Dagur - 06.03.1999, Side 6

Dagur - 06.03.1999, Side 6
6 - LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 T>^ur ÞJÓÐMÁL Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELI'AS SNÆLAND JÓNSSON Adstodarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: i.soo kr. A mánuði Lausasöiuverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað Grænt númer: soo 7080 Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símar auglýsingadeildar: CREYKJAV(K)563-1615 Ámundi Amundason (AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdúttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símbréf ritstjórnar: 460 6171(AKUREyri) 551 6270 creykjavíK) Monica í fyrsta lagi Monica Lewinski var óneitanlega flott í sjónvarpinu í fyrrakvöld. Myndin sem við fengum bar vott um að þarna færi hugguleg, vel gefin, ung kona, sem féll gjörsamlega fyrir kröftugum gáfumanni í valdamikilli stöðu. Hún var sakleysið uppmálað, hló og flissaði stundum, en klökknaði þegar það átti við. Hún hafði í ungæðis- hætti gert hluti, sem kannski voru ekki alveg þeir réttu, en enginn er fullkominn. Eftir á sér hún auðvitað eftir hinu og þessu - ekki síst að hafa sært Hillary! Enda hefur hún nú aukið verulega vin- sældir sínar meðal almennings samkvæmt könnunum. í öðru lagi Viðtalið sem Islendingar sáu var ekki það sem tekið var af Barböru Walters á ABC sjónvarpsstöðinni fyrr í vikunni og vakti mesta um- talið. Þetta var breska útgáfan fyrir Stöð 4. Hér er á ferðinni sam- ræmd auglýsingaherferð fyrir bókina „Sögu Monicu", sem nú er verið að fylgja eftir með ferðalagi Monicu um Bretland. Sam- kvæmt fréttum af þessari herferð voru viðtölin nánast samkvæmt handriti. Allt þaulæft í bak og fyrir með aðstoð snjöllustu al- mannatengslamanna. Það minnir enn einu sinni á hversu um- fangsmikil kerfi (nánast heilu atvinnuvegimir) standa að baki þeim einstaklingum, sem eru aðalleikarar í því tragikómíska leik- verki sem leikið hefur verið í Washington síðustu misseri. í þriðja lagi Tími Monicu er kominn. Það er augljóst á þeirri fagmennsku sem einkennir herferðina í kringum bókarútgáfuna að hið ótrúlega er að gerast: Monicumálið - sem allir voru orðnir yfir sig leiðir á - er að öðlast nýtt líf. Stjómarfarslega hliðin er að baki og Clinton hef- ur „lifað hana af“, eins og hann sjálfur söng þegar hann tók und- ir með Gloriu Gaynor „I will survive". Hins vegar er málið Iangt frá því að vera búið. Ymislegt bendir til að saldausa, laglega stúlk- an í sjónvarpsviðtölunum, sem féll fyrir mikilmenninnu, muni ná að brennimerkja mannorð og forsetatíð Clintons í huga almenn- ings með mun kröftugri hætti en Starr og Repúblikönum tókst nokkru sinni. Og hafa heilmikið upp úr því í leiðinni. Birgir GuÖmundsson. Laumu sjálfstæðismenn Garri hefur alltaf verið veikur fyrir Kristjáni Ragnarssyni, hinum skelegga talsmanni út- gerðarinnar í landinu. Kristján er ekki vanur að skafa utan af hlutunum og segir sína mein- ingu umbúðalaust eins og sjá mátti í Degi í gær. í fyrradag voru kynntar til- lögur um breytingar á kvóta- kerfinu og tólfmenningarnir sem að því stóðu kalla sig „Áhugahópur um auðlindir í almanna- þágu.“ Þegar Kristján var búinn að flet- ta ofan af málinu kom hins vegar í ljós að þarna voru á ferð- inni sósíalde- mokratar og Iaumu sjálf- stæðismenn með löngu úr- eltar þjóðnýt- ingarhug- myndir í pokahorninu. Garri hefur að vísu ekki heyrt talað um laumu sjálf- stæðismenn áður en oft um laumu komma. Og að vísu má segja að Ellert Schram og Markús MöIIer hafí ekki verið neitt sérstaklega laumulegir sjálfstæðismenn til þessa. Annar sat á þingi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í mörg ár og Markús er í framboði og gerir sér vonir um að verða þing- maður flokksins. Hvorugur hefur svo sem heldur laumast mikið með skoðanir sínar en þeir eru náttúrulega ekki al- vöru sjálfstæðismenn og það er það sem Kristján á auðvitað við. Laumu kommar eru kommar en þykjast vera eitt- hvað annað en laumu sjálf- stæðismenn þykjast vera sjálf- V stæðismenn en eru kratar. Kristján gleymdi reyndar að nefna að meðal tólfmenning- anna er líka að minnsta kosti einn Iaumu framsóknarmaður og það gildir væntanlega það sama um hann og laumu sjálf- stæðismennina. Inn við beinið er hann gamaldags þjóðnýting- arkrati. Tólf rudilar Þessi uppákoma í gær minnti Garra satt að segja dálítið á vestrann fræga „The dirty dozen“ eða Tólf rudd- ar. Þarna vaða fram á sjónar- sviðið tólf „ruddar“ og ætla að taka veiðiréttinn af þeim sem eru búnir að fjár- festa og stey- pa sér í botn- lausar skuldir til þess að nýta fiskimiðin land og lýð til heilla. En hetjan stendur keik og ver sitt fólk gegn ofureflinu. Kristján flettir ofan af tólf- menningunum og kveður þá í kútinn með orðkyngi sínu. Þarna safnast saman undir einum kratahatti löngu úrelt þjóðnýtingarsjónarmið segir Kristján og þótt tólfmenning- arnir haldi því þvert á móti fram að tillögur sínar gangi út á að markaðsvæða viðskipti með kvóta, veit Garri betur. Hann treystir Kristjáni sem er sko engin laumu sjálfstæðis- maður. - GARRI ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON SKRIFAR Herra Kvóti talar „Ríkið, það er ég!