Dagur - 06.03.1999, Síða 4
é -LAUGARDAGUR 6. MARS 19 9 9
FRÉTTIR
Mikil loðna við
Stokksnes
Hrognafylling loðn-
iiiiTiar við Stokksnes
er um 15% og því
mun lnín ganga vestur
með suðurströndinni
og hrygna fyrir vestan
land eftir uiii 10 daga.
Loðnuflotinn var nánast allur
kominn á veiðisvæðið út af
Stokksnesi, suðaustur af land-
inu, á fimmtudag en þar var mik-
ið af loðnu auk þess sem hún er
vænni en sú sem fengist hefur
við Reykjanes og Vestmannaeyj-
ar. Aðalgeir Bjarnason, skipstjóri
á Björgu Jónsdóttur frá Húsavík,
segir að hrognafylling Ioðnunnar
sé um 15% og því muni hún
ganga vestur með suðurströnd-
inni og hrygna fyrir vestan land,
þ.e. þegar hrognafyllingin er orð-
in um 24%. Það gætu verið 10
dagar í það.
„Þetta er væntanlega loðnan
sem Hafró fann í rannsóknar-
leiðangrinum og varð til þess að
bætt var við kvótann en þeir
fundu einhvern helling út af
Reyðarfjarðardýpinu. Það passar
við tímann að hún sé að skila sér
hér upp við Stokksnesið," segir
Aðalgeir Bjarnason.
Þeir á Björgu Jónsdóttur voru
um 11 tíma að fylla sig og því fer
fjarri að hún náist í einu kasti en
kaldaskítur var aðfaranótt föstu-
dagsins en síðan hægði. Björg
Jónsdóttir er á leið til Siglufjarð-
ar og verður þar um háegisbilið í
dag, en vegna mikillar veiði
fékkst ekkert löndunarpláss nær.
Aðalgeir Bjarnason, skipstjóri,
segir að þeir séu að verða búnir
með kvótann, aðeins eftir tveir
túrar og því sé í lagi að sigla
þessa Ieið auk þess sem betra
verð sé borgað hjá SR-mjöli á
Siglufirði, þó hvergi sé verðið
fyrir Ioðnuna gott. - GG
Hagnaður HB
270 mHljónir
Hagnaður af rekstri Haraldar
Böðvarssonar hf. nam 270 millj-
ónum króna, en var 536 milljón-
ir árið þar á undan. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
nam 731 millj. kr eða 18,1% af
tekjum, en heildartekjur fyrir-
tækisins á sl. ári voru nettó rösk-
ir fjórir milljarðar kr. Rekstrar-
gjöld nettó voru 3,3 milljarðar.
Skuldir fyrirtækisins eru nú nær
3,6 milljarðar og lækkuðu á síð-
asta ári um 119 millj. kr. Eigið fé
eru 2,776 milljarðar og hlutfall
þess í veltu var um síðustu ára-
mót 43,4% og jókst um 3,2%
milli ára. Aðalfundur Haraldar
Böðvarssonar hf. verður haldinn
þann 25. mars og þar leggur
stjórn fyrirtæksins til að hluthöf-
um verði greiddur 7% arður.
- SBS.
FBA kaupir helming
í Vöku Helgafelli
Undirritaðir voru í gær
samningar um kaup
Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins á 50% hlut í
Vöku-Helgafelli af Ólafi
Ragnarssyni og fjöl-
skyldu hans. Stefnt er
að því að fyrirtækið fari
í næstu framtíð á hluta-
bréfamarkað, en að sögn
Ólafs Ragnarssonar gefa
þessi viðskipti tækifæri
til að færa út kvíamar í
rekstri fyrirtæksins, sem
skilgreinir síg sem alhliða útgáfu
og margmiðlunarfyrirtæki. Kaup-
verð fæst ekki uppgefið.
„Engin breyting verður á
stefnu fyrirtækisins og hér verða
sömu starfsmenn, en vegna auk-
inna umsvifa á næstunni er nú
unnið að fjölgun þeirra,“ sagði
Ólafur Ragnarsson, sem stofnaði
Vöku-Helgafell fyrir
átján árum. Frá upp-
hafi hefur fyrirtækið
verið í stöðugum vexti
og hefur öll árin verið
rekið með hagnaði, en
heildarvelta þess á síð-
asta ári var um hálfur
milljarður króna.
Ólafur segir að með
viðskiptum þessum
skapist t.d. svigrúm til
sameiningar fyrirtækja
og bendir þar á að 80
forlög hafi gefið út þær 400 bæk-
ur, sem komu út hér á landi fyrir
síðustu jól. Þarna séu augljósir
möguleikar til bagræðingar.
Einnig horfir hann til þess að
Vaka-Helgafell hasli sér völl á
fleiri sviðum í útgáfugeiranum
en fyrirtækið hefur gert hingað
til. - SBS.
Úlafur Ragnarsson,
framkvæmdastjóri
Vöku-Helgafells.
