Dagur - 06.03.1999, Qupperneq 2

Dagur - 06.03.1999, Qupperneq 2
2 - LAUGARDAGVR 6. MARS 1999 FRÉTTIR Da Norðurland verður að teljast líklegur staður fyrir frekari uppbyggingu vetrarferðaþjónustu. Gagnlegt ferðalag til Finnlands Framkvæmdastjdri At- viimuþróimarfélags £yja- fjarðar segir íslendinga margt geta lært af Finn- um um vetrarferða- mennsku. Hólmar Svansson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, seg- ir að Islendingar geti margt lært af Finnum í sambandi við vetrarferða- þjónustu. Hólmar er nýkominn heim úr ferð til Lapplands, þar sem hann ásamt ferðamálaráðherra, Halldóri Blöndal, og Flugleiðamönnum, skoð- uðu m.a. aðstæður í smábænum Rovaniemi í Lapplandi. Einnig var með fulltrúi Nýsköpunarsjóðs atvinnu- lífsins. Finnar hafa selt jólasveininn sinn um allan heim og byggt upp öfl- uga þjónustu yfir vetrartímann á Lapp- landi. „Þegar ungt fólk í Evrópu er spurt hvað þeim detti fyrst í hug þegar það heyrir orðið Finnland, þá nefnir það Lappland. Það segir meira en mörg orð, en uppbygging Finnanna hefur verið kostnaðarsöm. Ekki skemmir fyr- ir að aðgengi þeirra að „þolinmóðu" Qármagni hefur verið mun betra en við eigum að venjast í ferðaþjónustu og kemur stórlega í gegnum jaðarsvæða- styrki ESB. Einnig var athyglisvert að fylgjast með samstarfi aðila í ferða- þjónustunni. Þar hefur hver og einn náð að slípa til sitt „vöruframboð" í stað þess að menn bítist um sömu bit- ana. Hér er þetta oft svolítið sundur- skotið,“ segir Hólmar. Fókus á Noröurland Flugleiðir styrktu ferðalagið til Finn- Iands og leitar fyrirtækið nú leiða til að auka sölu vetrarferða til Islands. Benda má á að Flugleiðamenn skoð- uðu gaumgæfilega aðstæður í jólaþorp- inu Norðurpólnum á Akureyri fyrir síð- ustu jól og verður Norðurland því að teljast líklegur staður fyrir frekari upp- byggingu vetrarferðaþjónustu. Að- spurður hvort Hólmar telji pólitískan vilja fyrir þvf að Akureyri verði vett- vangur öflugrar jólastarfsemi á heim- vísu í framtíðinni, segir hann að ekkert liggi fyrir um ríkisstuðning til að svo verði. Hins vegar hafi hann tilfinningu fyrir því að ráðamenn hafi áhuga á frekari uppbyggingu á Norðurlandi yfir vetrartímann. „Það eru miklir peningar bundnir í ferðaþjónustu á Norður- landi, en nýtingin allt of léleg. Við þurfum að breyta þessu," segir Hólm- ar. - bþ FRÉTTA VIÐTALIÐ í pottinum heyiast nú háværar raddir um að Alþýðuhandalags- inaðurinn Lúðvík Geirsson muni stýra kosningabaráttu Samtýlkingarinnar á Reykjanesi næsta einn og hálfa mánuðinn. Segja menn að það væri enn eitt tækifærið sem menn hefóu til að vega upp á móti óhagstæðum „viðskiptajöfnuði“ Alþýöubandalagsins á list- um Samfýlkingarinnar... Lúðvík Geirsson. Enn magnast orðrómurinn sem fyrst kom fram í pottinum í síð- ustu viku að Jón Bjamason á Hólum væri hugsanlegur kandídat Rauðgrænna á Norður- landi vestra. Þykir mörgum gam algrónum Allaböllum - Samfylk- ingarmegin - sem Jón muni fara illa með þá - fyrst taki hann svo mörg atkvæði í prófkjörinu að Anna Krístín Gunnarsdóttir komst ekki í fyrsta sætið heldur kratinn Kristján Möller, og síðan yfirgefi hann bara skútuna!.... Jón Bjarnason. Uppákoman i Sjálfstæðisflokn- um í Reykajvík í vikuimi sem á endanum skilaði Ástu Möller í 9. sætið hefur vakið mikla grcmju hjá sjálfstæðiskonum. Em það vinnubrögðin sem þóttu holl undir karla. Bylgjan sem hefur risið er talin geta orðið karlinum Geir Haarde