Dagur - 06.03.1999, Síða 1

Dagur - 06.03.1999, Síða 1
BLAÐ WORLD W/DS EXPfí£SS EITT NUMER AÐ MUNA 5351100 Verð í lausasölu 200 kr. Smugusaninmgar áu sigurvegara Halldór Ásgrímsson ntanríkisrádherra segir að samkomulag- ið við Norðmenn og Rússa sem undirritað var í gær sé tímamóta- samkomulag. „Þetta eru samningar þar sem enginn er sigurvegari, en þeir þjóna að mínum dómi framtíðar- hagsmunum landanna þriggja. Auðvitað fórna allir einhverju, en ég er sannfærður um að það mun allt koma til baka í ýmsum möguleikum sem liggja í fram- tíðinni. Það eru að sjálfsögðu mikil tfmamót ef við sjáum fyrir endann á þessari löngu deilu, sem hefur skaðað samskipti þessara landa verulega," sagði Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra í samtali við Dag í gær. I gærmorgun tókst samkomu- lag um texta þríhliða ramma- samnings milli Islands, Noregs og Rússlands um samvinnu á sviði fiskveiða, sem væntanlega verður undirritaður í Rússlandi 22. mars svo fremi sem tekst að Ijúka við tvíhliða samninga. í samningsdrögunum er gert ráð fyrir að íslendingar megi veiða í ár 8.900 Iestir af þorski í Barentshafi, 4.500 lestir í lög- sögu hvorrar þjóðar. Að sögn Halldórs fá Norð- menn á móti að senda tvo til þrjá línubáta til veiða í íslenskri Iögsögu, með svipuðum hætti og fyrir 1990. Þeir fá líka að veiða hér loðnu en magnið liggur ekki fyrir. Gert er ráð fyrir að Rússar megi veiða í lögsögu okkar kol- munna og makríl. Fagnaöarefnl „Það er í sjálfu : fagnaðarefni að búið skuli að Ieysa þessa deilu, enda var það orðið mjög aðkallandi að leysa deiluna. Síðan verða menn að meta samninginn þegar tími hefur unnist til að skoða hann til hlýtar. Eg tek eftir því að íslend- ingar fallast ekki á að Norðmenn ráði Svalbarðasvæðinu og því fagna ég,“ sagði Kristinn H. Halldór Ásgrímsson er ánægður með samkomu lagið. Gunnarsson, formaður sjávarút- vegsnefndar Alþingis. „Mér líst auðvitað afskaplega vel á að samkomulag skuli hafa tekist við Norðmenn og Rússa um þessi mál. Ágreiningur við þessar þjóðir hefur orðið til þess að teija samstarfsverkefni og skaðað viðskipti okk- ar við þessar þjóðir. Aðgerðir Norð- manna gagnvart skipum frá íslandi, sem höfðu stundað veiðar í Smugunni, hafa hitt mjög illa fyrirtæki sem hafa rekið þessi skip,“ sagði Ámi R. Árna- son, varaformaður sjávarútvegsnefndar. ______ Hann segir að aflatala okkar, 8.900 tonn af þorski á þessu ári, valdi sér nokkrum vonbrigðum, en segist samt sjá að varla hefði ver- ið hægt að búast við meiru vegna þess hve afli hefur dregist saman í Barentshafi. Vonaðist eftir meiru „Eg fagna þessum fréttum um að loks séu að nást samningar milli þjóðanna. Og enda þótt samn- ingar hafi ekki verið undirritaðir virðast útlínur tilvonandi samn- ings vera með þeim hætti að all- ir aðilar megi vel \ið una,“ sagði Ágúst Einarsson alþingismaður. Hann segir að sú óvissa sem hefur ríkt í þessum málum hafi kostað okkur mikið. Sömuleiðis hafi yfirgangur Norðmanna, eins og hann birtist til að mynda í Sigurðar VE málinu, verið okkur erfiður við að eiga. Þess vegna fagni menn að nú skuli hilla undir lausn í málinu. „Það