Dagur - 06.03.1999, Page 1
BLAÐ
WORLD W/DS EXPfí£SS
EITT NUMER AÐ MUNA
5351100
Verð í lausasölu 200 kr.
Smugusaninmgar
áu sigurvegara
Halldór Ásgrímsson
ntanríkisrádherra
segir að samkomulag-
ið við Norðmenn og
Rússa sem undirritað
var í gær sé tímamóta-
samkomulag.
„Þetta eru samningar þar sem
enginn er sigurvegari, en þeir
þjóna að mínum dómi framtíðar-
hagsmunum landanna þriggja.
Auðvitað fórna allir einhverju,
en ég er sannfærður um að það
mun allt koma til baka í ýmsum
möguleikum sem liggja í fram-
tíðinni. Það eru að sjálfsögðu
mikil tfmamót ef við sjáum fyrir
endann á þessari löngu deilu,
sem hefur skaðað samskipti
þessara landa verulega," sagði
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra í samtali við Dag í gær.
I gærmorgun tókst samkomu-
lag um texta þríhliða ramma-
samnings milli Islands, Noregs
og Rússlands um samvinnu á
sviði fiskveiða, sem væntanlega
verður undirritaður í Rússlandi
22. mars svo fremi sem tekst að
Ijúka við tvíhliða samninga.
í samningsdrögunum er gert
ráð fyrir að íslendingar megi
veiða í ár 8.900 Iestir af þorski í
Barentshafi, 4.500 lestir í lög-
sögu hvorrar þjóðar. Að sögn
Halldórs fá Norð-
menn á móti að
senda tvo til þrjá
línubáta til veiða í
íslenskri Iögsögu,
með svipuðum hætti
og fyrir 1990. Þeir
fá líka að veiða hér
loðnu en magnið
liggur ekki fyrir.
Gert er ráð fyrir að
Rússar megi veiða í
lögsögu okkar kol-
munna og makríl.
Fagnaöarefnl
„Það er í sjálfu :
fagnaðarefni að búið
skuli að Ieysa þessa deilu, enda
var það orðið mjög aðkallandi að
leysa deiluna. Síðan verða menn
að meta samninginn þegar tími
hefur unnist til að skoða hann til
hlýtar. Eg tek eftir því að íslend-
ingar fallast ekki á að Norðmenn
ráði Svalbarðasvæðinu og því
fagna ég,“ sagði Kristinn H.
Halldór Ásgrímsson er
ánægður með samkomu
lagið.
Gunnarsson, formaður sjávarút-
vegsnefndar Alþingis.
„Mér líst auðvitað afskaplega
vel á að samkomulag skuli hafa
tekist við Norðmenn og Rússa
um þessi mál. Ágreiningur við
þessar þjóðir hefur
orðið til þess að teija
samstarfsverkefni og
skaðað viðskipti okk-
ar við þessar þjóðir.
Aðgerðir Norð-
manna gagnvart
skipum frá íslandi,
sem höfðu stundað
veiðar í Smugunni,
hafa hitt mjög illa
fyrirtæki sem hafa
rekið þessi skip,“
sagði Ámi R. Árna-
son, varaformaður
sjávarútvegsnefndar.
______ Hann segir að
aflatala okkar, 8.900
tonn af þorski á þessu ári, valdi
sér nokkrum vonbrigðum, en
segist samt sjá að varla hefði ver-
ið hægt að búast við meiru vegna
þess hve afli hefur dregist saman
í Barentshafi.
Vonaðist eftir meiru
„Eg fagna þessum fréttum um að
loks séu að nást samningar milli
þjóðanna. Og enda þótt samn-
ingar hafi ekki verið undirritaðir
virðast útlínur tilvonandi samn-
ings vera með þeim hætti að all-
ir aðilar megi vel \ið una,“ sagði
Ágúst Einarsson alþingismaður.
Hann segir að sú óvissa sem
hefur ríkt í þessum málum hafi
kostað okkur mikið. Sömuleiðis
hafi yfirgangur Norðmanna, eins
og hann birtist til að mynda í
Sigurðar VE málinu, verið okkur
erfiður við að eiga. Þess vegna
fagni menn að nú skuli hilla
undir lausn í málinu.
