Dagur - 06.03.1999, Page 7

Dagur - 06.03.1999, Page 7
Aumleg staða gagn- vart laiideigejidum Ef íbúðareigandi borgar ekki fasteignagjald á tilsettum tíma er rekið á eftir greiðslunni með bréfi. Sé því ekki sinnt leggjast brátt dráttarvextir á skuldina og senn kemur áminning um him- inháan lögfræðikostnað. Ef enn er þijósakst við að borga er hót- að uppboði á eigninni og sé íbúðareigandi svo heillum horf- inn að eiga ekki fyrir skuldinni eða ekki í færum að semja um greiðslu er eignin seld fyrir skuld og áföllnum kostnaði og fyrrver- andi eigandi rekinn út með hyski sínu og á ekki margra kosta völ. Aftur á móti getur landeig- andi, sem á óbyggðar lóðir í út- jaðri eða inni í þéttbýlum sveitar- félögum margfaldað verðgildi landa sinna með því að standa í vegi fyrir eðlilegri byggðaþróun og beðið þess að landið hækki í verði og selt það síðan hæstbjóð- anda þegar honum sýnist. Hann hefur fullt og óskorað vald yfir eign sinni og dæmin sýna að við- komandi sveitarfélög eru réttlaus gagnvart margtryggðum réttind- um landeigenda. Landeign er nánast skattfijáls og fasteignagjöldin leggjast á mannvirki en ekki land, en inni- falin í þeim er til dæmis lóða- leiga, sem innheimt er af stakri samviskusemi. Þannig verður íbúðareigandi að greiða leigu- gjald af þeirri spildu sem hús hans stendur á. Eignarréttur landeigandans og skattfríðindi eru innmúruð í Iög- gjöf, þar sem honum er hlíft við nánast öllum skyldum við samfé- lagið en réttur hans til að ráðskast með skipulag og græða á landi sínu án þess að leggja neitt til nema gamlar þinglýsing- ar frá fornu landeigendasamfé- lagi og plögg um erfðaréttindi. Ef íbúðareigandi greiðir ekki sín fasteignagjöld til sveitarfé- Iagsins er eignin tekin af honum og hann sendur út á guð og gaddinn. Eignarréttur hans er skilyrtur í lögum og eftir að dóm- ur er kveðinn upp um eignamissi verður honum ekkert til bjargar. Ef sveitarfélag beitir landeiganda þrýstingi og býður honum him- inháar upphæðir fyrir svokallað eignarnám, kærir landeigandi og öll dómsstig dæma honum í hag. Allir græða nema samfélagið Braskið með erfðagóssið í Garðabæ er glæsilegt dæmi um hve lítils sveitarfélög og al- mannaheill eru virt þegar eignar- réttur Iandeiganda er annars vegar. Þau dæmi eru svo ný af nálinni, að óþarfi er að rekja þá atburðarás, sem nú er á því stigi, að Landsbankinn, sem nú er orðinn helsti burðarás stórbrask- ara, greiðir nokkrum erfingjum landeigna 700 milljónir króna, en lánar athafnamanni upphæð- ina til að hann geti grætt enn meira. Sá gróði á að fást með því, að sneiða spilduna niður og selja undir byggingar. Þegar upp er staðið eru það ávallt húseigend- ur sem borga brúsann. Lóða- verðið verður himinhátt með svona eignatilfærslum og bætist við byggingarkostnað og þar með mat á húsnæði, sem lagt er til grundvallar gjöldum af því. Þetta láta sveitarfélög og fbúar þeirra yfir sig ganga og halda að eignarréttur landeigenda sé frá guði kominn, eins og lénsveldið og gjafakvótinn, og því verði ekki við neinu hróflað. Aldrei heyrist hósti né stuna frá sveitarstjórn- armönnum um að kannski sé tímabært að breyta skattalögum svolítið til að ráða bót á hugsun- arhætti sen nær aftur í aldir. Verkalýðsinnar hafa aldrei komið auga á þá rangsleitni sem felst í takmarkalitlum réttindum land- eigenda og þeir sem halda að þeir hallist til vinstri í hug- myndafræði stjórnmálanna eru svo önnum kafnir í kynjajafn- rétti, að kynlsóðir eru horfnar síðan það lið gleymdi hvernig auðvaldið hreiðrar um sig og mergsýgur þá sem minna mega sín. Alvörukapítalismi Donald Trump heitir víðfrægur athafnamaður í Bandaríkjunum. Hann hefur mikið umleikis og byggir m.a. flotta íbúðarturna í New York. Fyrir nokkrum árum lagði hann eihum of mikið undir og lá við að komast í greiðslu- þrot. Þá var farið að hagræða. Meðal þess sem endurskoð- endur fundu voru nokkrar óbyggðar lóðir á Manhattaneyju sem voru í eigu Trump. Hann hafði keypt aflagða skiptistöð járnbrautavagna til að reisa þar hús við tækifæri. Þetta voru ekki slæm kaup né óviturleg. En það sem endurskoðendur fundu að var, að eigandi lóðanna var bú- inn að borga tvær milljónir doll- ara á ári í fasteignagjöld þótt eignin gæfi ekkert af sér. Var Trump ráðlagt annað tveggja, að byggja þegar í stað á lóðinni eða afhenda borginni hana til að losna við fasteignagjöldin. Þar sem vitin borinn kapítal- ismi ræður ríkjum er þessi að- ferð notuð til að landeigendur komist ekki upp með að stöðva skipulag og byggðaþróun í þétt- býli og eins hitt að land er metið til markaðsverðs við álagningu gjalda. Eignarétturinn er virtur en hann kostar sitt. Hagsmimir ItLnna fáu Víða um land eru sveitarstjórnir í þéttbýli að semja við landeigend- ur um kaup á spildum þeirra. Skattborgarar greiða himinháar upphæðir fyrir hvert örreytiskot- ið af öðru og dómstólar dæma eigendum guðsgjafanna í vil, þar sem lagaþókstafurinn miðast eingöngu við rétt þeirra og hags- muni en hlutur samfélagsins er fyrir borð borinn. Ef landeigendum í þéttbýli væri gert að greiða fasteignagjöld í samræmi við það sem húseig- endur verða að gera myndu sveitarfélög hafa tekjur af eign- unum i stað þess að borga fyrir þær, og lítil hætta væri á að lönd væru geymd í fleiri áratugi á meðan byggð umhverfis þau breiðist út og hækki verðgildi þeirra upp úr öllu valdi. Ef löggjafinn gæti slitið sig fram úr úreltu stórbændasamfé- lagi þyrftu sveitarfélög ekki að grípa. til óyndisúrræða eins og svokallað upptökugjald er, sem er kjánalegt, ólöglegt og bitnar fyrst og fremst á verðandi fast- eignagjaldsgreiðendum. En hampar landeigendum að sama skapi. I markaðsvæðingunni miklu sem nú gengur yfir er land að- eins markaðsvara fyrir braskara og eignamenn. Skattalög eru ekki samferða inn í öld þéttbýlis og frjálshyggju. Þar er lénsveldið við lýði þar sem auðlindir eru af- hentar kvaðalaust og landeignir lúta lögmálum guðdómsins, sem vel má meta til fjár en fráleitt að láta hann borga skatta. Islenskur kapítalismi er svo frumstæður, að hann hefur aldrei komist að því, að franska byltingin var borgaraleg og að hún færði borgurunum ekki að- eins völd og réttindi heldur einn- ig skyldur. Og sósíalistarnir ham- ast við að beijast til fátæktar og verður vel ágengt. En auðlinda- og landeigendaveldið stendur óhaggað og nýtur góðæranna.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.