Dagur - 13.03.1999, Page 21
LAUGARDAGUR 13. MARS 1999- 37
Dayir-
RAÐ AUGLYSINGAR
i
hiiíííi
Bókasafnssjóður
höfunda - nýskráningar
1. janúar 1998 tóku gildi lög nr. 33/1997 um Bóka-
safnssjóð höfunda. Úr sjóðnum skal úthluta til rithöf-
unda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, enda
séu bækur þeirra notaðar á þeim bókasöfnum sem lögin
taka til.
Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa höf-
undar og rétthafar að skrá sig á sérstökum eyðublöð-
um sem fást hjá Bókasafnssjóði höfunda, c/o Rithöf-
undasamband (slands, Dyngjuvegi 8,104 Reykjavík,
sími 568 3190, fax 568 3192, netfang: sjod-
ur@mmedia.is eða á heimasíðu Bókasafnssjóðs
http://www.mmedia.is/sjodur.
Skráningarfrestur er til 10. apríl
1999.
Rétt til úthlutunar vegna afnota bóka í bókasöfnum eiga:
1. Rithöfundar, enda hafi bækur þeirra verið gefnar út á
íslensku.
2. Þýðendur, svo og þeir sem enduryrkja, endursegja
eða staðfæra erlendar bækur á íslensku.
3. Myndhöfundar og tónskáld, enda séu hugverk þeirra
hluti af þeim bókum sem getið er í 1. tölul. eða gefin
út sem sjálfstæð rit á íslandi.
4. Aðrir sem átt hafa þátt í ritun þeirra bóka sem getið
er í 1. og 3. tölul., enda sé framlag þeirra skráð í ís-
lenska bókaskrá frá Landsbókasafni íslands - Há-
skólabókasafni.
Rétt til úthlutunar eftir andlát rétthafa eiga:
1. Eftirlifandi maki.
2. Eftirlifandi einstaklingur sem var í sambúð með rétt-
hafa þegar hann lést, enda hafi sambúðin staðið í fimm
ár hið skemmsta.
3. Börn yngri en 18 ára, enda sé hitt foreldrið látið eða
njóti ekki réttar samkvæmt lögum þessum.
Vakin er athygli á að þeir sem nú þegar hafa skilað
skráningu þurfa EKKI að skrá sig aftur. Ný verk verða
sjálfkrafa færð á skrá höfunda.
Reykjavík, 10. mars 1999
Stjórn Bókasafnssjóðs höfunda.
Nýsköpunarstyrkir
Byggðastofnunar
1999
• Byggðastofnun mun á árinu 1999 veita 25 m.kr. í
styrki til verkefna á sviði nýsköpunar í atvinnumálum
á landsbyggðinni.
• Miðað er við að einstakar styrkveitingar verði á bilinu
200-700 þ.kr. Þær geta þó ekki verið hærri en 40%
af kostnaði.
• Sérstök áhersla er lögð á:
a) Verkefni tengd afþreyingu í ferðaþjónustu.
b) Verkefni um könnun nýrra atvinnukosta.
c) Samstarfsverkefni fyrirtækja, atvinnuþróunarfélaga
og rannsóknastofnana.
• Framangreind verkefni sem fela í sér umtalsverð ný-
mæli og hagrænt gildi hafa að öðru jöfnu forgang við
úthlutun. Svæði sem byggja aðallega á sauðfjárrækt
hafa einnig nokkurn forgang við úthlutun.
• Umsóknum skal skila á umsóknareyðublöðum sem
'ást ásamt leiðbeiningarblaði hjá atvinnuþróunarfé-
lögum og Byggðastofnun. Atvinnuþróunarfélögin
veita aðstoð við gerð umsókna.
• Með umsókn skulu fylgja viðeigandi gögn svo sem
greinargerð, kostnaðar- og fjármögnunaráætlun og
upplýsingar um fjárhagsstöðu umsækjanda eftir því
sem við á. Vel undirbúnir umsóknir eiga frekar mögu-
leika á að fá úthlutun.
• Umsóknarfrestur er til 10. apríl 1999 og úthlutun
verður fyrir maílok.
• Umsóknum skal skilað til Byggðastofnunar, Engja-
teigi 3, 105 Reykjavík.
Byggðastofnun
Engjategi 3 • 105 Reykjavík* stmi 560 5400« Bréfsími 560 5499
Menntamálaráðuneytið
Endurmenntunarsjóður
grunnskóla
Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð
grunnskóla 1999. Sjóðurinn er í vörslu
menntamálaráðuneytisins og sér þriggja manna stjórn um
að meta umsóknir og gera tillögur til menntamálaráðherra
um styrkveitingar. Til úthlutunar að þessu sinni eru 18
milljónir króna. Þar af eru 4 milljónir ætlaðar sérstaklega til
endurmenntunar á sviði upplýsingatækni í grunnskólum.
Um framlög úr sjóðnum geta þeir sótt sem hyggjast
standa fyrir endurmenntun fyrir grunnskólakennara á árinu
1999 t.d. kennaramenntunarstofnanir, skólaskrifstofur,
sveitarfélög, skólar, félög og fyrirtæki.
Þær umsóknir einar koma til mats sem sýna að byggt sé á
• að endurmenntunartilboð mæti þörfum grunnskólans
• skólastefnu og aðalnámskrá
• að sveitarfélögum og skólum sé ekki mismunað
• fagmennsku og gæðum
Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds kennara sem
njóta endurmenntunarinnar. í umsóknum skal gefa ítarlegar
upplýsingar um hvers konar endurmenntunartilboð
umsækjandi hyggst bjóða fram, m.a. markmið námsins,
stað og tíma, áætlaðan fjölda þátttakenda, skipulag
kennslu, stjórnun, ábyrgðarmann og annað það sem máli
kann að skipta við mat á umsókn. Einnig skal leggja fram
sundurliðaða kostnaðaráætlun. Þegar fyrir liggur ákvörðun
um hverjir fá styrk, verður gerður sérstakur samningur um
hvert endurmenntunarverkefni þar sem fram kemur m.a.
lýsing á markmiðum og fyrirhugaðri framkvæmd og
hvernig greiðslum verður háttað.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, eigi síðar en 9. apríl 1999.