.nagtir
„Ánægður, stoltur og glaður, “segir Bubbi Morthens, sem í gærkvöld var aðalnúmerið í forsetaveislu á Bessastöðum.
Bubbi syugur fyrir
ííiia fólkiö í tveimur
veislum hjá forsetau-
um á Bessastöðum.
„Eg er bæði ánægður, stoltur og
glaður yfir þessu og þykir mikill
heiður að því að vera fenginn til
þessa. Forsetinn er vissulega að
brjóta blað með því að fá alþýðu-
listamenn til að koma fram á
samkomu sem þessari, sem lista-
menn á sviði sígildrar tónlistar
hafa til þessa hvað helst komið
fram á,“ segir Bubbi Morthens,
sem í gærkvöld söng á Bessastöð-
um í aðalveislu ársins sem hald-
in er þar á bæ. Forseti íslands,
herra Ólafur Ragnar Grímsson,
hélt veisluna venju samkvæmt
fyrir ráðherra ríkisstjórnar, hand-
hafa forsetavalds, sendimenn er-
lendra ríkja hér á landi og fleiri
tigna gesti.
I Bessastaðaveislunni í gær-
kvöld söng Bubbi lögin Blóðbönd
og Borgarbarn og svo sitthvort
lagið með Bob Dylan og Led
Belly. „Fjögur lög er alveg feiki-
nóg og ég ákvað að syngja allt
annað en Þingmannagæluna,"
sagði Bubbi í samtali við Dag. -
Þann 26. mars mun Bubbi svo
aftur fara suður á Bessastaði í
aðra forsetaveislu, sem þá verður
haldin fyrir æðstu menn í stjórn-
kerfinu, svo sem ráðuneytisstjóra
og forstjóra ýmissa ríkisstofnana.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Bubbi syngur á Bessastöðum. I
fyrravor, þegar Ólafur Ragnar
Grímsson varð 55 ára, bauð
hann til síðbúinnar veislu ýms-
um vandamönnum og vinum - og
fékk þá einmitt góðvin sinn til að
syngja £ veislunni, Bubba sjálfan.
- SBS.
Hagnaður Síldarvinnsl-
nnnar 122 mill jónír
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
var gerð upp með 122ja milljóna
króna hagnaði á árinu 1998, eft-
ir að tekið hefur verið tillit til
112,6 milljóna króna tekjufærslu
vegna óreglulegra liða. Hagnaður
af reglulegri starfsemi nam hins
vegar 14,4 milljónum króna, sem
er mun Iakari afkoma en árið
áður. Veltufé frá rekstri var 437,5
milljónir króna og hefur einung-
is tvisvar í sögu félagsins verið
meira.
Rekstrartekjur námu 4.169,7
milljónum króna og jukust um
1,2% á milli ára en rekstrargjöld
voru 3.557,2, sem er 7,5% aukn-
ing.
Heildareignir Síldarvinnslunn-
ar í árslok 1998 voru bókfærðar á
6.250,8 milljónir króna. Skuldir
og skuldbindingar námu hins
vegar 3.671 milljón króna og
hafði aukist um 85,7 milljónir
króna á milli ára, eða um 3,4%.
Aðalfundur Síldarvinnslunnar
verður haldinn 10. apríl. Stjórn
félagsins leggur til að hluthöfum
verði greiddur 7% arður vegna
ársins 1998.
Þjóðnýtiiigartal er bull
„Það er auðvitað eðlilegt að
Kristjáni Ragnarssyni verði órótt
þegar fram koma heildstæðar til-
Iögur um fiskveiðistjórnun, því
venjan hefur verið sú að halda
því fram að fólk krefjist breytinga
en viti ekki hvernig á að breyta,"
segir Sigurður Björnsson, rekstr-
arfræðingur og félagi í áhuga-
hópi um auðlindir í almanna-
þágu. Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
útvegsmanna, gagnrýndi tillögur
hópsins í kvótakerfismálum
harðlega í Degi í gær og sagði
þær byggðar á úreltum þjóðnýt-
ingarsjónarmiðum.
„Að tala um þjóðnýtingaráform
er bull. Hvernig í ósköpunum er
hægt að þjóðnýta þjóðareign?"
segir Sigurður. „Núverandi fisk-
veiðistjórunarkerfi var búið til á
skifstofum LIU og hefur eins og
kunnug er valdið því að gífurleg-
ur auður hefur safnast til Krist-
jáns Ragnarssonar og félaga
hans. Þeir sem lesið hafa stefnu-
skrá Sjálfstæðisflokksins, að ekki
sé minnst á frumherjayfirlýsing-
una, vita mæta vel að það er í
öskrandi mótsögn við þau plögg
að leyfa Kristjáni Ragnarssyni að
mylja þjóðarauðinn undir sig og
sína. Hér koma fram tillögur um
markaðsvæðingu í sjávarútvegi,
þar sem áherslan er á réttlæti og
jöfnuð auk þess sem dreifðar
byggðir landsins fá sitt tækifæri á
ný. Það ætti nú aldeilis að hugn-
ast Sjálfstæðismönnum."