Dagur - 06.03.1999, Page 2
2 - LAUGARDAGVR 6. MARS 1999
FRÉTTIR
Da
Norðurland verður að teljast líklegur staður fyrir frekari uppbyggingu vetrarferðaþjónustu.
Gagnlegt ferðalag
til Finnlands
Framkvæmdastjdri At-
viimuþróimarfélags £yja-
fjarðar segir íslendinga
margt geta lært af Finn-
um um vetrarferða-
mennsku.
Hólmar Svansson, framkvæmdastjóri
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, seg-
ir að Islendingar geti margt lært af
Finnum í sambandi við vetrarferða-
þjónustu. Hólmar er nýkominn heim
úr ferð til Lapplands, þar sem hann
ásamt ferðamálaráðherra, Halldóri
Blöndal, og Flugleiðamönnum, skoð-
uðu m.a. aðstæður í smábænum
Rovaniemi í Lapplandi. Einnig var
með fulltrúi Nýsköpunarsjóðs atvinnu-
lífsins. Finnar hafa selt jólasveininn
sinn um allan heim og byggt upp öfl-
uga þjónustu yfir vetrartímann á Lapp-
landi.
„Þegar ungt fólk í Evrópu er spurt
hvað þeim detti fyrst í hug þegar það
heyrir orðið Finnland, þá nefnir það
Lappland. Það segir meira en mörg
orð, en uppbygging Finnanna hefur
verið kostnaðarsöm. Ekki skemmir fyr-
ir að aðgengi þeirra að „þolinmóðu"
Qármagni hefur verið mun betra en við
eigum að venjast í ferðaþjónustu og
kemur stórlega í gegnum jaðarsvæða-
styrki ESB. Einnig var athyglisvert að
fylgjast með samstarfi aðila í ferða-
þjónustunni. Þar hefur hver og einn
náð að slípa til sitt „vöruframboð" í
stað þess að menn bítist um sömu bit-
ana. Hér er þetta oft svolítið sundur-
skotið,“ segir Hólmar.
Fókus á Noröurland
Flugleiðir styrktu ferðalagið til Finn-
Iands og leitar fyrirtækið nú leiða til að
auka sölu vetrarferða til Islands.
Benda má á að Flugleiðamenn skoð-
uðu gaumgæfilega aðstæður í jólaþorp-
inu Norðurpólnum á Akureyri fyrir síð-
ustu jól og verður Norðurland því að
teljast líklegur staður fyrir frekari upp-
byggingu vetrarferðaþjónustu. Að-
spurður hvort Hólmar telji pólitískan
vilja fyrir þvf að Akureyri verði vett-
vangur öflugrar jólastarfsemi á heim-
vísu í framtíðinni, segir hann að ekkert
liggi fyrir um ríkisstuðning til að svo
verði. Hins vegar hafi hann tilfinningu
fyrir því að ráðamenn hafi áhuga á
frekari uppbyggingu á Norðurlandi yfir
vetrartímann. „Það eru miklir peningar
bundnir í ferðaþjónustu á Norður-
landi, en nýtingin allt of léleg. Við
þurfum að breyta þessu," segir Hólm-
ar. - bþ
FRÉTTA VIÐTALIÐ
í pottinum heyiast nú háværar
raddir um að Alþýðuhandalags-
inaðurinn Lúðvík Geirsson
muni stýra kosningabaráttu
Samtýlkingarinnar á Reykjanesi
næsta einn og hálfa mánuðinn.
Segja menn að það væri enn eitt
tækifærið sem menn hefóu til að
vega upp á móti óhagstæðum
„viðskiptajöfnuði“ Alþýöubandalagsins á list-
um Samfýlkingarinnar...
Lúðvík
Geirsson.
Enn magnast orðrómurinn sem
fyrst kom fram í pottinum í síð-
ustu viku að Jón Bjamason á
Hólum væri hugsanlegur
kandídat Rauðgrænna á Norður-
landi vestra. Þykir mörgum gam
algrónum Allaböllum - Samfylk-
ingarmegin - sem Jón muni fara
illa með þá - fyrst taki hann svo
mörg atkvæði í prófkjörinu að Anna Krístín
Gunnarsdóttir komst ekki í fyrsta sætið heldur
kratinn Kristján Möller, og síðan yfirgefi hann
bara skútuna!....
Jón
Bjarnason.
Uppákoman i Sjálfstæðisflokn-
um í Reykajvík í vikuimi sem á
endanum skilaði Ástu Möller í
9. sætið hefur vakið mikla
grcmju hjá sjálfstæðiskonum.
