Dagur - 06.03.1999, Side 4

Dagur - 06.03.1999, Side 4
é -LAUGARDAGUR 6. MARS 19 9 9 FRÉTTIR Mikil loðna við Stokksnes Hrognafylling loðn- iiiiTiar við Stokksnes er um 15% og því mun lnín ganga vestur með suðurströndinni og hrygna fyrir vestan land eftir uiii 10 daga. Loðnuflotinn var nánast allur kominn á veiðisvæðið út af Stokksnesi, suðaustur af land- inu, á fimmtudag en þar var mik- ið af loðnu auk þess sem hún er vænni en sú sem fengist hefur við Reykjanes og Vestmannaeyj- ar. Aðalgeir Bjarnason, skipstjóri á Björgu Jónsdóttur frá Húsavík, segir að hrognafylling Ioðnunnar sé um 15% og því muni hún ganga vestur með suðurströnd- inni og hrygna fyrir vestan land, þ.e. þegar hrognafyllingin er orð- in um 24%. Það gætu verið 10 dagar í það. „Þetta er væntanlega loðnan sem Hafró fann í rannsóknar- leiðangrinum og varð til þess að bætt var við kvótann en þeir fundu einhvern helling út af Reyðarfjarðardýpinu. Það passar við tímann að hún sé að skila sér hér upp við Stokksnesið," segir Aðalgeir Bjarnason. Þeir á Björgu Jónsdóttur voru um 11 tíma að fylla sig og því fer fjarri að hún náist í einu kasti en kaldaskítur var aðfaranótt föstu- dagsins en síðan hægði. Björg Jónsdóttir er á leið til Siglufjarð- ar og verður þar um háegisbilið í dag, en vegna mikillar veiði fékkst ekkert löndunarpláss nær. Aðalgeir Bjarnason, skipstjóri, segir að þeir séu að verða búnir með kvótann, aðeins eftir tveir túrar og því sé í lagi að sigla þessa Ieið auk þess sem betra verð sé borgað hjá SR-mjöli á Siglufirði, þó hvergi sé verðið fyrir Ioðnuna gott. - GG Hagnaður HB 270 mHljónir Hagnaður af rekstri Haraldar Böðvarssonar hf. nam 270 millj- ónum króna, en var 536 milljón- ir árið þar á undan. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 731 millj. kr eða 18,1% af tekjum, en heildartekjur fyrir- tækisins á sl. ári voru nettó rösk- ir fjórir milljarðar kr. Rekstrar- gjöld nettó voru 3,3 milljarðar. Skuldir fyrirtækisins eru nú nær 3,6 milljarðar og lækkuðu á síð- asta ári um 119 millj. kr. Eigið fé eru 2,776 milljarðar og hlutfall þess í veltu var um síðustu ára- mót 43,4% og jókst um 3,2% milli ára. Aðalfundur Haraldar Böðvarssonar hf. verður haldinn þann 25. mars og þar leggur stjórn fyrirtæksins til að hluthöf- um verði greiddur 7% arður. - SBS. FBA kaupir helming í Vöku Helgafelli Undirritaðir voru í gær samningar um kaup Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins á 50% hlut í Vöku-Helgafelli af Ólafi Ragnarssyni og fjöl- skyldu hans. Stefnt er að því að fyrirtækið fari í næstu framtíð á hluta- bréfamarkað, en að sögn Ólafs Ragnarssonar gefa þessi viðskipti tækifæri til að færa út kvíamar í rekstri fyrirtæksins, sem skilgreinir síg sem alhliða útgáfu og margmiðlunarfyrirtæki. Kaup- verð fæst ekki uppgefið. „Engin breyting verður á stefnu fyrirtækisins og hér verða sömu starfsmenn, en vegna auk- inna umsvifa á næstunni er nú unnið að fjölgun þeirra,“ sagði Ólafur Ragnarsson, sem stofnaði Vöku-Helgafell fyrir átján árum. Frá upp- hafi hefur fyrirtækið verið í stöðugum vexti og hefur öll árin verið rekið með hagnaði, en heildarvelta þess á síð- asta ári var um hálfur milljarður króna. Ólafur segir að með viðskiptum þessum skapist t.d. svigrúm til sameiningar fyrirtækja og bendir þar á að 80 forlög hafi gefið út þær 400 bæk- ur, sem komu út hér á landi fyrir síðustu jól. Þarna séu augljósir möguleikar til bagræðingar. Einnig horfir hann til þess að Vaka-Helgafell hasli sér völl á fleiri sviðum í útgáfugeiranum en fyrirtækið hefur gert hingað til. - SBS. Úlafur Ragnarsson, framkvæmdastjóri Vöku-Helgafells. .nagtir „Ánægður, stoltur og glaður, “segir Bubbi Morthens, sem í gærkvöld var aðalnúmerið í forsetaveislu á Bessastöðum. Bubbi syugur fyrir ííiia fólkiö í tveimur veislum hjá forsetau- um á Bessastöðum. „Eg er bæði ánægður, stoltur og glaður yfir þessu og þykir mikill heiður að því að vera fenginn til þessa. Forsetinn er vissulega að brjóta blað með því að fá alþýðu- listamenn til að koma fram á samkomu sem þessari, sem lista- menn á sviði sígildrar tónlistar hafa til þessa hvað helst komið fram á,“ segir Bubbi Morthens, sem í gærkvöld söng á Bessastöð- um í aðalveislu ársins sem hald- in er þar á bæ. Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hélt veisluna venju samkvæmt fyrir ráðherra ríkisstjórnar, hand- hafa forsetavalds, sendimenn er- lendra ríkja hér á landi og fleiri tigna gesti. I Bessastaðaveislunni í gær- kvöld söng Bubbi lögin Blóðbönd og Borgarbarn og svo sitthvort lagið með Bob Dylan og Led Belly. „Fjögur lög er alveg feiki- nóg og ég ákvað að syngja allt annað en Þingmannagæluna," sagði Bubbi í samtali við Dag. - Þann 26. mars mun Bubbi svo aftur fara suður á Bessastaði í aðra forsetaveislu, sem þá verður haldin fyrir æðstu menn í stjórn- kerfinu, svo sem ráðuneytisstjóra og forstjóra ýmissa ríkisstofnana. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bubbi syngur á Bessastöðum. I fyrravor, þegar Ólafur Ragnar Grímsson varð 55 ára, bauð hann til síðbúinnar veislu ýms- um vandamönnum og vinum - og fékk þá einmitt góðvin sinn til að syngja £ veislunni, Bubba sjálfan. - SBS. Hagnaður Síldarvinnsl- nnnar 122 mill jónír Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað var gerð upp með 122ja milljóna króna hagnaði á árinu 1998, eft- ir að tekið hefur verið tillit til 112,6 milljóna króna tekjufærslu vegna óreglulegra liða. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam hins vegar 14,4 milljónum króna, sem er mun Iakari afkoma en árið áður. Veltufé frá rekstri var 437,5 milljónir króna og hefur einung- is tvisvar í sögu félagsins verið meira. Rekstrartekjur námu 4.169,7 milljónum króna og jukust um 1,2% á milli ára en rekstrargjöld voru 3.557,2, sem er 7,5% aukn- ing. Heildareignir Síldarvinnslunn- ar í árslok 1998 voru bókfærðar á 6.250,8 milljónir króna. Skuldir og skuldbindingar námu hins vegar 3.671 milljón króna og hafði aukist um 85,7 milljónir króna á milli ára, eða um 3,4%. Aðalfundur Síldarvinnslunnar verður haldinn 10. apríl. Stjórn félagsins leggur til að hluthöfum verði greiddur 7% arður vegna ársins 1998. Þjóðnýtiiigartal er bull „Það er auðvitað eðlilegt að Kristjáni Ragnarssyni verði órótt þegar fram koma heildstæðar til- Iögur um fiskveiðistjórnun, því venjan hefur verið sú að halda því fram að fólk krefjist breytinga en viti ekki hvernig á að breyta," segir Sigurður Björnsson, rekstr- arfræðingur og félagi í áhuga- hópi um auðlindir í almanna- þágu. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands útvegsmanna, gagnrýndi tillögur hópsins í kvótakerfismálum harðlega í Degi í gær og sagði þær byggðar á úreltum þjóðnýt- ingarsjónarmiðum. „Að tala um þjóðnýtingaráform er bull. Hvernig í ósköpunum er hægt að þjóðnýta þjóðareign?" segir Sigurður. „Núverandi fisk- veiðistjórunarkerfi var búið til á skifstofum LIU og hefur eins og kunnug er valdið því að gífurleg- ur auður hefur safnast til Krist- jáns Ragnarssonar og félaga hans. Þeir sem lesið hafa stefnu- skrá Sjálfstæðisflokksins, að ekki sé minnst á frumherjayfirlýsing- una, vita mæta vel að það er í öskrandi mótsögn við þau plögg að leyfa Kristjáni Ragnarssyni að mylja þjóðarauðinn undir sig og sína. Hér koma fram tillögur um markaðsvæðingu í sjávarútvegi, þar sem áherslan er á réttlæti og jöfnuð auk þess sem dreifðar byggðir landsins fá sitt tækifæri á ný. Það ætti nú aldeilis að hugn- ast Sjálfstæðismönnum."

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.