Dagur - 13.03.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 13.03.1999, Blaðsíða 8
LÍF/Ð í LAND/NU S ÆmS LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 — íSflísái V' •'■'iíííív1-.! ÆUk ; ■ - :x: V' Mér finnst stundum talað um „góðærið" eins og það sé vandamál - vandamál sem Framsóknarflokkurinn hafí átt meginþátt í að leiða yfír þjóðina. Þá spyr maður sig oft þeirrar spurningar hvernig talað væri ef hér væri allt á niðurleið." Eg ætla að beriast í viðtali ræðir Hall- dór Ás- grímsson, utanríkis- ráðherra og formaður Framsóknarflokksins, um stöðu Framsóknar- flokksins, ríkisstjórnar- samstarfið, Samfylking- una og komandi kosn- ingar. - Nýlega birtist skoðanakönnun sem sýndi 13 prósent fylgi við Framsóknarflokkinn. Voru þetta ekki heldur kaldar kveðjur frá þjóðinni? „Ég man ekki betur en Fram- sóknarflokkurinn hafi verið jafn- vel ennþá Iægri í skoðanakönn- unum á svipuðum tíma í aðdrag- anda síðustu kosninga, svo að það þarf meira til að ég missi móðinn. En auðvitað finnst manni alltaf betra að fá góða út- komu en vonda, líka í skoðana- könnunum.“ - Nú heyrist því ofl haldið fram að minni flokkar tapi alltaf í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Er þetta að sannast núna? „Það held ég ekki. Eg er ekki trúaður á alhæfingar. Framsókn- arflokkurinn hefur verið að vinna í mjög erfiðum málum í þessari ríkisstjórn, og stjórnar- andstaðan hefur, einhverra hluta vegna, beint spjótum sínum nær einvörðungu að okkur. Virkjana- og stóriðjumálin áttu stóran þátt í uppsveiflunni hér í upphafi kjörtímabilsins en iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur mátt sæta gagnrýni fyrir - þótt undar- legt megi virðast. Sama má segja um endurskipulagningu á íjár- málamarkaðnum, sem hefur valdið verulegri vaxtalækkun hér á Iandi. Heilbrigðismálin hafa verið þungur málaflokkur og Ingibjörg Pálmadóttir, líkt og Sighvatur og Guðmundur Arni, hefur sætt mikilli gagnrýni en - ólíkt þeim - tel ég að Ingibjörg hafi styrkt mjög stöðu sína í þessu embætti. Umhverfismálin hafa verið áberandi og þar er nú verið að afgreiða mjög mikilvæg mál eins og frumvarp til laga um náttúruvernd, sem á eftir að skipta miklu fyrir umhverfismál á Islandi. Félagsmálin hafa jafn- framt verið í skotlínunni, meðal annars vegna endurskipulagn- ingar húsnæðismála og síðast en ekki síst vegna breytinga á vinnulöggjöfinni. Féíagsmálin hafa grundvallarþýðingu og þetta voru umdeild framfaramál. Sjálfur tók ég pólitíska áhættu með þvf að vinna að samningum um Smuguna og gat átt von á því að verða fyrir gagnrýni með sama hætti og dundi á mér þeg- ar okkur tókst að semja um síld- ina á sínum tíma. Báðir þessir samningar eru mikilvægir fyrir þjóðina og hið sama má segja um Kolbeinseyjarmálið og fimm ára samning við Bandaríkja- menn um varnarmál. Þessi samningamál hafa tekið mikið af mínum tíma á þessu kjörtíma- bili. Ég er þeirrar skoðunar að þeg- ar menn meta þessi mál í fram- tíðinni, hvort sem það gerist fyr- ir kosningar eða ekki, þá geri þeir sér Ijóst að þetta eru málin sem hafa afgerandi þýðingu varðandi þá þróun sem átt hefur sér stað hér á Iandi og á eftir að verða. Við búum við það sem kallað er góðæri - og það kemur ekki einvörðungu af himnum ofan. Það er að sjálfsögðu sam- bland af utanaðkomandi áhrif- um, ákvörðunum ríkisstjórnar og framgöngu aðila vinnumarkaðar- ins, atvinnulffs, einstaklinga og ýmissa samtaka þeirra. Mér finnst stundum talað um „góð- ærið“ eins og það sé vandamál - vandamál sem Framsóknarflokk- urinn hafi átt meginþátt í að leiða yfir þjóðina. Þá spyr maður sig oft þeirrar spurningar hvern- ig talað væri ef hér væri allt á niðurleið." Málefnasnauð Samfylking - Nú virðist það vera eins konar tískustefna að vera á móti virkj- unum. Finnst þér þessi andstaða verafull öfgasinnuð? „Það var verið að samþykkja fjórar nýjar og stórar virkjanir á Alþingi. Það sýnir vel að hægt að ná sáttum um virkjanamál. Hvað mest fjaðarafok hefur orðið út af hugsanlegum virkjunum á Aust- urlandi og sú umræða hefur á margan hátt verið nokkuð öfga- full. Ég er þeirr- ar skoðunar að skynsamleg orkunýting, náttúruvernd og ferðamennska geti farið vel saman, enda er nýting auðlinda forsenda byggð- ar í landinu." - Flvernig met- ur þú störf Finns Ingólfssonar? „Ég met þau mjög mikils. Finnur hefur verið mjög dug- legur og rögg- samur ráðherra. Framsóknar- flokkurinn setti sér það mark- mið í upphafi þessa kjörtíma- bils að skapa 12.000 störf fram til næstu aldamóta. Slíkt gerist ekki með því að menn sitji með hendur í skauti og voni bara það besta. Vegna mikils at- vinnuleysis var óumflýjanlegt að fara í uppbyggingu og fá hjól at- vinnulífsins til að snúast. Það kom ekki síst í hlut Finnst að vinna að því. Það var líka mjög áríðandi að taka til á Ijármagns- markaðnum til að minnka kostnað og lækka vexti til fyrir- tækja og almennings. Arangur- inn sýnir sig í mikilli fjölgun starfa, lækkandi fjármagnskostn- aði sem aftur hefur skapað fleiri störf og betri afkomu heimilanna. Það er þetta sem ég horfi á þegar ég met störf Finns. Aðrir vilja dæma verk hans út frá stóriðjufram- kvæmdum - sem þeir eru fyrir- fram andvígir. Ég spyr hvort þeir hinir sömu væru tilbúnir að bera ábyrgð á at- vinnuleysi og slæmri afkomu hundruða heim- ila í landinu, sem við hefðum staðið frammi fyrir í dag, ef þessi gagnrýni hefði verið Iögð til grundvallar.“ - Finnst þér að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafi staðið nægilega vel með ráð- herrum Framsóknarflokksins, eins og til dæmis Finni og Ingi- björgu Pálmadóttur? „Ráðherrar Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins hafa almennt staðið mjög vel saman. „Ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins og Framsókn- arflokksins hafa al- mennt staðið mjög vel saman. Það hefur eng- inn ágreiningur orðið sem tekur því að kvarta yfir. Það hefur þó verið tilhneiging hjá ýmsum sjálfstæðismönnum og jafnvel þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að skýla sér á bak við Framsóknarflokkinn þegar heilbrigðismál og viðskipta- og iðnaðar- mál eru gagnrýnd.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.