Dagur - 06.03.1999, Side 10

Dagur - 06.03.1999, Side 10
10-LAUGARDAGUll 6. MARS 19 9 9 Innlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlátog útför RÓSU GÍSLADÓTTUR. Gísli Gunnlaugsson, Borghildur Magnúsdóttir, Jóhanna María Gísladóttir, Bjarni Ómar Jónsson, Rósa Bjarnadóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir, og systkini hinnar látnu. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRGVIN JÖRGENSSON kennari, Dvalarheimilinu Saeborg Skagaströnd, áður til heimilis að Grænumýri 15 Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju á Akur- eyri mánudaginn 8. mars kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hins látna er bent á Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Ingibjörg Björgvinsdóttir, Steindór Haraldsson, Böðvar Björgvinsson, Ástríður Andrésdóttir, Margrét Björgvinsdóttir, Sigurvin Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. Frá Alþingi ALÞINGI íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn Skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið 1. september 1999 til 31. ágúst 2000. Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmanna- höfn, geta sótt um afnot af íbúðinni. Hún er í Skt. Pauls- gade 70 (skammt frá Jónshúsi) en auk þess hefur fræði- maður vinnuherbergi í Jónshúsi. íbúðin er þriggja herbergja (um 80 ferm) og fylgir henni allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður. Afnotin eru endurgjaldslaus. Dvalartími í íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en til greina kemur skemmri tími eða lengri eftir umfangi verkefnis og öðrum atvikum. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en föstudaginn 19. mars nk. Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi ráðgerðrar dvalar sinnar í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum. Pá skal taka fram hvenær á framangreindu tíma- bili og hve lengi er óskað efir afnotum af íbúðinni, svo og stærð fjölskyldu umsækjanda ef gert er ráð fyrir að hún fylgi honum. Úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn. Eftirfarandi atriði hafa skipt mestu máli við úthlutun íbúðar- innar: 1. Að umsókn sé vandlega unnin. 2. Að verkefnið verði ekki unnið annarstaðar en í Kaup- mannahöfn eða nágrenni. 3. Að sem eðlilegust skipting sé milli kynja og fræði- greina. 4. Að verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi og þyki áhugavert. Þeir sem vilja kynna sér tiltekin málefni í Danmörku, án þess að um sé að ræða víðtækari fræðistörf, eiga að jafn- aði litla möguleika á úthlutun. Tekið er tillit til fjárhags umsækjenda og sitja þeir fyrir sem ekki njóta launa eða styrks meðan á dvöl þeirra stendur ellegar fá aðstöðu í Höfn fyrir eigið fé. Úthlutunarnefnd ráðgerir að lúka störfum í fyrri hluta apríl- mánaðar. Sérstök eyðublöð fást á skrifstofu Alþingis í Alþingishús- inu í Reykjavík og í sendiráði íslands í Kaupmannahöfn. FRÉTTIR Vísar ííaífnrýni til födurhusaima Grenndarkynningu Bamaspítalans lýkur nm miðjan mars og hyggingamefnd býður í oþreyju eftir að framkvæmdir geti hafist á ný. „Við vorum á fundi hjá Borgar- skipulagi í gær ásamt fram- kvæmdastjóra Ríkisspítalanna og fulltrúa okkar sem vinnur að málefnum Barnaspítalans. Þetta er í hefðbundnum farvegi: Það stendur yfir ný grendarkynning og við bíðum bara eftir að henni Ijúki, um miðjan mars. Málið fer síðan fyrir byggingarnefnd og skipulagsnefnd borgarinnar. Það er á ábyrgð borgarinnar að veita okkur þetta byggingarleyfi, en ég sé engin sérstök Ijón í veginum, eftir að borgin hefur svarað þeim fyrirspurnum sem borist hafa frá Olafi Isleifssyni, sem býr í grennd spítalans, en mér er ekki kunnugt um önnur erindi,“ svar- aði Siv Friðleifsdóttir, spurð hvað liði áframhaldandi bygging- arframkvæmdum við Barnaspít- alann. Segir hún mjög mikilvægt að sem fyrst verði hægt að hefj- ast handa. Gott samstarf við alla aðila Þeirri gagnrýni sem komið hefur fram á staðsetningu Barnaspítal- ans vísar Siv alfarið til föðurhús- anna, þar sem byggingarnefndin hafi haft mjög gott samstarf við alla aðila málsins; jafnt fag- hópana innan Ríkisspítala og fé- laga í fjölmörgum félögum sjúkra barna, innan Umhyggju. Þeir séu allir ánægðir með fram- vindu mála og hvernig hönnun spítalans hafi undið fram, „og standa með okkur að flýta þess- ari byggingu sem mest má verða“. Siv segir það alrangt að eðlilegra væri að nýr barnaspítali rísi við Sjúkrahús Reykjavíkur. Meðal annars af þeirri ástæðu að á Barnaspítalanum verði glæsileg vökudeild, sem búi nú við mikil þrengsli. Vökudeildin verði að sjálfsögðu að vera í tengslum við fæðingargang. En engin fæðingardeild sé Sjúkra- húsi Reykjavíkur. Auðvelt að stækka Varðandi hugsanlega þörf á stækkun spítalans eftir einhver ár eða áratugi bendir Siv á að það hafi verið ein af forsendun- um í hönnunarsamkeppninni að arkitektarnir sýndu stækkunar- möguleika. Það hafi alltaf stað- ið til að mögulegt yrði að stækka Barnaspítalann, ef þörf yrði á því. Og við flutning Hringbraut- arinnar nú innan tíðar stækki Landspítalalóðin mjög verulega. „Þannig að tal um þrengsli á lóð á ekki við nein rök að styðjast," segir Siv. — HEI ALLIR SUZUKI BlUR ERU MEÐ: • vökvastýri • 2 loftpuða • • aflmiklar vélar • samlæsingar • rafmagn i rúðum og speglum • styrktarbita I hurðum • • samlitaða stuðara • & • Sérstaklega röskur og snúningslipur • Ein sparneytnasta vélin á markaðnum • Lægsta bilanatíðni nýrra smábíla, aðeins 1,6% * • Óvenju ríkulegur staðalbúnaður fyrir bíl í þessum verðflokki $ SUZUKI ■ + -A ■WWW— SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is SWIFT TEGUND: VERÐ: GLS 3d 980.000 KR. GLX 5d 1.020.000 KR.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.