Dagur - 06.03.1999, Blaðsíða 6
6 - LAUGARDAGUR 6. MARS 1999
T>^ur
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: ELI'AS SNÆLAND JÓNSSON
Adstodarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: i.soo kr. A mánuði
Lausasöiuverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað
Grænt númer: soo 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: CREYKJAV(K)563-1615 Ámundi Amundason
(AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdúttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(AKUREyri) 551 6270 creykjavíK)
Monica
í fyrsta lagi
Monica Lewinski var óneitanlega flott í sjónvarpinu í fyrrakvöld.
Myndin sem við fengum bar vott um að þarna færi hugguleg, vel
gefin, ung kona, sem féll gjörsamlega fyrir kröftugum gáfumanni
í valdamikilli stöðu. Hún var sakleysið uppmálað, hló og flissaði
stundum, en klökknaði þegar það átti við. Hún hafði í ungæðis-
hætti gert hluti, sem kannski voru ekki alveg þeir réttu, en enginn
er fullkominn. Eftir á sér hún auðvitað eftir hinu og þessu - ekki
síst að hafa sært Hillary! Enda hefur hún nú aukið verulega vin-
sældir sínar meðal almennings samkvæmt könnunum.
í öðru lagi
Viðtalið sem Islendingar sáu var ekki það sem tekið var af Barböru
Walters á ABC sjónvarpsstöðinni fyrr í vikunni og vakti mesta um-
talið. Þetta var breska útgáfan fyrir Stöð 4. Hér er á ferðinni sam-
ræmd auglýsingaherferð fyrir bókina „Sögu Monicu", sem nú er
verið að fylgja eftir með ferðalagi Monicu um Bretland. Sam-
kvæmt fréttum af þessari herferð voru viðtölin nánast samkvæmt
handriti. Allt þaulæft í bak og fyrir með aðstoð snjöllustu al-
mannatengslamanna. Það minnir enn einu sinni á hversu um-
fangsmikil kerfi (nánast heilu atvinnuvegimir) standa að baki
þeim einstaklingum, sem eru aðalleikarar í því tragikómíska leik-
verki sem leikið hefur verið í Washington síðustu misseri.
í þriðja lagi
Tími Monicu er kominn. Það er augljóst á þeirri fagmennsku sem
einkennir herferðina í kringum bókarútgáfuna að hið ótrúlega er
að gerast: Monicumálið - sem allir voru orðnir yfir sig leiðir á - er
að öðlast nýtt líf. Stjómarfarslega hliðin er að baki og Clinton hef-
ur „lifað hana af“, eins og hann sjálfur söng þegar hann tók und-
ir með Gloriu Gaynor „I will survive". Hins vegar er málið Iangt
frá því að vera búið. Ymislegt bendir til að saldausa, laglega stúlk-
an í sjónvarpsviðtölunum, sem féll fyrir mikilmenninnu, muni ná
að brennimerkja mannorð og forsetatíð Clintons í huga almenn-
ings með mun kröftugri hætti en Starr og Repúblikönum tókst
nokkru sinni. Og hafa heilmikið upp úr því í leiðinni.
Birgir GuÖmundsson.
Laumu sjálfstæðismenn
Garri hefur alltaf verið veikur
fyrir Kristjáni Ragnarssyni,
hinum skelegga talsmanni út-
gerðarinnar í landinu. Kristján
er ekki vanur að skafa utan af
hlutunum og segir sína mein-
ingu umbúðalaust eins og sjá
mátti í Degi í gær.
í fyrradag voru kynntar til-
lögur um breytingar á kvóta-
kerfinu og tólfmenningarnir
sem að því stóðu kalla sig
„Áhugahópur um auðlindir í
almanna-
þágu.“ Þegar
Kristján var
búinn að flet-
ta ofan af
málinu kom
hins vegar í
ljós að þarna
voru á ferð-
inni sósíalde-
mokratar og
Iaumu sjálf-
stæðismenn
með löngu úr-
eltar þjóðnýt-
ingarhug-
myndir í
pokahorninu.
