Dagur - 06.03.1999, Qupperneq 10
10-LAUGARDAGUll 6. MARS 19 9 9
Innlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlátog útför
RÓSU GÍSLADÓTTUR.
Gísli Gunnlaugsson, Borghildur Magnúsdóttir,
Jóhanna María Gísladóttir,
Bjarni Ómar Jónsson,
Rósa Bjarnadóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir,
og systkini hinnar látnu.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRGVIN JÖRGENSSON
kennari,
Dvalarheimilinu Saeborg Skagaströnd,
áður til heimilis að Grænumýri 15 Akureyri,
verður jarðsunginn frá Glerárkirkju á Akur-
eyri mánudaginn 8. mars kl. 14.00.
Þeir sem vilja minnast hins látna er bent á
Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Ingibjörg Björgvinsdóttir, Steindór Haraldsson,
Böðvar Björgvinsson, Ástríður Andrésdóttir,
Margrét Björgvinsdóttir, Sigurvin Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Frá Alþingi
ALÞINGI
íbúð fræðimanns í
Kaupmannahöfn
Skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús
Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið 1. september
1999 til 31. ágúst 2000. Fræðimenn, sem hyggjast
stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmanna-
höfn, geta sótt um afnot af íbúðinni. Hún er í Skt. Pauls-
gade 70 (skammt frá Jónshúsi) en auk þess hefur fræði-
maður vinnuherbergi í Jónshúsi. íbúðin er þriggja
herbergja (um 80 ferm) og fylgir henni allur nauðsynlegasti
heimilisbúnaður.
Afnotin eru endurgjaldslaus. Dvalartími í íbúðinni er að
jafnaði þrír mánuðir en til greina kemur skemmri tími eða
lengri eftir umfangi verkefnis og öðrum atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis
eigi síðar en föstudaginn 19. mars nk.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi ráðgerðrar
dvalar sinnar í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri
störfum. Pá skal taka fram hvenær á framangreindu tíma-
bili og hve lengi er óskað efir afnotum af íbúðinni, svo og
stærð fjölskyldu umsækjanda ef gert er ráð fyrir að hún
fylgi honum. Úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti
úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn.
Eftirfarandi atriði hafa skipt mestu máli við úthlutun íbúðar-
innar:
1. Að umsókn sé vandlega unnin.
2. Að verkefnið verði ekki unnið annarstaðar en í Kaup-
mannahöfn eða nágrenni.
3. Að sem eðlilegust skipting sé milli kynja og fræði-
greina.
4. Að verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi og þyki
áhugavert.
Þeir sem vilja kynna sér tiltekin málefni í Danmörku, án
þess að um sé að ræða víðtækari fræðistörf, eiga að jafn-
aði litla möguleika á úthlutun.
Tekið er tillit til fjárhags umsækjenda og sitja þeir fyrir sem
ekki njóta launa eða styrks meðan á dvöl þeirra stendur
ellegar fá aðstöðu í Höfn fyrir eigið fé.
Úthlutunarnefnd ráðgerir að lúka störfum í fyrri hluta apríl-
mánaðar.
Sérstök eyðublöð fást á skrifstofu Alþingis í Alþingishús-
inu í Reykjavík og í sendiráði íslands í Kaupmannahöfn.
FRÉTTIR
Vísar ííaífnrýni
til födurhusaima
Grenndarkynningu
Bamaspítalans lýkur
nm miðjan mars og
hyggingamefnd býður
í oþreyju eftir að
framkvæmdir geti
hafist á ný.
„Við vorum á fundi hjá Borgar-
skipulagi í gær ásamt fram-
kvæmdastjóra Ríkisspítalanna og
fulltrúa okkar sem vinnur að
málefnum Barnaspítalans. Þetta
er í hefðbundnum farvegi: Það
stendur yfir ný grendarkynning
og við bíðum bara eftir að henni
Ijúki, um miðjan mars. Málið fer
síðan fyrir byggingarnefnd og
skipulagsnefnd borgarinnar. Það
er á ábyrgð borgarinnar að veita
okkur þetta byggingarleyfi, en ég
sé engin sérstök Ijón í veginum,
eftir að borgin hefur svarað þeim
fyrirspurnum sem borist hafa
frá Olafi Isleifssyni, sem býr í
grennd spítalans, en mér er ekki
kunnugt um önnur erindi,“ svar-
aði Siv Friðleifsdóttir, spurð
hvað liði áframhaldandi bygging-
arframkvæmdum við Barnaspít-
alann. Segir hún mjög mikilvægt
að sem fyrst verði hægt að hefj-
ast handa.
Gott samstarf við alla aðila
Þeirri gagnrýni sem komið hefur
fram á staðsetningu Barnaspítal-
ans vísar Siv alfarið til föðurhús-
anna, þar sem byggingarnefndin
hafi haft mjög gott samstarf við
alla aðila málsins; jafnt fag-
hópana innan Ríkisspítala og fé-
laga í fjölmörgum félögum
sjúkra barna, innan Umhyggju.
Þeir séu allir ánægðir með fram-
vindu mála og hvernig hönnun
spítalans hafi undið fram, „og
standa með okkur að flýta þess-
ari byggingu sem mest má
verða“. Siv segir það alrangt að
eðlilegra væri að nýr barnaspítali
rísi við Sjúkrahús Reykjavíkur.
Meðal annars af þeirri ástæðu
að á Barnaspítalanum verði
glæsileg vökudeild, sem búi nú
við mikil þrengsli. Vökudeildin
verði að sjálfsögðu að vera í
tengslum við fæðingargang. En
engin fæðingardeild sé Sjúkra-
húsi Reykjavíkur.
Auðvelt að stækka
Varðandi hugsanlega þörf á
stækkun spítalans eftir einhver
ár eða áratugi bendir Siv á að
það hafi verið ein af forsendun-
um í hönnunarsamkeppninni að
arkitektarnir sýndu stækkunar-
möguleika. Það hafi alltaf stað-
ið til að mögulegt yrði að stækka
Barnaspítalann, ef þörf yrði á
því. Og við flutning Hringbraut-
arinnar nú innan tíðar stækki
Landspítalalóðin mjög verulega.
„Þannig að tal um þrengsli á lóð
á ekki við nein rök að styðjast,"
segir Siv. — HEI
ALLIR SUZUKI BlUR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpuða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar
• rafmagn i rúðum og speglum
• styrktarbita I hurðum •
• samlitaða stuðara •
&
• Sérstaklega röskur og snúningslipur
• Ein sparneytnasta vélin á markaðnum
• Lægsta bilanatíðni nýrra smábíla, aðeins 1,6% *
• Óvenju ríkulegur staðalbúnaður fyrir
bíl í þessum verðflokki
$ SUZUKI
■ + -A
■WWW—
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
SWIFT
TEGUND: VERÐ:
GLS 3d 980.000 KR.
GLX 5d 1.020.000 KR.