Dagur - 03.03.1999, Blaðsíða 7
MIÐVIKUD AGU R 3. MARS 1999 - 23
Thyptr
LÍFIÐ í LANDINU
VEÐUR
Reyndir við „ís-
lenskar aðstæður“
íslenska þjódvegakeif-
ið hefur óneitanlega
áhrífá bifreiðafram-
leiðsluna í heiminum
eins og dæmin sanna.
Hin skelfilega meðferð sem bílar
hljóta á íslenskum vegum hefur
ein og sér ákveðin áhrif til styttri
endingartíma og þ.a.l. aukinnar
framleiðslu, en sá þáttur vegur að vísu ákaflega
lítið þegar á heildina er litið. En íslenskir þjóð-
vegir eða öllu heldur áhrifin af íslenskum þjóð-
vegum hafa Iætt sér inn í þróunarlínu nýrra bíla
hjá einstaka bifreiðaframleiðendum.
Opel verksmiðjurnar í Þýskalandi gera ítarleg-
ar prófanir á öllum nýjum bílum áður en þeir
fara í framleiðslu fyrir almennan markað. Ein af
þessum prófunum er kölluð „Island Test“ eða Is-
Iands prófið.
Þetta er próf sem þróað var fyrir um tveimur
áratugum vegna reynslu Opel af aðstæðum á Is-
landi. I prófinu felst að bílnum er ekið á tölu-
verðum hraða yfir steinsteyptar ójöfnur sem
standa upp úr yfirborði vegarins með mismun-
andi millibili. Ójöfnurnar eru það háar að þær
ofgera fjöðrun bílsins og hann slær saman eins
og kallað er. Aðstæðurnar eru líklega ekki ósvip-
aðar því að ekið sé um vestfirskar heiðar, upp-
sveitir Borgarfjarðar eða fyrir Melrakkasléttu. Að
minnsta kosti stundum.
Þessu prófi er ætlað að reyna burðarvirki bíls-
ins, kassa og drif. Eftir að þrælast hefur verið á
bílnum við „íslenskar aðstæður" er mælt hvort og
þá hversu mikið bíllinn eða einstakir hlutar hans
hafa aflagast.
Islenskir ökumenn geta því huggað sig við
það, þegar bíllinn er að hristast í sundur á hol-
óttum þjóðvegunum, að það má finna ákveðna
upphefð í því að aka hvunndags og á tyllidögum
við þær aðstæður sem erlendir bílaframleiðendur
telja hvað verstar.
BILAR
Nýir pallbílar frá Ford
Fimm sæta Ford Explorer Sport
Trac pallbíll er væntanlegur í
sýningarsali snemma næsta árs.
Pallurinn er styttri en á sum-
um öðrum amerískum pallbíl-
um. Bíllinn verður boðinn bæði
með fjórhjóladrifi og drifi að-
eins á annarri hásingu. Vélin er
204 hestafla 4 lítra V-sexa og
skiptingin fjögurra gíra sjálf-
skipting.
Ford bætti annarri Ijöður í
pallbílafjölskylduna með fjög-
urra dyra F-150 Crew Cab sem
er með sætum fyrir allt að sex
og tæplega tveggja metra palli.
Hann er með fjórum dyrum af
Nýr fimm sæta pallbíll frá Ford sem væntanlegur er I sýningarsali I byrjun fullri stærð og góðu rými fyrir
__________________nsesta árs.___________ aftursætisfarþega.
Hondan sem boðin verður á Bandaríkjamarkaði I vor. Knúin fjögurra strokka vél sem skiiar 240 hestöflum, hvorki
meira né minna!
Snaggaraleg Honda
Honda leyfði sýningargestum í Detroit að
gjóa augunum á hinn nýja S2000 tveggja
manna sportbíl sem Honda stefnir að því
að bjóða á Bandaríkjamarkaði seint í vor.
Vélin er að framan, bfllinn með aftur-
drifi. Undir vélarhlífinni er ný tveggja lítra
fjögurra strokka vél sem hefur verið „tjúnn-
uð“ til að skila 240 hestöflum. Gírkassinn
er sex gfra beinskiptur.
Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: olgeirhelgi@islandia.is
Veðrid í dag...
Norðan kaldi, en sums staðar stinningskaldi á
Austurlandi. Dálítil él um norðanvert landið, einkum á
aunesjiun, en bjart veður sunnantil. Frost 0 til 8 stig,
kaldast í innsveitum norðanlands.
Hiti -5 til 0 stig
Blönduós
Akureyri
CSL.
-10 i 0
-5 I -5“
Þri Miö Fim Fös
Mán Þrt Miö Fim Fös
i i / -. víl UU ; N
Egilsstaðir
Bolungarvík
m
Þri Mið Rm Fðs
Fim Fðs
mM\U/iíí: ; s-rí í sss
Reykjavík
Kirkjubæjarklaustur
CSL.
i ■ -
CO
Þrl Mið Fim Fös Lau
Wf l í í
Stykkishólmur
„csi------------------
-5 0
0 -5-
Ji■ , 1..
Þri Miö Fim Fös
\ I /
Stórhöfði
\ '
■ I ■
S/f í í I
Fim Fös
Rm Fös
I sl f. i f i /• v
^ VEÐURSTOFA
# ÍSLANDS
Veðurspárit
02.03.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði táknaður með
skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s. er
C
Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegiun
Ófært er um Steingrímsfjarðarheiði, skafrenningur á
Öxuadalsheiði, þungfært er á Möðrudalsöræfum og á
Vatnsskarði eystra. Þæfingur er á Mývatnsöræfum og
Vopnaíjarðarheiði. Að öðru leyti er góð vetrarfærð á öllum
aðalvegum landsins en talsverð hálka er þó víðast hvar.