Garri hefur að vísu ekki
heyrt talað um laumu sjálf-
stæðismenn áður en oft um
laumu komma. Og að vísu má
segja að Ellert Schram og
Markús MöIIer hafí ekki verið
neitt sérstaklega laumulegir
sjálfstæðismenn til þessa.
Annar sat á þingi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn í mörg ár og
Markús er í framboði og gerir
sér vonir um að verða þing-
maður flokksins. Hvorugur
hefur svo sem heldur laumast
mikið með skoðanir sínar en
þeir eru náttúrulega ekki al-
vöru sjálfstæðismenn og það
er það sem Kristján á auðvitað
við. Laumu kommar eru
kommar en þykjast vera eitt-
hvað annað en laumu sjálf-
stæðismenn þykjast vera sjálf-
V
stæðismenn en eru kratar.
Kristján gleymdi reyndar að
nefna að meðal tólfmenning-
anna er líka að minnsta kosti
einn Iaumu framsóknarmaður
og það gildir væntanlega það
sama um hann og laumu sjálf-
stæðismennina. Inn við beinið
er hann gamaldags þjóðnýting-
arkrati.
Tólf rudilar
Þessi uppákoma í gær minnti
Garra satt að
segja dálítið á
vestrann
fræga „The
dirty dozen“
eða Tólf rudd-
ar. Þarna vaða
fram á sjónar-
sviðið tólf
„ruddar“ og
ætla að taka
veiðiréttinn af
þeim sem eru
búnir að fjár-
festa og stey-
pa sér í botn-
lausar skuldir
til þess að
nýta fiskimiðin land og lýð til
heilla. En hetjan stendur keik
og ver sitt fólk gegn ofureflinu.
Kristján flettir ofan af tólf-
menningunum og kveður þá í
kútinn með orðkyngi sínu.
Þarna safnast saman undir
einum kratahatti löngu úrelt
þjóðnýtingarsjónarmið segir
Kristján og þótt tólfmenning-
arnir haldi því þvert á móti
fram að tillögur sínar gangi út
á að markaðsvæða viðskipti
með kvóta, veit Garri betur.
Hann treystir Kristjáni sem er
sko engin laumu sjálfstæðis-
maður.
- GARRI
ELÍAS
SNÆLAND
JÓNSSON
SKRIFAR
Herra Kvóti talar
„Ríkið, það er ég!“ sagði franskur
kóngur hér um árið. Lúðvík
fjórtándi hét hann og taldi að yf-
irráð sín yfir þegnum franska rík-
isins væri eitthvað bara á milli
sín og guðs - nokkuð sem fólk-
inu, þeim auma lýð, kæmi ekkert
við.
Ljóst er af ummælum Krist-
jáns Ragnarssonar, formanns
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna, í Degi t gær, að Lúð-
vík fjórtándi á sér skilgetið af-
kvæmi á Islandi - andlega að
minnsta kosti. „Kvótinn, það er
ég!“ skfn út úr yfirlýsingum
Kristjáns og þeirri fyrirlitningu
sem hann auðsýnilega hefur á
þeim tillögum, sem áhugahópur
um auðlindir í almannaþágu hef-
ur lagt fram, og þá ekki síður á
þeim einstaklingnum sem hóp-
inn skipa. Kristján telur það hina
mestu fásinnu að kvótinn sé
auðlind sem almenningur eigi
tilkall til; nei, kvótinn er eitthvað
bara á milli hans og hins guðlega
valds í fiskveiðistjórnunarmál-
um.
Rökleysa
I viðtalinu finnur formaður út-
vegsmanna alveg nýja skilgrein-
ingu á orðinu „þjóðnýting." Fram
til þessa hefur merking þess hug-
taks verið sú að ríkisvaldið yfir-
taki eitthvað sem einstaklingar
eiga. Tillögur áhugahópsins
ganga ekki út á það. Þvert á móti
miða þær að því að almenningur
fái í sínar hendur þá eign sem
hann á með réttu samkvæmt
landslögum.
Skýringin á þessari skrítnu
túlkun formannsins er augljós.