er auðvitað jákvætt að koma svona deilu út úr heimin- um og koma eðlilegum samskipt- um á milli þjóðanna á nýjan leik. Samt tel ég nú að það hljóti að vera neðri mörk í því sem menn sætta sig við sem endurgjald fyr- ir friðinn. Eg get ekki neitað því að sá afli sem við megum veiða í Barentshafinu er minni en ég hafði vonast til að við íslending- ar fengjum í okkar hlut og minna en ég tel að við getum gert rétt- látar kröfur um,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaður VG. - S.DÓK Stjómar- flokkar tapa Báðir stjórnarflokkarnir tapa fylgi milli kannana, en fylgi ríkis- stjórnarinnar helst stöðugt og er nú 64%, samkvæmt nýrri skoð- anakönnun Gallup sem birt var í Sjónvarpinu í gærkvöldi. Fylgi Framsóknarflokksins í könnun- inni mælist aðeins 13% og dregst saman um 5% milli kannana. Fylgi Sjálfstæðisflokks 44,1% nú, en var 3% meira í síðustu könn- un sem Gallup gerði. Fylgi Sam- fylkingarinnar er 36,5%, Vinstri- hreyfingarinnar 4,3%, Frjáls- lynda flokksins 1,5% og önnur stjórnmálaöfl njóta fylgis 0,4% aðspurðra í þessari könnun. Könnun þessi var gerð í tvennu lagi dagana 12. febrúar til 4. mars. Úrtakið var 2.750 manns á aldrinum 18 til 75 ára af landinu öllu og alls náðist til 69% af þess- um hópi. Af þeim voru rétt tæp- lega íjórðungur sem voru óá- kveðnir eða vildu ekki taka af- stöðu. - SBS. Þessar ungu dömur voru að skoða klukkubókina á bókamarkaðinum á Akureyri í gær. Ekki seinna vænna að læra á tímann því Bókamörkuðunum á Akuryeri og í Reykjavík lýkur um helgina. mynd brink 82. og 83. árgangur - 45. tölublað Formennska er enninnií myndinni „Síður en svo,“ er svar Björns Bjarnasonar, menntamálaráð- herra, við þeirri spurningu hvort hann hafi, með því að gefa ekki kost á sér til varaformennsku, gefið frá sér möguleikana á að verða formaður Sjálfstæðis- flokksins síðar meir. „Sagan sýnir okkur að menn geta valið varaformenn í Sjálf- stæðisflokknum án þess að við- komandi kæmi til álita hjá sömu kjósendum sem formaður. Menn hafa einnig verið valdir til vara- formennsku í þeim tilgangi að skapa breidd sem mótvægi við formanninn. Sjálfstæðisflokkur- inn er ekki einfaldur í sniðum, þar koma mörg sjónarmið til álita. Til þess að verða formaður er ekki skilyrði að hafa verið varaformaður. Við höfum enga slíka goggunarröð,“ segir Björn í opnuviðtali helgarblaðs Dags, en þar ræðir hann meðai annars um Sjálfstæðisflokkinn, ríkisstjórn- arsamstarfið og Samfylkinguna. Þau hafa verið áberandi í bæjar- lífi Akureyrar mörg undanfarin ár en eru nú að kveðja höfuðstað Norðurlands. Hvers vegna eru Halldóra Bjarnadóttir, hjúkrunar- fræðingur, og Atli Guð- laugsson, skóiastjóri, að flytja suður? AÍlt um það í helgarblaði Dags. Halldóra og Atli. í þættinum „Sönn dómsmál" er fjallað um morð í íslenskri ver- búð. Rósa Erlingsdóttir segir frá andúð austantjaldsbúa á femín- ismanum. Kynlífssérfræðingur Dags, Ragnheiður Eiríksdóttir, spáir í erótík og dans. Góða helgi! Sjá Blað 2 Afgrciddir samdægurs Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI - SÍMI 462 3524

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.