Dagur - 13.03.1999, Side 6

Dagur - 13.03.1999, Side 6
20 LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 ■n im}> ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sýnt á Stóra sviði Tveir tvöfaldir Ray Cooney i kvöld Id. - nokkur sæti laus föd. 19/3 • uppselt föd. 26/3 - uppselt Sjálfstætt fólk eftir Halldór Kiljan Laxness í leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigriðar margrétar Guðmundsd. Fyrri sýning: Bjartur - Landnámsmaður íslands Frumsýning sud. 21/3 kl. 15:00 - nokkur sæti laus • 2. sýn. mvd. 24/3 kl. 20:00 - nokkur sæti laus • 3. sýn. fid. 25/3 kl. 20:00 - nokkur sæti laus • aukasýning þrd. 23/3 kl. 15:00 - uppselt • aukasýning. sud. 28/3 kl. 15:00 Siðari sýning: Ásta Sóllilja Frumsýning sud. 21/3 kl. 20:00 - nokkur sæti laus • 2. sýn. þrd. 30/3 kl. 20:00 • - nokkur sæti laus aukasýning þrd. 23/3 kl. 20:00 - uppselt • aukasýning sun. 28/3 kl.20:00 Brúðuheimili - Henrik Ibsen Menningarverðlaun DV 1999: Elva Ósk Ólafsdóttir Id. 20/3 - Id. 27/3 Bróðir minn Ijónshjarta - Astrid Lindgren sud. 14/3, kl. 14:00 • Id. 20/3, kl. 14:00 - Id. 27/3 kl. 14:00 Sýnt á Litla sviði kl. 20.00 Abel Snorko býr einn Erik-Emmanuel Schmitl í kvöld - uppselt • föd. 19/3 - uppselt • föd. 26/3 - Id. 27/3 A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum i salinn eftir að sýning hefst. Sýnt á Smíðaverkstæði kl. 20.30 Maður í mislitum sokkum - Arnmundur Backman í kvöld Id. - uppselt *sud. 14/3 - uppselt • fid. 18/3 - uppselt föd. 19/3 - uppselt • Id. 20/3 - uppselt • fid. 25/3 - laus sæti föd. 26/3 - laus sæti • Id. 27/3 - uppselt • sud. 28/3 - laus sæti A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning hefst. Listaklúbbur Leikhúskjallarans Mád. 15/3 kl. 20:30 SAMTlMAMENN- karlahetjukvöld sem á sér enga hlið- stæðu. Húsið opnað 19:30 - dagskráin hefst 20:30 Miðasalan er opin mán.- þri. 13-18 mid-sud. 13-20. Símapantanir frá kl.10 virka daga. Sími 551-1200. «0 LEIKFÉLAG M 53£rf.ykjavíkur35? BORGARLEIKHÚSIÐ Stóra svið kl.14:00 Pétur Pan eftir Sir J.M. Barrie i dag lau. 13/3 - uppselt Sun. 14/3 - uppselt Lau. 20/3 - uppselt sun. 21/3 - uppslt Lau. 27/3 - uppselt Sun. 28/3 - örfá sæti laus lau. 10/4 - sun. 11/4 Stóra svið ki. 20.00 Horft frá brúnni eftir Arthur Miller 7. sýn. lau, 13/3, hvít kort Fim. 18/3, Lau. 27/3 Verkið kynnt í forsal kl. 19:00 Stóra svið kl. 20.00 Sex í sveit eftir Marc Camoletti 73. sýn fös. 19/3 - uppseit 74. sýn lau. 20/3 - örfá sæti laus 75. sýn fös. 26/3 - nokkur sæti laus Stóra svið kl. 20.00 íslenski dans- flokkurinn Diving eftir Rui Horta Flat Space Moving eftir Rui Horta Kæra Lóló eftir Hlíf Svavarsdóttur 6. sýning sun. 28/3 Litla svið kl. 20.00 Fegurðardrottningin frá Línakri eftir Martin McDonagh 2. sýn. lau. 13/3 - uppselt 3. sýn. fim. 18/3 - uppselt Mióasalan er opin daglega frá kl. 12 - 18 og fram að sýningu sýningadaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiöslukortaþjónusta. Sími 568 8000 fax 568 0383 Kvikmyndaskáldið Stanley Kubrick tókst að ljúka við frágang síðustu kvikmyndar sinnar - „Eyes Wide Shut" - rétt áður en hann fékk hjartaslag og lést síðastliðinn sunnudag, sjö- tugur að aldri. Kvöldið áður en hann dó átti hann langt símtal við samverkamenn sína í Ameríku sem þá höfðu séð myndina og lýstu mikilli ánægju með árang- urinn. Kubrick lagði alla tíð megináherslu á að ráða sjálfur öllu um þær kvikmyndir sem hann gerði. Það átti líka við um þessa síðustu mynd, sem verður frum- sýnd