Menntamálaráðuneytið, 8. mars 1999.
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til háskólanáms og rann-
sókna í Rússlandi.
Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram tíu styrki handa íslend-
ingum til grunnnáms í háskóla og þrjá til framhaldsnáms
og/eða rannsókna í Rússlandi á námsárinu 1999-2000.
Umsækjendur um styrki til grunnnáms skulu að öðru
jöfnu vera yngri en 27 ára og umsækjendur um styrk til
framhaidsnáms og/eða rannsókna skulu vera yngri en
35 ára og hafa lokið MA- eða MS-prófi. Fyrrnefndu
styrkirnir nema 83,49 rúblum á mánuði (u.þ.b. 250 ísl.
kr.) en þeir síðarnefndu 417,45 rúblum á mánuði (u.þ.b.
1.300 ísl. kr.). Að auki verður styrkþegum séð fyrir her-
bergi á stúdentagarði, sem þeir greiða fyrir sömu leigu
og rússneskir námsmenn. Styrkþegar greiða sjálfir allan
ferðakostnað.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Um-
sóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmæl-
um og læknisvottorði.
Umsóknarfrestur er til 9. apríl nk.
Menntamálaráðuneytið, 11. mars 1999.
www.mrn.stjr.is
Menntamálaráðuneytið
Styrkur til háskólanáms á Ítalíu.
(tölsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa (slendingum til
háskólanáms á Ítalíu námsárið 1999-2000. Styrkurinn
er einkum ætlaður til framhaldsnáms eða rannsókna
við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við lista-
háskóla. Styrkfjárhæðin nemur 1.500.000 lírum á
mánuði.
Umsóknum um styrkinn, ásamt staðfestum afritum
prófskírteina og meðmælum, skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
9. apríl nk. á sérstökum umsóknareyðublöðum sem
þar fást.
Menntamálaráðuneytið, 11. mars 1999.
www.mrn.stjr.is
I
UTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavik er óskað eftir tilboði í
gerð 30 km hverfa. Verkið felst i afmörkun 6 hverfa og eru þau
staðsett á ýmsum stöðum í borginni vestan Reykjanesbrautar.
Verkið nefnist: ,„30 km Hverfi 1999“.
Helstu magntölur:
Stein-og hellulagðir fletir 2.500 m2
Steyptir fletir 600 m?
Malbikaðir fletir 300 m2
Pipulögn 150 mm ST 250 m
Síðasti skiladagur í verkinu er 15. október 1999.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá þriðjud. 16 mars nk.,
gegn 10.000 krskilatr.
Opnun tilboða: 31. mars 1999 kl. 11:00 á sama stað.Stgat
29/9
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur, Gatnamálastjóra og Lands-
síma íslands er óskað eftir tilboði í verkið: „Endurnýjun
gangstétta og veitukerfa 2. áfangi 1999, Hagar"
Endurnýja skal dreifikerfi hitaveitu, rafveitu og síma og gang-
stéttir í Högunum.
Helstu magntölur:
Skurðlengd 4.800 m
Lengd hitaveitulagna í plastkápu 6.600 m
Lengd plaströra 3.000 m
Lengd símastrengja 23.000 m
Lengd rafstrengja 4.000 m
Malbikun 1.300 m2
Steyptar stéttar 3.300 m2
Hellulögn 2.000 mJ
Pökulögn 1.000 m2
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá miðvikud. 17. mars nk.
gegn 15.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: 24. mars 1999 kl. 15:00 á sama stað. ovr 30/9
F.h. Byggingadeildar borgarverkfraeðings er óskað eftir til-
boðum í jarðvinnu vegna Borgarskóla.
Helstu magntölur:
Uppúrtekt 14.000 ms
Fylling 10.000 ms
Fleygun klappar 1.500 ms
Skilatími verks: 15. maí 1999.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Opnun tilboða: 25. mars 1999, kl. 15:30 á sama stað. bgd
31/9
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í 12 kV
háspennustreng. Áætlað magn er 30.000 m. Útboðið er aug-
lýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar.
Opnun tilboða: 29. apríl 1999, kl. 14:00 á sama stað.ovr 32/9
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í 1 kV
lágspennustreng. Áætlað magn er 100.000 m. Útboðið er
auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar.
Opnun tilboða: 29. apríl 1999, kl. 15:00 á sama stað. ovr 33/9
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800
Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang:
www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079
j
t
-i
N A M S K E I Ð
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Sprenginámskeið
Dagana 6.-10. apríl 1999 verður haldið
námskeið í meðferð sprengiefna ef næg
þátttaka fæst. Námskeiðið er ætlað þeim
sem öðlast vilja réttindi til að fara með
sprengiefni og annast sprengivinnu sam-
kvæmt reglugerð nr. 497/1996 um sprengi-
efni.
Námskeiðsgjald er kr. 37.000,- sem greið-
ast skal fyrir upphaf námskeiðsins.
Námskeiðið verður haldið í húsnæði Vinnu-
eftirlits ríkisins að Bíldshöfða 16, Reykjavík.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Vinnu-
eftirliti ríkisins, Bíldshöfða 16, Reykjavík,
sími 567 2500, fax 567 4086.