Dagur - 13.03.1999, Qupperneq 17

Dagur - 13.03.1999, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 - 33 X^wr_ Jafnrétti kynjanna: markviss stefna eða marklaus orð? Stjórn- málamennirnir eru að kvikna til Iffsins en vinnumarkaðurinn er seinni til. Elsa S. Þor- kelsdóttir ræðir jafnrétt- ismálin í samtali við Dag. „Mér finnst staða jafnréttismála oft vera eins og lítið blóm sem er aðeins að byrja að springa út. Við sjáum allar þessar frambæri- legu konur í stjórnmálum, á vinnumarkaði, í stúdentapólitík- inni og víðar. Konur víða um land eru að banka á dyr á öllum málasviðum, gera kröfur um áhrif og að ákvarðanir taki mið af þeirra þörfum," segir Elsa S. Þorkelsdóttir en hún hefur verið framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs frá árinu 1987. Ahugi á jafnréttismálum er mikill um þessar mundir, kona er í fyrsta skipti í framboði til varaformanns í Sjálfstæðis- flokknum á morgun og allt stefnir í milda umræðu um jafn- réttismál fyrir kosningarnar í vor. Stjórnmálamenn eru krafðir svara um ljölskyidustefnu og möguleika karla til að taka þátt í fjölskyldulífi og flokkarnir eru krafðir svara um hlut kvenna og karla á framboðslistum. I kosn- ingabaráttunni verða stjórn- málamennirnir væntanlega að svara því hvað þeir hafa gert og hvað þeir ætla að gera hvað varðar jafnrétti kynjanna. Elsa er nokkuð bjartsýn á að baráttan fari að skila sér og hefur á til- finningunni að það verði „sprenging" í þessum efnum á næstu sjö til tíu árum. Ein til tvær verði ráðherra „Við erum að komast upp í 30 prósentin á þingi en þá er sagt að konur fari fyrst að hafa áhrif. Hvernig sem næsta ríkisstjórn lítur út, eða hvaða flokkar sem hana mynda, bendir ýmislegt til þess að þar verði innan borðs fleiri en ein kona. Til að koma sjónarmiðum á framfæri þá dug- ir ekki til að ein kona sé í ríkis- stjórn. Það þurfa að vera fleiri,“ segir hún og bendir á að lands- lagið sé breytt, nú sé Margrét Frímannsdóttir talsmaður Sam- fylkingarinnar, Rannveig Guð- mundsdóttir leiði listann í Reykjanesi og Jóhanna Sigurðar- dóttir leiði listann í Reykjavík. „Þegar Friðrik Sophusson mætti á fund sem Nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórn- málum stóð nýlega fyrir taldi hann allar líkur á því að Sjálf- stæðisflokkurinn gæti ekki annað en sett eina konu, ef ekki tvær, í ráðherrastól í næstu ríkisstjórn,11 rifjar hún upp og telur að það megi búast við að konum fjölgi í hópi ráð- herra eftir kosningar. Meiri skilningur virðist vera á jafnréttismálum meðal ráða- manna þjóðarinnar þó að vissu- lega sé enn tekist á um það hvað beri að gera og hversu langt eigi að ganga til að flýta þróuninni eða tryggja konum og körlum raunverulega jafna möguleika í samfélaginu. „Þetta er nýtt. Fyr- ir einungis fáum árum fóru menn hjá sér vegna þessa mála- flokks. Stjórnmálamennirnir líta ekki lengur svo á að þetta sé Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar „Við erum að komast upp í 30 prósentin á þingi en þá er sagt að konur fari fyrst að hafa áhrif. Hvernig sem næsta ríkisstjórn lítur út, eða hvaða flokkar sem hana mynda, bendir ýmislegt til þess að þar verði innan borðs fleiri en ein kona," segir Elsa B. Þorkelsdóttir. málaflokkur sem þeir þurfi ekki að hafa skoðanir á,“ segir hún. Feður mæta fordómum Þó að hlutur kvenna fari vaxandi í stjómmálum er enn langt í land á ýmsum sviðum. Heildstæða fjöl- skyldupólitík vantar til dæmis bagalega á Islandi. Heildstæð Ijölskyldustefria verður vafalaust til umræðu í kosningabaráttunni í vor og Jafnréttisráð mun reyndar leggja sitt af mörkum til að svo geti orðið, meðal annars með ráð- stefnu í lok mars. Elsa Ieggur áherslu á að litið sé á þetta mál frá öllum sjónarhomum, einnig sjónarhorni atvinnurekenda sem axla takmarkaða ábyrgð í þessum málum. „Eg er sannfærð um að ein af ástæðum þess að við höfum ekki náð lengra er að enn er mjög erfitt að samræma þátttöku á vinnumarkaði og fjölskyldulíf,“ segir hún og spyr hver sé stefna stjórnvalda með tímabilið frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til barn kemst á leikskóla. „Ná- grannaþjóðir okkar hafa gert mun meira en við, bæði að því er varðar fæðingarorlof, réttinn til að vera fjarverandi frá vinnu vegna veikinda barna og mis- munandi viðhorfa atvinnurek- enda til hlutverka feðra og mæðra. Margir íslenskir feður telja sig mæta fordómum á sín- um vinnustað ef þeir vilja axla foreldraábyrgð sína í ríkari mæli og konur sæta misrétti vegna fæðingar- og móðurhlutverks síns, jafnvel vegna hugsanlegs móðurhlutverks í framtíðinni. Lengi má taka til atriði sem þarf að taka á og ég tel brýnt að verði gert.