Dagur - 13.03.1999, Side 11

Dagur - 13.03.1999, Side 11
Dat^ur LAUGARDAGUR 13. MARS 1999- 25 LANDS SÍHINN Nokkur dæmi um stuðning fyrir- tækja við menn- ingu og listir: • Landssíminn hefur í sinni fjárhagsáætlun eyrnamerkt um 40-50 milljónir á ári sem á að ganga til verkefna í menntum, menningu og íþróttum. • VÍS setti á fót menningar- sjóð fyrir 5 árum og veitir ár- lega þrenn verðlaun og Qölda styrkja úr þeim sjóði, samtals 5 milljónir. Peningarnir renna ekki eingöngu til lista, heldur og til vísinda og jafnvel íþrótta. • SPRON hefur í Qölda- mörg ár veitt styrki til menn- ingar og lista. Arið 1994 var stofnaður Menningar- og styrktarsjóður SPRON. A hverju ári eru lagðar 8 millj- ónir í sjóðinn og þorrinn af upphæðinni fer í tónlist og sviðslistir. Um 3-4 milljónir til viðbótar þeirri upphæð fer þó í beinan og óbeinan stuðning við menningu og listir, m.a. með listaverkakaupum og styrkjum til ýmissa sýninga en auk þess geta myndlistarmenn sett upp sýningar í aðstöðu bankans í Mjóddinni, sér að kostnaðarlausu. • íslandshanki: Menningar- sjóður var stofnaður við ís- landsbanka eftir sameiningu bankanna Ijögurra fyrir 9 árum. Styrkirnir eru veittir nokkrum sinnum á ári og er þá valið úr innsendum styrk- beiðnum. Á síðasta ári voru alls veittar fimm milljónir. • Eimskip hefur ekki eyrna- merkta upphæð sem rennur til menningar en styrkir þó ýmiss konar menningarstarfsemi á hverju ári, m.a. Islensku óper- una, Sinfóníuhljómsveitina, málverkasýningar (flutning á verkum og slíkt), kórastarf- semi o.s.frv. Fyrirtækið vildi þó ekki gefa upp hversu háar upphæðir þetta væru. • ÍSAL hefur ekki veitt skipulega styrki til menningar og Iista, eingöngu til umhverf- isrannsókna og líknarmála, utan árlegs styrks til Islensku óperunnar en fyrirtækið gefur ekki upp hversu hár hann er. • Samherji á Akureyri styrk- ir menningarstarfsemi að ein- hverju Ieyti en fyrirtækið vildi ekki veita upplýsingar um hversu miklir Ijármunir færu í slíka styrki. safni íslands 12 milljóna króna styrk. Þórarinn segir for- ráðamenn Landssímans hafa verið sannfærða um að fyr- irtækið öðlaðist jákvæðari ímynd meðal landsmanna með því að styrkja Listasafnið. „Við erum Iíka sannfærðir um að viðskiptavinir okkar kunni að meta það að fyrir- tækið noti burði sína ekki aðeins í eigin þágu, til að safna upp tæknibúnaði og hagnaði, heldur láti samfé- lagsleg verkefni sig einnig nokkru varða. Við á Lands- símanum lítum þannig á að þetta sé beinlínis í þágu fyr- irtækisins." Móralskur stuðningur Islenski dansflokkurinn undirritaði í lok janúar samning við Landsbanka íslands sem er á svipuðum nótum og Landssímasamningurinn við Listasafnið. Samningurinn nær til þriggja ára og í honum felst beinn fjárstuðningur að hámarksupphæð 1,2 milljón fyrsta árið en auk þess skuldbindur bankinn sig til þess að standa að kynningu á Islenska dansflokknum, t.d. í útibúum, í markpósti til viðskiptavina og með því að greiða fyrir birtingu auglýs- inga. Þannig hefur Landsbankinn t.d. auglýsingapláss í Háskólabíó sem hann nýtir undir Dansflokkinn. Einnig felst í samningnum möguleiki á að bankinn styrki nem- endur í dansnám erlendis. Þá hefur Landsbankinn möguleika á að nýta dansara flokksins í sínum kynning- armálum. „Markmiðið er auðvitað að gera okkur að vænlegum kosti fyrir fyrirtæki sem vilja styrkja spennandi listgrein á sýnilegan hátt,“ segir Valgeir Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Dansflokksins. „Eg á von á því að tekjur okkar vegna svona samninga aukist á komandi árum. Fyrirtæki hafa verið að styrkja menninguna mjög mikið en það hefur í flestum tilvikum verið ómarkvisst og lítt sýnilegt. Þau hafa ekki verið að fá mikið fyrir peningana sína. Eg held að sá tími sé liðinn að fyrirtæki séu að styrkja