inn í skipulag hvar sem er. Það er því ekki enn ljóst hvaða lóðir eða land eru í boði, en við vitum að bæjarfélögin eru mjög opin fyrir málinu. En sú vinna er öll eftir eins og allt annað sem viðkemur málinu.“ - Sérðu þessi áform verða að veruleika á næstunni? „Ég er nokkuð viss um að þetta hús verður tekið í notkun og eina óvissan í mínum huga er hvort það verður árið 2000 eða 2001. Auk hússins sem fyrirhugað er í Reykjanesbæ trúi ég að í Reykja- vík verði reist tvö slík hús og svo muni Akureyri koma þar á eftir. Ég sé fyrir fimm til sex ný hús á landinu á næstu árum,“ sagði Páll. „Ýmsir vilja mig út“ Renniverkstæöiö verð- ur áfram viö lýði hvað sem Leikfélag Akur- eyrar gerir. Bæjar- stjóri fagnar hug- myndum um heilsárs- starfsemi. Kristján Sverrisson, fram- kvæmdastjóri Renniverkstæðisins á Akureyri, segir að hann hyggist ekki leggja árar í bát þótt Leikfé- lag Akureyrar muni færa um- fangsmikinn leikhúsbúnað Renniverkstæðisins í Ketilhús eða annað. Kristján hefur leigt búnaðinn að undanförnu en eins og fram kom í Degi í gær hefur leikhússtjóri LA uppi áform um að félagið fari út í heilsársstarf- semi. Hugsanlega yrðu uppfærsl- urnar í Ketilhúsi yfir sumartím- ann. „Ég fer ekkert í grafgötur með að ákveðnir aðilar hafa viljað þetta út og ég er búinn að búa ■'kT íj; i l! Kristján Sverrisson. mig undir þetta. Ég er búinn að kaupa fleiri stóla; eitthvað af Ijós- um og fleira. Ég er búinn að leggja í þetta fleiri hundruð þús- und til að halda þessu í gangi og hef farið misjafnlega út úr upp- færslunum. Ég er hins vegar bú- inn að lækka kostnaðarliði frá því sem var og held ótrauður áfram. Starfið hefur skilað alveg geig- vænlegri verslun á Akureyri og margir hafa skilning á því,“ segir Kristján. Hann vill ekki tilgreina hvaða aðilar það eru sem reynt hafi að fá hann til að hætta leik- hússtarfsemi. Brothættui markaður? Aðspurður um fyrirhugaða heils- ársstarfsemi LA segir Kristján að honum lítist vel á hugmyndina en vissulega sé markaðurinn brot- hættur og vel þurfi að vanda til efnisvals. Þar sé léttmeti og svokölluð kassastykki vænlegust til vinsælda. Tekið skal fram að ekki er útilokað að Renniverk- stæðið og LA verði með samstarf. Kristján tekur fram að honum lít- ist mjög vel á nýja leikhússtjór- ann, Sigurð Hróarsson. Bæjarstjórinn á Akureyri, Krist- ján Þór Júlíusson, segist fagna hugmyndum leikhússtjóra varð- andi lengra leikár. „ Það er örugg- lega markaður fyrir þetta og Ieik- húsið verður að laga sig að breytt- um markaði. Leikhúsið á í sam- keppni við afþreyingu, íþróttir, bíó og ýmsa aðra menningarstarf- semi og verður að svara þeirri samkeppni á einhvern hátt,“ segir Kristján Þór. — BÞ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.