„Það er auðvitað jákvætt að
koma svona deilu út úr heimin-
um og koma eðlilegum samskipt-
um á milli þjóðanna á nýjan leik.
Samt tel ég nú að það hljóti að
vera neðri mörk í því sem menn
sætta sig við sem endurgjald fyr-
ir friðinn. Eg get ekki neitað því
að sá afli sem við megum veiða í
Barentshafinu er minni en ég
hafði vonast til að við íslending-
ar fengjum í okkar hlut og minna
en ég tel að við getum gert rétt-
látar kröfur um,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
VG.
- S.DÓK
Stjómar-
flokkar tapa
Báðir stjórnarflokkarnir tapa
fylgi milli kannana, en fylgi ríkis-
stjórnarinnar helst stöðugt og er
nú 64%, samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Gallup sem birt var í
Sjónvarpinu í gærkvöldi. Fylgi
Framsóknarflokksins í könnun-
inni mælist aðeins 13% og dregst
saman um 5% milli kannana.
Fylgi Sjálfstæðisflokks 44,1% nú,
en var 3% meira í síðustu könn-
un sem Gallup gerði. Fylgi Sam-
fylkingarinnar er 36,5%, Vinstri-
hreyfingarinnar 4,3%, Frjáls-
lynda flokksins 1,5% og önnur
stjórnmálaöfl njóta fylgis 0,4%
aðspurðra í þessari könnun.
Könnun þessi var gerð í tvennu
lagi dagana 12. febrúar til 4.
mars. Úrtakið var 2.750 manns á
aldrinum 18 til 75 ára af landinu
öllu og alls náðist til 69% af þess-
um hópi. Af þeim voru rétt tæp-
lega íjórðungur sem voru óá-
kveðnir eða vildu ekki taka af-
stöðu. - SBS.
Þessar ungu dömur voru að skoða klukkubókina á bókamarkaðinum á Akureyri í gær. Ekki seinna vænna að læra
á tímann því Bókamörkuðunum á Akuryeri og í Reykjavík lýkur um helgina. mynd brink
82. og 83. árgangur - 45. tölublað
Formennska
er enninnií
myndinni
„Síður en svo,“ er svar Björns
Bjarnasonar, menntamálaráð-
herra, við þeirri spurningu hvort
hann hafi, með því að gefa ekki
kost á sér til varaformennsku,
gefið frá sér möguleikana á að
verða formaður Sjálfstæðis-
flokksins síðar meir.
„Sagan sýnir okkur að menn
geta valið varaformenn í Sjálf-
stæðisflokknum án þess að við-
komandi kæmi til álita hjá sömu
kjósendum sem formaður. Menn
hafa einnig verið valdir til vara-
formennsku í þeim tilgangi að
skapa breidd sem mótvægi við
formanninn. Sjálfstæðisflokkur-
inn er ekki einfaldur í sniðum,
þar koma mörg sjónarmið til
álita. Til þess að verða formaður
er ekki skilyrði að hafa verið
varaformaður. Við höfum enga
slíka goggunarröð,“ segir Björn í
opnuviðtali helgarblaðs Dags, en
þar ræðir hann meðai annars um
Sjálfstæðisflokkinn, ríkisstjórn-
arsamstarfið og Samfylkinguna.
Þau hafa verið áberandi í bæjar-
lífi Akureyrar mörg undanfarin
ár en eru nú að kveðja höfuðstað
Norðurlands.
Hvers vegna
eru Halldóra
Bjarnadóttir,
hjúkrunar-
fræðingur, og
Atli Guð-
laugsson,
skóiastjóri, að
flytja suður?
AÍlt um það í
helgarblaði
Dags.
Halldóra og Atli.
í þættinum „Sönn dómsmál"
er fjallað um morð í íslenskri ver-
búð. Rósa Erlingsdóttir segir frá
andúð austantjaldsbúa á femín-
ismanum. Kynlífssérfræðingur
Dags, Ragnheiður Eiríksdóttir,
spáir í erótík og dans. Góða
helgi!
Sjá Blað 2
Afgrciddir samdægurs
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI - SÍMI 462 3524