menninguna af einhverri góðmennsku. Þau verða að fá eitthvað fjTÍr sinn snúð. Þessi leið sem við bjóðum upp á er miklu markvissari fyrir fyrirtæki sem vilja láta gott af sér leiða en vilja um leið nýta sér það í sínu kynn- ingarstarfi. Svo er ekki síður gott fyrir okkur að hafa svona stuðningsyfirlýsingu frá stærsta banka landsins. Við erum ekki bara að fá peninga, við erum líka að fá móralskan stuðning." Hvernig styrkja fyrirtækin menninguna? Fyrirtæki hafa farið ýmsar leiðir til þess að setja fé í menningu í gegnum tíðina. Allmörg fjármálafyrirtæki hafa stofnað menningarsjóði sem veitt er úr reglulega, sumir styrkja upprennandi listamenn til náms, þannig fengu t.d. Kristján Jóhannsson og Halla Margrét Jóns- dóttir námsstyrki frá fyrirtækjum. Nokkuð óvanaleg leið var farin hjá Islenskri erfðagreiningu lýrir skömmu þegar myndlistarmaðurinn Halldór Ásgeirsson var settur á launaskrá í um mánaðartíma en á meðan ætlaði hann vinna að listaverki upp úr reynslu sinni við að starfa hjá IE. Engin stefna hefur verið mótuð hjá ÍE um stuðning við menninguna í landinu en Kári Stefánsson forstjóri telur þó að þessi leið gæti hentað vel. „Annars finnst mér í sjálfu sér eðlilegt að gera ráð fyrir að listin geti Iif- að af sjálfri sér, þ.e. að listamenn búi til verk sem ein- staklingar, fyrirtæki og stofnanir vilji kaupa. Hvort þau kaupi þessi verk með því að styrkja myndlistarmenn meðan þeir eru að búa þau til, áður eða eftir, er í sjálfu sér bara spurning um útfærslu. Eitt af sérkennum ís- lensk samfélags er hvað þú sérð mikið af orginal Iista- verkum á veggjum hjá fólki, í fyrirtækjum o.s.frv. Ég held að þrátt fyrir allt hafi íslenskt samfélag stutt tiltölu- lega vel við bakið á sínum Iistamönnum. En stórfyrir- tækjum í landinu ber fyrst og fremst skylda til að útvega fólki vinnu og búa til peninga. Ég held að við verðum að leyfa stórfyrirtækjum að hafa dálítið frjálsar hendur um hvernig þau ráðstafa sínu umframfé. Mér persónulega finnst að það sé eðlilegt og sjálfsagt að þau noti eitthvað af sínu umframfjármagni til þess að gera umhverfi sitt og samfélag betra.“ Höfum skyldur við samfélagið SPRON hefur um langan tíma veitt styrki til menningar og lista en árlega eru lagðar 8 milljónir í Menningarsjóð SPRON. Það var fyrir tilstilli Baldvins Tryggvasonar, fyrrum sparisjóðsstjóra SPRON, sem Sparisjóðurinn fór á sínum tíma að styrkja menninguna. Baldvin segir að í fyrstu hafi lítið verið um að einstaklingar kæmu og ósk- „Efað menn gera þessa hluti ekki afsæmilega eig- ingjörnum hvötum, þá verð- ur alltafholur hljómur, “ segir Þórarinn V. Þórarins- son. Kári Stefánsson telur eðlilegt að listin geti lifað af sjálfri sér, þ.e. að listamenn búi til verk sem einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir vilji kaupa. „Ég held að sá tími sé liðinn að fyrirtæki séu að styrkja menninguna afeinhverri góðmennsku. Þau verða að fá eitthvað fyrir sinn snúð, “ segir Valgeir. Ljóðskáld nokkurt vonaðist eftir greiðslu fyrir Ijóðabók sem Ragnar í Smára hafði gefið út. Jú, Ragnar mætti heim til skáldsins á að- fangadag - með fangið fullt af hljómplötum! „Ritstörfin eru e.t.v. verri söluvara á þessum vett- vangi en t.d. leiksýning eða myndlistarverk - það er ein- hvern veginn ekki nógu sölulegt að geta ekki boðið í frumsýningarpartiið strax, “ segir Ragnheiður. uðu eftir styrkjum en þeim mun meiri fleiri hópar lista- manna, s.s. leikhópar, sem sóttust eftir fjárstuðningi til ákveðinna verkefna og hefur SPRON reglulega lagt þeim til styrki. „Við teljum að okkur beri skylda til að sýna samfélaginu eitthvert þakklæti fyrir viðskipti við okkur. Að standa við bakið á menningu og list í okkar samfélagi er bara Iiður í kostnaði við að reka Sparisjóð- Rithöfundar hugmyndasnauðir Megnið af