skeinu- hætt í varaformannsslagnum, en að sama skapi hagstæð Sólveigu Pétursdóttur. Er til marks um þetta að Ásta Möller styður Sólveigu opinbcr- lega í slagnum.... Sólveig Pétursdóttir. Nú þarf kona að verða varaformaður flokksins Ásta Moller formaður Félags hjúkmnaifræðinga Tilnefning Ástu Möller,for- manns Félags hjúkrunarfræð- inga, í 9. sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík kom mörgum á óvart enda þótt hún hafi lengi starfað í flokknum. - Tilnefning þín t 9. sætið á lista Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík fyrir þingkosning- amar í vor kont nokknð á óvart. Hafðir þú stefnt að þvt' að komast í vonarsæti á list- anum að þessu sinni? „Eg get nú ekki sagt það en ég hef að vísu verið í félagsmálum alla mína fullorðinstíð og verið á lista hjá Sjálfstæðisflokknum áður en ég get ég ekki sagt að ég hafi stefnt að þingmennsku. Eg mun hætta sem for- maður hjúkrunarfræðinga í vor og hef þegar hafið meistaranám í hjúkrun og var búin að gera ráð fyrir að vera í námsleyfi næsta vet- ur.“ - Ertu með þessu að segja að það hafi komið þér algerlega á óvart að vera köll- uð til núna? „Já, í sannleika sagt var það svo en í ljósi þess að ég hef unnið mikið fyrir flokkinn og var í 12. sæti á lista fyrir síðustu þingkosn- ingar þá get ég ekki sagt að þetta hafi kom- ið þetta mér alveg í opna skjöldu. Það væri ekki rétt að segja það.“ - Þvt hefur verið haldið fram að Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi aðeins verið tilhúinn til að standa upp fyrir þér. Kannastu við þetta? „Þetta er eitthvað sem ekki hefur komið inn á mitt borð en ef þetta er rétt þykir mér afskaplega vænt um það.“ - Það var uppi mikil ólga og andstaða ttteðal kvenna í Sjálfstæðisflokknum að karlmaður væri settur í 9. sæti listans. Heldurðu að það hefði orðið uppreisn nteðal kvenna efsvo hefðifarið? „Eg fann fyrir mikilli óánægju í flokknum en hún var ekki bara meðal kvenna. Ég hef verið á fundum að undanförnu þar sem full- orðnir karlmenn, sem hafa stutt flokkinn í gegnum árin, lýstu megnustu óánægju með þá skipan og töldu ákveðið að kona ætti að skipa 9. sætið. Oánægjan vegna þessa máls var því mun víðtækari innan flokksins en bara meðal kvenna." - Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst nk. fimmtudag. Sólveig Pétursdóttir gefur kost á sér til varaformanns flokksins, heldur þú að konur t flokknum fylki sér að haki henni? „Ég hef væntingar um að svo verði. Ég hef oft sagt það að konur skortir ekki hæfileika en þær skortir tækifæri. Þegar konur fá tækifærin hafa þær blómstrað og gert hlut- ina ekki síður en karlar, og jafnvel betur. Og ég er þeirrar skoðunar að einmitt nú þurfi kona að verða varaformaður flokksins." - Ertu sæmilega sátt við stöðu kvenna innan Sjáljstæðisflokksins? „Mér sýnast þau mál öll vera á réttri leið. Konum sem eru formenn málefnanefnda í Sjálfstæðisflokknum hefur fjölgað og sjálf var ég formaður heilbrigðisnefndar flokks- ins um leið og ég var formaður hjúkrunar- fræðinga sem eru fjölmennasta kvennastétt- arfélag landsins. Nú viljum við fá konu í for- ystusveitina og ég tel að flokkurinn svari fullkomlega kalli tímans í þessum málum. Það eru uppi kröfur í þjóðfélaginu um jafn- ræði kynjanna og ég tel flokkinn vera að svara því núna.“ - Að lokurn Ásta, verður 9. sætið þingsæti t vor? „Ég vona það, ég geng út frá því.“ - s.DÓR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.