í sumar. Hún er byggð á skáldsögu eftir Arthur Schnitzler og fjallar um tvo sálfræð- inga sem dragast inn í heim sjúklinga sinna. Hjónin Tom Cruise og Nicole Kidman fara með aðalhlutverkin. Sjálfmenntaður Kubrick hefur alla tíð verið mjög umdeildur, enda fór hann ekki troðnar HoIIywoodslóðir. Það þýddi meðal annars að hann gerði færri myndir en ella, en hver þeirra var augljóslega hans verk. Enda lét hann sér ekki nægja að leikstýra heldur hélt um alla tauma og hafði alltaf síðasta orðið. Þessi sérstæði kvikmyndahöfundur var að mestu sjálfmenntaður. Honum gekk illa í skóla í New York, þar sem hann fæddist 26. júlí 1928, en sökkti sér af brennandi ákafa í áhugamál sitt sem var ljósmyndun og kvik- myndir. Hann var þaulsetinn í bíósölum og afar hrifinn af verkum höfunda á borð við von Stroheim, Griffith og Eisenstein. En sá líka mikið af ömurlegum myndum. „Ég vissi ekkert um það hvernig ætti að gera kvikmyndir, en ég man að ég hugsaði sem svo: „Jafnvel þótt ég kunni ekkert, þá trúi ég ekki öðru en að ég geti búið til kvikmynd sem er betri en þessi.“ Þess vegna byrjaði ég; til að reyna að gera betur.“ Hann hóf feril sinn með gerð stuttra heim- BÚKA- HILLAN ildamynda. Fyrstu leiknu myndina, „Fear and Desire,“ gerði hann íyrir lítinn pening 1953; skrifaði handritið, leikstýrði, myndaði og klippti. „Killer Kiss“ fylgdi í kjölfarið 1955. Síðan flutti hann til Hollywood, stofnaði þar fyrirtæki með félaga sínum og sendi frá sér „The Killing1' 1956. Brjálæði stríðsins Líta verður á þessar myndir sem æfingu fyrir það sem í vændum var. Það var fyrst með næstu mynd, „Paths of Glory“ (1957), sem Kubrick sýndi og sannaði að nýtt, sérstætt og mikilhæft kvikmyndaskáld væri komið fram á sjónarsviðið. Kirk Douglas lék aðalhlutverldð í myndinni sem gerist í fyrri heimsstyrjöld- inni og er afar sterk ádeila á stríðsrekstur og þá sem herjum stjórna, gjarnan af ótrúlegri heimsku og tilfinningaleysi. Vegna kynna af Kirk Douglas við gerð stríðsmyndarinnar var Kubrick fenginn til að taka við leikstjórn stórmyndarinnar um „Spartacus" (1960) - leiðtoga sögufrægrar þrælauppreisnar í Rómaveldi. Hann hét því að þetta yrði síðasta kvikmyndin þar sem hann hefði ekki úrslitavald í öllu - og stóð við það. Atlaga Kubricks að brjálæðingum hernað- arhyggjunnar náði hármarki í einni snjöll- ustu mynd hans, „Dr. Strangelove“ (1964), en birtist einnig með áhrifaríkum hætti í „Full Metal Jacket“ (1987) sem fjallar um stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Víetnam. Óbilandi kjarkur Eitt helsta einkenni skapgerðar Kubricks var óbilandi kjarkur hans til að fara eigin leiðir hvort sem umheiminum líkaði betur eða verr. Þetta sýndi hann eftirminnilega í „Lolitu“ (1962) sem byggir á alræmdri skáldsögu No- bokovs um ástarsamband barnungrar stúlku og miðaldra karlmanns. Og aftur í hrikalegri úttekt á ofbeldi í „A Clockwork Orange“ (1971) sem sækir efniviðinn í samnefnda skáldsögu Anthony Burgess. Hann ruddi einnig brautina með „2001“ (1968) en þar vann hann með Arthur C. Clarke við að búa til sannkallaða geimsinfón- íu sem er í senn listræn og heimspekileg framtíðarsýn. En hann fór aldrei í sömu föt- in tvisvar og gerði því jafn ólíkar kvikmyndir og „Barry Lyndon“ (1975) og „The Shining" (1980). Margar bækur hafa verið samdar um Kubrick, þótt hann hafi neitað allri samvinnu við höfunda slíkra verka. Þær helstu eru: „Stanley Kubrick: A Biography11 eftir Vincent Lobrutto, „Stanley