óbeinum styrkjum fyrirtækja og þeirra sem veittir eru samkvæmt umsóknum renna til myndlistar- manna (með listaverkakaupum), tónlistarmanna og Ieik- ara. Stærri hópar virðast eiga auðveldara með að sækja um ijárstuðning til fyrirtækja, eða kannski er réttara að segja þá vera ófeimnari við slíkt. Rithöfundar eru senni- lega sú stétt listamanna sem minnst hefur notið hagn- aðar fyrirtækja. Fáeinir menningarsjóðir fyrirtækja hafa fyrir venju að rithöfundur sé á meðal styrkþega en ekk- ert skipulagt styrkjakerfi er innan einkageirans til að styrkja rithöfunda, og eru þeir sjálfir afspyrnu slappir við að sækja sér þá. Þegar haft var samband við Ragnheiði Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra Rithöfundasambands íslands, taldi hún ekki ósennilegt að rithöfundar sæktust lítið eftir styrkjum frá fyrirtækjum. „Rithöfundar þurfa á starfs- styrkjum að halda frekar en styrkjum til afmarkaðra verkefna. Þeir þurfa á vinnufrið að halda en geta ekki tryggt styrkveitanda að bók komi út á ákveðnum tíma. Ritstörfin eru e.t.v. verri söluvara á þessum vettvangi en t.d. leiksýning eða myndlistarverk - það er einhvern veg- inn ekki nógu sölulegt að geta ekki boðið í frumsýning- arpartíið strax. Þess vegna held ég að rithöfundar séu yf- irleitt ekki á höttunum eftir peningum með þessum hætti.“ Fyrir utan Andra Snæ Magnason sem fékk stuðning frá Bónus til að gefa út Bónusljóð þá veit Ragnheiður ekki af nokkrum rithöfundi sem farið hefur þá leið að falast eftir styrkjum frá fyrirtækjum. Þegar Rithöfunda- sambandið ákvað að leita stuðnings fyrirtækja til að koma sér fyrir í húsi Gunnars Gunnarssonar, sem sam- bandið flutti í árið 1997, höfðu talsmenn fyrirtækja á orði að afar sjaldan kæmu beiðnir um styrki úr ritlistar- geiranum. Hagur beggja Misjafnt var hvort viðmælendur teldu að stuðningur fyr- irtækja við menningu væri að aukast. Þórarinn V. Þórar- insson telur að stuðningur við samfélagsleg verkefni hafi verið óeðlilega ójafn, íþróttirnar fengið meginþorrann en menntir og menningarlíf ekki eins mikið og eðlilegt væri. Hann telur þetta þó vera að breytast. „Á kreppuár- unum upp úr 1990 dró mjög úr því að fyrirtæki keyptu t.d. listmuni. Það er held ég aftur vaxandi núna. Kannski er það að kaupa verkin þeirra, mikilvægasti stuðningurinn sem hægt er að veita starfandi listamönn- um. í kaupum á listaverkum felst auðvitað áhugi, mat og hvatning." Sumir Hðmælendur blaðsins töldu heldur ekki þörf á sérstökum breytingum á skattalögum til að hvetja fyrir- tæki til að styrkja menningarlífið þar sem þau hefðu í raun komist upp með að gjaldfæra t.d. kaup á listaverk- um sem rekstrarkostnað. Flestir töldu þó að einhvers konar skattaívilnanir mjmdu efla menningarlífið enda virtist fljótleg könnun blaðsins ekki benda til þess að stórfyrirtæki landsins hefðu mjög ákveðna stefnu í stuðningi sínum við menningarlíf Iandsins. Þeir eru því ekki margir forstjórarnir sem hafa einlæga ást á listsköp- un landsmanna, altént ekki svo mikla að hún dugi til að hagnaði sé með skipulögðum hætti varið til að styrkja þá sköpun. Svo stuðningur fyrirtækja við menningu eflist þarf samstarfið milli þessara ólíku þjóðfélagsgeira sennilega að vera á svipuðum nótum og fyrrgreindir samstarfs- samningar, þar sem stuðningur fyrirtækisins er mjög sýnilegur, eða að fyrirtæki hafi möguleika á skattaaf- sláttum eða öðrum fríðindum. Það þurfi að vera gulrót í kerfinu sem hvetji fyrirtæki til að taka að líta á starfsem- ina sem hiuta af samfélagi en ekki afmarkaða einingu sem ekkert á skylt við það umhverfi er það starfar í. Eins og Þórarinn V. segir, þá mun samstarf af þessum toga aldrei blessast nema báðir aðilar hafi þá tilfinningu að þeir hafi hag af: LÓA

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.