Hann Iítur svo á að útgerðar-
menn eigi kvótann, ekki þjóðin.
Og réttlætir það með gömlu
klisjunni um að það séu útgerð-
armenn sem hafi alla tíð nýtt
þessa auðlind. Þetta er gamal-
kunnug rökleysa í kvótamálinu.
Það voru auðvitað aðeins útvald-
ir útgerðarmenn sem fengu
Kristján Ragnarsson:
„Kvótinn, það er ég!“
kvóta gefins á sínum tíma. Hins
vegar fengu sjómenn, sem fyrr
og síðar hafa veitt fiskinn, engan
kvóta.
Valdastéttarhroki
Sú afstaða sem fram kemur í
ummælum formanns útvegs-
manna er ekki vænleg til sátta
um kvótamálið. Þvert á móti
virka þau sem salt í sár þjóðar-
innar sem sér ekkert réttlæti f því
að nokkrir einstaklingar geti
hlaupist á brott með tugi eða
jafnvel hundruð milljóna af eign
almennings.
Auðvitað þarf að skoða vand-
lega þær tillögur sem áhuga-
menn úr öllum stjórnmálaflokk-
um hafa sett fram í kvótamálinu
- eins og aðrar hugmyndir sem
fram verða settar á næstu vikum
og mánuðum. Ef eitthvað er að
marka tal manna um nauðsyn
þess að ná sátt í landinu um nýt-
ingu og afrakstur auðlindarinn-
ar, verður að ræða málið efnis-
lega. I þeirri umræðu gerði
valdastéttin sjálfri sér gott með
þvf að reyna að minnsta kosti að
hemja hroka sinn og yfírlæti.
tJtOf'jbn'uvi'iu imiiMi' jT‘ij>nai/ rrrx uiHK'i á>j iTitiid*) tt('t' i' 'Jiut - > jjikji; 1 mnmi • < »tju ■>• •.-
svauratð
Hvemig fannst þér sjón-
varpsviðtalið við Monicu
Lewinshy?
Karl Th. Birgissoti
blaðamaður.
Þorfinnur Ómarsson
framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs.
„Þó ég hafi
fengið ógeð á
þessu fárán-
íega máli
fannst mér
gaman að
heyra Mon-
icu Lewinsky
tala og fá
hennar hlið,
því málatil-
búnaður allur hefur verið óper-
sónulegur. Það kom mér á óvart
hve örugg Lewinsky var og hve
vel henni gekk að lýsa martöð-
inni sem hún gekk í gegnum.
Eitt það athyglisverðasta fannst
mér að hún tók undir viðhorf
HiIIary Clinton að hún væri peð
í refskák öfgasinnaðra hægri-
manna gegn forsetanum. Annars
er merkilegt hve fólk getur orðið
frægt af endemum í Ameríku, án
þess að hafa unnið til þess.“
Elín Antonsdóttir
„Ég sá lítinn
bút úr vaðtal-
inu og síðan
gafst ég upp.
Kannski
vegna þess
að málið er
utan míns
áhugasviðs
og ætli mað-
ur að fylgjast
með þvf og hafa skoðun á því
verður maður að hella sér alveg
út f þetta - og því nenni ég ekki.
Það hefur flogið að mér að þetta
mál sé dæmi um hnignun vest-
rænnar menningar þegar áhersla
bæði fjölmiðla og stjórnmála-
manna í einu mesta stórveldi
heimsins, Bandaríkjunum, bein-
ist að þessu sérkennilega máli,
sem ég tel vera einkamál, svo
mánuðum skiptir.“
Kristján Hreinsson
skáld.
„Það er Ijóst
að Monica
gengur ekki
heil til skóg-
ar. Hún tek-
ur stórt uppí
sig en inni-
stæða um-
mæla er aft-
ur á móti lít-
ilfjörleg og
klikkunin í þessu öllu er vita-
skuld sú að manneskja geti kom-
ið sjálfri sér á framfæri við
heimspressuna fyrir það eitt að
reyna að stinga undan forsetafrú
Bandaríkjanna. “
markaðsfiæðingur.
H t A t l. I | j
I .3