Kubrick Directs" eftir Al- exander Walker og „Kubrick: Inside a Film Artist’s Maze“ eftir Thomas Allen Nelson. Hægt er að nálgast þær á netinu. Snyrtilega farið með lífsleiðann BÍÓBORGIN The Ice Storm (1997)Leik- stjóri: Ang Lee Handrit: James Schamus og Rick Moody Aðalhlutverk: Kevin Kline, Joan Allen, Sigourney Wea- ver, Christina Ricci, Toby Maguire, Elijah í myndinni kynnumst við tveimur vinahjónum og börnum þeirra í velmegandi millistéttar- hverfi í Bandaríkjunum árið 1973. ÖII líða þau um eins og afturgöngur í eigin Iífi og þrauka tilveruna með þyngslalegum svip. Þrátt fyrir vel tækjum húin og rúmgóð heimili, heilbrigð börn/foreldra, peninga og vini (altso kunningja) er heldur lítið sem kveikir í þeim. Dofnar til- raunir til að hleypa lofti f dekkin niistakast og ekki einu sinni skipulögð framhjátaka nær að flikka eilítið upp á hversdagsgrá- mann. Jafnvel þótt framhjáhald- ið ætti að hafa alla burði til að setja smá skjálfta í hvunndaginn verður kynlífið með maka ná- grannans jafn andlaust og annað í Iífi þessa fólks. Lífsleiðaþoka Það er Iifsleiðaþoka yfir þessari mynd, ólíkt fyrri myndum Ang Lee (The Wedding Banquet, Eat Drink Man Woman og Sense and Sensibility) en svo vel fer leikstjórinn með efnið að hún verður ffemur gráthlægileg en drungaleg. Sögumaður, elsti son- ur annarra hjónanna, talar í upp- hafi myndar um að fjölskyldan sé einskonar andefni - en efni og andefni eyða hvort öðru. M.ö.o. sé hornsteinn bandarísks draumaþjóðfélags, fjölskyldan, dæmdur til að eyða sjálfum sér. Fjölskyldan sé gædd ósættanlegri mótsögn og Ijölskyldulífið grafi undan tilveru sinni innan frá. Sögumaður heldur því líka fram að við lifum öll að hluta í neikvæðri vídd. Hins vegar býr í okkur kergja, sem kemur í veg fyrir að við fleygjum okkur alfar- ið yfir í neikvæðu víddina. Kergja sem er smekklega framsett í Iyklapartíinu undir lok myndar. Þar er gestkomandi hjónafólki og öðrum gestum boðið að setja bfl- lyklana sína í skál. I lok veislunn- ar er svo dregið um lykla og ræðst þá hver fer heim með hverjum. Skjálfandi gestirnir eru að molna undan álaginu við lykladráttinn en af því að sam- kvæmisleikurinn er, eðli málsins samkvæmt, dannaður þá tekst þeim að viðhalda fáguðu yfir- bragði á bullandi framhjáhaldinu sem í vændum er. Formið hefur yfirtekið innihaldið, samkvæmis- sjóið réttlætir athöfnina, meðalið helgar tilganginn. Gleymdi að strjuka af sér glottið Leikhópurinn er undursamlega vel valinn, Joan Allen (Elena) er grá og samanbitin eiginkona, Sigourney Weaver er köld og hvefsin, gjörsamlega frábitin nokkrum tengslum við aðrar mannverur. Sá eini sem ekki féll inn í hópinn var Kevin Kline sem var helst til uppskrúfaður pabbi/eiginmaður/kokkálari. Kline var enn smurður sama glotti og prýddi hann í A fish called Wanda en átti engan veg- inn við hér. Stemningin, litirnir, fötin og yfirhöfuð allt yfirbragð myndar- innar er einstaklega samræmt. Þótt tíska og yfirbragð áranna kringum ‘70 sé fremur afgerandi þá hefur leikstjóranum tekist að skapa sjálfstæðan heim, mynd- gert sína eigin túlkun á andrúms- lofti og umhverfi þess tíma. Tón- listin er frábærlega valin, dripp- dropp hljómurinn jók á brakið í ísstorminum sem skall á í lok myndarinnar þar sem ísdropar frusu á trjám og glerhált ísskæni lagði yfir götur og hús. Fín mynd sem fer snyrtilega með Iífsleiðann í vel mettu og klæddu nútímafólki. KVIK- MYIMDIR Wood.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.