“ sagði franskur kóngur hér um árið. Lúðvík fjórtándi hét hann og taldi að yf- irráð sín yfir þegnum franska rík- isins væri eitthvað bara á milli sín og guðs - nokkuð sem fólk- inu, þeim auma lýð, kæmi ekkert við. Ljóst er af ummælum Krist- jáns Ragnarssonar, formanns Landssambands íslenskra út- vegsmanna, í Degi t gær, að Lúð- vík fjórtándi á sér skilgetið af- kvæmi á Islandi - andlega að minnsta kosti. „Kvótinn, það er ég!“ skfn út úr yfirlýsingum Kristjáns og þeirri fyrirlitningu sem hann auðsýnilega hefur á þeim tillögum, sem áhugahópur um auðlindir í almannaþágu hef- ur lagt fram, og þá ekki síður á þeim einstaklingnum sem hóp- inn skipa. Kristján telur það hina mestu fásinnu að kvótinn sé auðlind sem almenningur eigi tilkall til; nei, kvótinn er eitthvað bara á milli hans og hins guðlega valds í fiskveiðistjórnunarmál- um. Rökleysa I viðtalinu finnur formaður út- vegsmanna alveg nýja skilgrein- ingu á orðinu „þjóðnýting." Fram til þessa hefur merking þess hug- taks verið sú að ríkisvaldið yfir- taki eitthvað sem einstaklingar eiga. Tillögur áhugahópsins ganga ekki út á það. Þvert á móti miða þær að því að almenningur fái í sínar hendur þá eign sem hann á með réttu samkvæmt landslögum. Skýringin á þessari skrítnu túlkun formannsins er augljós. Hann Iítur svo á að útgerðar- menn eigi kvótann, ekki þjóðin. Og réttlætir það með gömlu klisjunni um að það séu útgerð- armenn sem hafi alla tíð nýtt þessa auðlind. Þetta er gamal- kunnug rökleysa í kvótamálinu. Það voru auðvitað aðeins útvald- ir útgerðarmenn sem fengu Kristján Ragnarsson: „Kvótinn, það er ég!“ kvóta gefins á sínum tíma. Hins vegar fengu sjómenn, sem fyrr og síðar hafa veitt fiskinn, engan kvóta. Valdastéttarhroki Sú afstaða sem fram kemur í ummælum formanns útvegs- manna er ekki vænleg til sátta um kvótamálið. Þvert á móti virka þau sem salt í sár þjóðar- innar sem sér ekkert réttlæti f því að nokkrir einstaklingar geti hlaupist á brott með tugi eða jafnvel hundruð milljóna af eign almennings. Auðvitað þarf að skoða vand- lega þær tillögur sem áhuga- menn úr öllum stjórnmálaflokk- um hafa sett fram í kvótamálinu - eins og aðrar hugmyndir sem fram verða settar á næstu vikum og mánuðum. Ef eitthvað er að marka tal manna um nauðsyn þess að ná sátt í landinu um nýt- ingu og afrakstur auðlindarinn- ar, verður að ræða málið efnis- lega. I þeirri umræðu gerði valdastéttin sjálfri sér gott með þvf að reyna að minnsta kosti að hemja hroka sinn og yfírlæti. tJtOf'jbn'uvi'iu imiiMi' jT‘ij>nai/ rrrx uiHK'i á>j iTitiid*) tt('t' i' 'Jiut - > jjikji; 1 mnmi • < »tju ■>• •.- svauratð Hvemig fannst þér sjón- varpsviðtalið við Monicu Lewinshy? Karl Th. Birgissoti blaðamaður. Þorfinnur Ómarsson framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs. „Þó ég hafi fengið ógeð á þessu fárán- íega máli fannst mér gaman að heyra Mon- icu Lewinsky tala og fá hennar hlið, því málatil- búnaður allur hefur verið óper- sónulegur. Það kom mér á óvart hve örugg Lewinsky var og hve vel henni gekk að lýsa martöð- inni sem hún gekk í gegnum. Eitt það athyglisverðasta fannst mér að hún tók undir viðhorf HiIIary Clinton að hún væri peð í refskák öfgasinnaðra hægri- manna gegn forsetanum. Annars er merkilegt hve fólk getur orðið frægt af endemum í Ameríku, án þess að hafa unnið til þess.“ Elín Antonsdóttir „Ég sá lítinn bút úr vaðtal- inu og síðan gafst ég upp. Kannski vegna þess að málið er utan míns áhugasviðs og ætli mað- ur að fylgjast með þvf og hafa skoðun á því verður maður að hella sér alveg út f þetta - og því nenni ég ekki. Það hefur flogið að mér að þetta mál sé dæmi um hnignun vest- rænnar menningar þegar áhersla bæði fjölmiðla og stjórnmála- manna í einu mesta stórveldi heimsins, Bandaríkjunum, bein- ist að þessu sérkennilega máli, sem ég tel vera einkamál, svo mánuðum skiptir.“ Kristján Hreinsson skáld. „Það er Ijóst að Monica gengur ekki heil til skóg- ar. Hún tek- ur stórt uppí sig en inni- stæða um- mæla er aft- ur á móti lít- ilfjörleg og klikkunin í þessu öllu er vita- skuld sú að manneskja geti kom- ið sjálfri sér á framfæri við heimspressuna fyrir það eitt að reyna að stinga undan forsetafrú Bandaríkjanna. “ markaðsfiæðingur. H t A t l. I | j I .3

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.