Em það vinnubrögðin sem þóttu
holl undir karla. Bylgjan sem
hefur risið er talin geta orðið
karlinum Geir Haarde skeinu-
hætt í varaformannsslagnum, en að sama skapi
hagstæð Sólveigu Pétursdóttur. Er til marks um
þetta að Ásta Möller styður Sólveigu opinbcr-
lega í slagnum....
Sólveig
Pétursdóttir.
Nú þarf kona að verða
varaformaður flokksins
Ásta Moller
formaður Félags hjúkmnaifræðinga
Tilnefning Ástu Möller,for-
manns Félags hjúkrunarfræð-
inga, í 9. sætið á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík
kom mörgum á óvart enda
þótt hún hafi lengi starfað í
flokknum.
- Tilnefning þín t 9. sætið á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík fyrir þingkosning-
amar í vor kont nokknð á óvart. Hafðir þú
stefnt að þvt' að komast í vonarsæti á list-
anum að þessu sinni?
„Eg get nú ekki sagt það en ég hef að vísu
verið í félagsmálum alla mína fullorðinstíð
og verið á lista hjá Sjálfstæðisflokknum
áður en ég get ég ekki sagt að ég hafi stefnt
að þingmennsku. Eg mun hætta sem for-
maður hjúkrunarfræðinga í vor og hef þegar
hafið meistaranám í hjúkrun og var búin að
gera ráð fyrir að vera í námsleyfi næsta vet-
ur.“
- Ertu með þessu að segja að það hafi
komið þér algerlega á óvart að vera köll-
uð til núna?
„Já, í sannleika sagt var það svo en í ljósi
þess að ég hef unnið mikið fyrir flokkinn og
var í 12. sæti á lista fyrir síðustu þingkosn-
ingar þá get ég ekki sagt að þetta hafi kom-
ið þetta mér alveg í opna skjöldu. Það væri
ekki rétt að segja það.“
- Þvt hefur verið haldið fram að Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi aðeins verið
tilhúinn til að standa upp fyrir þér.
Kannastu við þetta?
„Þetta er eitthvað sem ekki hefur komið
inn á mitt borð en ef þetta er rétt þykir mér
afskaplega vænt um það.“
- Það var uppi mikil ólga og andstaða
ttteðal kvenna í Sjálfstæðisflokknum að
karlmaður væri settur í 9. sæti listans.
Heldurðu að það hefði orðið uppreisn nteðal
kvenna efsvo hefðifarið?
„Eg fann fyrir mikilli óánægju í flokknum
en hún var ekki bara meðal kvenna. Ég hef
verið á fundum að undanförnu þar sem full-
orðnir karlmenn, sem hafa stutt flokkinn í
gegnum árin, lýstu megnustu óánægju með
þá skipan og töldu ákveðið að kona ætti að
skipa 9. sætið. Oánægjan vegna þessa máls
var því mun víðtækari innan flokksins en
bara meðal kvenna."
- Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst
nk. fimmtudag. Sólveig Pétursdóttir gefur
kost á sér til varaformanns flokksins,
heldur þú að konur t flokknum fylki sér að
haki henni?
„Ég hef væntingar um að svo verði. Ég hef
oft sagt það að konur skortir ekki hæfileika
en þær skortir tækifæri. Þegar konur fá
tækifærin hafa þær blómstrað og gert hlut-
ina ekki síður en karlar, og jafnvel betur. Og
ég er þeirrar skoðunar að einmitt nú þurfi
kona að verða varaformaður flokksins."
- Ertu sæmilega sátt við stöðu kvenna
innan Sjáljstæðisflokksins?
„Mér sýnast þau mál öll vera á réttri leið.
Konum sem eru formenn málefnanefnda í
Sjálfstæðisflokknum hefur fjölgað og sjálf
var ég formaður heilbrigðisnefndar flokks-
ins um leið og ég var formaður hjúkrunar-
fræðinga sem eru fjölmennasta kvennastétt-
arfélag landsins. Nú viljum við fá konu í for-
ystusveitina og ég tel að flokkurinn svari
fullkomlega kalli tímans í þessum málum.
Það eru uppi kröfur í þjóðfélaginu um jafn-
ræði kynjanna og ég tel flokkinn vera að
svara því núna.“
- Að lokurn Ásta, verður 9. sætið þingsæti
t vor?
„Ég vona það, ég geng út frá því.“ - s.DÓR