“ Dottið í pyttinn? Hið sígilda umræðuefni, launa- misrétti kynjanna, er ennþá staðreynd og Elsa telur að enn sé langt í land með að uppræta það. Heimatökin ættu að vera hæg hjá hinu opinbera. Jafnrétt- isráð hefur ítrekað ályktað að fræða þurfi forstöðumenn og beint þeim tilmælum til fjár- málaráðuneytisins að slík fræðsla verði skipulögð. Flestir atvinnurekendur Iíta svo á að launamisrétti sé ekki á þeirra ábyrgð og að launamisrétti fyrir- finnist ekki hjá þeim. „Þess vegna er svo mikilvægt að sér- hver vinnuveitandi kanni með reglulegu millibili hvort hann hafi nokkuð dottið óvart í pytt- inn,“ segir hún. Fræðsla til að koma í veg fyrir launamisrétti er inni í fram- kvæmdaáætlun ríkisstjórnarinn- ar. Elsa telur að það þurfi mark- vissa vinnu í tíu ár. „Eg held að það þurfi fræðslu og mikla og reglubundna tölfræði. Það þarf að virkja stéttarfélögin og fá þau til að fylgjast með launaþróun á mismunandi vinnustöðum. Við eigum að skoða betur starfsmat, frammistöðumat og ég tel mikil- vægt að settar séu leiðbeinandi reglur um launaákvarðanir, að minnsta kosti hjá hinu opinbera. Starfsmatsverkefninu, sem hef- ur verið í gangi, er að ljúka og skýrsla væntanleg. í framhaldi af því koma vonandi fleiri tillögur. Menn mega auðvitað ekki gle^Tna því að eitt er að gera þessa kröfu á stjórnvöld, sem eru stærsti vinnuveitandinn, annað er að aðilar vinnumarkað- arins komi að þessu líka. Það er mjög mikilvægt.11 Fæðingarorlofsmál brenna á körlum í dag. Elsa segir að stjórnvöld hafi hunsað dóm hæstaréttar frá því fyrir um það bil tveimur árum þar sem maður í þjónustu ríkisins fékk ekki að halda launum sínum eftir að hann fór í fæðingarorlof. Karla- nefnd Jafnréttisráðs hefur verið með málið til skoðunar og hugs- anlegt er að stéttarfélögin fari með frekari mál. „Það er auðvit- að gjörsamlega óþolandi að vera með niðurstöðu frá kærunefnd jafnréttismála í svo brýnu hags- muna- og jafnréttismáli og kosta það í gegnum dómskerfið til að öðrum körlum sé þrátt fyrir þennan dóm vísað á dyr og fái ekki að halda sínum launum," segir hún og bætir við það sé út í hött annað en að stjórnkerfið bregðist við dómi sem þessum. Reglurnar um fæðingarorlof eru almennt séð flóknar, stífar og reyndar brot „þvers og kruss á jafnréttislögum“, að hennar mati. „Auðvitað er ákveðinn hluti fæðingarorlofsins íyTÍr konuna til þess að geta náð sér eftir ákveðnar breytingar sem fram fara í líkama hennar og lífi en síðan á þetta að vera sveigj- anlegt og opið fyrir bæði konur og karla til að deila með sér og ákveða sjálf hvernig þau vilja hafa,“ segir hún. Tregða á vinnumarkaði Síðla vetrar var lagt fram frum- varp í þinginu þar sem Iagt var til að öll fyrirtæki með 25 starfs- menn eða fleiri kæmu sér upp jafnréttisáætlun sem ætti að taka til reglubundinnar skoðun- ar Iaunamisrétti á viðkomandi vinnustað og starfsmannastefnu fyrirtækisins, það er hvernig fyr- irtækið vill koma til móts við starfsmenn varðandi möguleika á að samtvinna íjölskyldu- og at- vinnulíf. Elsa telur að það taki um tíu ár að þróa og koma til framkvæmda áætlunum af þessu tagi. Frumvarpið náði fram að ganga á þessu þingi „en verður væntanlega tekið aftur upp í haust." - Er ekki sjálfkmfa stífni gegn svona á vinnumarkaði? „Jú, það er viss tregða. Eg hef á tilfinningunni að í ákveðnum geirum atvinnulífsins vilji menn ekki vinna að jafnrétti kynja þrátt fyrir að lögin kveði skýrt á um hlutverk atvinnurekenda á þessu sviði. A sama tíma er mik- il umræða um að þau fyrirtæki, sem blómstri á 21. öldinni séu þau sem hafa framsækna fjöl- skyldupólitík. Eg held að þarna þurfi mikla fræðslu til að hvetja atvinnurekendur til að vinna að slíkri stefnu, ekki bara út frá mannréttindum karla og kvenna, heldur líka út frá hags- munum þeirra sjálfra."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.